Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stúlkan fundin Ester Björg Ragnarsdóttir er komin fram en Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir henni um helgina. Hún fór frá heimili sínu í Breiðholti á Skírdag. 10.4.2012 21:55
Framleiðsla á neftóbaki aukist um 15 tonn á örfáum árum "Til þess að setja þetta í eitthvað samhengi, þá er framleiðsla ÁTVR orðin 30 tonn af neftóbakinu, en árið 2006 voru þetta 15 tonn,“ segir Viðar Jensson, sem fyrir tóbaksvarnarmálum hjá Landlæknaembættinu, í viðtali í Reykjavík síðdegis í dag. 10.4.2012 21:30
Segir norskar verslanir borga með íslenska lambakjötinu "Ég held að verslanir noti lambakjötið til þess að lokka viðskiptavini til sín, og ég er stoltur af því að íslenska lambakjötið sé nýtt til þess, en lága verðið skýrist af því að verslanirnar sjálfar eru að greiða þetta niður,“ segir Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna í samtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag þegar hann er spurður út í lágt verð á íslensku lambakjöti út í Noregi. 10.4.2012 21:00
Virkjanalónin að fyllast og vorleysingarnar eftir Vatnsbúskapur Landsvirkjunar er með besta móti þessa dagana og eru flest virkjanalón á góðri leið með að fyllast, þrátt fyrir að vorleysingar séu ekki enn hafnar á hálendinu. Þetta á við um öll miðlunarlónin, að sögn Guðmundar Björnssonar hjá Landsvirkjun, og nefnir hann sem dæmi að Hálslón standi nú 20 metrum hærra en á sama tíma í fyrra. 10.4.2012 20:30
Þjóðverjar gistu í tjöldum í Bolungarvík - snjóskaflar allt í kring "Hér er hlýtt og gott að vera,“ segir meðlimur í þýskum skíðaklúbbi sem skreið uppúr svefnpoka á tjaldstæðinu í Bolungarvík í morgun. 10.4.2012 20:00
Innreið erlendra fyrirtækja á íslenskan markað gott fyrir neytendur Innreið erlendra fyrirtækja inn í íslenskt atvinnulíf myndi hafa góð áhrif fyrir neytendur og efla samkeppni, segir formaður Neytendasamtakanna. Erlend fyrirtæki eru hægt og bítandi að seilast inn á íslenskan markað. 10.4.2012 19:30
Glæfraakstur afbrigðileg hegðun Ökumenn sem stunda glæfraakstur úti á Granda senda sms-skeyti sín á milli til að láta vita ef lögreglan nálgast. Samgöngustjóri Reykjavíkur segir það hingað til ekki hafa komið til tals að borgin setji upp eftirlitsmyndavélar á svæðinu. 10.4.2012 19:00
Santorum dregur framboð sitt til baka Rick Santorum, helsti keppinautur Mitt Romney um útnefningu sem forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum, hefur ákveðið að draga framboð sitt til baka. Þessu greindu Bandarískir fjölmiðlar frá fyrir stundu. Ástæðan mun vera alvarleg veikindi þriggja ára dóttur hans. 10.4.2012 18:48
Segir skattgreiðendur niðurgreiða útflutt lambakjöt fyrir milljónir Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiða lambakjöt til útlanda fyrir mörg hundruð milljónir á hverju ári. Þetta segir prófessor í Hagfræði. Útflutningur á lambakjöti hefur nærri tvöfaldast frá bankahruni. 10.4.2012 18:34
