Fleiri fréttir Fáðu myndir frá Mars í snjallsímann Geimferðastofnun Bandaríkjanna hefur þróað smáforrit sem birtir nýjustu ljósmyndir frá plánetunni Mars. Hægt er að nota forritið í Android snjallsímum sem og iPhone og iPad. 13.1.2012 20:28 The Pirate Bay hættir að deila Torrent-skrám Skráarsíðan vinsæla The Pirate Bay mun á næstu vikum hætta að deila svokölluðum straum-skrám. Vefsíðan mun þó halda áfram að deila efni en í breyttu formi. 13.1.2012 20:12 Formaður Vítisengla í gæsluvarðhaldi Formaður Vítisengla, Einar Marteinsson, var handtekinn í dag og úrskurðaður í gæsluvarðhald í tengslum við alvarlega líkamsárás á unga konu. Fimm vítisenglar eru nú í einangrun vegna málsins. 13.1.2012 18:55 Stöðuvatn á bílastæði í Hafnarfirði Nú þegar hlýnað hefur í veðri hafa myndast stórir pollar víðsvegar um land. Í morgun myndaðist mikið stöðuvatn við Ásvallalaug í Hafnarfirði í hlákunni. Bæjarstarfsmenn voru fengnir til þess að koma á vettvang til þess að kafa eftir niðurföllum og laga ástandið. Fólki er bent á að losa snjó og klaka frá niðurföllum til að koma í veg fyrir að svona pollar myndast. 13.1.2012 21:22 12.700 atvinnulausir Tæplega 12.700 einstaklingar voru atvinnulausir í lok desember 2011. Alls fjölgaði atvinnulausum um rúmlega 400 að meðaltali frá því í nóvember eða um 0,2 prósentustig. 13.1.2012 20:11 Fullyrða að hafa greitt svart fyrir sílikonaðgerðir Velferðarráðuneytinu hafa borist ábendingar um að læknar sem bjóða heilbrigðisþjónustu án greiðsluþáttöku sjúkratrygginga gefi ekki tekjur sínar að fullu upp til skatts. Nokkrar konur sem fréttastofa hefur rætt við fullyrða að þær hafi greitt svart fyrir brjóstaígræðslur sem þær fengu frá Jens Kjartanssyni. 13.1.2012 19:24 Bíllinn tekinn í skjóli nætur Tveggja barna móður rak í rogastans í morgun þegar hún hugðist keyra börnin sín í skólann. Bíllinn var horfinn. Lýsing lét vörslusvipta bílinn í skjóli nætur. Ömurleg vinnubrögð segir konan, óeðlileg vinnubrögð segir Umboðsmaður skuldara. Við erum í fullum rétti segir talsmaður Lýsingar. 13.1.2012 18:35 Kannabisræktandi stal rafmagni frá annarri íbúð Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti í fyrradag. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust tæplega 150 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar en þær vógu um 22 kg. Einn var handtekinn í þágu rannsóknarinnar en við hana kom jafnframt í ljós að rafmagnið sem var notað við ræktunina var fengið með því að stela því frá annarri íbúð í húsinu. 13.1.2012 17:59 Ölvaður ökumaður ók greitt framhjá lögreglubíl Tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í morgun. Annar var stöðvaður í Hafnarfirði en hinn í Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru þetta tveir karlar, 25 og 43 ára. Afskiptin af þeim eldri voru þannig tilkomin að hann ók mjög greitt framhjá lögreglubifreið og vakti það grunsemdir. Honum var veitt stutt eftirför en maðurinn reyndist ölvaður eins og áður sagði. 13.1.2012 17:58 Gunna Dís á batavegi - fékk kökur frá Andra Fjölmiðlamaðurinn Andri Freyr Viðarsson kom færandi hendi til Gunnu Dísar vinkonu sinnar nú á fjórða tímanum í dag með kökur og kræsingar. Fjölmiðlafólkið vinnur saman við þættina Virkir morgnar á Rás 2, en það brá mörgum í brún í gær þegar Gunna Dís fékk aðsvif í beinni útsendingu í útvarpinu í gær, þegar útsending á Gettu betur fór fram. 13.1.2012 15:39 Sendiherra málaði eitt verkanna 13.1.2012 15:30
Sjá næstu 50 fréttir
