Fleiri fréttir

Klúbbar kæra nýjan golfvöll í Grímsnesi

Golfklúbbar kæra Grímsnes- og Grafningshrepp til innanríkisráðuneytisins vegna byggingar sveitarfélagsins á golfvelli við Minni-Borg. Oddvitinn segir engan hafa einkarétt á golfvöllum. Sveitarfélagið muni ekki sjálft reka völlinn.

Innrita nemendur án samþykkis ráðuneytis

Byrjað er að innrita nýja nemendur í Menntaskólann Hraðbraut þrátt fyrir að námið sé ekki samþykkt af menntamálaráðuneyti. Óvíst er um upphæð námsgjalda og jöfnunarstyrki. Ráðuneytinu hafa borist fyrirspurnir frá foreldrum.

Hætt við niðurskurð á fé

Hætt hefur verið við að skera niður allt sauðfé á bænum Merki á Jökuldal. Riða greindist í einu heilasýni úr kind þaðan sem slátrað var á Vopnafirði í haust.

Greiðir út rúma 100 milljarða

Slitastjórn Glitnis greiðir í dag forgangskröfuhöfum jafngildi 105,6 milljarða króna. Greiðslurnar verða í myntkörfu sem styðst við gengi krónunnar hinn 22. apríl 2009.

Gengisdómur kostaði Arion 13,8 milljarða

Arion banki birti fyrstur allra áætlað tap sitt vegna gengislánadóms. Tapið byggir á einum af fjórum sviðsmyndum FME. Útlán bankans jukust mikið vegna kaupa á lánasafni þrotabús Kaupþings. Farinn að huga að lánshæfiseinkunn.

Ekki má fara of geyst í lánveitingar

Húsnæðisverð á Íslandi er líklegt til að hækka um samanlagt 16% á næstu tveimur árum. Að teknu tilliti til verðbólguspár jafngildir það um 8,5% hækkun að raunvirði. Þetta er mat greiningar Íslandsbanka sem birt hefur spá um þróun íbúðaverðs.

Fjórir kostir í boði í gjaldmiðilsmálum

Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra segir ekkert standa í vegi fyrir því að Ísland uppfylli Maastricht-skilyrði evrusamstarfsins á næsta kjörtímabili. Lang farsælast sé fyrir Ísland að stefna að inngöngu í ESB og upptöku evru. Oddný var meðal ræðumanna á Iðnþingi Samtaka iðnaðarins í gær.

Milljarða ára saga tunglsins á þremur mínútum

Geimferðastofnun Bandaríkjanna hefur birt myndband sem sýnir þróun tunglsins síðustu 4.5 milljarða ára. Þrátt fyrir að yfirborð tunglsins sé okkur kunnugt og ferðalag þess fyrirsjáanlegt þá einkennist saga þess af ringulreiði.

Konungsslanga í klósettskálinni

New York-búinn Allen Shepard varð fyrir miður skemmtilegri lífsreynslu þegar 1.3 metra löng slanga skreið upp úr klósettinu hans.

Rýnt í vinsældir Of Monsters and Men

Íslenskur námsmaður í Chicago í Bandaríkjunum hefur birt afar áhugaverða glærukynningu um hljómsveitina Of Monsters and Men. Í kynningunni fjallar hann um þær ástæður sem liggja að baki vinsældum hljómsveitarinnar og varpar hún ljósi á mikilvægt samspil internetsins og lukku.

"Skipulögð glæpastarfssemi er ekkert náttúrulögmál"

"Þessi þróun er grafalvarleg,“ sagði Jóhann Benediktsson, fyrrverandi lögreglustjóri. Jóhann var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis í dag. Hann gaf álit sitt á þróun skipulagðrar glæpastarfsemi hér á landi.

Lögreglan í Noregi biðst afsökunar

Talsmaður lögreglunnar í Noregi sagði í dag að viðbrögð lögregluyfirvalda hefðu verið silaleg þegar upp komst um skotárás Anders Behring Breivik í Útey.

Norsk herflugvél hvarf af ratsjá

Björgunarmenn leita nú að norskri Herkúlesar-herflugvél sem hvarf yfir Norður-Svíþjóð fyrr í dag. Fimm menn voru um borð í flugvélinni en hún tók þátt í heræfingu.

Rannsókn hafin á brunanum á Selfossi

Lögreglurannsókn er hafin á stórbrunanum á Selfossi í gær. Eldurinn fór þar í gegn um eldvegg sem settur var upp samkvæmt ráðleggingum Brunavarna Árnessýslu. Eigandi röraverksmiðjunnar Sets segist aldrei hafa verið óttasleginn.

Hægt að afnema höftin á þremur mánuðum

Gjaldeyrishöftin á að afnema á þremur mánuðum, eða eins fljótt og unnt er, þar sem kostnaður vegna þeirra eykst dag frá degi. Þetta sagði Jón Daníelsson prófessor á Iðnþingi í dag.