Segir forsetaframboð úr smiðju 365 miðla og RÚV Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi og athafnamaður, skoraði á fjölmiðla að veita nú öllum forsetaframboðum jafnan aðgang til að kynna sín stefnumál á blaðamannafundi sem hann hélt á heimili sínu í dag. Þar gagnrýndi hann fjölmiðla harðlega fyrir ójafna umfjöllun um forsetaframbjóðendur. Nefnir hann Fréttablaðið sérstaklega í þessum samhengi. 10.4.2012 17:27
Þóttist vera starfsmaður Microsoft Karlmaður hringdi í hjón hér á landi í gærkvöld og kynnti sig sem starfsmann Microsoft í Bretlandi. Hann sagði að einhver villa hefði komið upp sem þau þyrftu að bregðast við og bað fólkið um að setjast við tölvu sína og kveikja á henni. Fólkinu fannst maðurinn eitthvað grunsamlegur og svo reyndist vera. 10.4.2012 16:00
Flugstjóri í stríði við kerfið Þórir Brynjúlfsson er hvorki barnmargur fjölskyldufaðir né á flæðiskeri staddur. Hann er vel stæður flugstjóri hjá Icelandair. Fjárfesti í ýmsu fyrir hrun. Flýgur Boeing 757 í vinnunni en í frítímanum keyrir hann um á dýrindis Range Rover sport jeppa. Sem hann keypti að hluta á bílaláni. 10.4.2012 15:54
Virðast ráðast á hvaða hunda sem er Husky hundarnir virðast ráðast á hvaða hunda sem er, óháð tegund eða kyni, segir Sigrún Guðlaugardóttir, eigandi labradors sem varð fyrir árás hundanna fyrir um ári síðan. Vinkona Sigrúnar var með labradorinn á göngu á Geirsnefi þegar husky hundarnir réðust á hann. Hann slapp án varanlegra meiðsla, þótt það hafi blætt úr honum á tveimur stöðum. "Hann hefur aldrei verið árásargjarn og aldrei tekið á móti og það var honum til happs,“ segir Sigrún. 10.4.2012 13:48
Kidman leikur Grace Kelly Stórleikkonan Nicole Kidman mun leika í nýrri mynd um Óskarsverðlaunaleikkonuna Grace Kelly, sem siðar varð prinsessan af Mónako. Myndin mun bera titilinn Grace of Mónako og fjalla um sex mánaða tímabil í lífi hennar á árinu 1962, þegar Charles de Gaulle og Rainier III fursti stóðu í deilum um Mónako. 10.4.2012 15:39
Þóra stofnar kosningasjóð Stofnaður hefur verið kosningasjóður fyrir framboð Þóru Arnórsdóttur til embættis forseta Íslands. Í færslu á Facebook segir Þóra að farið verði eftir öllum lögum og reglum um söfnun af þessu tagi. 10.4.2012 12:52
Íslenskt lambakjöt ódýrara í Noregi en hér á landi Íslenskt lambakjöt er ódýrara í verslunum í Noregi en hér á landi. Þetta segir íslendingur búsettur í Noregi sem þakkar íslenskum skattgreiðendum sérstaklega fyrir að niðurgreiða kjötið. 10.4.2012 12:36
Árni Páll: Gjaldeyrishöft eru hörmuleg Gjaldeyrishöft eru hörmuleg, það sést skýrar með hverjum degi sem líður. Enginn stjórnmálaflokkur hefur sérstaka skýra sýn um lausn á þeim vanda sem gjaldeyrishöftin skapa. Þetta segir fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra. 10.4.2012 11:51
Kynferðisbrot kært á Ísafirði Kona hefur kært kynferðisbrot til lögreglunnar á Ísafirði, en tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður fór fram þar í bæ núna um páskana. Lögreglan staðfestir að brotið hafi verið kært að morgni páskadags. Málið mun nú vera í rannsókn. Töluverður fjöldi var samankominn á hátíðinni um helgina og var mikill fjöldi fólks sem streymdi frá Ísafirði í gær og í morgun. 10.4.2012 11:47