Fáðu myndir frá Mars í snjallsímann Geimferðastofnun Bandaríkjanna hefur þróað smáforrit sem birtir nýjustu ljósmyndir frá plánetunni Mars. Hægt er að nota forritið í Android snjallsímum sem og iPhone og iPad. 13.1.2012 20:28
The Pirate Bay hættir að deila Torrent-skrám Skráarsíðan vinsæla The Pirate Bay mun á næstu vikum hætta að deila svokölluðum straum-skrám. Vefsíðan mun þó halda áfram að deila efni en í breyttu formi. 13.1.2012 20:12
Formaður Vítisengla í gæsluvarðhaldi Formaður Vítisengla, Einar Marteinsson, var handtekinn í dag og úrskurðaður í gæsluvarðhald í tengslum við alvarlega líkamsárás á unga konu. Fimm vítisenglar eru nú í einangrun vegna málsins. 13.1.2012 18:55
Stöðuvatn á bílastæði í Hafnarfirði Nú þegar hlýnað hefur í veðri hafa myndast stórir pollar víðsvegar um land. Í morgun myndaðist mikið stöðuvatn við Ásvallalaug í Hafnarfirði í hlákunni. Bæjarstarfsmenn voru fengnir til þess að koma á vettvang til þess að kafa eftir niðurföllum og laga ástandið. Fólki er bent á að losa snjó og klaka frá niðurföllum til að koma í veg fyrir að svona pollar myndast. 13.1.2012 21:22
12.700 atvinnulausir Tæplega 12.700 einstaklingar voru atvinnulausir í lok desember 2011. Alls fjölgaði atvinnulausum um rúmlega 400 að meðaltali frá því í nóvember eða um 0,2 prósentustig. 13.1.2012 20:11
Fullyrða að hafa greitt svart fyrir sílikonaðgerðir Velferðarráðuneytinu hafa borist ábendingar um að læknar sem bjóða heilbrigðisþjónustu án greiðsluþáttöku sjúkratrygginga gefi ekki tekjur sínar að fullu upp til skatts. Nokkrar konur sem fréttastofa hefur rætt við fullyrða að þær hafi greitt svart fyrir brjóstaígræðslur sem þær fengu frá Jens Kjartanssyni. 13.1.2012 19:24
Bíllinn tekinn í skjóli nætur Tveggja barna móður rak í rogastans í morgun þegar hún hugðist keyra börnin sín í skólann. Bíllinn var horfinn. Lýsing lét vörslusvipta bílinn í skjóli nætur. Ömurleg vinnubrögð segir konan, óeðlileg vinnubrögð segir Umboðsmaður skuldara. Við erum í fullum rétti segir talsmaður Lýsingar. 13.1.2012 18:35
Kannabisræktandi stal rafmagni frá annarri íbúð Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti í fyrradag. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust tæplega 150 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar en þær vógu um 22 kg. Einn var handtekinn í þágu rannsóknarinnar en við hana kom jafnframt í ljós að rafmagnið sem var notað við ræktunina var fengið með því að stela því frá annarri íbúð í húsinu. 13.1.2012 17:59
Ölvaður ökumaður ók greitt framhjá lögreglubíl Tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í morgun. Annar var stöðvaður í Hafnarfirði en hinn í Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru þetta tveir karlar, 25 og 43 ára. Afskiptin af þeim eldri voru þannig tilkomin að hann ók mjög greitt framhjá lögreglubifreið og vakti það grunsemdir. Honum var veitt stutt eftirför en maðurinn reyndist ölvaður eins og áður sagði. 13.1.2012 17:58
Gunna Dís á batavegi - fékk kökur frá Andra Fjölmiðlamaðurinn Andri Freyr Viðarsson kom færandi hendi til Gunnu Dísar vinkonu sinnar nú á fjórða tímanum í dag með kökur og kræsingar. Fjölmiðlafólkið vinnur saman við þættina Virkir morgnar á Rás 2, en það brá mörgum í brún í gær þegar Gunna Dís fékk aðsvif í beinni útsendingu í útvarpinu í gær, þegar útsending á Gettu betur fór fram. 13.1.2012 15:39
