Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Transparency International slítur á tengslin við FIFA Samtökin Transparency International sem berjast gegn spillingu í heiminum hafa slitið á öll tengsl sín við Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA. 2.12.2011 08:10
Eldur í bílskúr Eldur kviknaði í stökum bílskúr á baklóð í vesturbæ Reykjavíkur í nótt. Hann náði ekki að magnaðst áður en slökkvilið kom á vettvang og slökkti eldinn. Engin bíll var í skúrnum og varð óverulegt tjón á hlutum sem þar voru. Eldsupptök eru ókunn. 2.12.2011 08:07
Útigangsmenn settir í fangelsi fyrir að sofa á götum úti Meirihluti á ungverska þinginu hefur samþykkt frumvarp sem felur í sér að hægt er að setja heimilislaust fólk í fangelsi fyrir það eitt að sofa á götum úti eða sekta það um rúmlega 100.000 krónur. 2.12.2011 08:04
Fjöldi árekstra í höfuðborginni Hátt á þriðja tug árekstra varð á höfuðborgarsvæðinu í gær, sem flesta má rekja til erfiðra akstursskilyrða. 2.12.2011 08:00
Skíðasvæðið á Dalvík opnað í dag Skíðasvæðið á Dalvík verður opnað í dag, en fyrst um sinn verður aðeins neðri lyftan opin. 2.12.2011 07:56
Hvetja til handtöku George Bush fyrrum forseta í Afríku Mannréttindasamtökin Amnesty International hvetja yfirvöld í Afríkulöndunum Eþíópíu, Tansaníu og Zambíu til þess að handtaka George Bush fyrrum Bandaríkjaforseta fyrir pyntingar en Bush mun heimsækja þessi lönd í næstu viku. 2.12.2011 07:26
Saksóknari boðar Bjarna í yfirheyrslu Embætti sérstaks saksóknara hefur boðað Bjarna Ármannsson, fyrrverandi bankastjóra Glitnis, í yfirheyrslu vegna rannsóknar á stórfelldum brotum í rekstri Glitnis, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. 2.12.2011 07:00
Reiddist eftir flöskutalningu Lögreglan handtók síðdegis í gær karlmann á fimmtugsaldri sem ógnað hafði lögreglumönnum og öðru fólki með hnífi. 2.12.2011 06:30
Fleiri ökumenn teknir dópaðir en drukknir Lögreglan í Borgarnesi tekur orðið fleiri ökumenn sem aka undir áhrifum fíkniefna heldur en áfengis, að sögn Theódórs Þórðarsonar yfirlögregluþjóns í umdæminu. 2.12.2011 06:00
Kannabisefni í málningarfötu Karlmaður og kona um tvítugt hafa verið ákærð fyrir Héraðsdómi Reykjaness fyrir fíkniefnalagabrot. 2.12.2011 05:15
Bygging nýs fangelsis sé háð skilyrðum „Mín skoðun er sú að mikilvægt sé að veita heimild til byggingar nýs fangelsis en það þurfi að gera með ákveðnum skilyrðum.“ Þetta segir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður fjárlaganefndar Alþingis, en meirihluti nefndarinnar er andvígur því að heimila byggingu fangelsis á Hólmsheiði í samræmi við tillögur ríkisstjórnarinnar. 2.12.2011 04:00
Stóra spurningin er hvort verðtrygging auki óstöðugleika Það er óhætt að segja að verðtrygging lána hafi verið á milli tannanna á landsmönnum síðustu ár. Ekki síst í kjölfar gengisfalls íslensku krónunnar eftir bankahrunið haustið 2008 sem olli miklum hækkunum á höfuðstóli verðtryggðra lána. Hefur verið talað um „stökkbreytingu“ lána og forsendubrest í þessu samhengi. 2.12.2011 04:00
Staða ríkissjóðs útilokar nýtt minjasafn Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra segir að staða ríkissjóðs sé með þeim hætti að ekki sé líklegt að fjárveitingar fáist á næstu árum til að byggja nýtt hús fyrir Náttúruminjasafn Íslands. Nefnd á vegum ríkisins og Reykjavíkurborgar um húsnæðismál safnsins, sem kom saman árið 2009, komst að þeirri niðurstöðu að ótímabært væri að vinna að málinu vegna fjárskorts. 2.12.2011 03:45
