Innlent

Flugstjóri í stríði við kerfið

Þórir Brynjúlfsson er hvorki barnmargur fjölskyldufaðir né á flæðiskeri staddur.

Hann er vel stæður flugstjóri hjá Icelandair. Fjárfesti í ýmsu fyrir hrun. Flýgur Boeing 757 í vinnunni en í frítímanum keyrir hann um á dýrindis Range Rover sport jeppa. Sem hann keypti að hluta á bílaláni.

Þegar hulunni var svipt af því sem gekk hér á fyrir hrun blöskraði honum framkoma bankanna og með réttlætiskennd sína eina að vopni ákvað hann að fara í eins manns stríð við kerfið.

Fylgst verður með baráttu flugstjórans, innan og utan réttarsala, í Íslandi í dag í kvöld. Ísland í dag er í opinni dagskrá á Stöð 2 og hér á Vísi klukkan 18.55.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×