Fleiri fréttir

Romney eykur forskot sitt í Flórída

Mitt Romney hefur aukið forskot sitt á Newt Gingrich í prófkjörsslag Repúblikana í Flórída en kosið verður á morgun, þriðjudag.

Fjöldi lýtalækna til skoðunar hjá skatti

Skattrannsóknarstjóri ríkisins aflar nú gagna um lýtalækna á landinu eftir að ábendingar bárust frá velferðarráðuneytinu um að læknarnir höfðu framið skattsvik. Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri vonast til þess að ákvörðun um rannsókn á málinu verði tekin í næstu viku.

Safnað fyrir sýningarbúnaði

Í tilefni af sjötíu ára afmæli Akraneskaupstaðar setur bærinn átta milljónir króna í sjóð vegna endurnýjunar sýningarbúnaðar Bíóhallarinnar. Heildarkostnaður er áætlaður 17 til 19 milljónir. Bærinn verður bakhjarl og hefur umsjón með sjóðnum. Efna á til söfnunarátaks, meðal annars með styrktartónleikum. Með endurnýjun sýningarbúnaðarins eiga til dæmis að opnast möguleikar til beinna útsendinga frá menningar- og íþróttaviðburðum. - gar

Vegagerðarmenn og verktakar stóðu í ströngu í nótt

Vegagerðarmenn og verktakar unnu fram á nótt við að laga þjóðveginn á milli Núpsvatna og Gígjukvíslar á Skeiðarársandi. Leysingavatn hafði skolað efni úr vegkantinum þannig að farið var að brotna úr malbikinu og vegurinn að mjókka.

Vilja ná sátt um nýtingu Öskjuhlíðar

Halda á hugmyndasamkeppni um framtíð útivistar- og skógræktarsvæðisins í Öskjuhlíð. Í greinargerð sem lögð var fyrir skipulagsráð Reykjavíkur kemur fram að markmiðið sé að skapa sátt um framtíð og nýtingu svæðisins.

Samningur við 5 sveitarfélög

Rannsóknarstofa í menntunarfræðum ungra barna við Háskóla Íslands (RannUng) hefur gert starfssamning við fimm sveitarfélög til að auka þekkingu og gæði á leikskólastarfi. Sveitarfélögin eru Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær og Seltjarnarnes. Samningurinn er til þriggja ára og verður fyrsta rannsóknin um tengsl leiks við námssvið aðalnámskrár leikskóla frá árinu 2011. Starfendarannsókn og þróunarvinna verður unnin í fimm leikskólum, einum í hverju sveitarfélagi, árin 2012 til 2014.- sv

Íslensk steypa umhverfisvæn

Steinsteypa sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Readymix Abu Dhabi hafa þróað, undir stjórn Ólafs Haraldssonar Wallewik, var nýverið valin umhverfisvænasta steinsteypa heims. Steypan var verðlaunuð á Heimsþingi hreinnar orku sem fór fram í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Hverju kílói af steypunni sem er framleitt fylgja einungis 50 grömm af koltvísýringi. Það er fjórðungur þess sem fylgir framleiðslu á hefðbundinni steypu af sama styrkleika. Árlega losar framleiðsla á steinsteypu um 3 milljarða tonna af koltvísýringi á heimsvísu.

Dregið hefur úr vindstyrk í Reykjavík

„Mælingar á vindhraða í borginni seinustu áratugi sýna að vindstyrkur hefur farið lækkandi og má ætla að gróður og ný byggð spili stóran þátt í þeirri þróun,“ segir í umsögn skipulagssviðs vegna ábendinga frá borgarbúum á vefnum Betri Reykjavík um að auka skjólmyndun með markvissari notkun trjágróðurs.

