Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Um sex þúsund tonn af sælgæti Í dag er laugardagur og þá bjóða margar verslanir upp á helmingsafslátt af nammi í sjálfsafgreiðslu. Almennt borðar hver íbúi að meðaltali um fjögur hundruð grömm af nammi á viku sem er mikið meira en önnur Norðurlönd samkvæmt upplýsingum frá landlækni. Heildarframboð sælgætis á ári hverju hér á landi er um 6000 tonn. 28.1.2012 10:54
"Þetta er valdníðsla og einelti" "Ég er búinn að borga um 10 milljónir í lögfræðikostnað á þremur árum til þess að halda uppi mannréttindum - og ég er ekki hættur," segir Margeir Margeirsson, eigandi veitingastaðanna Monte Carlo og Mónakó á Laugavegi. Í Fréttablaðinu í dag er sagt frá því að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu ætli ekki að endurnýja rekstrarleyfi staðanna eftir að borgarráð lagðist gegn veitingu leyfanna. 28.1.2012 10:19
Flokkstjórn fundar um landsfund í vor Flokksstjórn Samfylkingarinnar fundar í dag kl. 10 á Hótel Nordica en fyrir fundinum liggur tillaga frá nokkrum flokksmönnum flokkurinn haldi að nýju landsfund í vor, en aðeins örfáir mánuðir eru frá síðasta landsfundi. 28.1.2012 09:43
Farþegar eiga rétt á þjónustu Flugfarþegar eiga rétt á ákveðinni þjónustu af hálfu flugfélaga ef flugi þeirra seinkar eða því er aflýst vegna veðurs. 28.1.2012 10:00
Hellisheiðin lokuð Hellisheiði er enn lokuð eins og hún hefur verið frá því klukkan sjö í gærmorgun og ekki er vitað hvenær hægt verður að opna hana á ný. Þoka og ágætis veður er á svæðinu en ástæða lokunarinnar er að ekki hefur tekist að ryðja veginn eftir óveðrið í gær vegna bíla sem voru yfirgefnir á heiðinni. 28.1.2012 09:39
Monte Carlo og Mónakó lokað Lögregustjóri höfuðborgarsvæðisins hafnar því að endurnýja rekstrarleyfi veitingastaðanna Monte Carlo og Mónakó sem báðir eru við Laugaveg í Reykjavík. Borgarráð lagðist gegn veitingu leyfanna og vísar lögreglustjórinn til þess að hann geti ekki gengið gegn neikvæðri niðurstöðu borgarinnar sem umsagnaraðila. 28.1.2012 09:15
Bíða úrskurðar Persónuverndar Lýtalæknar munu ekki senda landlækni persónugreinanlegar upplýsingar um konur sem farið hafa í brjóstastækkunaraðgerðir á meðan þeir eru ekki fullvissir um að það sé heimilt. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Læknafélagi Íslands og Félagi íslenskra lýtalækna. 28.1.2012 09:00
Rannsaka hvort kjör birgja standist lög Samkeppniseftirlitið (SE) mun rannsaka hvort tiltekin viðskiptakjör sem birgjar bjóða dagvöruverslunum brjóti í bága við samkeppnislög. Búast má við því að eftirlitið hefji sérstök stjórnsýslumál til að meta hvort kjörin séu lögmæt. Þetta staðfestir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri SE. 28.1.2012 08:30
Borgin hjálpi skátum að kaupa Úlfljótsvatn Skátasamband Reykjavíkur óskar eftir því að Reykjavíkurborg greiði fimm milljónir króna á ári næstu sex árin vegna láns sem sambandið fékk hjá Skógræktarfélagi Íslands til að greiða hlut sambandsins í Úlfljótsvatni. 28.1.2012 08:00
Framsókn skuldar 215 milljónir Framsóknarflokkurinn skuldar 215 milljónir króna, sem er 85 milljónir umfram eignir flokksins. Þetta kemur fram í ársreikningi fyrir árið 2010 sem flokkurinn skilaði til Ríkisendurskoðunar í síðustu viku, hálfum fjórða mánuði eftir að skilafrestur var liðinn. Flokkurinn tapaði tæpum 1.600 þúsund krónum á síðasta ári, sem er mikill viðsnúningur frá árinu 2009, þegar tapið nam tæpri 41 milljón króna. 28.1.2012 07:45