Komu allir að alvarlegum líkamsárásum vegna handrukkuna

Sex karlmenn voru úrskurðaðir í dag í vikulangt gæsluvarðhald vegna umfangsmikilar rannsóknar lögreglunnar á skipulagðri brotastarfsemi. Mennirnir koma að alvarlegum líkamsárásum vegna handrukkuna en eitt fórnarlambanna var fótbrotið á báðum fótum.

Lífsýni gegna lykilhlutverki í rannsókn sakamála

"Fleiri og fleiri sakamál leysast eingöngu á lífsýnum,“ sagði Björgvin Sigurðsson, sérfræðingur hjá tæknideild lögreglunnar, í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.

Sektaður fyrir brot gegn hvíldartíma ökumanna

Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjaness um að ökumaður vöruflutningabifreiðar hefði í þrígang brotið gegn reglum um aksturs- og hvíldartíma ökumanna. Ökumaðurinn bar fyrir sig að í öllum tilvikum hefði verið um að ræða akstur með fiskúrgang, sem honum hefði verið refsilaus.

Fjölskyldur á slysstað

Fjölskyldur tuttugu og tveggja barna sem fórust í rútuslysi í Sviss á þriðjudagskvöld fóru í morgun á slysstað í undigöngum hraðbrautar í Valais kantónunni þar sem rútan klessti á vegg á miklum hraða.

Málflutningi Sigríðar lokið

Sigríður Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis, segir augljóst að á ríkisstjórnarfundum hafi ekkert verið fjallað um stöðu bankanna eða þann vanda sem steðjaði að í aðdraganda bankahrunsins. Hún gagnrýndi þetta harðlega í málflutningi fyrir Landsdómi í dag.

Óskað eftir vitnum að slysi í Kópavogi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á gatnamótum Kársnesbrautar og Hábrautar í Kópavogi um hálf sjö leytið í gærkvöld. Þar rákust saman Nissan Micra og Daihatsu Move en bæði ökutækin eru rauð að lit. Að sögn lögreglu var annar ökumannanna fluttur á slysadeild til aðhlynningar og hinn leitaði þangað síðar. Miklar skemmdir urðu á bílunum eins og sést á meðfylgjandi mynd.

Stefnir í að skuldastaðan fari undir Maastricht skilyrðin

Oddný Harðardóttir iðnaðarráðherra segir ekkert standa í vegi fyrir því að skuldastaða hins opinbera verði komin undir Maastricht skilyrðin á næsta kjörtímabili, en skilyrðin segja til um hvort ríki geti tekið upp evru sem gjaldeyri. Þetta kom fram í ræðu ráðherrans á Iðnþingi í dag.

Bjóða upp á ókeypis aðstoð við skattframtalið

"Við erum bara rosalega spennt fyrir þessum degi og vonumst til að sjá sem flesta," segir Sigríður Marta Harðardóttir, framkvæmdastjóri Lögfræðiþjónustunnar Lögréttu í Háskólanum í Reykjavík.

Sigríður: Möguleiki á að selja eignir

Sigríður Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis, hafnar þeim skýringum að forsætisráðherra hafi ekki getað gert neitt til þess að beita sér fyrir því að bankarnir færu úr landi eða myndu minnka efnahagsreikning sinn á árinu 2008.

Landsdómsmálið: Álíka margir ánægðir og óánægðir

Álíka margir sögðust ánægðir og óánægðir með niðurstöðu Alþingis að vísa frá tillögu Bjarna Benediktssonar um að landsdómsákæra á hendur Geir H. Haarde yrði afturkölluð, í könnun sem Capacent Gallup gerði í byrjun mars.

Könnun Capacent: Flestir vilja Sigríði á biskupsstól

Flestir nefna séra Sigríði Guðmarsdóttur, frambjóðanda til embættis biskups, í könnun sem Capacent stóð fyrir og segir frá á heimasíðu sinni. 23 prósent þeirra sem þátt tóku nefndu Sigríði en skammt á eftir kemur Þórhallur Heimisson með 21 prósent atkvæða. Þar á eftir koma síðan Agnes M. Sigurðardóttir og Örn Bárður Jónsson en nær 12% nefndu hvort þeirra.

Pressustríðið heldur áfram: Kannast ekki við kröfu um afsökunarbeiðni

Steingrímur Sævarr Ólafsson segist ekki kannast við að nokkur hafi haft samband við Pressuna vegna fréttar um ritstjóra DV en Reynir Traustason sagði í viðtali við Vísi að lögmaður hans hefði farið fram á afsökunarbeiðni vegna málsins. Um er að ræða fyrirsögn sem birtist á Pressunni þar sem segir meðal annars að ritstjórarnir séu flæktir inn í meint kynferðisbrotamál. Fyrirsögnin sem um ræðir er eftirfarandi:

Hafði í hótunum við starfsfólk 365 - tveir til viðbótar í gæsluvarðhald

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar að leggja fram kröfu um gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum til viðbótar í tengslum við rannsókn á skipulagðri brotastarfsemi, en mennirnir voru handteknir í gær. Fjórir menn hafa þegar verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald, líkt og fram kom í tilkynningu lögreglunnar í morgun.

