Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Pilturinn fundinn Sextán ára gamli pilturinn sem lögreglan lýsti eftir í gær er fundinn. Lögreglan þakkar veitta aðstoð. 1.12.2011 09:33
Rannsaka Glitni og FL Group – þrír Glitnismenn í varðhald Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, var í gærdag úrskurðaður í einnar viku gæsluvarðhald vegna rannsóknar sérstaks saksóknara á meintum brotum í rekstri bankans fyrir hrun. 1.12.2011 08:30
Öryggisljós á Eiðum gölluð af ásettu ráði „Þegar ljósin eru biluð er þetta eins og að láta blaðaljósmyndara flassa framan í sig fjörutíu sinnum á mínútu í myrkri,“ segir Kristján Benediktsson, verkfræðingur hjá Ríkisútvarpinu, um biluð viðvörunarljós í langbylgjumastri RÚV á Eiðum. 1.12.2011 08:00
Allt með kyrrum kjörum í Kaíró Allt var með kyrrum kjörum á Friðartorginu í Kaíró í gærdag og gærkvöldi en þetta er í fyrsta sinn á undanförnum tveimur vikum sem slíkt gerist. 1.12.2011 07:23
Ný ríkisstjórn loksins mynduð í Belgíu Ný ríkisstjórn er í burðarliðnum í Belgíu, hálfu öðru ári eftir að síðustu þingkosningar voru haldnar þar. Sex flokkar á belgíska þinginu hafa komið sér saman um nýja ríkisstjórn undir forystu sósíalistans Elio Di Rupo. 1.12.2011 07:21
Ofsaakstri dópaðs ökumanns lauk í Hvalfjarðargöngunum Ofsaakstri ökumanns, undir áhrifum áfengis og fíkniefna, lauk með því í gærkvöldi að hann ók bílnum utan í kantstein í Hvalfjarðargöngum og gafst upp, umkringdur lögreglubílum frá þremur embættum. 1.12.2011 07:16
Hélt dreng nauðugum Ríkissaksóknari hefur ákært tæplega fertugan karlmann fyrir brot gegn frjálsræði, líkamsárás og brot gegn barnaverndarlögum gagnvart níu ára dreng. 1.12.2011 07:15
Grundvallarbreytingar á lífríki heimsskautasvæðanna Vísindagögn sem safnað hefur verið saman á undanförnum árum sýna að hlýnun jarðar frá árinu 2006 hefur valdið grundvallarbreytingum á lífríkinu á heimsskautasvæðunum. 1.12.2011 07:04
Dönskum karlmönnum sem búa einir fjölgar verulega Dönskum karlmönnum sem búa einir hefur fjölgað um tæp 60% á undanförnum 25 árum. Er fjöldi þeirra nú að nálgast fjölda danskra kvenna sem búa einar. 1.12.2011 07:00
110 milljóna tap hjá Sjálfstæðisflokki Sjálfstæðisflokkurinn tapaði 110 milljónum króna árið 2010, samkvæmt útdrætti úr ársreikningi flokksins, sem Ríkisendurskoðun hefur birt á vef sínum. Tapið er tveimur og hálfu sinni meira en árið áður, þegar það nam 46 milljónum. 1.12.2011 07:00
Eldsupptökin í Drífanda voru í tauþurrkara Eldsupptök í húsinu Drífanda í Vestmannaeyjum, sem hýsir Hótel Eyjar og bókaverslun Eymundssonar, voru í tauþurrkara á annarri hæð hótelsins, samkvæmt niðurstöðu rannsóknadeildar lögreglunnar í Reykjavík, sem sendi menn á vettvang í gær. 1.12.2011 06:58
Fimm teknir undir áhrifum kannabis á Akureyri Lögreglan á Akureyri handtók fimm unga karlmenn í gærkvöldi, grunaða um neyslu á kannabisefnum. 1.12.2011 06:53
Krefjast allt að 400 milljóna fyrir björgun Tryggingarféð sem krafist var við kyrrsetningu flutningaskipsins Ölmu í Fáskrúðsfjarðarhöfn er í samræmi við væntanlega kröfu björgunarlauna, eða allt að 400 milljónir króna. 1.12.2011 06:45
Einhliða upptaka myntar allt of hættuleg Allt of hættulegt er að taka einhliða upp mynt annars lands án þess að vera í samstarfi við landið að mati Más Guðmundssonar, bankastjóra Seðlabanka Íslands. Hann segir nauðsynlegt að hafa bakhjarl í seðlabanka viðkomandi lands. 1.12.2011 06:30