Blint í fjúkinu þegar vind hreyfði Veginum um Hellisheiði var í gær lokað vegna ófærðar í þriðja sinn í þessum mánuði. Lokunin tók gildi í gærmorgun, en heiðin hafði þá verið opnuð um nóttina eftir að hafa verið lokuð í nær sólarhring. Þar áður var henni lokað 10. janúar. 28.1.2012 07:00
Vilja kjósa um forystu Hávær krafa er innan Samfylkingarinnar um að kosið verði um forystu flokksins á aukalandsfundi. Tillaga liggur fyrir flokksstjórnarfundi um landsfund í vor en reynt er að ná sátt um fund í haust. Landsdómsmálið verður rætt á flokksstjórnarfundi sem hefst í dag. 28.1.2012 07:00
Afar jákvæðar fréttir fyrir þjóðarbúið allt Steingrímur J. Sigfússon, ráðherra sjávarútvegsmála, hefur undirritað reglugerð þar sem endanlegt útgefið aflamark í loðnu er ákveðið í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar. 28.1.2012 06:45
Fleiri makrílfundir boðaðir Ísland, ESB, Noregur og Færeyjar munu funda á ný um veiðar úr makrílstofninum í Norður-Atlantshafi í Reykjavík um miðjan næsta mánuð. 28.1.2012 05:00
Hæstiréttur vítir lögreglu og dómara Saksóknari í máli gegn grunuðum fíkniefnasmyglara lagði fyrir héraðsdóm upptöku af trúnaðarsamtali sakborningsins við verjanda sinn án þess að dómarar gerðu nokkra athugasemd við það. 28.1.2012 03:30
Forystuhlutverk í skugga efasemda Þróun almenningsviðhorfs í Þýskalandi er með þeim hætti að nánari samvinna og samruni Evrópuríkja þykir þar ekki lengur jafnsjálfsagt mál og verið hefur frá lokum seinna stríðs. Þetta kom fram í fyrirlestri Simons Bulmer, prófessors í Evrópufræðum við Sheffield-háskóla, í erindi hans á fundi Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands í gær. 28.1.2012 03:00
Ræða sölu við Borgarbyggð Jóni Gnarr borgarstjóra hefur verið falið af borgarráði að ræða við forsvarsmenn Borgarbyggðar vegna óska þeirra um að selja af hlut sveitarfélagsins í Faxaflóahöfnum. 28.1.2012 02:30
Vilja forrit sem les Facebook Bandaríska alríkislögreglan (FBI) hefur leitað til hugbúnaðarhönnuða um að búa til forrit sem geri FBI kleift að leita að ýmiss konar upplýsingum á samskiptavefjum á borð við Facebook og Twitter. 28.1.2012 01:00
Harka færist í bardagana í Sýrlandi á ný Hörð átök hafa verið í Sýrlandi undanfarna tvo daga, einkum í borginni Homs þar sem tugir manna eru sagðir hafa látið lífið, þar á meðal börn. 28.1.2012 00:00
Þrengslin opnuð - Hellisheiðin enn lokuð Þrengslin hafa verið opnuð, en Hellisheiðin er enn lokuð samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. 27.1.2012 22:07
Bæjarstjóri: "Vinsamlegast hættið að senda mér Taco-kökur" Bæjarstjóri í smábæ í Connecticut í Bandaríkjunum biðlar nú til íbúa bæjarins um að hætta að senda Taco-maískökur á skrifstofu sína. 27.1.2012 21:30
Ferris Bueller snýr aftur Sýnishorn úr væntanlegri auglýsingu gefur til kynna að Ferris Bueller sé væntanlegur á hvíta tjaldið á ný. Auglýsingin verður sýnd á úrslitaleik NFL deildarinnar í amerískum fótbolta, Super Bowl. 27.1.2012 21:00
Flick My Life vefsíða ársins - almannatengill tók við verðlaununum Tæplega sautján þúsund manns tóku þátt í atkvæðagreiðslu á Vísir.is vegna Nexpo-verðlaunanna. Flick My Life var kjörinn vefur ársins með 37 prósentum greiddra atkvæða. Leikur ársins var EVE-online og til gamans má geta að Moogies, nýr íslensku tölvuleikur, var kjörið App ársins. 27.1.2012 20:59