Íbúar hafa fengið 100 tonn af salti Stöðugur straumur íbúa hefur verið á hverfastöðvarnar í dag að ná í sand og salt til að bera á einkalóðir og innkeyrslur. Starfsmenn stöðvanna hafa þegar afgreitt yfir 100 tonn af salti og sandi til íbúa síðustu daga, samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg. Á morgun geta íbúar komið á hverfastöðvarnar milli klukkan hálfellefu og þrjú vanti þá salt eða sand. Hverfastöðvarnar sem verða opnar eru við Njarðargötu, við Flókagötu, í Jafnaseli og við Stórhöfða. 13.1.2012 15:19
Tuttugu ára fangelsi fyrir að grafa unnustu sína lifandi Maður sem gróf unnustu sína lifandi í skóglendi í Englandi hefur verið dæmdur í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi fyrir tilraun til morðs. Marcin Kaspzrak gaf kærustu sinni rafstuð með rafstuðtæki, vafði utan um hana límbandi og stakk henni í pappakassa. Kassann gróf hann síðan í skóglendi nálægt Huddersfield í maí síðastliðnum. 13.1.2012 14:50
Hætta á hryðjuverkaárás í Tælandi Bresk og bandarísk stjórnvöld vara þegna sína við mikilli hættu á hryðjuverkaárásum í Tælandi og hvetja fólk sem þangað þarf að fara til þess að fara afar varlega. Lögreglan í Tælandi handtók í dag mann frá Líbanon sem grunaður er um að tengjast Hezbollah samtökunum. 13.1.2012 14:28
Fjarlægðu skráningarnúmer af 100 bílum Skráningarnúmer voru fjarlægð af um eitt hundrað ökutækjum víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu í gær og fyrradag. Ökutækin voru ýmist ótryggð eða óskoðuð, jafnvel hvorutveggja. Mikið er um ótryggð og óskoðuð ökutæki á höfuðborgarsvæðinu en lögreglan hvetur eigendur og umráðamenn þeirra til að gera þar bragarbót á. Lögreglan hefur undanfarna daga verið með eftirlit með slíkum ökutækjum og mun vera með slíkt eftirlit áfram. Lögreglan hvetur ökumenn til að passa upp á þetta svo ekki þurfi að koma til fyrrnefndra aðgerða. 13.1.2012 13:34
Dómari vill nýtt sakhæfismat fyrir Breivik Dómstóll í Noregi hefur ákveðið að láta fara fram nýtt sakhæfismat á fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik. Samkvæmt mati sem áður hafði verið gert er hann ósakhæfur. Wenche Elizabeth Arntzen dómari segir að sökum þess hve matið hefur verið gagnrýnt mikið sé nauðsynlegt að láta meta hann að nýju. Hefði dómarinn stuðst við hið upphaflega mat þá hefði Breivik verið vistaður á réttargeðdeild en ekki í fangelsi eftir að dómur verður upp kveðinn. 13.1.2012 13:03
Maðurinn látinn Maðurinn sem slasaðist í hlíðum Helgafells í nágrenni Hafnarfjarðar í gær lést í nótt á Landspítalanum, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. Ekki er hægt að greina frá nafni mannsins á þessari stundu en hann var rúmlega þrítugur. Þyrla Landhelgisgæslunnar fann manninn mikið slasaðan í hlíðum fjallsins síðdegis í gær eftir að björgunarsveit hafði leitað hans um nokkra stund. 13.1.2012 12:09
Mál Más ekki á borði Steingríms Steingrímur J. Sigfússon segir efnahags- og viðskiptaráðuneytið ekki eiga eftir að skipta sér af deilu Más Guðmundssonar, seðlabankastjóra, og seðlabankans. Allir eigi rétt á að bera ágreining undir dómstóla. 13.1.2012 12:07
Tæpur þriðjungur hunda í Reykjavík óskráðir Talið er að uppundir 30% hunda í Reykjavík séu óskráðir - og það leysir engan vanda að skylda hundaeigendur til að sækja námskeið, segir formaður heilbrigðisnefndar Reykjavíkur. Í nýrri hundasamþykkt borgarinnar er hundum á bannlista fjölgað um níu tegundir. 13.1.2012 12:00
Fékk grýlukerti á sig Grýlukerti á þakbrún á húsi við Dalbrekku féll á mann í Dalbrekku í Kópavogi um níuleytið í morgun. Hann er ekki alvarlega slasaður en sjúkrabifreið var kölluð til, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Eftir klukkan tíu í morgun féll maður utandyra á Álfhólsvegi við Álfhólsskóla. Sjúkrabíll var kallaður til en ekki er vitað nánar um meiðsl hans. 13.1.2012 11:23