Aldraðir reisa blokk í Kópavogi

Tímamót urðu hjá Samtökum aldraðra fyrir helgi þegar tekin var skóflustunga að nýju fjölbýlishúsi á Kópavogstúni. Mun þetta vera í fyrsta sinn sem samtökin byggja utan Reykjavíkur. Leitað var til bæjaryfirvalda í Kópavogi þar sem ekki náðist samkomulag um lóð sem aldraðir höfðu hug á við Skógarveg í Reykjavík. Nýja húsið á að afhendast í nóvember 2013. Það þykir frábærlega staðsett á svokölluðum Landspítalareit, rétt við hlið Hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar og í göngufæri við Sundlaug Kópavogs. - gar

Tilkynnt var um reyk á Rauðarárstíg

Tilkynnt var um reyk frá íbúð á Rauðarárstíg síðdegis í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var dælubíll sendur á staðinn og reykkafarar sendir inn. Þegar þangað var komið reyndist pottur vera á eldavél en íbúðin var mannlaus.

Ætlar að bjóða sig fram til biskups

Agnes M. Sigurðardóttir, sóknarprestur í Bolungarvíkurprestakalli, ætlar að bjóða sig fram til biskups. Hún segir að margir hafi hvatt sig til þess að gefa kost á sér sem biskupsefni og hún sé til búin í það verkefni.

Skemmdir á veginum um Skeiðarársand - unnið að viðgerð

Lögreglan á Hvolsvelli vill beina því til ökumanna sem eiga leið um Skeiðarársand að keyra varlega, því skemmdir eru á veginum vegna vatnavaxta í Gígjukvísl í gær. Vegagerðin vinnur að viðgerð á þjóðveginum. Talið er að það hafi hlaupið úr Grímsvötnum í gær en Gígjukvísl var dökk að lit síðdegis í gær og vegfarendur sem áttu leið hjá fundu brennisteinslykt við brúna

Snjóflóðahættu aflétt

Veðurstofa Íslands hefur aflétt óvissustigi vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði féllu engin snjóflóð í nótt en snjórinn hverfur nú smá saman úr fjöllunum eftir hlýjuna um helgina.

Tjáir sig ekki um Guðrúnu bæjarstjóra - Þrír flokkar funda í dag

„Ég ætla ekkert að tjá mig um það, ég held að það sé best að við ræðum þetta innan þessa hóps," segir Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Kópavogs, aðspurð hvort að það komi til greina hjá Samfylkingunni að Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, starfi áfram sem bæjarstjóri ef nýr meirihluti verði myndaður.

Náttúruminjasafnið uppfyllir ekki lögbundnar skyldur sínar

Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að Náttúruminjasafnið sé að mörgu leyti enn á byrjunarreit og uppfylli hvorki lögbundnar skyldur sínar sem safn né höfuðsafn að fullu. Stjórnvöld þurfi að ákveða hvernig haga eigi starfseminni til framtíðar og móta skýra stefnu um hana.

Hvað hefur orðið um markmið sérstaks saksóknara?

Reimar Pétursson, hæstaréttarlögmaður, spyr hvað hafi orðið um árangur og markmið sérstaks saksóknara um ákærur og hvað verði um embættið ef þessi markmið halda ekki. Lítið hafi komið út úr þeim 90 ákærum sem embætti hans hafði sagt að yrðu birtar á síðasta ári og árið á undan.

300 mótmælendur handteknir

Um þrjú hundruð mótmælendur úr Occupy hreyfingunni voru handteknir í Oakland í Bandaríkjunum í gærkvöldi eftir að þeir höfðu reynt að brjóta sér leið inn í ráðhús borgarinnar og ráðstefnuhús í grenndinni. Lögreglan sprautaði táragasi og kastaði reyksprengjum yfir mótmælenda hópinn sem létu steinum, flöskum og öðrum hlutum rigna yfir lögregluna á móti. Occupy hreyfingin hefur valdið usla í mörgum bandarískum borgum undanfarna mánuði en mótmælin hófust á Wall Street í New York á síðasta ári.

