Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Í hálfs árs fangelsi fyrir fíkniefni Þrítugur karlmaður hefur verð dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir að hafa verið tekinn með fíkniefni í fórum sínum í janúar í fyrra og í ágúst sama ár. Um óverulegt magn af fíkniefnum var að ræða og játaði sakborningur brot sitt fyrir dómi. Hann á aftur á móti langan afbrotaferli að baki og var á skilorði þegar fíkniefnin fundust í fórum hans. 15.3.2012 10:26
Rútan gjöreyðilagðist er hún skall á vegginn Alls fórust 28 manns, þar af 22 börn, þegar stórri farþegabifreið var ekið á vegg í umferðargöngum í svissnesku Ölpunum í fyrrakvöld. Farþegarnir voru á heimleið til Belgíu úr skíðaferðalagi. 15.3.2012 08:00
Gæfi sér fyrstu einkunn sjálfur Íranska þingið yfirheyrði í gær Mahmoud Ahmadinejad forseta vegna margvíslegra ásakana um spillingu, mistök í starfi og lítilsvirðingu sem hann á að hafa sýnt klerkastéttinni. 15.3.2012 08:00
Eins íbúa þorp selt á uppboði Fámennasta byggðarlag Bandaríkjanna, Buford í Wyoming-ríki, verður selt hæstbjóðanda í næsta mánuði. Eini íbúi Buford er Don Sammons, sem hefur rekið þar verslun í tuttugu ár. 15.3.2012 08:00
Tvær hópnauðganir af 18 kærðar í fyrra Lögreglunni bárust tvær kærur vegna hópnauðgana á síðasta ári. Búið að dæma í öðru málinu. 18 leituðu til Stígamóta vegna hópnauðgana. Ein möguleg ástæða fjölgunar mála hjá Stígamótum er aukin gengjamyndun, segir talskona. 15.3.2012 07:30
Bandarískum hermanni laumað út úr Afganistan Yfirstjórn NATO hefur greint frá því að bandaríski hermaðurinn sem myrti 16 óbreytta borgara í Afganistan hafi verið fluttur með leynd til Kuwait þar sem réttað verður yfir honum. 15.3.2012 07:20
Undirbúa flutning á líkum 22 barna heim til Belgíu Stjórnvöld í Belgíu eru nú að undirbúa flutning á líkum þeirra 22 barna og sex fullorðna sem fórust í rútuslysinu í Sviss í fyrrakvöld. 15.3.2012 07:18
Langar biðraðir á Kastrupflugvelli Langar biðraðir hafa myndast við öryggisgæsluna á Kastrupflugvelli í morgun. Ástæðan fyrir þessu er að öryggisverðir flugvallarins, sem eiga í kjarabaráttu, ákváðu að halda faglegan fund klukkan fimm í morgun að staðartíma og stendur hann enn. 15.3.2012 07:16
Assad fékk ráðgjöf frá Íran um baráttu gegn uppreisnarmönnum Breska blaðið The Guardian hefur komist yfir fjölda tölvupósta til og frá Bashir al-Assad Sýrlandsforseta, og Asma al-Assad eiginkonu hans. 15.3.2012 07:14
Fámennasta byggðalag Bandaríkjanna til sölu Eini íbúinn sem eftir er í fámennasta byggðalagi Bandaríkjanna, Buford í Wyoming, hefur ákveðið að selja staðinn. 15.3.2012 07:04
Slökkviliðið kallað út vegna reykbrælu í Hveragerði Slökkviliðið í Hveragerði var kallað að húsi við Kambahraun þar í bæ um þrjú leitið í nótt, vegna reykjarbrælu í húsinu. Hún reyndist eiga upptök í sambyggðri þvottavél og þurrkara þar sem glóð var í rafbúnaðinum, en eldur hafði þó ekki kviknað. Drepið var í glóðinni og húsið reykræst, og sakaði engan. 15.3.2012 07:00
Ótrúlegar tilviljanir við lífsbjörg í Laxá Sigurður S. Garðarsson komst lífs af eftir að bíll hans valt og endaði á hvolfi ofan í Laxá á Ásum. Slökkviliðsmaður sá bílveltuna og kom honum til hjálpar. Faðir hans kom síðar að á sjúkrabíl. Rosalega gott að sjá pabba, segir Sigurður. 15.3.2012 07:00
