Fleiri fréttir

Pútín vart lengur öruggur í sessi

Stjórnarandstaðan í Rússlandi fékk byr undir báða vængi í kjölfar þingkosninganna, sem vafi leikur á hvort voru fullkomlega marktækar. Enginn öflugur mótframbjóðandi gegn Pútín virðist þó vera í sjónmáli enn sem komið er fyrir forsetakosningarnar í mars.

Fiskveiðiárið fer vel af stað

Heildarafli íslenska fiskiskipaflotans var 287.370 tonn fyrstu þrjá mánuði fiskveiðiársins sem hófst 1. september. Það er heldur meiri afli en á sama tímabili í fyrra þegar 262.448 tonn veiddust. Aflinn var hins vegar svipaður á þessu tímabili árið 2009.

Mótmæltu framkomu hermanna

Um tíu þúsund egypskar konur mótmæltu á Frelsistorginu í Kaíró, höfuðborg Egyptalands, í gær. Þær mótmæltu framkomu og ofbeldi hermanna gagnvart þeim í mótmælum undanfarna daga, þar sem þeir drógu kvenkyns mótmælendur meðal annars um á hárinu, auk þess sem ein kona var afklædd og barin.

Líkkistur og formalín skortir

Yfirvöld á Filippseyjum sendu í gær yfir 400 líkkistur til tveggja borga sem verst urðu úti í flóðum í suðurhluta Filippseyja um helgina.

Málfrelsismenn flytji úr landi

Yfirmaður herafla Taílands hefur fengið nóg af gagnrýni á lög í landinu sem kveða á um þriggja til 15 ára fangelsi verði fólk uppvíst að því að móðga konungdæmið.

Bon Jovi ekki látinn

Söngvarinn Jon Bon Jovi neyddist til að færa sönnur á að hann væri í raun á lífi eftir að ljótur orðrómur spratt upp á internetinu. Sögusagnir voru um að rokkgoðið hefði gefið upp öndina á hótelherbergi í Asbury Park í New Jersey.

Versti sendill veraldar

Starfsmaður þjónustufyrirtækisins FedEx átti heldur slæman vinnudag í gær. Hann náðist á myndband þegar hann fleygði tölvuskjá yfir girðingu og snér sér síðan að næstu sendingu.

Ammoníaksleki á Fiskislóð

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út að Fiskislóð 34 í kvöld vegna gruns um ammoníaksleka. Leki varð í sama húsnæði fyrir um tveimur vikum síðan en tilvikið er ekki sambærilegt og var minniháttar. Ein stöð frá slökkviliðinu fór á staðinn í kvöld.

Borgaraleg handtaka í Reykjavík

Um klukkan fimm í dag framkvæmdu nokkrir menn borgaralega handtöku vestan við Hofsvallagötu á gatnamótum Hringbrautar í Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu ók maður á annan bíl og virðist sem maðurinn hafi ætlað að keyra í burt af vettvangi. Lögreglan segir að nokkrir menn hafi haldið manninum föngum þar til lögreglan kom á svæðið, en hún ku hafa verið fljót á staðinn þannig að engin átök brutust út. Maðurinn var handtekinn og færður á lögreglustöð. Engin slys urðu á fólki.

Hvít jörð á aðfangadagskvöld

Áhugi Íslendinga um veðrið á aðfangadag hefur alltaf verið mikill enda vilja flestir hafa snjókomu fyrir utan gluggann þegar að jólasteikin er borðuð og jólapakkarnir opnaðir. Vísir sló á þráðinn á Veðurstofu Íslands nú í kvöld og spurði einfaldlega hvort að jólin yrðu hvít eða rauð.

Davíð Oddsson verður á ÍNN milli jóla og nýárs

"Þetta verður sennilega áhugaverðasta sjónvarpsviðtal ársins 2011 og ég tel mig ekkert vera að ofsegja á nokkrun hátt,“ segir Ingvi Hrafn Jónsson, sjónvarpsstjóri á sjónvarpsstöðinni ÍNN. Gestur Björns Bjarnasonar í þætti hans á stöðinni þann 28. desember næstkomandi verður Davíð Oddsson fyrrum forsætisráðherra og núverandi ritstjóri Morgunblaðsins.