Harmleikur í Perú: 27 brunnu inni

Að minnsta kosti 27 fórust þegar eldur kom upp á meðferðarheimili í Lima, höfuðborg Perú, í gær. Um tíu eru alvarlega slasaðir en öll fórnarlömbin eru karlmenn. Samvkæmt slökkviliðsstjóra borgarinnar lokuðust sjúklingarnir inni á heimilinu þar sem ekki var hægt að opna hurðirnar innan frá. Slökkviliðsmenn þurftu að brjóta veggi til að bjarga fólki. Eldsupptök eru ókunn en lögreglan rannsakar málið.

Undrabarn frá Kína sér í myrkri

Nong Youhui er ekki venjulegur drengur, það er nokkuð ljóst. Hann getur nefnilega séð jafnvel í myrkri og í birtu. Í myrkrinu glóa augu hans eins og í ketti en þau eru alveg skærblá.

Ætlar að halda áfram jafnvel þótt hann tapi í Flórída

Newt Gingrich, fyrrverandi forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, tilkynnti í gær að hann hygðist berjast um útnefningu Repúblikanaflokksins alveg fram að landsfundi flokksins í sumar, jafnvel þótt hann myndi tapa fyrir Mitt Romney, fyrrverandi ríkisstjóra í Massachusetts, í forvalinu í Florída á þriðjudaginn.

Ekkert snjóflóð í nótt - óvissustig enn í gildi

Enn er hálka víða um landið samkvæmt upplýsingum frá vegagerðinni. Hálkublettir eru á Lyngdalsheiði og í uppsveitum á suðurlandi, en Hellisheiðin er greiðfær þó þar sé einhver þoka. Vestanlands er víðast hvar orðið autt þó hálkublettir séu á örfáum útvegum. Fyrir Norðan er er þjóðvegur eitt orðinn greiðfær en hálka er víða á útvegum og flughált inn í Eyjafirði.

Tveir með áverka eftir eggvopn

Nóg var að gera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Um miðnætti í gær komu tveir einstaklingar á slysadeild með áverka trúlega eftir eggvopn. Nánari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu.

Vatnshæð hélst óbreytt í nótt

Vatnshæð og leiðni í Gígjukvísl á Skeiðarársandi hækkaði óvenju mikið í gær samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Áin var dökk að lit og sumir segjast hafa fundið brennisteinslykt við brúna um fimmleytið í gærdag.

Kýldur fyrir utan skemmtistað á Akureyri

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn á Akureyri laust fyrir klukkan fjögur í nótt grunaður um líkamsárás. Varðstjóri hjá lögreglu segir að maðurinn hafi kýlt annan mann fyrir utan skemmtistað í miðbænum með þeim afleiðingum að sá vankaðist og var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl. Árásarmaðurinn gisti fangageymslu og verður yfirheyrður þegar hann er búinn að sofa úr sér áfengisvímuna. Einn ökumaður var tekinn grunaður um ölvunarakstur á Akureyri í nótt.

Hóta kvenkyns ökumönnum og ræna bílum þeirra

Mikið hefur verið um það í Belfast, höfuðborg Norður-Írlands, undanfarið að glæpagengi ganga um götur bæjarins og hóta bílstjórum lífláti í þeim tilgangi að ræna bíl þeirra.

Þrefaldur pottur eftir viku

Enginn var með allar tölurnar réttar í útdrætti vikunnar og verður Lottópotturinn þvi þrefaldur næsta laugardag. Heppinn áskrifandi var einn með bónusvinninginn og fær hann í sinn hlut 245.650 kr. Tölur kvöldsins: 3 - 10 - 22 - 26 - 27 Bónustala: 32 Jóker: 9 - 2 - 1 - 4 - 3

Læknir trúir ekki á Darwin

Norskum lækni var neitað um vinnu á spítala vegna þess að hann trúir ekki á þróunarkenningu Darwins. Yfirmenn á spítalanum sögðu of mikinn mun á lífsskoðunum til að upp gæti gengið að hann starfaði þar.