Svari um viðskipti við Radíóraf Innanríkisráðuneytið hefur gefið Ríkislögreglustjóra frest til 5. desember til að afhenda Ríkisendurskoðun upplýsingar varðandi 141 milljóna króna viðskipti við fyrirtækið Radíóraf á árunum 2007 til 2011. Spurt var um hvernig staðið var að vali á birgja í þeim viðskiptum. 1.12.2011 06:00
Almyrkvi verður fyrir austan Tunglmyrkvi verður á Íslandi 10. desember næstkomandi. Fram kemur á Vísi að myrkvinn muni sjást sem almyrkvi á austanverðu landinu en sem deildarmyrkvi vestanlands, svo fremi að ekki verði skýjað. 1.12.2011 06:00
Jón samþykkti 600 milljónir frá ESB Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, greiddi atkvæði með 600 milljóna króna styrkjum frá Evrópusambandinu (ESB) vegna aðildarumsóknar Íslands. Fjárlög 2012 voru samþykkt til þriðju umræðu í gær eftir langar umræður. 1.12.2011 05:30
Semja um skattamál stóriðjunnar - fréttaskýring Fjármálaráðherra féll frá fyrirhuguðu kolefnisgjaldi á rafskaut, koks og kol, en gjaldið var að finna í bandormi um ráðstafanir í ríkisfjármálum. Ætlunin var að gjaldið skilaði 1,5 milljörðum króna í tekjur árið 2013. 1.12.2011 05:00
Ekki stefnt að þjóðnýtingu Líf Magneudóttir, formaður Vinstri grænna í Reykjavík, segir að ályktun á stjórnarfundi félagsins á þriðjudag, um að „einkaeignarhald á jarðnæði heyri almennt sögunni til“, megi ekki túlka þannig að þjóðnýting allra jarða sé á dagskrá. 1.12.2011 05:00
Vilja fá skýrslu um Schengen Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur ásamt átta öðrum þingmönnum flokksins farið fram á að Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra flytji Alþingi skýrslu um Schengen-samstarfið. 1.12.2011 04:30
Ófrjósemisaðgerðum fjölgaði milli ára Í fyrra gekkst 571 einstaklingur undir ófrjósemisaðgerð hér á landi, samkvæmt upplýsingum frá landlæknisembættinu. Um er að ræða 162 konur og 409 karla. 1.12.2011 04:00
Aldrei fleiri doktorar í HÍ Fimmtíu doktorsvarnir fara fram í Háskóla Íslands á þessu ári og hafa þær aldrei verið fleiri. 1.12.2011 04:00
Leigja nú fimm myndir á ári Hver Íslendingur leigði sér að meðaltali fimm sinnum mynd af myndbandaleigu á síðasta ári. Þegar mest lét, árið 2001, leigði hver Íslendingur sér ellefu myndir á ári. Þetta kemur fram í tölum frá Hagstofu Íslands. 1.12.2011 03:45
Fyrirspurnin of viðamikil Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra svarar ekki fyrirspurn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um hversu miklu fé opinberir aðilar verji til vísindarannsókna og nýsköpunar. 1.12.2011 03:30
Birna stýrir Evrópustofu Birna Þórarinsdóttir stjórnmálafræðingur hefur verið ráðin framkvæmdastýra Evrópustofu. Evrópustofa verður opnuð eftir áramót og verður upplýsingamiðstöð Evrópusambandsins. 1.12.2011 03:00
Framtíðarsýnin er skýr segir forseti borgarstjórnar Engin pólitísk stefnumótun kemur fram í fimm ára áætlun Reykjavíkurborgar sem kynnt var í gær að mati borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Forseti borgarstjórnar blæs á gagnrýni minnihlutans og segir pólitíska framtíðarsýn meirihlutans skýra. 1.12.2011 02:30
Dómstólarnir fái að ráða sínu Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, hefur staðfastlega neitað að tjá sína persónulegu skoðun á því að fjöldamorðinginn Anders Breivik hafi verið úrskurðaður ósakhæfur. 1.12.2011 01:00
Búðir mótmælenda rýmdar Lögreglan í Los Angeles og Philadelphiu réðust á búðir mótmælendahreyfingarinnar Occupy Wall Street í gær til að rýma búðirnar, sem voru orðnar þær stærstu í Bandaríkjunum eftir að lögreglan í New York og fleiri borgum hafði fjarlægt búðir mótmælenda þar. 1.12.2011 00:15