Stöðvaði fílharmóníusveit Stjórnandi Fílharmóníusveitar New York borgar í Bandaríkjunum stöðvaði flutning níundu sinfóníu Mahlers í Lincoln Center á þriðjudag eftir látlausa hringingu farsíma eins áheyrenda. 13.1.2012 11:00
Forsetahjónin fagna með drottningunni Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff forsetafrú munu um helgina taka þátt í hátíðardagskrá í Kaupmannahöfn í tilefni af því að 40 ár eru liðin frá því að Margrét Þórhildur varð drottning Danmerkur. 13.1.2012 10:38
Fleiri þráðlaus net á næstunni Reykjavíkurborg er að fjölga þráðlausum nettengingum í félagsmiðmiðstöðvum sínum. 13.1.2012 10:15
Lítið um vatnsflóð enn sem komið er Tíðindalítið hefur verið hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu þrátt fyrir leysingarnar sem gengnar eru í garð. Þar á bæ beina menn þó eindregnum tilmælum til borgarbúa að þeir hreinsi vel frá niðurföllum við kjallara og á svölum sérstaklega. Eins minna þeir forsvarsmenn fyrirtækja sem verða lokuð yfir helgina að ganga vel frá þannig að vatn eigi örugglega greiða leið í niðurföll. 13.1.2012 09:37
Samþykkja flestar beiðnir um hleranir Dómstólar samþykkja meirihluta beiðna lögreglu um heimild til símhlerana. Túlka verður lög um hleranir þröngt segir fyrrverandi ríkissaksóknari. Segir einstök tilvik líta út eins og sérstakur saksóknari sé að fiska með hlerunum. 13.1.2012 09:30
Kristján Möller stakk óþægilegri skýrslu undir stól Kristján Möller þáverandi samgönguráðherra virðist hafa stungið skýrslu um Vaðlaheiðagöng undir stól en skýrsluna fékk hann í hendur sumarið 2010. Í henni kemur fram að veggjald þurfti að vera tvöfalt hærra en rætt hefur verið um og að framkvæmdin sé mjög áhættusöm. 13.1.2012 09:28
Meiri áhersla á sölu leyfa til útlendinga Sala til fyrirtækja og útlendinga mun standa undir hærri leigu í Þverá og Kjarrá segir nýr leigutaki. Mun bjóða Litlu-Þverá sem nýtt tveggja stanga veiðisvæði. Gamlar hefðir verða endurvaktar við Kjarrá og veiðimenn fá undir sig hesta. 13.1.2012 09:15
Aldrei fleiri farið um Leifsstöð Um 21 þúsund erlendir ferðamenn fóru úr landi um Leifsstöð í desember. Eru það ríflega 11 prósentum fleiri en í desember árið 2010. Samanlagt fóru því 541 þúsund erlendir ferðamenn úr landi um Leifsstöð á árinu 2011 sem er metfjöldi og tæplega 18 prósentum fleiri en árið 2010. Áður var árið 2008 metár þegar 473 þúsund erlendir ferðamann fóru um Leifsstöð. 13.1.2012 09:00
Vökum yfir líðan barna okkar „Það hefur ekkert foreldri meðfædda vitneskju um hvernig bregðast eigi við áfallastreitu barna, en það er okkar hlutverk að miðla, fræða og kenna, og það gerum við með ráðstefnum sem þessari og því að setja inn á heimasíðu okkar gagnlegar upplýsingar sem foreldrar og forráðamenn barna geta nýtt sér,“ segir Linda Kristmundsdóttir, hjúkrunardeildarstjóri á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans (BUGL). 13.1.2012 09:00
Urban hættir að koma út Fríblaðið Urban sem kemur út í Danmörku hættir göngu sinni frá og með gærdeginum. Útgáfufélagið Berlingske Media reynir með þessu að auka sparnað, að því er greint er frá á viðskiptavef Berlingske, business.dk. 13.1.2012 08:30
Fuglavernd styður bannið Fuglavernd styður eindregið niðurstöðu meirihluta svartfuglanefndar umhverfisráðherra um að veiðar á svartfugli verði bannaðar í fimm ár. Í tilkynningu segir að ástundun veiða úr hnignandi stofnum sé siðlaus umgengni við náttúruna og veiðibann eina siðlega viðbragðið við stofnhruni tegunda. 13.1.2012 08:15