Talin hafa beitt konuna afar grófu ofbeldi Fjórir einstaklingar tengdir Hells Angels voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Á meðal þeirra er Einar Marteinsson, foringi samtakanna á Íslandi. Gæsluvarðhald var framlengt í fjórar vikur. Mikill viðbúnaður var í Héraðsdómi þegar úrskurðurinn var kveðinn upp. 15.3.2012 07:00
Sést hefur til álfta og anda Fjölmargar álftir eru nú komnar til landsins og hefur sést til lítilla hópa víðs vegar um landið. Á vefsíðunni Fuglar.is er greint frá því að sést hafi til 25 dugganda á Þveit í Nesjum, þar sem þær voru ásamt lómapari á vatninu sem er orðið íslaust. 15.3.2012 07:00
Vakt við brunarústirnar á Selfossi í nótt Lögregla og björgunarsveitarmenn stóðu vakt við brunarústirnar á Selfossi í nótt, eftir stórbrunann í plaströraverksmiðjunni Seti í gær. Slökkvistarfi lauk á áttunda tímanum í gærkvöldi og var ekkert til tíðinda í nótt. Rannsókn lögreglu og tryggingamanna hefst með birtingu, en eldsupptök eru enn óþekkt. 15.3.2012 06:57
Jarðskjálftahrina við Geirfuglasker Jarðskjálftahrina varð þrjá til fimm kílómetra norðvestur af Geirfuglaskeri í gærkvöldi og mældust fimm skjálftar yfir 2 stig á Richter og sá snarpasti 2,7 stig. 15.3.2012 06:52
Lögreglan krefst gæsluvarðhalds yfir fjórum mönnum Lögreglan ætlar að krefjast gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir fjórum karlmönnum, sem hún handtók í gærmorgun vegna rannsóknar, sem snýr að skipulagðri glæpastarfssemi, líkamsmeiðingum, hótunum, innbortum, peningaþvætti og þjófnuðum. 15.3.2012 06:46
Átak vegna sumarstarfa ungra Ráðist verður í sérstakt átak vegna sumarstarfa ungmenna í ár. Álíka verkefni var í gangi í fyrra þar sem velferðarráðuneytið og Vinnumálastofnun auglýstu 900 sumarstörf um allt land. Átakið á að fjölga störfum á vegum ríkisins og sveitarfélaga ætluðum námsmönnum og atvinnuleitendum. Vinnumálastofnun hefur nú þegar lagt inn umsókn til velferðarráðuneytisins vegna verkefnisins. 15.3.2012 06:00
Fæðingum fækkar milli ára Í fyrra fæddust 4.496 börn með lögheimili á Íslandi, að því er segir í frétt á vef Hagstofunnar. 15.3.2012 06:00
Algjör eyðilegging á Selfossi 800 Bar á Selfossi brann til kaldra kola í gær. Tjónið hleypur á hundruðum milljóna króna. Eldurinn kom upp í röraverksmiðjunni Seti og barst í nærliggjandi byggingar. Talið er að kviknað hafi í út frá rafmagni. 15.3.2012 05:30
Atvinnulausum fjölgaði lítillega Alls 11.621 einstaklingur var atvinnulaus í febrúar að meðtali. Jafngildir það 7,3% fólks á vinnumarkaði. Þetta kemur fram í tölum Vinnumálastofnunar um ástand á vinnumarkaði í febrúar. 15.3.2012 05:30
698 eignir Íbúðalánasjóðs auðar Íbúðalánasjóður átti þann 20. febrúar síðastliðinn alls 1.751 íbúð. Af þeim voru 804 íbúðir áður í eigu einstaklinga en 947 áður í eigu lögaðila. Alls eru 707 af íbúðunum í útleigu en 698 standa auðar. Þá eru 255 eignir óíbúðarhæfar og 91 eign nýkomin í eigu sjóðsins og því enn flokkuð sem í vinnslu. 15.3.2012 05:00
Úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald Fjórir karlmenn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 21. mars næstkomandi vegna rannsóknar, sem snýr að skipulagðri glæpastarfssemi, líkamsmeiðingum, hótunum, innbrotum, peningaþvætti og þjófnuðum. 15.3.2012 09:28