Leið Hagsmunasamtaka heimilanna óraunhæf að mati ráðherra

Forsætisráðherra segir skýrslu Hagfræðistofnunar sýna að tillögur Hagsmunasamtaka heimilanna um almenna lækkun allra íbúðaskulda séu því miður ekki raunhæfar. Hins vegar sé unnið að málefnum þeirra sem fengu svokölluð lánsveð. Þá sé verið að skoða afnám verðtryggingar í áföngum.

Jóhanna ætlar að ákveða sig þegar nær dregur kosningum

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, útilokar ekki að hún gefi áfram kost á sér sem formaður Samfylkingarinnar fyrir næstu kosningar, en tillaga níu flokksmanna um að flýta landsfundi flokksins var dregin til baka á flokksstjórnarfundi.

Hyggst senda borskip á Jan Mayen-hrygginn

Olíustofnun Noregs hefur leigt tvö skip til hljóðbylgjumælinga á Jan Mayen-hryggnum í sumar og hyggst í framhaldinu senda borskip þangað til rannsóknarborana þarnæsta sumar.

Bænastundir vegna sjóslyssins

Bænastundir voru haldnar vegna sjóslyssins við Noregsstrendur í Grafarvogskirkju og Ytri-Njarðvíkurkirkju í gær. Viðstöddum var gefinn kostur á að tendra ljós og biðja fyrir þeim fjölskyldum sem urðu fyrir áfalli vegna slyssins. Maðurinn sem komst lífs af úr sjóslysinu kom heim til Íslands í gær, en þrír eru taldir af.

Björguðu vélsleðamanni

Björgunarsveit frá Hvammstanga var kölluð út á fjórða tímanum í dag þegar tilkynning barst um slasaðan vélsleðamann. Hafði hann ekið fram af snjóhengju í suðurhluta Vatnsnesfjalls fyrir ofan Hvammstanga.

Mugison í bandarískum sjónvarpsþætti

Tónlistarmaðurinn Mugison er nú staddur í Denver í Bandaríkjunum á vegum flugfélagsins Icelandair sem mun hefja áætlunarflug þangað frá og með 10. maí á þessu ári.

Blaðamenn The Sun handteknir

Breska lögreglan gerði húsleit í höfuðstöðvum götublaðsins The Sun í morgun stuttu eftir að hafa handtekið einn lögreglumann og fjóra starfsmenn blaðsins í tengslum við meintar mútugreiðslur.

Tillagan dregin til baka

"Við féllum frá henni, það var í rauninni búið að ná fram tilgangnum að okkar mati,“ segir Andrés Jónsson, sem var einn af níu flutningsmönnum tillögu um að flýta landsfundi flokksins fram á vor. Flutningsmennirnir drógu tillöguna til baka síðdegis í dag.

Páll svarar Davíð fullum hálsi

Páll Magnússon, útvarpsstjóri, segir að skrif Davíðs Oddssonar, ritstjóra Morgunblaðsins, í Reykjavíkurbréfi blaðsins um síðustu helgi fela í sér svo mikla mannfyrirlitningu, forheimskun og heift að undrun sætir.

Níu þúsund Kínverjar ferðuðust til Íslands

Kínverskir ferðamenn sem heimsóttu Ísland á síðasta ári voru 8.784 talsins samkvæmt talningu Ferðamálastofu á erlendum ferðamönnum í Leifsstöð. Fjölgun frá fyrra ári nemur 69,1 prósenti.

Vatnsleki á Vesturgötu

Tilkynnt var um vatnsleka í íbúðarhúsi á Vesturgötu í Reykjavík í morgun en heitt vatn flæddi þar um gólf íbúðarinnar. Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir í samtali við Vísi að töluvert tjón hafi orðið af lekanum en ekki er vitað nákvæmlega hvaðan lekinn kom.

Náði að forða sér út í tæka tíð

Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um eld í fólksbíl á Salavegi í Kópavogi um hádegisbilið í dag. Bíllinn brann til kaldra kola en eldurinn kom upp þegar bílstjórinn var að keyra í rólegheitum á götunni. Hann náði að forða sér út í tæka tíð og varð því ekki meint af. Eldsupptök eru óljós.

Sjá næstu 50 fréttir