Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skotárás í Bryggjuhverfi: Einn til viðbótar handtekinn Mennirnir sem grunaðir eru um aðild að skotárásinni í Bryggjuhverfi þann 18. nóvember síðastliðinn hafa allir verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald og einn til viðbótar hefur verið handtekinn. „Tveimur þeirra er gert að sitja áfram í gæsluvarðhaldi til 22. desember og einum til 16. desember," segir í tilkynningu frá lögreglu. 8.12.2011 15:06
Nafnlausi flokkurinn óskar eftir tillögum Nýtt stjórnmálaafl undir forystu Heiðu Kristínar Helgadóttur og Guðmundar Steingrímssonar, hélt blaðamannafund í Norræna húsinu klukkan tvö í dag. 8.12.2011 15:02
Dagbókarbrot Páls Óskars: Kóleru útrýmt með hjálp orkumesta stuðboltans Dagbókarbrot frá Páli Óskari Hjálmtýssyni í Síerra Leóne birtast þessa dagana á Vísi, eitt á dag, fram að söfnunar- og skemmtiþætti UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, sem sýndur verður á föstudag, á degi rauða nefsins. Dagur rauða nefsins verður í opinni útsendingu á Stöð 2 og hér á Vísi. 8.12.2011 14:45
Opinbert framlag til kvikmynda 700 milljónir árið 2015 Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, Ari Kristinsson, formaður Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda (SÍK), Hrafnhildur Gunnarsdóttir, formaður Félags kvikmyndagerðarmanna (FK) og Ragnar Bragason, formaður Samtaka kvikmyndaleikstjóra (SKL) undirrituðu í húsakynnum Kvikmyndamiðstöðvar Íslands í dag Samkomulag um stefnumörkun fyrir íslenska kvikmyndagerð og kvikmyndamenningu árin 2012– 2015. 8.12.2011 14:37
Lögreglan lýsir aftur eftir leigubílstjóranum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn að leigubílstjóra sem hún þarf að hafa tal af vegna sem er til rannsóknar hjá embættinu og varðar meinta nauðgun, sem Egill Einarsson og unnusta hans hafa verið kærð fyrir. Lýst var eftir manninum í gær. 8.12.2011 14:27
Seldu plastpoka til styrktar Bleiku slaufunni Plastprent lagði Krabbameinsfélaginu lið í október og seldi poka merktan Bleiku slaufunni til viðskiptavina sinna. Um var að ræða bleikann poka sem minnti fólk á átakið og seldust alls 20.000 pokar á tímabilinu. 8.12.2011 14:23
Happdrætti Háskóla Íslands hættir að auglýsa á Pressunni Happdrætti Háskóla Íslands hefur látið fjarlægja auglýsingaborða sinn á fréttavefnum Pressan.is til þess að mótmæla myndbirtingu á meintu fórnarlambi kynferðisofbeldis. Þetta fékkst staðfest á skrifstofu happdrættisins, ekki náðist þó í forstjórann, Bryndísi Hrafnkelsdóttur, vegna málsins. 8.12.2011 13:47
Barnamorðingi dæmdur í 25 ára fangelsi Breski barnamorðinginn Robert Black var í dag dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir að myrða skólastúlkuna Jennifer Cardy fyrir 30 árum síðan. Hann var sakfelldur fyrir morðið í síðasta mánuði en Black rændi Jennifer þegar hún var á leið í heimsókn til vinkonu sinnar árið 1981. Black hefur setið í fangelsi til lífsstíðar frá árinu 1994 eða frá því hann var sakfelldur fyrir morðin á þremur öðrum börnum sem voru á aldrinum fimm til ellefu ára. 8.12.2011 13:47