Móðir lamdi fíkniefnasala með hafnaboltakylfu Móðir í Missouri í Bandaríkjunum tók málin í sínar hendur þegar dópsali reyndi að selja syni hennar heróin. Hún lamdi sölumanninn með hafnaboltakylfu. 14.3.2012 22:48
Ber súrefnisgeymi eiganda síns hvert sem er Herra Gibbs og hin þriggja ára gamla Alida Knobloch frá Louisville í Bandaríkjunum eru mun meira en bestu vinir. Hundurinn ber súrefnisgeymi hennar hvert sem þau fara 14.3.2012 22:21
Gæti hlotið dauðadóm fyrir fjöldamorð í Afganistan Bandaríski hermaðurinn sem myrti 16 manns í suðurhluta Afganistan fyrr í vikunni var fluttur úr landinu í dag. Mikil reiði er í Afganistan vegna atviksins og krefjast margir þess að réttað verði yfir manninum þar í landi. 14.3.2012 22:02
Saksóknari flytur mál sitt á morgun Sigríður Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis, mun flytja mál sitt gegn Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, klukkan eitt eftir hádegi á morgun. Ráðgert er að málflutningurinn taki um þrjár klukkustundir. 14.3.2012 21:51
Hundsa úrskurð ráðuneytisins Meirihluti bæjarstjórnar Seltjarnarness ákvað í dag að aðhafast ekkert vegna úrskurðar innanríkisráðuneytisins varðandi uppsögn Ólafs Melsted, fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Seltjarnarnesbæ, úr starfi. 14.3.2012 21:32
Slökkviliðsstjóri Selfoss: "Við höfðum gríðarlegar áhyggjur" Grunur leikur á að eldurinn sem kom upp í húsnæði SET á Selfossi í dag hafi verið af völdum rafmagns. Slökkviliðsstjóri á Selfossi segir að gríðarlega hætta hafi myndast þegar eldurinn kom upp. 14.3.2012 21:10
Bresk börn eyða 353 klukkustundum á hverju ári í tölvunotkun Bresk rannsókn hefur leitt í ljós að börn á tíunda aldursári eyða 353 klukkustundum á hverju ári í einhvers konar tölvunotkun. Að meðaltali nota börnin tölvur eða tækni í tæpa klukkustund á degi hverjum. 14.3.2012 21:00
Er hægt að sigrast á flughræðslu? Þrátt fyrir að flug sé einn öruggasti ferðamáti sem völ er á er fjöldi fólks logandi flughræddur. En er hægt að yfirvinna þennan ótta og fljúga sæll og glaður í fríið? Ísland í dag fór á stúfana og kynnti sér flughræðslu. 14.3.2012 21:00
Sæstrengur verði metinn næstu 2-3 ár Forstjóri Landsvirkjunar hvetur til þess að þjóðin noti næstu tvö til þrjú ár til að meta kosti og galla sæstrengs áður en ákvörðun verður tekin. Hann telur að raforkusala til útlanda um streng myndi að mjög takmörkuðu leyti skerða möguleika til iðnaðaruppbyggingar hérlendis. 14.3.2012 19:45
Allt að gerast í Latabæ - fleiri þættir og kvikmynd "Það er svo mikið framundan að ég kemst ekki úr búningnum,“ sagði Magnús Scheving en hann gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. 14.3.2012 19:45
Leikstjóri Svartur á leik snýr sér að Ég man þig Óskar Axelsson, leikstjóri Svartur á leik, hefur verið ráðinn til að leikstýra hrollvekju sem byggð verður á metsölubók Yrsu Sigurðardóttur "Ég man þig". Sjálfur var hann skíthræddur við lestur bókarinnar og missti svefn. 14.3.2012 19:15
Dani og Eisti með allar tölur réttar í Víkingalottóinu Dani og Eisti voru með allar tölur réttar í Víkingalottóinu í kvöld. Vinningstölurnar voru 3, 22, 25, 32, 43 og 46. Bónustölurnar voru 35 og 41 og ofurtalan var 33. 14.3.2012 19:12
