Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Heitavatnslaust í Fossvogi Heitavatnslaust verður frá klukkan 13 í dag í Fossvogi og nágrenni vegna viðgerðar á heitavatnslögn. Svæðið sem lokað veður fyrir afmarkast af byggð neðan Bústaðavegar frá Reykjanesbraut að Eyrarlandi við Grímsbæ auk Brúnalands. Þá verður einnig heitavatnslaust í Ásgarði, raðhúsum við Tunguveg, Stjörnu- og Blesugrófinni í Reykjavík sem og húsum sem standa við Fossvogsbrún. Í tilkynningu frá Orkuveitunni segir að vonast sé til að viðgerð verði lokið um klukkan 15 í dag. Dragist viðgerð mun Orkuveitan senda út tilkynningu þar að lútandi á heimasíðu sinni, or.is. Íbúum er bent á að skrúfa fyrir alla heitavatnskrana til að forðast slysahættu eða tjón þegar vatnið kemst á að nýju. Þá er ráðlegt að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að minnka varmatap. 21.3.2012 11:16
Meintur fjöldamorðingi ætlar að gefast upp seinna í dag Hinn meinti fjöldamorðingi sem franska lögreglan hefur umkringt í fjölbýlishúsi í borginni Toulouse segir að hann muni gefast upp fyrir lögreglunni síðar í dag. 21.3.2012 10:12
Romney vann stórsigur í Illinois Mitt Romney vann stórsigur í prófkjöri Repúblikanaflokksins í Illinois. Romney hlaut 47% atkvæða en helsti keppninautur hans, Rick Santorum, hlaut 35% atkvæða. Ron Paul hlaut 9% en Newt Gingrich hafnaði síðastur með aðeins 7% atkvæða. 21.3.2012 06:53
Fjöldamorðinginn umkringdur af lögreglu í Toulouse Sérsveit frönsku lögreglunnar hefur staðið í skotbardaga í nótt við húsi í úthverfi Toulouse en þar býr maður sem grunaður er um aðild að skotárásinni á gyðingaskóla í borginni fyrr í vikunni. Búið er að handtaka bróður mannsins en tveir lögreglumenn munu hafa særst í bardaganum. 21.3.2012 06:39
Hagar stefnir Arion banka - vilja 824 milljónir Stjórn Haga hefur ákveðið að krefja Arion banka um rúmar áttahundruð og tuttugu milljónir króna vegna endurútreiknings á gengistryggðum lánum. Félagið telur að eftir dóm hæstaréttar í síðasta mánuði þurfi að endurreikna lánin aftur og hefur því ákveðið að höfða dómsmál til að fá skorið úr um réttmæti kröfunnar. Bankinn álítur hins vegar að dómurinn hafi takmarkað fordæmisgildi og eigi ekki við um lán Haga. 21.3.2012 19:30
Tveir í gæsluvarðhald - sá þriðji eftirlýstur Tveir karlmenn voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir, sem eru báðir innan við tvítugt, voru handteknir í gær í tengslum við rannsókn lögreglunnar á sprengju sem sprakk á rúðu skartgripaverslunar við Bankastræti 12 í miðborg Reykjavíkur og ráni í matvöruverslun í austurborginni. 21.3.2012 16:16
Banaslysið varð við þrif á togaranum Banaslysið um borð í íslenskum togara út af Straumsnesi á Ísafjarðardjúpi snemma í morgun varð þegar skipsverjar unnu við þrif á hreinsiborði, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Tekin var skýrsla af áhafnarmeðlimum þegar togarinn kom um borð en presturinn á Ísafirði fór einnig um borð og ræddi við skipsverja. Rannsóknarnefnd sjóslysa tekur við málinu þegar rannsókn lögreglu er lokið. Þyrla Landhelgisgæslunnar var send með lækni, sem seig um borð í togarann snemma í morgun og úrskurðaði manninn látinn. Ekki er hægt að greina frá nafni hans að svo stöddu. 21.3.2012 15:43
Hertar kröfur vegna mengunar Með breytingu á reglugerð fellir umhverfisráðuneytið úr gildi sérákvæði starfandi sorpbrennslustöðva um brennslu úrgangs. Reglugerðin, sem nýlega var undirrituð, hefur í för með sér að allar íslenskar sorpbrennslustöðvar eiga nú að uppfylla sömu kröfur og gerðar eru til sambærilegrar starfsemi á Evrópska efnahagssvæðinu. 21.3.2012 10:00