Mörg ljón enn í vegi Helguvíkurálvers

Flóknar og erfiðar samningaviðræður eru framundan til yfirstíga þær hindranir sem enn eru í vegi álvers í Helguvík, ekki aðeins um orkusamninga heldur einnig um línulagnir og fjármögnun nýrra virkjana. Bæði Norðurál og HS Orka lýstu því yfir þegar gerðardómurinn lá fyrir í gær að þau myndu nú ganga til samninga.

Ríkisstjórnin gegn vilja utanríkismálanefndar

Þingmenn stjórnarandstöðunnar eru ósáttir við þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að fela utanríkisráðherra, forræði í Icesave málinu. Ákvörðun ríkistjórnarinnar kemur þvert á ályktun meirihluta utanríkismálanefndar um að málið yrði áfram í höndum efnahags- og viðskiptaráðherra.

Viðskiptavinir börðu sjálfir harðfiskinn

Bóndinn á Skálanesi á sunnanverðum Vestfjörðum hefur á æviskeiði sínu horft upp á yfir þrjátíu sveitabæi í kringum sig fara í eyði. Skálanes var áður miðstöð verslunar á stóru svæði en er nú orðinn endastöð byggðar, sem stórt skarð hefur rofnað í.

Skuldarahjálp alþingis gagnslaus að mati dómstóla

Dómstóll hefur nú tvívegis úrskurðað að lagaákvæði sem átti að hjálpa skuldurum gengislána - sé gagnslaust. Sýnir að björgunarlínan sem stjórnvöld ætluðu að kasta út til skuldara er ekki að virka, segir lögmaður Rafns Einarssonar, húsasmíða- og málarameistara, sem krafðist þess að nauðungarsala á húsi í hans eigu yrði endurupptekin. Héraðsdómur Reykjaness hafnaði kröfunni í dag.

Ríkisstjórnin ekki sannfærandi frammi fyrir dómstólum

Advice hópurinn, sem barðist fyrir því að Icesave-samningurinn yrði ekki samþykktur í þjóðaratkvæðagreiðslu, segir að ríkisstjórnin sé í þröngri stöðu, sérstaklega hvað varðar að halda uppi vörnum í málinu yfir EFTA dómstólnum.

Stefnan birt Íslendingum

Utanríkisráðuneytinu var í dag birt stefna Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) í samningsbrotamáli um ábyrgð á lágmarkstryggingu á Icesave-reikningunum.

Jólagjöfum stolið úr bíl

Brotist var inn í tvo bíla í Reykjavík í gær en jólagjöfum var stolið úr öðrum þeirra. Lögreglan vill vara eigendur og umráðamenn ökutækja við því að skilja verðmæti eftir í bílum.

Eimskip vann jólalagasamkeppnina

Eimskip vann jólalagasamkeppnina Geðveik jól, sem samtökin Geðhjálp stóðu fyrir. Úrslitin voru kynnt í dag. Í öðru sæti var Actavis og Landsbankinn í því þriðja.

Handrukkari í þriggja ára fangelsi

Gestur Hrafnkell Kristmundsson var dæmdur í þriggja ára fangelsi í dag fyrir stórfellda líkamsárás, frelsissviptingu og tilraun til fjárkúgunar. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða þolanda árásarinnar um 1,5 milljón í miskabætur.

Íbúar Liege minnast fórnarlamba

Vika er liðin síðan vígamaðurinn Nordine Amrani hóf skotárás á torginu Place Saint-Lambert í borginni Liege í Belgíu. Um 3.000 manns komu saman á torginu í dag til að minnast fórnarlamba árásarinnar.

Starfsmanna olíuborpallsins enn leitað

Yfirvöld í Rússlandi hafa fengið fleiri flugvélar til að aðstoða við leitina að starfsmönnum olíuborpalls sem féll í sjóinn á sunnudaginn. Borpallurinn var staðsettur í norðurhluta Kyrrahafs. Óvíst er um afdrif mannanna en sjórinn á þessum slóðum er afar kaldur.

