Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rýming á Ísafirði vegna snjóflóðahættu Lögreglustjórinn á Ísafirði, í samráði við Veðurstofu Íslands, hefur ákveðið að láta rýma iðnaðarsvæði undir Seljalandshlíð á Ísafirði vegna snjóflóðahættu. Það hefur snjóað mikið í dag á svæðinu en rýmingu á að vera lokið klukkan 17, samkvæmt upplýsingum frá Almannavörnum. Ákvörðun um frekari rýmingu verður tekin í kvöld. Vegirnir um Súðavíkurhlíð og Eyrarhlíð eru lokaðir vegna snjóflóðahættu og nokkur snjóflóð hafa fallið í dag á Siglufjarðarvegi. 25.1.2012 16:34
Giffords kveður þingið Bandaríski Demókratinn Gabrielle Giffords lauk formlega þingsetu sinni í dag. 25.1.2012 16:20
Tafir á Reykjanesbraut við Mjódd vegna áreksturs Árekstur varð á Reykjanesbraut nú fyrir stundu til móts við Mjóddina í Breiðholti. Samkvæmt upplýsingum frá árekstur.is eru miklar tafir í suðurátt vegna óhappsins og eru ökumenn beðnir um að sýna þolinmæði. 25.1.2012 16:12
Landsbjörg varar ferðalanga við Slysavarnafélagið Landsbjörg varar fólk eindregið við því að halda á fjöll á norðanverðum Vestfjörðum og á Norðurlandi nú þegar snjóflóðahætta er víða á svæðinu. Í tilkynningu segir að snjóflóð gætu einnig fallið víðar, sérstaklega þar sem fólk er á ferðinni, t.d. á vélsleðum og því ætti enginn að vera á ferð í fjalllendi nema kunna að meta snjóflóðahættu og vera með snjóflóðaýli, stöng og skóflu. 25.1.2012 15:45
Yfirlýsing: Egill vill formlega rannsókn á röngum sakargiftum Egill Einarsson, sem á síðasta ári var kærður ásamt unnustu sinni fyrir nauðgun segir að kæran eigi ekki við rök að styðjast og vísar í rannsóknargögn lögreglu. Hann hyggst fara fram á að lögregla rannsaki nú hvort um vísvitandi rangar sakargiftir á hendur sér hafi verið að ræða. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Egill sendir frá sér í dag. Ríkissaksóknari hefur kæruna á hendur Agli nú til umfjöllunar en á dögunum barst önnur kæra til lögreglu. 25.1.2012 15:27
Vegum víða lokað vegna snjóflóðahættu Nokkur snjóflóð hafa fallið í dag á Siglufjarðarvegi og hefur honum nú verið lokað að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. Búast má við snjóflóðahættu víða á vegum á Vestfjörðum í dag miðað við veðurspá. Eins er búist við snjóflóðahættu í Ólafsfjarðarmúla og á norðanverðum Tröllaskaga í dag. 25.1.2012 15:11
Með 53 kannabisplöntur Karlmaður fæddur árið 1983 var dæmdur í sextíu daga fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir fíkniefnalagabrot í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Maðurinn játaði að hafa tæplega hálft gramm af marijúana og fimmtíu og þrjá kannabisplöntur í fórum sínum. Maðurinn þarf að greiða rúmlega 70 þúsund krónur í málskostnað og þá voru ýmis tól og tæki sem notuð eru við kannabisræktun gerð upptæk. 25.1.2012 13:46
Víða hætta á snjóflóðum - óvissustigi lýst yfir á Norðurlandi Veðurstofan hefur í samráði við lögreglustjórana á Vestfjörðum og Akureyri ákveðið að lýsa yfir óvissustigi vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum og mið-Norðurlandi. 25.1.2012 13:44
Volvo V50 saknað Dökkgrænum Volvo V50 station var stolið þaðan sem hann stóð fyrir utan húsnæði KFUM-K á Holtavegi í Reykjavík í gærkvöld, þriðjudagskvöldið 24. janúar. Númerið á bílnum er RD-526. Þeir sem hafa orðið varir við bílinn eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000. 25.1.2012 13:40