Ríkisstjórnin hamlar gegn endurreisn Íslands

Helgi Magnússon, fráfarandi formaður Samtaka Iðnaðarins sagði í ræðu sinni á Iðnþingi í dag að ríkisstjórn síðustu þriggja ára hefði hamlað gegn endurreisn Íslands með því að framfylgja rangri efnahagsstefnu sem einkennst hefði af úlfúð í garð atvinnulífsins og lamandi skattpíningarstefnu.

Pressustríð: Ritstjórar DV segja fyrirsögn Pressunnar ærumeiðandi

Ritstjórar DV hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttar sem birtist á Pressunni og er sögð vera ærumeiðandi. Vísir greindi frá málinu fyrr í dag en Reynir Traustason, annar ritstjóri DV, hefur krafið fréttavefinn um afsökunarbeiðni út af frétt sem vefurinn gerir upp úr grein Vilhjálms H. Vilhjálmssonar, lögmanns, þar sem hann gagnrýnir DV harðlega, en greinin birtist hér á Vísi í morgun. Fyrirsögnin sem um ræðir er:

Sigríður: Heill íslenska ríkisins var í hættu

Hættan sem vofði yfir Íslandi á árinu 2008 var fyrirfram sýnileg af manni í sporum forsætisráðherra, sagði Sigríður J. Friðjónsdóttir þegar hún hóf málflutning fyrir Landsdómi í dag.

Pressustríð: Reynir vill afsökunarbeiðni

"Lögmaður hefur haft samband við þá og búið er að fara fram á afsökunarbeiðni,“ segir Reynir Traustason, annar ritstjóri DV, en hann hefur krafið fréttavefinn Pressunni um afsökunarbeiðni út af frétt sem vefurinn gerir upp úr grein Vilhjálms H. Vilhjálmssonar, lögmanns, þar sem hann gagnrýnir DV harðlega en greinin birtist hér á Vísi.

Dæmdur fyrir að stela frá húsfélaginu sínu

Karlmaður var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt þegar hann sat sem gjaldkeri í fjölbýlishúsi í Breiðholti í Reykjavík. Maðurinn dró sér rúma milljón á tímabilinu 23. mars 2010 til 24. nóvember sama ár.

Ljótasti hundur í heimi dáinn

Smáhundurinn Yoda sem var kjörinn ljótasti hundur í heimi síðasta sumar er dáinn en hann dó í svefni á dögunum. Yoda varð 15 ára gamall en þegar eigandinn fann hann einan og yfirgefinn í húsasundi á tíunda áratugnum hélt hann að Yoda væri risavaxin rotta.

Saksóknari: Fráleitt að skýla sér á bakvið rit Seðlabankans

Það er fráleitt af Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, að skýla sér á bakvið rit Seðlabankans um fjármálastöðugleika árið 2008. Þetta sagði Sigríður Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis, í málflutningi sínum fyrir Landsdómi í dag. Stjórnmálamenn hafa ítrekað visað í það, bæði fyrir Landsdómi og áður, að Seðlabankinn hafi ekki varað formlega við hættum í aðdraganda hrunsins. Í umræddu riti Seðlabankans hafi komið fram að staða bankanna væru að mestu leyti í lagi.

Býður til viðræðna um þjóðarsátt um nýjan gjaldmiðil

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra býður öllum flokkum á Alþingi að setjast niður til viðræðna um þjóðarsátt um nýjan gjaldmiðil. Þetta kom fram á Alþingi nú laust fyrir hádegi. Ummæli forsætisráðherra á flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar um síðustu helgi, um að íslenskan krónan væri ónothæf, urðu framsóknarmönnum tilefni til umræðna en Birkir Jón Jónsson kvaðst fullyrða að hvergi kæmist forsætisráðherra upp með slík ummæli án þess að það hefði einhver eftirmál í för með sér.

Veitir heimildir til að tryggja dreift eignarhald á fjölmiðlum

Með nýju frumvarpi til breytinga á fjölmiðlalögum er Samkeppniseftirlitinu að undangenginni umsögn fjölmiðlanefndar veitt heimild til að breyta skipulagi fjölmiðla til að koma í veg fyrir aðstæður sem hafa skaðleg áhrif á fjölbreytni í fjölmiðlum og til að tryggja dreift eignarhald.

Sjá næstu 50 fréttir