50 milljónir gegn glæpastarfsemi 25. maí 2012 05:00 björgvin g. sigurðsson
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis beinir þeim tilmælum til innanríkisráðherra að undirbúa aðgerðaáætlun gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Þá vill nefndin að 50 milljónir fari á fjáraukalög í heimild fyrir lögreglu til að starfrækja sérstakt rannsóknar- og aðgerðateymi gegn skipulagðri glæpastarfsemi og mansali. Björgvin G. Sigurðsson, formaður nefndarinnar, segir að slíkt teymi hafi gefið góða raun og vilji standi til að halda því áfram. Hann segir tillögur nefndarinnar í góðu samræmi við óskir löggæsluyfirvalda í þessum efnum. „Þetta er líka yfirlýsing um að við tökum þessi mál alvarlega.“ Nefndin lagði tillöguna fram í mars og hefur nú afgreitt hana til annarrar umræðu, en allir nefndarmenn standa að henni. „Þetta var afgreitt hratt og vel og í mikilli samstöðu og er ástæða til að fagna því, sérstaklega af því að það er mjög mikilvægt að lögreglunni séu áfram tryggðar fjárheimildir og aðstaða til að vinna kerfisbundið gegn uppgangi skipulagðrar glæpastarfsemi. Hennar gætir víða í samfélaginu eins og við sjáum meðal annars í alvarlegum atburðum innan fangelsa landsins sem utan,“ sagði Björgvin á þingi í gær.- kóp
Mest lesið Sagði frá fyrirætlunum sínum í SMS-i fyrir morðið Erlent „Þetta var vissulega ekki í starfslýsingunni“ Innlent „Ég mun ekki sjá eftir honum“ Innlent Bandaríkin lýstu yfir fullum stuðningi við fyrirætlanir Ísraelsstjórnar Erlent Ísland ekki óhult ef til átaka kemur í Evrópu Innlent Drápu þrjá í annarri árás á meinta smyglara Erlent Hefur ekki áhyggjur af svindli með nýju námsmati Innlent Þrjú innbrot og alltaf fúlsað við verkunum: „Þetta er kannski smá yfirlýsing“ Innlent Kallar eftir náðun Kouranis og brottvísun strax á morgun Innlent Íslendingur dæmdur í þrettán ára fangelsi í Rússlandi Erlent Fleiri fréttir „Þetta var vissulega ekki í starfslýsingunni“ Hefur ekki áhyggjur af svindli með nýju námsmati Þrjú innbrot og alltaf fúlsað við verkunum: „Þetta er kannski smá yfirlýsing“ Ísland ekki óhult ef til átaka kemur í Evrópu „Ég mun ekki sjá eftir honum“ Fjöldi glæpahópa á Íslandi hefur tvöfaldast á tíu árum „Ekki algengt að svona lekar verði“ Stóraukning skipulagðrar glæpastarfsemi og innbrotahrina hjá listamanni Flugvél með fjórum innanborðs fór út af flugbraut Kallar eftir náðun Kouranis og brottvísun strax á morgun Tiltekt ríkisstjórnar eins og að taka sokk af gólfi unglings Ingvar aftur kominn í leyfi frá þingstörfum Oddvitarnir ætla sér stóra hluti eftir átta mánuði Loka fyrir heitt vatn vegna leka á Bústaðavegi Tvíburarnir fengu ár í viðbót Hlaut náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Vara við svikapóstum um ólöglegar klámsíður og reikninga frá raforkusölum Baráttunni lauk með íslenskum ríkisborgararétti Er með hugmynd að nafni sem gæti vel gengið Bein útsending: Umhverfisþing 2025 Hells Angels á Íslandi hafi aukið umsvif sín og sýnileika Losnar fyrr og fær ekki að koma aftur í 30 ár Komið gott af borgarmálum og meirihlutaslit hafi engin áhrif Töldu nauðsynlegt að taka fast á Hells Angels og Kourani fær endurkomubann Ætlar sér formennsku hjá ungum Sjálfstæðismönnum Úr inniskónum og yfir í hringiðu heimsmálanna Þórdís Lóa ætlar ekki fram Ölvaðir og í annarlegu ástandi Farmur flugvélaeldsneytis hafi ekki uppfyllt gæðastaðla Þjófur fúlsaði við málverkunum en tók nóg af bjór Sjá meira