Jólamarkaður í Álafosskvos Ásgarður handverkstæði verður með sinn árlega jólamarkað og kaffisölu í húsnæði Ásgarðs að Álafossvegi 22 í Mosfellsbæ laugardaginn 3. desember. Markaðurinn hefst klukkan 12 og stendur til klukkan 17. 2.12.2011 03:45
Vísar máli aftur til rannsóknar Ríkissaksóknari hefur fellt úr gildi ákvörðun sérstaks saksóknara um að hætta rannsókn á fimm lífeyrissjóðum sem voru í umsjá Landsbankans. Sérstökum saksóknara hefur verið gert að taka málið til áframhaldandi rannsóknar. 2.12.2011 03:00
Tvö fá verðlaun Velferðarsjóðs Hrefna Haraldsdóttar foreldraráðgjafi og Stefán Hreiðarsson, forstöðumaður Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins, hlutu í gær barnamenningarverðlaun Velferðarsjóoðs barna. Verðlaunin, samtals tvær milljónir króna, fengu þau fyrir framúrskarandi framlag í þágu velferðar barna. 2.12.2011 02:00
Börnum nauðgað á 36 tíma fresti Börnum er nauðgað á Fílabeinsströndinni að meðaltali á 36 tíma fresti og hafa ríflega 1.100 konur og börn þar orðið fyrir ofbeldi á liðnu ári. 2.12.2011 01:00
16 ára fá ef til vill að kjósa Sextán ára unglingar gætu fengið kosningarétt í sumum bæjum í Danmörku ef hugmyndir stjórnvalda ná fram að ganga. 2.12.2011 00:30
Boðar þíðu í samskiptum Bandaríkjanna og Búrma Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, skoraði í gær á stjórnvöld í Búrma að halda áfram úrbótum í lýðræðisátt og sleppa öllum pólitískum föngum úr haldi nú þegar. Hún boðaði í gær tilslakanir á refsiaðgerðum gegn landinu. 2.12.2011 00:00
Afneitaði jólasveininum í beinni útsendingu - myndband Fréttaþulur hjá sjónvarpsstöðinni FOX í Chicago tókst að komast á óþekktarlista jólasveinsins eftir að hún tilkynnti í beinni útsendingu að digri maðurinn í rauða búningnum væri ekki til. 1.12.2011 23:30
Fyrstu myndir af Daniel Day-Lewis í gervi Lincolns Óskarsverðlauna leikstjórinn Steven Spielberg vinnur nú að kvikmynd sem byggð er á ævi 16. forseta Bandaríkjanna, Abraham Lincoln. Leikarinn Daniel Day-Lewis mun fara með hlutverk forsetans. 1.12.2011 21:00
Hringvegurinn klárast ekki næsta áratuginn Breikkun Suðurlandsvegar til Selfoss lýkur í fyrsta lagi eftir áratug, Austfirðingar þurfa að bíða í sjö ár eftir Norðfjarðargöngum og Vestfirðingar fá ekki Dýrafjarðargöng fyrr en árið 2020. Þetta er meðal þess sem ný samgönguáætlun boðar en hún er nú í meðförum stjórnarflokkanna. 1.12.2011 19:30
Úthlutun Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur í 83 sinn Hjartagæska Íslendinga sýnir sig í margskonar myndum rétt fyrir jól og ekki síst við söfnun og úthlutun jólaglaðninga Mæðrastyrksnefndar eins og Hugrún Halldórsdóttir fékk að kynnast í dag. 1.12.2011 20:30
Þúsundir fjármögnunarleigusamninga í uppnámi Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag að fjármögnunarleigusamningur sem fyrirtækið gerði við Lýsingu hafi verið ólöglegur. Þúsundir sambærilegra samninga eru í uppnámi vegna dómsins en stjórnarformaður Lýsingar segir að fyrirtækið fari ekki í þrot verði þetta niðurstaða Hæstaréttar. 1.12.2011 19:00
Tilnefningar til íslensku bókmenntaverðlaunanna kynntar Tilnefningar til íslensku bókmenntaverðlaunanna voru tilkynnt í dag. Athöfnin fór fram í Listasafni Íslands og var tilnefnt í tveimur flokkum, flokki fagurbókmennta og í flokki fræðibóka og rita almenns efnis og eru 5 bækur tilnefndar í hvorum flokki. 1.12.2011 17:45
Vopnaður maður ógnaði lögreglumönnum Karlmaður með hníf ógnaði starfsmönnum í Sorpu við Dalveg um klukkan tuttugu mínútur yfir þrjú í dag. 1.12.2011 17:00