Rýmt vegna snjóflóðahættu á Ísafirði Lögreglustjórinn á Ísafirði í samráði við Veðurstofu Íslands hefur ákveðið að láta rýma svæði undir Seljalandshlíð á Ísafirði (reitur 9) vegna snjóflóðahættu. 27.1.2012 20:40
Leoncie mælir með að gestir komi með lausafé á tónleikana Uppselt er á tónleika Leoncie á Gauk og Stöng annað kvöld og hefur aukatónleikum verið bætt við sem verða haldnir fyrr um kvöldið. Icey Spicey, eins og hún kallar sig, lofar sprengju. 27.1.2012 20:30
Vísindamenn þróa loftsteina-skjöld yfir Evrópu Stjarneðlisfræðingar vinna nú að skipulagningu verkefnis sem mun vernda jörðina gegn smástirnum. 27.1.2012 20:30
Bein útsending frá Nexpo-vefverðlaununum Bein útsending frá Nexpo-vefverðlaununum á efri hæð Sólon við Bankastræti hefst hér á Vísi klukkan 20. Mikil eftirvænting ríkir fyrir afhendingunni en síðustu vikur hefur farið fram kosning meðal almennings hér á Vísi þar sem bárust ríflega 16 þúsund atkvæði. 27.1.2012 20:23
Þrekvirki að lifa af fjögurra tíma vist í Noregshafi Eiríkur Ingi Jóhannsson vann mikið þrekvirki þegar hann komst lífs af frá sjóslysinu í Noregi. Hann var í þrjá og hálfan klukkutíma í sjónum í miklum öldugangi. Skólastjóri Slysavarnarskóla sjómanna segir þjálfun íslenskra sjómanna vera ómetanlega í slíkum aðstæðum. 27.1.2012 20:00
Um 80 björgunarsveitarmenn aðstoðuðu ökumenn í dag Björgunarsveitarmenn hafa hjálpað tugum ökumanna sem fest hafa bíla sína á Hellisheiðinni og í Þrengslunum í vitlausu veðri í dag. Heiðin er enn lokuð. 27.1.2012 19:00
Lægir suðvestan- og vestanlands undir kvöld Lægir suðvestan- og vestanlands undir kvöldið og dregur um leið mikið úr úrkomu. Almennt fer hlýnandi og hlánar á láglendi um suðvestan- og vestanvert landið og í kvöld og nótt einnig norðan og norðaustantil. Um leið og blotnar verða vegir víða flughálir. 27.1.2012 19:43
Líklega handleggsbrotinn á báðum höndum eftir árekstur Umferðarslys varð á Malarhöfða skömmu fyrir klukkan eitt í dag. Tvær bifreiðar skullu saman. Alls voru fimm einstaklingar í báðum bílunum. Einn farþegi slasaðist nokkuð, líklega er hann brotinn á báðum höndum. 27.1.2012 17:46
Harður árekstur á Öxnadalsheiði Tveir bílar rákust saman á Öxnadalsheiði um þrjúleytið í dag. Fimm manns voru í öðrum bílnum, sem er pallbill, en fjórir í hinum bílnum. Það er fólksbíll. Fólkið í fólksbílnum var flutt með sjúkrabíl á sjúkrahús til skoðunar og aðhlynningar, en lögreglan telur að meiðsli séu ekki alvarleg. Þeir sem voru í pallbílnum sluppu ómeiddir. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er fólksbíllinn mikið skemmdur. 27.1.2012 16:34
Þrengslin opnuð en Hellisheiðin enn lokuð Þrengslin hafa nú verið opnuð en Hellisheiði er enn lokuð og mjög slæmt veður er á svæðinu. Að sögn Vegagerðarinnar er ekki gert ráð fyrir að veður taki að lagast fyrr en undir kvöld. Flestar aðrar leiðir á Suðurlandi eru færar en þæfingsfærð er þó á Mosfellsheiði og skafrenningur og sumsstaðar er þungfært á fáfarnari sveitavegum. 27.1.2012 15:26
Krúttlegir krakkar úr Hofsstaðaskóla ræddu um réttindi sín Barnaheill - Save the Children á íslandi fékk krúttlega krakka úr Hofsstaðaskóla í Garðabæ til að tala um réttindi sín samkvæmt 2. grein barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og var afraksturinn sýndur í Íslandi í dag í gær. 27.1.2012 16:32