Kate Winslet kom við á Íslandi Stórleikkonan Kate Winslet var á Íslandi í nokkra daga í síðustu viku, samkvæmt heimildum Vísis. Winslet hefur verið í miklum samskiptum við Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndagerðamann og Margréti Dagmar Ericsdóttur eftir að leikkonan var fengin til þess að tala inn á myndina Sólskinsdrengur sem fjallar um Kela, dreng með einhverfu. 10.4.2012 10:30
Nítján undir áhrifum fíkniefna Um páskana voru nítján ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Sextán þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi, Hafnarfirði og Garðabæ. 10.4.2012 17:40
Sextán stútar teknir um páskana Sextán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um páskana samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. 10.4.2012 17:37
Vilja útskýringar á útreikningunum Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í atvinnuveganefnd vilja að útreikningar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins á áhrifum fyrirhugaðs veiðigjalds verði lagðir fram í nefndinni og útskýrðir. Þá vilja þeir einnig að Huginn Þorsteinsson, aðstoðarmaður ráðherra, verði kallaður á fund nefndarinnar til að útskýra ummæli sem hann viðhafði í aðsendri grein í Fréttablaðinu um niðurstöður endurskoðunarfyrirtækisins Deolitte á áhrifum veiðigjaldsins. 10.4.2012 14:24
Breivik ánægður með að vera metinn sakhæfur Geir Lippestad, verjandi norska fjöldamorðingjans Anders Behring Breivik, segir að umbjóðandi sinn sé afar ánægður með nýtt geðmat þar sem segir að hann sé sakhæfur. Hann hafi margoft haldið því fram sjálfur að hann sé heill á geði og því sé honum létt með nýja matið, en í fyrra geðmatinu sem hann gekkst undir var það álit lækna að hann væri geðveikur og því ósakhæfur. 10.4.2012 13:36
Vilja að neytendur fái auglýstan nethraða Nýjar reglur Evrópusambandsins (ESB) um gæði internetþjónustu, sem til stendur að setja í haust, munu koma í veg fyrir að íslensk fjarskiptafyrirtæki geti auglýst að neytendur fái tengihraða allt að ákveðnu hámarki nema fyrirtækin uppfylli ströng skilyrði um að þjónustan standist þau loforð. 10.4.2012 13:00
Nota neftóbak í vör: Æ fleiri drengir með illa farið tannhold „Ungu strákarnir eru margir að nota íslenskt neftóbak í vörina. Það er efni sem við vitum ekki neitt um, en til að mynda hefur sænska munntóbakið verið rannsakað í þaula. Áhrif þessa íslenska tóbaks eru hins vegar alveg óskrifað blað,“ segir Gunnlaugur Rósarsson tannholdssérfræðingur. Hann telur það afar varhugaverða þróun að aukning á sölu tóbaks skuli vera mikil á meðal ungra karlmanna sem taki neftóbak í vörina. 10.4.2012 11:30
Þróa ætti miðstöð doktorsnáms í HÍ Þróa ætti miðstöð doktorsnáms hér á landi þar sem allir háskólar, rannsóknarstofnanir og rannsóknafyrirtæki gætu sameinað krafta sína. Hægt væri að byggja slíka miðstöð á grunni miðstöðvar framhaldsnáms sem nú þegar er fyrir hendi í Háskóla Íslands. 10.4.2012 11:00
Fréttaskýring: Margslungið ferli í aðildarviðræðunum Á ríkjaráðstefnu Íslands og Evrópusambandsins (ESB) síðastliðinn föstudag voru fjórir samningskaflar í aðildarviðræðunum opnaðir og tveimur þeirra lokað umsvifalaust. Þannig hafa fimmtán kaflar verið opnaðir og tíu þegar verið lokað. Hvert er hins vegar ferlið á bak við opnun og lokun kaflanna og hvað ræður því hvenær og í hvaða röð þeir eru opnaðir? 10.4.2012 11:00
