Innlent

Eldsvoði á Ísafirði

Nokkurt tjón varð þegar eldur kviknaði í háfi yfir eldavél á veitingastað í verslanamiðstöðinni Neistanum á ísafirði um sex leitið í gærkvöldi þannig að eldur og reykur stóðu upp úr húsinu.

Nokkuð var af fólki þar innandyra þegar eldurinn kviknaði, en engan sakaði og sjálfvirkt slökkvikerfi fór í gang og hafði að mestu slökkt eldinn þegar slökkvilið kom á vettvang. Tjón varð af völdum reyks og vatns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×