Aðaljárnbrautarstöðin í Kaupmannahöfn að drukkna í hlandi Aðaljárnbrautarstöðin í Kaupmannahöfn er að drukkna í hlandi. Þetta vandamál kom upp þegar farið var að rukka fyrir afnotin af salernum stöðvarinnar. 13.1.2012 08:06
Mikið af síld inn á Kolgrafarfirði Talið er að mikið sé af síld inn á Kolgrafarfirði á norðanverðu Snæfellsnesi, en síldveiðiskip komast ekki undir brúnna, sem þverar fjörðinn. 13.1.2012 08:01
Barroso segir þörf á stefnu um vöxt og atvinnu José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir að þótt gríðarlega mikilvægt sé að aðildarríkin nái saman um aukið aðhald í ríkisfjármálum, sé það ekki nóg. 13.1.2012 08:00
Lögreglan klippti númer af hátt í 50 bílum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gerði í gær athugun á tryggingum og skoðun bíla, sem endaði með því að númer voru klippt af hátt í 50 bílum. 13.1.2012 07:59
Verð á ópíum hækkaði um 133% í Afganistan Í nýrri skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum kemur fram að verð á ópíum frá Afganistan hækkaði um 133% í verði í fyrra miðað við árið á undan. 13.1.2012 07:54
Kennsl borin á tvo hermenn sem pissuðu á fallna Talibana Búið er að bera kennsl á tvo af þeim fjórum hermönnum sem sjást á myndbandi vera að pissa yfir fallna Talibana í Afganistan. 13.1.2012 07:50
Asahláka og slæmt ferðaveður víða um landið Veðurstofan varar við slæmu ferðaveðri sunnan- og vestanlands í dag. Það verður hvöss sunnanátt, allt upp í 20 metra á sekúndu og má búast við snöprum vindstrengjum við fjöll. 13.1.2012 07:47
Of hár blóðþrýstingur styttir ævina um 5 ár Umfangsmikil rannsókn í Noregi sýnir að ævi þeirra sem reykja meir en 15 sígarettur á dag styttist að meðaltali um 3,5 ár. Offita kostar fólk 1,4 ár af ævi sinni en ef viðkomandi er of horaður kostar það 1,7 ár af ævinni. Of hár blóðþrýstingur kostar fólk hinsvegar 5 ár af ævi sinni. 13.1.2012 07:40
Setti nýtt heimsmet í rúningi Írinn Ivan Scott sett nýtt heimsmet í rúningi í vikunni á Nýja Sjálandi. Scott náði að rýja 744 kindur á átta tímum og sló þar með fyrra heimsmet um tvær kindur. 13.1.2012 07:37
Fundu nýja loðnugöngu út af Langanesi Loðnuskipin fundu nýja loðnugöngu norðaustur af Langanesi í nótt og eru byrjuð að veiða úr henni. Það er þó engin kraftur komin í veiðarnar enn sem komið er og stendur loðnan djúpt. 13.1.2012 07:27
Maðurinn sem féll í Helgafelli er þungt haldinn Maðurinn, sem áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar fann í hlíðum Helgafells, ofan við Hafnarfjörð um miðjan dag í gær, reyndist mjög alvarlega slasaður og liggur hann þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans. 13.1.2012 07:21
Aflétta þarf óvissu verktaka Stjórn Vaðlaheiðarganga hf. segir að unnið hafi verið að gerð ganga undir Vaðlaheiði á faglegum forsendum í fullu samráði við „þar til bæra aðila“, eins og segir í yfirlýsingu. 13.1.2012 07:15
„Hefðbundið stjórnsýsluklúður“ Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur eru ósáttir við að tillaga um skipun samstarfshóps um mál tengd ÍTR skuli hafa komið fram í menningar- og ferðamálaráði og verið send beint þaðan til borgarráðs. Frumkvæðið hafi átt að vera hjá íþrótta- og tómstundaráði. 13.1.2012 07:00
Vara sterklega við asahlákunni Sterklega er varað við vetrarumhleypingunum sem fylgja vatnsveðrinu sem nú dynur á landsmönnum. Asahlákan um helgina verður mun meiri en um síðustu helgi og hætt við eignaspjöllum og hálkuslysum. 13.1.2012 07:00