Nauðungarsalan stendur þrátt fyrir gengisdóm

Héraðsdómur Reykjaness hafnaði í dag kröfu Breiðverks ehf. um að nauðungarsala á fasteign við Dimmuhvarf 7 í Kópavogi yrði tekin upp að nýju. Breiðverk krafðist endurupptöku nauðungarsölunnar á grundvelli þess að þegar lögum um vexti og verðtryggingu var breytt á síðasta ári hafi falist í breytingunni heimild til endurupptöku á málinu.

Helmingur borðar hamborgarhrygg

Um helmingur landsmanna, eða 52,9% telja líklegast að þeir muni borða hamborgarhrygg, á aðfangadagskvöld, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar MMR. Þeim mun fjölga lítillega frá því í fyrra en þá sögðust 50,7% borða hamborgarhrygg.

15 ára drengur skotinn á Tahrir torgi

Öryggissveitir herstjórnarinnar í Egyptalandi gerðu áhlaup á mótmælendur á Tahrir torgi í dag. Fregnir herma að 15 ára piltur sé í lífshættu eftir að hafa verið skotinn í bakið af meðlimum hersveitanna.

Trölla mistókst að stela jólunum

Svo virðist sem Trölli hafi reynt að stela jólunum í nótt, að minnsta kosti á Háskólatorgi. Óprúttinn aðili læddist þar inn og skemmdi skreytingar innanhús. Þegar húsverðir komu til vinnu í morgun lá jólatré sundurtætt og brotið á gólfinu, jólaskreytingar við matsöluna Hámu höfðu verið brotnar og glerbrot lágu því víða. Þá hafði viðkomandi brotið blaðastand og þeytt blöðum út um öll gólf. Húsverðirnir létu þó Trölla ekki eyðileggja jólin á Háskólatorgi, þrifu upp ruslið og skreyttu torgið greinum grænum á nýjan leik.

Myndir ársins að mati Stjörnufræðivefsins

Ár hvert eru milljónir ljósmynda teknar af undrum alheimsins, hvort sem það er af áhugafólki um stjörnufræði, vísindamönnum eða vélvæddum sendiherrum okkar í geimnum. Með vali sínu á þeim myndum sem þeir telja framúrskarandi fallegar eða merkilegar hafa aðstandendur Stjörnufræðivefsins náð að sannfæra okkur um að þeir horfi til himinsins með næmum huga.

Utanríkisráðherra mun bera ábyrgð á Icesave málinu

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra mun hafa stjórnskipulega umsjón með málarekstri Íslendinga í Icesave málinu þegar það verður rekið fyrir EFTA dómstólnum. Þetta var ákveðið á ríkisstjórnarfundi í morgun. Deilt hefur verið um málið að undanförnu meðal annars á Alþingi, en stjórnarandstæðingar, bæði í Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki hafa lagt á það áherslu að Árni Páll Árnason, sem hafði umsjón með málinu áður en Eftirlitsstofnun EFTA ákvað að kæra, yrði áfram með málið á sinni könnu.

Syngur sína síðustu jólamessu

Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, syngur sína síðustu jólamessu í embætti nú um þessi jól. Karl gerir þetta að umtalsefni í jólakveðju sem hann sendi starfsfólki kirkjunnar í morgun. "Við hjónin minnumst Guði þakklát liðinna jóla og genginna ára. Andlit svo ótal margra sem hlýrri birtu stafar af koma fyrir sálarsjónir. Það er óumræðilegt þakkarefni að hafa fengið að kynnast góðu fólki sem bætt hefur lífið og gert bjartara. Alla vináttu og góðvild fyrr og síðar þökkum við af alhug og biðjum Guð að launa það allt og blessa,“ segir Karl í kveðju sinni. Í kveðju sinni minnist hann einnig sinnar fyrstu jólamessu sem hann söng árið 1973. "Þá var dimmt yfir eyjunum og altaristaflan þakin sóti af völdum kertareyks kynslóðanna og öskufallsins. En ásjóna hinnar heilögu fjölskyldu ljómaði gegnum sortann,“ segir Karl í kveðjunni. Sem kunnugt er hófst Vestmannaeyjagosið í janúar 1973.