Heildarskuldir skólans nema 739 milljónum Uppsafnaður halli Landbúnaðarháskóla Íslands nam 307 milljónum króna í lok síðasta árs. Heildarskuldir skólans nema 739 milljónum og hafa fimmfaldast frá árinu 2005. Í nýrri úttekt Ríkisendurskoðunar eru stjórnendur skólans og yfirvöld menntamála hvött til að taka á vanda skólans. 21.3.2012 09:00
Gæsluvarðhald yfir Annþóri og Berki að renna út Gæsluvarðhald yfir hópi manna sem handteknir voru í umfangsmikilli lögreglurassíu í síðustu viku rennur út í dag. Lögmenn sumra þeirra, sem Fréttablaðið ræddi við í gær, gerðu fastlega ráð fyrir því að krafist yrði framlengingar á varðhaldinu yfir að minnsta kosti einhverjum mannanna. 21.3.2012 08:00
Fyrsta skrofan á árinu sást við Eyjar Fyrsta skrofan sást við Vestmannaeyjar í gær, heldur fyrr en í fyrra. 21.3.2012 07:58
Hámarks miskabætur verði fimmfaldaðar Hámarksbætur sem ríkið greiðir fyrir líkamstjón verða tvöfaldaðar og hámarksbætur fyrir miska verða fimmfaldaðar nái frumvarp Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra fram að ganga. 21.3.2012 07:30
Rúm 60% Breta vilja verja Falklandseyjar hvað sem það kostar Nú skoðanakönnun sýnir að 61 prósent Breta vilja að breski herinn verji Falklandseyjar, hvað sem það kostar, ef Argentínumenn ætla að leggja eyjarnar undir sig á ný. 21.3.2012 07:29
Feneyjaborg heldur áfram að sökkva Nýjar gervihnattamælingar sýna að Feneyjaborg á Ítalíu heldur áfram að sökkva en frekar lítið milli ára eða um tvo millimetra. 21.3.2012 07:26
Sprengjumennirnir ófundnir Mennirnir tveir, sem gerðu tilraun til að sprengja rúðu í úra- og skartgripaverslun við Bankastræti í Reykjavík í fyrrinótt, er ófundnir eftir því sem Fréttastofa kemst næst. 21.3.2012 07:10
Húsamýs komu til Íslands og Grænlands með víkingunum Ný rannsókn sýnir að víkingarnir sem sigldu frá Noregi til Íslands og síðar til Grænlands og Nýfundnalands báru með sér húsamýs til þessara landa á níundu öld. Sennilega hafa þær leynst í fóðri húsdýra sem víkingarnir fluttu með sér á ferðum sínum. 21.3.2012 07:03
Loðnuskipin flest búin með kvótann og hætt veiðum Loðnuskipin eru nú flest eða öll búin með kvóta sína og hætt veiðum. Skipin eru svonefnd fjölveiðiskip og taka nú kolmunnaveiðar við. 21.3.2012 06:59
Öflugur jarðskjálfti reið yfir suðurhluta Mexíkó Öflugur jarðskjálfti sem mældist 7,4 stig á Richter reið yfir suðurhluta Mexíkó í gærkvöldi. Upptök skjálftans voru í Guerrero héraðinu en íbúar Mexíkóborgar fundu einnig vel fyrir honum. 21.3.2012 06:57
Nýr spítali þjónar 125 þúsund manns Nýr spítali sem byggður hefur verið fyrir þróunarfé frá Íslandi hefur þegar fengið ríflega milljón heimsóknir, þó að formlega hafi hann verið vígður í gær. Sjúkrahúsið þjónar um 125 þúsund manna svæði í Malaví í Suðaustur-Afríku. 21.3.2012 06:30
Kosið verði um tillögur stjórnlagaráðs Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis samþykkti á fundi sínum í gær að leggja fram þingsályktunartillögu þess efnis að kosið verði um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá samhliða forsetakosningum 30. júní næstkomandi. Um ráðgefandi þjóðaratkvæði er að ræða, samkvæmt lögum. Spurt verður um stjórnarskrárdrögin í heild, auk spurninga um fimm sérstök álitamál. 21.3.2012 06:00
Sigurrós ráðin á Hjálmars vakt Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi, segir það koma sér á óvart að Hjálmar Hjálmarsson, bæjarfulltrúi Næst besta flokksins, skuli spyrjast fyrir um störf Sigurrósar Þorgrímsdóttur við ritun sögu Kópavogs. 21.3.2012 05:00
Franski fjöldamorðinginn handtekinn Umsátursástandinu við fjölbýlishús í borginni Toulouse í Frakklandi er lokið. Samkvæmt breska ríkisútvarpinu var hinn 23 ára gamli Mohammed Merah handtekinn fyrir stuttu. 21.3.2012 13:36