Snjókoman heldur áfram í dag - strætó seinkar Snjó hefur kyngt niður í allan dag á höfuðborgarsvæðinu og segir veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands að búast megi við meiri snjókomu á köflum fram eftir degi. 25.1.2012 13:32
Lego kynnir bleika og pastellitaða kubba Leikfangafyrirtækið Lego kynnti í dag nýja tegund af kubbum sem eiga að höfða ungra stúlkna. Kubbarnir eru bleikir og pastellitaðir. 25.1.2012 13:08
Viðutan eigandi hengdi næstum því hundinn sinn Ótrúlegt atvik náðist á myndband í Chicago í Bandaríkjunum þegar hundur festist í lyftudyrum. Þegar lyftan fór af stað með eigandann um borð var hundurinn hætt kominn. 25.1.2012 13:00
Lýtalæknar neita enn að afhenda landlækni upplýsingar Lýtalæknar neita enn að afhenda landlækni upplýsingar um sílíkonaðgerðir á brjóstum. Málið er nú á borði Persónuverndar. Landlæknisembættið ítrekaði í ársbyrjun beiðni sína um gögn frá lýtalæknum og er fresturinn útrunninn. 25.1.2012 12:28
Austfirðingar segja Reykjavík afsala sér hlutverki höfuðborgar Samband sveitarfélaga á Austurlandi segir í bréfi til forsætisráðherra ljóst að Reykjavíkurborg muni afsala sér hlutverki sínu sem höfuðborg allra landsmanna, verði af áformum borgarstjórnar að leggja af Reykjavíkurflugvöll og nauðsynlegt sé að hefjast þegar handa um breytingar á opinberri stjórnsýslu. 25.1.2012 12:15
Hættustigi lýst yfir á Súðavíkurhlíð - veginum lokað Varúðarstiginu á Súðavíkurhlíð hefur nú verið breytt í hættustig og hefur veginum á milli Súðavíkur og Ísafjarðar verið lokað. Nokkur lítil snjóflóð hafa þegar fallið á veginn. Víðar á Vestfjörðum er hætta talin á snjóflóðum og er ófært frá Ísafirði til Flateyrar og Suðureyrar. 25.1.2012 12:09
Yrsu sárnaði gagnrýni Kolbrúnar og Páls Baldvins "Allt sem þau sögðu um mig var svo hrikalega neikvætt að ég varð orðlaus. Þau efuðust meira að segja um söluna á bókinni og að sölulistarnir væru réttir. Hvað með öll hin árin sem þessir listar hafa verið birtir? Mér fannst þau ekki sanngjörn," segir Yrsa Sigurðardóttir en henni sárnaði gagnrýni Kolbrúnar Bergþórsdóttur og Páls Baldvins Baldvinssonar á nýjustu bók hennar Brakinu í Kiljunni fyrir jól. 25.1.2012 12:00
Ólæsir drengir stærsta vannýtta auðlind þjóðarinnar "Í þessum fjórðungi stráka sem ekki geta lesið sér til gagns liggur stærsta vannýtta auðlind þjóðarinnar - tækifærin eru svo mörg að þau fylla heilu bókasöfnin. Ef ekki er brugðist við af krafti blasir við að strákarnir okkar og þjóðin öll - falli niður í þriðju deild," segir Andri Snær Magnason, rithöfundur, í grein í Fréttablaðinu í dag. 25.1.2012 11:53
Ný Vestmannaeyjaferja í síðasta lagi 2015 Gert er ráð fyrir því að ný ferja geti hafið siglingar í Landeyjahöfn í síðasta lagi árið 2015. Þetta kemur fram í tilkynningu frá innanríkisráðuneytinu en ráðuneytið kynnti áformin á fundi í dag. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur ásamt Vestmannaeyjabæjar, Siglingastofnunar og Vegagerðarinnar farið yfir stöðuna varðandi siglingar í Landeyjahöfn og á þeim fundum hefur verið fjallað um smíði nýrrar ferju, fyrirkomulag siglinga þar til ný ferja verður komin í gagnið, líklega þróun sandburðar við Landeyjahöfn og rannsóknir sem framundan eru. "Við fjármögnun verður litið til verkefnisins í heild sinni, þ.e. smíði nýrrar ferju og aðgerða til aðlögunar Landeyjahafnar að breyttum náttúrulegum aðstæðum.“ 25.1.2012 11:49