4,3 milljarða mínus - meðal annars vegna lækkandi álverðs Afkoma Reykjavíkurborgar var sjö milljörðum undir áætlun fyrstu níu mánuði ársins samkvæmt níu mánaða uppgjör Reykjavíkurborgar sem var lagt fram í borgarráði í dag. Ástæðan er aðallega lækkandi álverð. 1.12.2011 17:49
Ásgeir verður bæjarstjóri Voga Sveitarfélagið Vogar hefur ráðið Ásgeir Eiríksson rekstrarhagfræðing og leiðsögumann sem næsta bæjarstjóra. Á fréttavef Víkurfrétta segir að tuttugu umsóknir hafi borist um starfið og þar segir ennfremur að forseta bæjarstjórnar hafi verið falið að ganga til samninga við Ásgeir. 1.12.2011 16:36
Bjartari tímar framundan í HIV málum Það eru bjartari tímar framundan þótt útlitið undanfarið hafi verið dökkt, segir Einar Þór Jónsson, framkvæmdastjóri HIV samtakanna á Íslandi. Alþjóðlegi alnæmisdagurinn er í dag og því verða samtökin með opið hús hjá sér milli klukkan fjögur og sjö í dag. Einar segir að það hafi orðið mikil aukning í HIV smiti undanfarin ár. Þá aukningu megi helst rekja til sprautusjúklinga. "Það er í mörgum tilfellum fólk sem á erfitt og býr við erfiðar félagslegar aðstæður,“ segir Einar. 1.12.2011 15:45
Clarkson hneykslar - verkfallsmenn ætti að taka af lífi Breska ríkisútvarpið hefur beðist afsökunar á ummælum sem Jeremy Clarkson, þáttastjórnandi bílaþáttarins Top Gear lét falla í beinni útsendingu í spjallþættinum The One Show á BBC. Þar var Clarkson spurður út í verkfall opinberra starfsmanna í Bretlandi sem boðað var til í gær og sagði hann réttast að taka starfsmennina af lífi fyrir framan fjölskyldur þeirra. 1.12.2011 15:39
Vörukarfan hækkar alls staðar nema í Hagkaup og Nóatúni Vörukarfa Alþýðusambands Íslands hefur hækkað í flestum verslunarkeðjum um 1,6% til 5,6% frá því í júní, nema í Hagkaupum og Nóatúni. Vörukörfurnar í þessum verslunum lækkuðu um -1,2% og -2,4%. Mæling ASÍ var framkvæmd í síðasta mánuði og samkvæmt könnunnni var mesta hækkunin hjá Nettó 5,6%, 10-11, 5,2% og Samkaupum Úrval 4,6%. Í tilkynningu frá ASÍ segir að frá seinustu mælingu megi sjá töluverðar hækkanir í öllum vöruflokkum í verslunum landsins, en einstakar lækkanir eru þó sjáanlegar í öllum verslunum nema hjá 10-11. 1.12.2011 15:38
Markús nýr forseti Hæstaréttar Markús Sigurbjörnsson var í dag kjörinn forseti Hæstaréttar og mun hann gegna embættinu frá 1. janúar á næsta fram til lok ársins 2016. Þetta var niðurstaða á fundi dómara Hæstaréttar í dag en á sama fundi var Viðar Már Matthíasson kosinn varaforseti réttarins. Ingibjörg Benediktsdóttir lætur af embætti. 1.12.2011 15:20
Þau sungu saman með Mugison Þessi mynd var tekin í kringum 11:17 í dag þegar þjóðin sameinaðist í söng í tilefni af Degi íslenskrar tónlistar. Sú nýbreytni var tekin upp í ár að allar útvarpsstöðvar landsins spiluðu sömu þrjú lögin frá klukkan 11:15. Myndin er tekin á Þorraseli, dagvist aldraðra, þar sem heimilisfólk tók undir fullum hálsi með Mugison í laginu Stingum af sem var eitt af lögunum þremur. Myndin er ein þeirra sem send var inn í samkeppni sem Úttón efndi til en verðlaun eru einkatónleikar með Mugison. 1.12.2011 15:19
Vilja að Strætó gangi fram yfir miðnætti alla daga Síðastliðinn mánuð voru settar inn rúmlega 300 hugmyndir á samráðsvettvanginn Betri Reykjavík. Hugmyndirnar miða að því að bæta þjónustu við borgarbúa og á meðal þeirra tillagna sem fengu mestan stuðning síðastliðinn mánuð var sú að Strætó verði látinn ganga fram yfir miðnætti alla daga. Sú hugmynd hefur nú verið send til umhverfis- og samgönguráðs til umfjöllunar. 1.12.2011 15:03