Baldur fær enga sérmeðferð Fangelsismálastjóri segir Baldur Guðlaugsson ekki fá neina sérmeðferð. Að jafnaði óska um tíu prósent þeirra sem fá óskilorðsbundna dóma, eftir að fá að afplána dóm sinn sem allra fyrst. 14.3.2012 18:35
Ekkert bólar á endurútreikningu gengislána Talið er að enn þurfi að koma fjórtán gengislánamálum í gegnum dómstóla áður en hægt verður að reka smiðshöggið á endurútreikninga gengislána. Ekkert bólar á endurútreikningi láns hjóna sem Hæstiréttur dæmdi fyrir mánuði að mætti ekki setja á afturvirka vexti. 14.3.2012 18:30
Annþór Karlsson handtekinn í aðgerðum lögreglunnar í dag Fimm voru handteknir í umfangsmiklum aðgerðum lögreglunnar í dag vegna rannsóknar á skipulagðri glæpastarfsemi. Einn þeirra er Annþór Karlsson þekktur handrukkari. 14.3.2012 18:30
Kraumur úthlutað í dag Tónlistarsjóðurinn Kraumur hefur kynnt úthlutun sína fyrir árið 2012. Alls styður sjóðurinn 15 verkefni í ár, þar af tíu verkefni listamanna af margvíslegum toga á erlendum og innlendum vettvangi. 14.3.2012 18:09
Dyngja hlaut samfélagsverðlaun Fréttablaðsins Áfangaheimilið Dyngjan hefur hlotið samfélagsverðlaun Fréttablaðsins. Markmið verðlaunanna, sem nú eru veitt í sjöunda sinn, er að beina sjónum að þeim góðu verkum sem unnin eru í samfélaginu. 14.3.2012 17:58
"Hamborgarinn okkar er gæðavara" "Þetta er ekkert slor þessir hamborgarar," sagði Ásgerður Guðmundsdóttir, framkvæmdarstjóri Metró. Hún var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag. 14.3.2012 17:33
Hundruð milljóna króna tjón Tjónið vegna eldsins á Selfossi nemur hundruðum milljóna króna, segir Árni Steinarsson í samtali við Vísi. Árni rekur 800 bar ásamt félaga sínum Eiði Birgissyni. Eldurinn kom upp í plaströraverksmiðjunni Set og breiddist svo út í húsnæði 800 bars. Árni segir að hann og Eiður eigi húsnæði veitingastaðarins sjáflir en auk þess hafi verið þarna inni dýrir munir sem fylgi rekstri sem slíkum. "Þetta eru hljóðkerfi og sjónvörp og bara það sem fylgir þessu," segir Árni. 14.3.2012 16:52
Mikill viðbúnaður vegna Vítisengla Lögreglan var með mikinn viðbúnað í Héraðsdómi Reykjaness í dag þegar fólk sem tengist Vítisenglum var fært fyrir dómara og krafist var framlengingar á gæsluvarðhaldi yfir þeim. Fólkið var handtekið snemma í janúar síðastliðnum, grunað um að hafa gengið í skrokk á konu skömmu fyrir jól. Rannsókn lögreglunnar á árásinni stendur enn yfir. 14.3.2012 16:03
Telja að búið sé að ná tökum á eldinum Kristján Einarsson slökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum Árnessýslu segist telja að búið sé að ná tökum á eldinum sem logað hefur í dag. Geymsluhúsnæði hjá SET röraverksmiðjunni brann, sem og skemmtistaðurinn 800 bar. Bæði húsin eru brunninn til kaldra kola en Kristján segir að komið hafi verið í veg fyrir að eldurinn næði að læsa sig í sjálfa röraverksmiðjuna, eins og leit út fyrir um tíma. 14.3.2012 15:59
Verksmiðjan alelda þegar starfsmenn komu úr hádegismat Bergsteinn Einarsson, framkvæmdastjóri Set röraverksmiðju, segir að eldurinn hafi blossað upp á mjög stuttum tíma. Starfsfólkið hafi verið í hádegismat í mötuneytinu sem er í öðru húsi og um hálftíma síðar hafi verksmiðjan verið alelda. 14.3.2012 15:53