Ný Xbox leikjatölva kynnt á næsta ári Nýjasta leikjatölva Microsoft verður að öllum líkindum opinberuð haustið 2013. Talið er að grafík leikjatölvunnar verði 6 sinnum öflugri en núverandi geta Xbox 360 tölvunnar. 25.1.2012 11:32
Snjóflóðahætta: Varúðarstigi lýst yfir á Súðavíkurhlíð Vegagerðin hefur lýst yfir varúðarstigi á Súðavíkurhlíð vegna snjóflóðahættu. Geir Sigurðsson hjá Vegagerðinni á Ísafirði segir að veginum á milli Súðavíkur og Ísafjarðar hafi ekki verið lokað, en að mælst sé til þess að fólk fari ekki um hann nema brýnustu nauðsyn beri til. 25.1.2012 11:23
Vetrarvertíðin gengur vel í hvalaskoðuninni Vetrarvertíðin í hvalaskoðun hefur gengið sérlega vel í ár að sögn Rannveigar Grétarsdóttur hjá Eldingu. Hún segir að mikið kapp hafi verið lagt á það að undanförnu að kynna Ísland sem ferðamannastað allt árið en á síðasta ári hófst samstarf opinberra aðila, einkaaðila og sveitarstjórna undir verkefnisheitinu "Ísland - Allt árið". Átakið hefur það að markmiði að jafna árstíðarsveiflu í komu ferðamanna, skapa ný störf í ferðaþjónustu og auka arðsemi af greininni. 25.1.2012 11:08
Egypska byltingin ársgömul Eitt ár er liðið síðan bylting hófst í Egyptalandi. Af því tilefni hafa þúsundir Egypta safnast saman á Frelsistorginu í Kaíró. 25.1.2012 10:44
Julian Assange framleiðir sjónvarpsþátt Julian Assange, stofnandi Wikileaks, mun brátt hefja framleiðslu á viðtalsþætti fyrir sjónvarp. Í þættinum mun Assange tala við pólitíska leiðtoga, hugsuði og aðgerðarsinna. 25.1.2012 10:26
Mál Baldurs tekið fyrir í Hæstarétti í dag Málflutningur í máli ákæruvaldsins gegn Baldri Guðlaugssyni, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, hófst í Hæstarétti í morgun. 25.1.2012 10:11
Starfsmenn Disney fá leyfi til að safna skeggi Starfsmenn í skemmtigörðum Disney hafa nú loks fengið leyfi til að safna skeggi. Fyrirtækið mun einnig innleiða "afslappaða föstudaga“ en þá fá starfsmenn að klæðast póló-bolum og gallabuxum - kvenkyns starfsmenn fá þá að ganga sandölum. 25.1.2012 10:02
Hefur safnað 40 milljónum: "Ótrúlega þakklátur fyrir stuðninginn" "Ég fór út í þetta með það markmið að ég myndi ekki hætta fyrr en þetta myndi takast, en ég vissi ekki hversu langan tíma þetta tæki," segir Guðmundur Felix Grétarsson, sem hóf að safna fyrir handaágræðslu í september síðastliðnum en aðgerðin mun fara fram í Frakklandi. 25.1.2012 09:51
Navy Seals björguðu pari úr höndum sjóræningja Hermenn úr Navy Seals sérsveit bandaríska flotans björguðu dönskum manni og bandarískri konu úr höndum sjóræningja í Sómalíu í nótt. 25.1.2012 09:08
Íslenski hesturinn á toppnum Hestaleigan Íslenski hesturinn er í þriðja sæti ferðavefsíðunnar Tripadvisor yfir hluti sem mælt er með að gera í allri Evrópu. Leigan er eina hestaleigan í Reykjavík og er þjónustan lofuð í hástert af fyrrum viðskiptavinum. 25.1.2012 09:00
Eldsvoði á Ísafirði Nokkurt tjón varð þegar eldur kviknaði í háfi yfir eldavél á veitingastað í verslanamiðstöðinni Neistanum á ísafirði um sex leitið í gærkvöldi þannig að eldur og reykur stóðu upp úr húsinu. 25.1.2012 08:08
Varað við snjóflóðahættu á Vestfjörðum Búast má við snjóflóðahættu víða á vegum á norðanverðum Vestfjörðum í dag miðað við veðurspá. 25.1.2012 08:04
Vonar að línur skýrist bráðlega Línur eru ekki enn farnar að skýrast að ráði í bæjarstjórnarmálum í Kópavogi, en viðræður um meirihlutamyndun hafa nú staðið í rúma viku án árangurs. 25.1.2012 08:00
