Nóg var að gera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Um miðnætti í gær komu tveir einstaklingar á slysadeild með áverka trúlega eftir eggvopn. Nánari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu.
Brotist var inn í íbúðarhúð í Vesturbæ og þar teknar tvær fartölvur og þá var einnig tilkynnt um innbrot í Hafnarfirði og maður var handtekinn á vettvangi og vistaður í fangageymslu. Málin eru í rannsókn.
Þá var nokkuð um útköll vegna hávaða í heimahúsum og eitthvað um minniháttar pústra.
Þrír ökumenn voru teknir grunaðir um ölvun við akstur á höfuðborgarsvæðinu í dag.
Tveir með áverka eftir eggvopn