Tunglið verður appelsínugult á laugardag Tunglmyrkvi verður á Íslandi í ljósaskiptunum síðdegis á laugardag, þann 10. desember. Hann mun sjást sem almyrkvi á austanverðu landinu en sem deildarmyrkvi vestanlands, svo fremi að ekki verði skýjað. Vefsíða Almanaks Háskóla Íslands segir að almyrkvinn hefjist þegar enn er dagsbirta á Íslandi og því sést ekki almyrkvað tungl frá Reykjavík en deildarmyrkvi verður sýnilegur þaðan þegar dimmir. 8.12.2011 13:33
Óskilorðsbundið fangelsi fyrir að stela snúru Karlmaður var dæmdur í átta mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir þjófnaðarbrot. Maðurinn var meðal annars dæmdur fyrir að stela rafmagnssnúru að fartölvu, hvítvínsflöskum og farsíma. 8.12.2011 13:28
Hilmar einn efnilegasti leikarinn í Evrópu Hilmar Guðjónsson er einn 10 evrópskra leikara sem var valinn í Shooting Star, sem er sérstök kynning á ungum og efnilegum kvikmyndaleikurum sem þykja líklegir til að ná langt í sínu fagi. Hópurinn var kosinn af alþjóðlegri dómnefnd og teljast þeir sem valdir eru Shooting star vera á meðal efnilegustu kvikmyndaleikara Evrópu. Það er European Film Promotion sem stendur fyrir Shooting Star og er Kvikmyndamiðstöð Íslands aðili að þeim samtökum. 8.12.2011 13:21
Hæstiréttur staðfestir úrskurð um opið réttarhald Hæstiréttur Íslands staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að réttarhöld yfir konu, sem er ákærð fyrir að hafa orðið barni sínu að bana, verði opin. verjandi konunnar fór fram á að réttarhöldin yrðu lokuð fyrir héraðsdómi, en dómari málsins, Arngrímur Ísberg hafnaði því. Úrskurðinum var því áfrýjað til Hæstaréttar. 8.12.2011 12:06
Þriðji níðingurinn fyrir dóm Mál þriðja mannsins, sem er grunaður um að hafa níðst kynferðislega á fjórtán ára dreng frá Akranes, var þingfest í Héraðsdómi Vesturlands í morgun. Þá fór einnig fram fyrirtaka í máli annars manns sem einnig er grunaður um að hafa misnotað drenginn. Aðalmeðferð er hafin í þriðja málinu. 8.12.2011 11:22
Frumvarp ráðherra breyttist í þingnefnd Fjárlagafrumvarpið var samþykkt á Alþingi í gær. Þingheimur hefur bætt við ríkisútgjöld og dregið úr niðurskurði frá því sem var að finna í frumvarpi fjármálaráðherra. 8.12.2011 11:20
Fjórtán ráðherrar frá kosningum Fyrirhugaðar breytingar á ríkisstjórn hafa verið í umræðunni síðustu daga. Allt bendir til að Jón Bjarnason hverfi af ráðherrastóli á næstunni. Fjölmargar breytingar hafa verið gerðar á ráðherraliði stjórnarflokkanna frá kosningunum 2009. Stjórnmálafræðingur segir hrókeringar í ráðherraliði merki um veikleika ríkisstjórnar. 8.12.2011 11:14
Leita uppi óbólusett börn vegna mislinga Haraldur Briem sóttvarnalæknir hvetur foreldra til að bólusetja börn sín við mislingum. Embættið leitar nú óbólusettra barna á grunni fullkomins upplýsingabanka. Hann segir ljóst að hlutfall bólusetninga megi ekki minnka að ráði hér á landi ef ekki eigi að skapast hætta á að mislingar blossi upp hér. Á þremur árum hefur mislingafaraldur náð til allra Evrópulanda nema Íslands, Ungverjalands og Kýpur. 8.12.2011 11:00
Er talinn hafa skorið sig sjálfur Karlmaður á sextugsaldri, sem lögreglumenn fundu alvarlega slasaðan á heimili hans í fjölbýlishúsi við Skúlagötu í fyrrinótt, er talinn hafa skorið sig sjálfur með glerbrotum. 8.12.2011 11:00