Slasaðist alvarlega um borð í togara Sjómaður slasaðist alvarlega um borð í togara á Ísafjarðardjúpi snemma í morgun. Þyrla Landhelgisgæslunnar var send með lækni, sem seig niður i togarann og var ákveðið að sigla með hinn slasaða í land og er læknirinn um borð, en þyrlan lenti á Ísafjarðarflugvelli og er þar til taks. Ekki er vitað hvernig slysið varð, en sjómaðurinn mun vera alvarlega slasaður. Togarinn er væntanlegur til hafnar nú um ellefu leitið. 21.3.2012 10:37
Fjöldamorðingi talinn hafa myndað ódæðið Talið er að maður sem myrti fjóra í skóla gyðinga í borginni Toulouse í Frakklandi á mánudag hafi myndað ódæðið. Vitni hafa lýst því að maðurinn hafi verið með litla myndavél festa við sig. 20.3.2012 23:30
Ísraelar vilja banna of grannar fyrirsætur Ísraelski þingmaðurinn, Rachel Adato, berst nú fyrir því að fá frumvarp samþykkt þar í landi þar sem of grannar fyrirsætur verða beinlínis bannaðar með lögum. Hún segist trúa því að frumvarpið bjargi mannslífum og verndi ungar fyrirsætur sem og börn sem finnist líkamsvöxtur grannra sýningastúlkna eftirsóknarverður. 20.3.2012 23:00
Albert Einstein mættur á internetið Fræðimenn við háskólann í Jerúsalem hafa lokið skráningu rúmlega 80.000 skjala frá vísindamanninum Albert Einstein. Gögnin verða öllum aðgengileg á heimasíðu háskólans. 20.3.2012 22:30
Hafði ekki efni á happdrættismiðanum - missti af 7.5 milljörðum Starfsfélagar Hazel Loveday frá Bretlandi unnu 38 milljón pund í happdrætti í vikunni. Fyrir nokkrum dögum ákvað Hazel að hætta að kaupa miða í happdrættið með félögum sínum. 20.3.2012 22:00
Obama breiddi yfir Cameron David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, greindi frá því í dag að kollegi hans í Bandaríkjunum, Barack Obama, hefði breitt yfir hann þegar þeir flugu með flugvél Bandaríkjaforseta. 20.3.2012 21:30
Segulmagnað húðflúr titrar þegar símtal berst Finnski snjallsímaframleiðandinn Nokia hefur sótt um einkaleyfi á heldur óvanalegri nýjung. Leyfið tekur til nýrrar tækni sem sendir skilaboð úr snjallsíma í sérstakt húðflúr sem notandinn er með. 20.3.2012 21:00
Stefán Máni: Glæpamenn skátadrengir miðað við gæjana í dag "Þeir menn sem ég var í sambandi við á þeim tíma voru skátadrengir miðað við gæjana sem maður sér í dag,“ sagði rithöfundurinn Stefán Máni Sigþórsson sem skrifaði glæpabókina Svartur á leik fyrir um tíu árum síðan, í viðtali í Kastljósi í kvöld. Þar ræddi Sigmar Guðmundsson við Stefán Mána og Stefán Eiríksson, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, um glæpaheiminn á Íslandi þá og nú. Tilefnið er að sjálfsögðu kvikmyndin Svartur á leik sem bregður ákaflega dökkri og ógeðfelldri mynd af glæpaástandinu í kringum aldamótin síðustu. 20.3.2012 20:19
Öflugur skjálfti í Mexíkó Jarðskjálfti upp á 7,6 á richter reið yfir nærri Mexíkó borg á sjöunda tímanum í kvöld. Samkvæmt Boston Herald flýðu starfsmenn háhýsa í ofboði út á götur þar sem háhýsin sveifluðust í sterkum skjálftanum sem var langur, samkvæmt bandarískum fjölmiðlum. 20.3.2012 18:54
Nýtingarsamningar til 20 ára í nýrri heildarlöggjöf um fiskveiðar Gerðir verða nýtingarsamningar til 20 ára við kvótaeigendur samkvæmt nýrri heildarlöggjöf um stjórn fiskveiða en undirbúningur þess er á lokametrunum og er stefnt að því að kynna frumvarp á ríkisstjórnarfundi á föstudag. Framkvæmdastjóri LÍÚ segir að ekkert samráð hafi verið haft við útvegsmenn. 20.3.2012 18:28
Saga er fimm milljónasti Norðmaðurinn - en um það er deilt Hún Saga Jónsdóttir Eldon fæddist klukkan 02:39 aðfaranótt 19. mars á sjúkrahúsi í Noregi. Sjónvarpsstöðin TV2 tók viðtal við nýbakaða foreldra stúlkunnar, ástæðan er sú að Norðmenn eru orðnir fimm milljónir talsins. Og hugsanlega er Saga litla fimm milljónasti Norðmaðurinn. 20.3.2012 17:49