Kattardráp í Grafarvogi: Eigandi læðunnar gagnrýnir yfirvöld Eigandi læðunnar sem Husky hundar drápu í Grafarvogi fyrir páska gagnrýnir það sem hann kallar sinnuleysi yfirvalda í málinu og segir hann óeðlilegt að eigandi hundanna skuli hafa fengið þá aftur í sína umsjá eftir atvikið. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Vilhelm Jónsson, eigandi læðunnar, sem hét Lóló, sendir frá sér í dag. 10.4.2012 10:33
Söfnun UNICEF til handa börnum á Sahel-svæðinu í Mið- og Vestur-Afríku fer vel af stað: Íslendingar hafa brugðist vel við neyðarkalli „Söfnunin gengur vonum framar. Íslendingar hafa brugðist mjög vel við ákalli okkar og við erum mjög þakklát fyrir það,” segir Sigríður Víðis Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi UNICEF á Íslandi, um viðbrögð við neyðarkalli samtakanna. UNICEF hófu söfnun um allan heim 3. apríl síðastliðinn og verður söfnunarfénu varið til að hjálpa börnum í Vestur- og Mið-Afríku. 10.4.2012 10:30
Ruiz fótbrotinn | Tímabilið búið Bryan Ruiz, sóknarmaður Fulham, spilar ekki meira með liðinu á tímabilinu þar sem hann fótbrotnaði í 3-0 sigri liðsins á Bolton. 10.4.2012 10:28
Skipstjórinn segist ekki hafa vitað af banninu Skipstjórinn á norska línubátnum, sem staðinn var að meintum ólöglegum veiðum suður af landinu í gærmorgun og kom til hafnar í Vestmannaeyjum um miðnætti, að skipun Landhelgisgæslunnar, segist ekki hafa vitað að hann væri að veiða í hólfi, þar sem bannað væri að veiða með línu. 10.4.2012 10:08
Segja að Breivik sé sakhæfur Anders Behring Breivik, fjöldamorðingi í Noregi, er sakhæfur samkvæmt niðurstöðum nýrrar geðrannsóknar. Nýja geðrannsóknin er unnin af læknunum Agnar Aspaas og Terje Törrissen. Skýrslan hefur ekki enn verið gerð opinber en norskir fjölmiðlar fullyrða að hann sé sakhæfur samkvæmt nýja matinu. 10.4.2012 10:08
Dregur úr glæpum en morðum á lögreglumönnum fjölgar mikið Ný bandarísk skýrsla leiðir í ljós að dregið hefur úr ofbeldisglæpum í landinu síðustu ár. Hinsvegar fjölgar morðum á lögreglumönnum mikið. Skýrslan er gerð af bandarísku alríkislögreglunni og þar kemur fram að 72 lögreglumenn hafi verið drepnir við skyldustörf árið 2011, sem er 25 prósenta aukning frá árinu á undan. 10.4.2012 10:04
Nýtt ráðuneyti í ár og kvótamál kláruð Öll eða velflest stóru málin sem ríkisstjórnin ætlar sér að koma í framkvæmd á kjörtímabilinu eru komin fram á Alþingi. Þetta segir Steingrímur J. Sigfússon sem segir næsta þing munu litast af því að kosningar verði í nánd. 10.4.2012 09:30
Lögregla getur borið refsiábyrgð Persónuvernd beinir þeim tilmælum til Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að gæta varúðar við meðferð persónuupplýsinga eftir að myndir og nafn fórnarlambs árásar voru birt á í sjónvarpsþætti á fréttavefnum mbl.is. Stofnunin minnir lögreglu á að refsiábyrgð geti legið við brotum á lögum um persónuvernd. 10.4.2012 09:00