Ögmundur boðar til blaðamannafundar Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur boðað til blaðamannafundar fyrir hádegi og er fundarefnið siglingar milli Landeyjahafnar og Eyja. 25.1.2012 07:23
Obama boðar aukna skatta á hátekjufólk Barack Obama Bandaríkjaforseti flutti stefnuræðu sína í Washington í gærkvöldi og fylgdust tugmilljónir manna með henni í beinni útsendingu. 25.1.2012 07:21
Klámmyndaleikarar skyldaðir til að nota smokka Borgaryfirvöld í Los Angels hafa samþykkt nýja reglugerð sem skyldar klámmyndaleikara í borginni til að nota smokka við vinnu sína. 25.1.2012 07:12
Ölvaður ökumaður ók á tvo ljósastaura Ölvaður ökumaður var handtekinn á hlaupum í vesturborginni eftir að hafa ekið á tvo ljósastaura og hafnað á einskonar handriði við Landakotsspítala, þar sem bíllinn festist 25.1.2012 07:08
Gingrich mælist með meira fylgi en Romney á landsvísu Í fyrsta sinn síðan að prófkjör Repúblikanaflokksins hófust mælist Newt Gingrich með meira fylgi á landsvísu en Mitt Romney. 25.1.2012 07:05
Kraftaverk að 40 leikskólabörn sluppu ómeidd úr rútuslysi Það þykir ganga kraftaverki næst að 40 leikskólabörn sluppu meir og minna ósködduð úr alvarlegu rútuslysi sem var á norðanverðu Sjálandi síðdegis í gær. 25.1.2012 07:00
Reynt að koma húsinu í rétt horf Töluverðar skemmdir urðu á veitingastaðnum Sjávargrillinu á Skólavörðustíg þegar eldur kom upp í þvottahúsi í kjallara staðarins aðfaranótt þriðjudags. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá rafmagnstæki, hugsanlega þvottavél. 25.1.2012 07:00
Sjö helgar kosta 13,5 milljónir Stjórn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins áætlar að það kosti 13,5 milljónir að reka skíðasvæðið í Skálafelli í sjö helgar í vetur. Nýtt belti á snjótroðara kostar 5 milljónir að sögn Diljár Ámundadóttur, formanns stjórnar. 25.1.2012 07:00
Dönsk fegurðardrottning vann dómmál sitt gegn Sandefjord Danska fegurðardrottningin, Line Kruuse Nielsen, vann dómsmál sitt gegn norska bænum Sandefjord vegna skaða sem hún hlaut þar í desember árið 2008 þegar hún féll á svelli við torg bæjarins er hún var á leið á líkamsræktarstöð. 25.1.2012 06:55
Romney borgar meira til Mormónakirkjunnar en í skatta Milljarðamæringurinn Mitt Romney borgar meira til Mormónakirkjunnar í Bandaríkjunum en hann borgar í skatta þar í landi. 25.1.2012 06:47
Lögreglan stöðvaði mannrán á Ártúnshöfða Karl og kona eru í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir að þau voru stöðvuð á bíl á Ártúnshöfða á ellefta tímanum í gærkvöldi og leikur grunur á að farþegi sem var með þeim í bílnum, hafi verið þar nauðugur, enda skelkaður en ómeiddur. 25.1.2012 06:45
Töluvert tjón í eldsvoða á Bifröst Engan sakaði er töluvert tjón varð þegar eldur kviknaði í mannlausri íbúð í nemendagarði með tíu íbúðum að Bifröst upp úr miðnætti. 25.1.2012 06:43
Dregur úr flutningum þó fleiri fari en komi Enn flytja fleiri frá landinu en til þess, þrátt fyrir að heldur hafi dregið úr brottflutningi. Tölur frá Hagstofu Íslands sýna að árið 2011 fluttu 6.982 frá landinu, en 5.578 til landsins. Árið 2010 fluttu 7.759 frá Íslandi en 5.625 til landsins. 25.1.2012 06:30
Andlát fórnarlambs flækir réttarhaldið Þrír menn neituðu því staðfastlega fyrir dómi í gær að hafa ráðist með hrottalegum hætti á grískan ferðamann í Bankastræti fyrir nærri tveimur árum. Frásagnir þeirra af atburðum næturinnar stangast hins vegar á í veigamiklum atriðum. 25.1.2012 06:00