Suður Kóreumenn votta nágrönnum sínum samúð

Rikisstjórnin í Suður Kóreu vottaði í dag íbúum Norður Kóreu samúð sína vegna andláts Kim Jong II einræðisherra landsins, en hann lést um helgina sem kunnugt er. Kim Jong Un, sonur og eftirlifandi, einræðisherrans mætti líka í morgun til að vitja jarðneskra leifa einræðisherrans. Miklar vangaveltur eru um hver tekur við af Kim Jong Il en flestir telja að það verði sonur hans.

Einn tekinn úr umferð á Akureyri

Einn ökumaður var tekinn úr umferð af lögreglunni á Akureyri vegna gruns um að aka undir áhrifum fíkniefna í nótt. Að öðru leyti var nóttin fremur tíiðindalítil hjá lögreglu og slökkviliði um land allt.

Meira mjólkað í ár en í fyrra

Mjólkurframleiðsla á Íslandi fyrstu ellefu mánuði ársins er örlítið meiri en á sama tíma í fyrra, eða sem nemur 0,7 prósentum. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu landsambands kúabænda.

Segjast geta sannað tengsl Mannings við Assange

Saksóknarar í máli Bradley Mannings, hermannsins bandaríska sem ásakaður er um að hafa lekið þúsundum leyniskjala til Wikileaks vefsíðunnar, lögðu fram gögn í réttarhöldunum í gær sem þeir segja að sanni tengsl Mannings við uppljóstrunarsíðuna WikiLeaks.

Meirihluti utanríkismálanefndar vill Árna Pál

Meirihluti utanríkismálanefndar beinir því til ríkisstjórnarinnar að fyrirsvar í dómsmálum og öðru því sem snýr að Icesave gagnvart ESA og EFTA-dómstólnum sé áfram í höndum efnahags- og viðskiptaráðherra. Þetta kom fram í bókun meirihlutans, en hann mynda tveir fulltrúar Sjálfstæðisflokks, tveir frá Framsóknarflokki og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Vinstri grænum. Fjórir fulltrúar Samfylkingar og VG lögðu hinsvegar til að málið yrði hér eftir í forsvari utanríkisráðherra og Birgitta Jónsdóttir, Hreyfingu tók undir þau sjónarmið. Hún er hinsvegar aðeins áheyrnarfulltrúi í nefndinni.

Mun hrapa til jarðar í janúar

Rússneska geimfarið Fóbos-Grunt, sem hefur verið fast á lágri jarðbraut síðan í nóvember eftir tæknileg mistök, mun sennilega hrapa til jarðar um miðjan næsta mánuð.

Enn tekur sonur við af föður sínum

Í september í fyrra lýsti Kim Jong-il því yfir að sonur hans, Kim Jong-un, yrði eftirmaður hans sem leiðtogi Norður-Kóreu. Jong-un er á þrítugsaldri og tók þegar við valdamiklum embættum í Norður-Kóreu.

Segja skattheimtuna arfavitlausa og ala á mismunun

Sérstakur gistináttaskattur sem Alþingi hefur ákveðið að leggja á ferðaþjónustuna er illframkvæmanlegur og mun leiða til mikilla undanskota, segja Samtök ferðaþjónustunnar. En með því að undanskilja alla gistingu ferðafélaganna, svo sem Ferðafélags Íslands og Útivistar og alla gistingu stéttarfélaganna séu þingmenn að gera skattheimtuna enn vitlausari en ella. Með því muni sumir samkeppnisaðilar greiða skattinn en aðrir ekki.

Tók 16 mánuði að úrskurða

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál var nærri eitt og hálft ár að komast að niðurstöðu vegna kæru Fréttablaðsins. Menntamálaráðuneytinu ber að afhenda gögn um deilu starfsmanna Iðnskólans í Hafnarfirði.

Þorvarður ekki ákærður aftur

Ríkissaksóknari hefur ákveðið að gefa ekki út nýja ákæru á hendur Þorvarði Davíð Ólafssyni fyrir manndráp. Ástæðan er sú hversu þunga refsingu, fjórtán ára fangelsisdóm, hann hlaut fyrir tilraun til manndráps.

Sjá næstu 50 fréttir