Má framselja Abu Hamza til Bandaríkjanna Mannréttindadómstóll Evrópu í Strasbourg úrskurðaði í morgun að öfgapredikarann Abu Hamza megi framselja til Bandaríkjanna þar sem hann hefur verið kærður fyrir að standa að hryðjyuverkum. Dómstóllinn úrskurðaði á sama veg hvað varðar fjóra aðra grunaða hryðjuverkamenn sem hafa verið í haldi í Evrópu. Abu Hamza var á sínum tíma dæmdur í sjö ára fangelsi í Bretlandi fyrir að hvetja til hryðjuverka og nú vilja Bandaríkjamenn ná í hann fyrir svipaðar sakir. 10.4.2012 08:56
Breyta flugáætlunum vegna eldflaugarskots Þrjú flugfélög í Asíu, tvö frá Japan og eitt frá Filippseyjum hafa ákveðið að breyta flugleiðum sínum til þess að koma í veg fyrir að vélar þeirra eigi á hættu að verða fyrir Norður Kóreskri eldflaug sem stendur til að skjóta á loft einhvern tíma í þessari viku. 10.4.2012 08:45
Mannskæð árás í Afganistan Að minnsta kosti níu eru látnir og tuttugu særðir í Herat héraði í Afganistan í morgun þar sem sjálfsmorðsárás var gerð á stjórnsýslubyggingu. Mikill fjöldi fólks var þar saman kominn til þess að fá viðtal við stjórnmálamenn svæðisins og greina fregnir sjónarvotta frá því að tveir árásarmenn hafi ekið upp að byggingunni á jeppum sem þeir hafi síðan sprengt í loft upp. 10.4.2012 08:30
Norska línuveiðiskipið komið til Eyja Lögreglumenn og tollvörður biðu á bryggjunni í Vestmannaeyjum um miðnætti, þegar norska línuveiðiskipið, sem staðið var að meintum ólöglegum veiðum í Skeiðarárdýpi í gærmorgun, lagðist þar að bryggju að skipan áhafnar þyrlunnar, sem stóð skipð að verki. 10.4.2012 08:28
Herjólfur í Landeyjahöfn Herjólfur siglir þrjár ferðir á milli Eyja og Landeyjahafnar í dag, annan daginn í röð. Þó eru sgilingarnar háðar sjávarföllum þar sem ekki er enn nægilegt dýpi í og við höfnina til að fara þar um á fjöru, en unnið er að dýpkun, en upplýsingar um það má sjá á heimasíðu Herjólfs. 10.4.2012 08:23
Aukaferðir til Ísafjarðar í dag Hátt í 200 manns bíða enn flugfars frá Ísafirði til Reykjavíkur, eftir að Flugfélag Íslands gat ekki farið nema þrjár ferðir af sjö fyfirhuguðum í gær vegna óveðurs vestra. 10.4.2012 07:07
Tvö flugmóðurskip á Persaflóa Yfirmenn bandaríska flotans staðfestu í gær að þeir hefðu sent bandaríska flugmóðurskipið Enterprise á Persaflóa. Þar var fyrir annað flugmóðurskip, og þykir víst að hernaðaruppbyggingin tengist kjarnorkuáætlun Íran. 10.4.2012 05:30
Lítil von talin á vopnahléi í dag Gærdagurinn var einn sá blóðugasti í langan tíma í Sýrlandi, þrátt fyrir að stefnt hafi verið að því að vopnahlé hæfist þar í dag. Aðgerðasinnar segja að í það minnsta 100 manns hafi látið þar lífið í gær. 10.4.2012 05:00
Aukning koltvísýrings olli endalokum ísaldar Ný rannsókn þykir sýna að aukið magn koltvísýrings í andrúmsloftinu hafi valdið endalokum síðustu ísaldar. Aukning koltvísýrings í andrúmsloftinu síðustu hundrað ár er svipuð og aukningin sem batt enda á ísöldina. 10.4.2012 03:00
Frídagarnir milljarða virði Þjóðarframleiðsla í Bretlandi myndi aukast um nítján milljarða punda á ári ef lögbundnir frídagar yrðu afnumdir. Það jafngildir um 3.800 milljörðum íslenskra króna. 10.4.2012 02:00