Innlent

Varað við snjóflóðahættu á Vestfjörðum

Búast má við snjóflóðahættu víða á vegum á norðanverðum Vestfjörðum í dag miðað við veðurspá.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Veðurstofan hefur einnig varað við norðanstormi á Vestfjörðum í dag og öllu vestanverðu landinu í kvöld og nótt.

Á Vestfjörðum er þungfært of þæfingsfærð víða. Ófært er á Gemlufallsheiði og Klettshálsi. Þungfært og stórhríð er í

Önundar- og Súgandarfirði og Ísafjarðardjúpi, einnig er þungfært á Steingrímsfjarðar- og Kleifaheiði. Snjóþekja er á Þröskuldum.

Það er hálka og skafrenningur á Sandskeiði. Snjóþekja og éljagangur á Hellisheiði og í Þrengslum. Þungfært er á Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði. Á Suðurlandi er snjóþekja og hálka og víða éljagangur.

Hálkublettir eru á Reykjanesbraut, Grindavíkurvegi og Vesturlandsvegi. Þæfingsfærð er á Suðurstrandarvegi en þungfært á Krýsuvíkurvegi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×