Vigdís braut þingsköp Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, gerðist brotleg við þingsköp samkvæmt niðurstöðu Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, forseta Alþingis. Vigdís miðlaði upplýsingum af fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis á Facebook síðu sína áður en fundinum lauk. Valgerður Bjarnadóttir, formaður nefndarinnar, sleit þá fundinum sem fram fór 13. mars síðastliðinn. 20.3.2012 17:20
La Bohéme fær fjórar stjörnur í The Daily Telegraph Uppsetning Íslensku óperunnar á La Bohéme eftir Giacomo Puccini í Hörpunni fær fjórar stjörnur af fimm mögulegum hjá The Daily Telegraph. Frammistöðu leikaranna er hrósað og fer gagnrýnandi fögrum orðum um Eldborgarsal Hörpunnar. 20.3.2012 17:14
Íslandi spáð 12. sæti í Eurovision Íslandi er spáð 12. sæti í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem haldin verður í Aserbaídjan í maí. Samkvæmt breska veðbankanum William Hill er Svíum spáð sigri, Rússum öðru sæti og Dönum því þriðja. 20.3.2012 16:37
Helmingurinn ók of hratt Næstum því helmingur ökumanna sem óku í vesturátt í Dalsmára, við Lækjarsmára í Kópavogi í dag, keyrðu of hratt eða yfir afskiptahraða. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 75 ökutæki akstursleiðina og óku 35 of hratt. 20.3.2012 16:33
Tillaga um grænt hagkerfið samþykkt Þingsályktunartillaga um eflingu græna hagkerfisins var samþykkt á Alþingi í dag með 43 samhljóða atkvæðum. Í tillögunni eru lagðar til samtals 48 leiðir til þess að efla græna hagkerfið hér á landi. 20.3.2012 16:07
Rússar munu styðja ályktun Öryggisráðsins Yfirvöld í Rússlandi tilkynntu í dag að þau muni styðja ályktun Öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna um sendiferð Kofi Annans til Sýrlands. 20.3.2012 15:46
Villa í útboðsgögnum Eimskip, Samskip og Sæfærðir buðu í rekstur á Vestmannaeyjaferju fyrir árin 2012 til 2014 en opna átti tilboðin í dag. Að sögn G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, kom í ljós galli í svokallaðir vægistöflu í útboðsgögnunum svo fresta þarf opnunni um viku. Fyrirtækin þrjú fá því að fara yfir útboðsgögnin aftur og skila inn tilboðum. Vegagerðin óskaði eftir tilboðum í rekstur á ferjuleiðinni á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar annars vegar og Vestmannaeyja og Þorlákshafnar hinsvegar. 20.3.2012 15:33
Hells Angels hættir við málshöfðun Hells Angels á Íslandi og Einar Boom Marteinsson, forseti samtakanna, hafa dregið til baka meiðyrðamál sem höfðað var á hendur Haraldi Johannessen, ríkislögreglustjóra, Ögmundi Jónassyni, innanríkisráðherra og íslenska ríkinu þann 10. janúar síðastliðinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. 20.3.2012 15:30
Mikið mannfall í Írak eftir röð sprengjuárása Röð sprengjuárása í Írak kostaði 45 manns lífið í dag. Að minnsta kosti 13 létust þegar tvær bílasprengjur sprungu í borginni Kerbala. 20.3.2012 14:46
Sprengjumenn ófundnir Mennirnir tveir sem talið er að hafi sprengt rúðu í skartgripaverslun í Bankastræti á sjötta tímanum í morgun eru enn ófundir. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er rannsókn enn í fullum gangi en ekki fást frekari upplýsingar um gang hennar. 20.3.2012 13:48
Lýst eftir kerru Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir kerru sem var stolið úr bílskýli við Sóleyjarima í Reykjavík í síðustu viku. Kerran er nýleg, galvaniseruð, grá og vel með farin. Hún er á hvítum felgum og fram og afturgaflar hennar eru opnanlegir. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar kerran er niðurkomin eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1180 eða senda tölvupóst á netfangið abending@lrh.is. 20.3.2012 13:39
Kosið um stjórnarskrá og fimm lykilmál samhliða forsetakosningum Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis samþykkti á fundi sínum í morgun að kosið verði um tillögu stjórnlagaráðs um nýja stjórnarskrá og fimm grundvallarmál samhliða forsetakosningum hinn 30. júní næstkomandi. 20.3.2012 12:16