Vara við þungum snjó og grýlukertum Reykjavikurborg varar við því að hætta geti verið á ferðum þegar blautur og þungur snjór rennur af þökum húsa. Einnig er hætta af grýlukertum sem hanga í þakbrúnum. Falli snjór og grýlukerti á fólk getur það valdið slysum einkum ef fallhæðin er mikil. Húseigendur eru beðnir um að gæta að þessum málum og gera ráðstafanir til að vara vegfarendur við ef aðstæður kalla á slíkt. Einnig eru húsráðendur hvattir til að huga niðurföllum og gera ráðstafanir til að forða sér frá mögulegu vatnstjóni. Hlýnað hefur í borginni og er spáð áframhaldandi hlýindum um helgina. 27.1.2012 15:01
Fundu fíkniefni og stærðar slöngu við húsleit Slanga fannst við húsleit í Reykjavík í gærkvöldi. Á sama stað var einnig lagt hald á fíkniefni að sögn lögreglu. Húsráðandi, karl á þrítugsaldri, viðurkenndi aðild sína að málinu. Eins og tíðkast í tilfellum sem þessum var slangan flutt að Keldum þar sem gerðar voru "viðeigandi ráðstafanir“ eins og lögregla orðar það. 27.1.2012 14:46
Nemendur Listaháskólans að baki H&M gjörningnum Það voru annars árs nemendur í Listaháskóla Íslands sem settu auglýsingar á rúður í húsum á Laugaveginum þar sem tekið var fram að H&M og fleiri verslanir myndu opna innan skamms á Íslandi. Hjálmar Ragnarsson, rektor skólans, staðfestir þetta í samtali við Vísi. 27.1.2012 14:34
Smástirni fer framhjá jörðinni í dag Smástirnið 2012 BX34 fer framhjá jörðinni í dag. Steinninn er um 11 metrar að breidd og verður í tæplega 60.000 kílómetra fjarlægð frá jörðinni. 27.1.2012 14:17
Mótmæla milliríkjasamningi um höfundarrétt Aðildarríki Evrópusambandsins samþykktu í gær milliríkjasamning um höfundarrétt. Samkomulagið kallast ACTA og er því ætlað að takast á við brot á höfundarréttarlögum. 27.1.2012 13:55
Barnalán á Alþingi Birkir J. Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins, á von á tvíburum. Aðspurður staðfesti hann þetta í samtali við Vísi en vildi að öðru leyti ekkert tjá sig um málið. Vísir hefur ekki fengið upplýsingar um það hvaða kona það er sem gengur með börn Birkis. 27.1.2012 13:55
Enn lokað á heiðinni Hellisheiðin og Þrengslin eru enn lokuð og ekki útlit fyrir að veður taki að lagast þar að ráði fyrr en vindur gengur niður undir kvöld, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. 27.1.2012 13:52
Rafmagn komið á Verið er að vinna bug á biluninni sem varð í dreifikerfi Orkuveitunnar um eittleytið í dag. Rafmagn fór af í Hlíðahverfinu og féllu útsendingar útvarpsstöðva 365 miðla niður um stund. Nú er búið að setja rafmagn aftur á hverfið. Útvarpsstöðvar 365 miðla eru komnar aftur í loftið. 27.1.2012 13:30
Rafmagnslaust á stóru svæði í Reykjavík Rafmagnslaust er á stóru svæði í Reykjavík, frá Bólstaðarhlíð upp að Veðurstofu Íslands. Verið er að vinna að viðgerð sem getur tekið allt að 45 mínútur, samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitu Reykjvíkur. 27.1.2012 13:10
Alríkislögregla Bandaríkjanna vill fylgjast með Twitter Alríkislögreglan í Bandaríkjunum reynir nú að þróa hugbúnað sem vaktar upplýsingaflæði á samskiptasíðum. Forritið mun leita eftir orðum, frösum og hegðun sem gæti tengst yfirvofandi hættu. 27.1.2012 12:41
Harður árekstur á Kársnesbraut Harður árekstur varð á Kársnesbraut í Kópavogi rétt fyrir klukkan átta í morgun. Sjúkrabíll var kallaður á staðinn og voru farþegar fluttir á slysadeild til aðhlynningar. Meiðsli þeirra voru þó lítilsháttar að sögn vaktstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. 27.1.2012 11:33