Biskup hvetur þjóðkirkjufólk til að þrýsta á þingmenn Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, hvetur þjóðkirkjufólk til þess að minna þingmenn á mikilvæg hagsmunamál þjóðkirkjusafnaða í tölvupósti sem hann sendi á póstlista Þjóðkirkjunnar í dag. Í póstinum bendir hann á að lokaumræða um fjárlögin verði á miðvikudaginn. 1.12.2011 14:20
Snjóar og snjóar í Bláfjöllum Nú kyngir niður snjónum í Bláfjöllum að sögn Einars Bjarnasonar rekstrarstjóra skíðasvæðisins. Starfsmenn eru byrjaðir að troða og nú styttist í að hægt verði að opna eina lyftu fyrir þá sem stunda skipulagðar æfingar. 1.12.2011 13:34
Glitnismenn leiddir fyrir dómara - myndband Myndatökumenn á Fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis voru fyrir utan húsnæði sérstaks saksóknara í gærkvöldi þegar að skýrslutökum yfir fyrrum starfsmönnum Glitnis lauk og fyrir utan Héraðsdóm Reykjavíkur þegar farið var fram á gæsluvarðhald yfir þremur þeirra. 1.12.2011 12:53
Gengur ekki lengur að nota hrunið sem afsökun Landsbyggðarþingmönnum var heitt í hamsi í atkvæðagreiðslu um niðurskurð heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni síðdegis í gær og sagði þingflokksformaður framsóknarmanna, Gunnar Bragi Sveinsson, að það þýddi ekki lengur fyrir ríkisstjórnina að nota hrunið sem afsökun. 1.12.2011 12:31
Hrunið ýtti undir brugg og ræktun Yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar segir afbrotatölfræði ríkislögreglustjóra undirstrika að eftir hrun hafi fólk frekar gripið til heimabruggunar og fíkniefnaframleiðslu frekar en innflutnings. 1.12.2011 12:20
Manúela ætlar ekki að kæra Grétar - vegna barnanna Manúela Ósk Harðardóttir ætlar ekki að kæra fyrrum eiginmann sinn Grétar Rafn Steinsson, knattspyrnumann, fyrir brot á friðhelgi einkalífsins. Grétar leigði breska einkaspæjara til þess að fylgjast með ferðum Manúelu og fjölskyldu hennar í haust. Manúela segir í yfirlýsingu að hún falli frá kærunni með hagsmuni barna þeirra að leiðarljósi. 1.12.2011 11:49
Með stóru tána í stað þumalfingurs Það eru ekki allir sem deyja ráðalausir þegar þeir lenda í slysum. Það má með sanni segja að hinn 29 ára gamli James Byrne falli í þennan flokk eftir að hann sagaði af sér þumalputtann þegar hann var að saga við fyrir tveimur árum síðan. 1.12.2011 11:27
Dorrit kveikir á Kringlutrénu Kveikt verður á jólatré Kringlunnar við hátíðlega athöfn í dag klukkan fimm. Forsetafrúin Dorrit Moussaieff mun tendra ljósin og við sama tækifæri hefst formlega góðgerðarsöfnun á jólapökkum undir jólatréð. 1.12.2011 11:21
Framleiðendur Game of Thrones ljóstruðu upp leyndarmáli Það vakti athygli þegar framleiðendur Game of Thrones uppljóstruðu því í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis í gær að persónur úr sögunni, sem ekki dóu í bók númer tvö, sem heitir A Clash of Kings, myndu deyja í þáttaröðinni sem tekin er upp hér á landi. 1.12.2011 11:13
Syngjum saman! Dagur íslenskrar tónlistar er haldinn hátíðlegur í dag og af því tilefni hefur verið ákveðið að leika þrjú íslensk lög samtímis á öllum útvarpsstöðvum landsins. Fyrsta lagið fer í loftið klukkan 11:15. 1.12.2011 11:00
Bergljót hryggbrotnaði við myndatökur Bergljót Arnalds datt illa af hestbaki síðustu helgi þar sem hún sat fyrir á myndatöku við að kynna nýja bók sína Íslensku húsdýrin og Trölli. Tveir hryggjaliðir féllu saman og samkvæmt læknum Bergljótar er mikið mildi að ekki fór verr. Samkvæmt frásögn útgefenda Bergljótar lá hún á hestinum og þegar hann jós kastaðist hún af baki, flaug heilan hring og lenti mjög illa á bakinu. Bergljót var að sögn heppin og verður útskrifuð af spítalanum í dag. Bergljót mun þurfa að ganga með hryggspelku næstu þrjá mánuði. 1.12.2011 10:31