Mikil framleiðsla á amfetamíni hér á landi „Það liggur fyrir að hér á landi er framleitt mikið af marijúana og amfetamíni og mjög lítið af þessum efnum flutt inn, að minnsta kosti tilbúið til neyslu.“ Þetta segir Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar LRH, spurður um hugsanlegar skýringar á því að umræddar tegundir fíkniefna hafa hrapað í verði á götunni. 8.12.2011 11:00
Fjörutíu ára afmæli samskipta við Kína Forsetar Íslands og Kína skiptust í dag á heillaskeytum í tilefni af því að í dag eru fjörutíu ár liðin frá því að ríkin tóku upp formleg samskipti. Hu Jintao forseti Kína segir að samskipti þjóðanna hefðu þróast jafnt og þétt í gegnum árin á grundvelli virðingar í garð hvors annars og hagsbóta fyrir bæði ríkin. Ólafur Ragnar talaði á svipuðum nótum í sínu skeyti og sagði að tvíhliða samstarfið hefði gengið vel í þessa fjóra áratugi. 8.12.2011 10:24
Vitni voru yfirheyrð í gær - leigubílstjórinn ófundinn Vitni voru yfirheyrð í gær í kjölfar nauðgunarkæru sem átján ára stúlka hefur lagt fram á hendur Agli Einarssyni og unnustu hans. 8.12.2011 08:00
Háttsettur mafíuforingi handtekinn í neðanjarðarbyrgi Lögreglan á Ítalíu hefur handtekið alræmdann mafíuforingja í þorpi nálægt Napólí en hann var hæstsetti foringi Camorra mafíunnar sem enn gekk laus. 8.12.2011 07:46
Íslenskir bændur kenni Norðmönnum að forðast smjörskort Ungir jafnaðarmenn hafa miklar áhyggjur af smjörskortinum í Noregi og skora á íslensku bændasamtökin að senda menn til Noregs til að ausa úr viskubrunni sínum á sviði fæðuöryggis, segir í tilkynningu. 8.12.2011 07:43
Telja bókasölu matvöruverslana rýra möguleika nýrra höfunda Stjórnendur Eymundsson telja að hið takmarkaða úrval bókatitla, sem er á boðstólnum í matvöruverslunum nokkrar vikur fyrir jól, sé til þess fallið að draga úr möguleikum nýrra höfunda til að koma sér á farmfæri, þar sem bækur þeirra séu ekki valdar til sölu í matvöruverslunum. 8.12.2011 07:41
Dönsk kona hagnaðist um hálfan milljarð á vændi Sérsveit lögreglunnar í Kaupmannahöfn sem berst gegn vændi hefur handtekið 33 ára gamla konu sem var melludólgur með fjölda vændiskvenna á sínum snærum í tveimur hóruhúsum í Kaupmannahöfn og einu í Árósum. 8.12.2011 07:39
Miklar vangaveltur um dularfullan hlut við Merkúr Netheimar loga í vangaveltum um dularfullan hlut sem einn af sjónaukum NASA, geimferðarstofnunnar Bandaríkjanna, náði myndskeiði af nálægt plánetunni Merkúr. 8.12.2011 07:26
Hörku frost áfram á Norðurlandi Enn er hörku frost fyrir norðan og mældist rúmlega 21 stigs frost við Mývatn í nótt, röskar 24 gráður á Brú á Jökuldal og 12 stig á Akureyri. Mun hlýrra er á Suðurlandi, en á móti kemur að þæfings færð er víða á Suðurnesjum. Snjómokstur hófst þar snemma í morgun. 8.12.2011 07:25
Óvissuástandi lýst á Keflavíkurflugvelli Svonefndu óvissuásatndi var lýst á Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi, eftir að flugstjóri Hercules flutningavélar óskaði eftir að fá að lenda, eftir að það drapst á einum af fjórum hreyflum hennar. Ellefu manns voru um borð. 8.12.2011 07:23
Vilja sameiginlegan fjármagnstekjuskatt á evrusvæðinu Óhætt er að segja að beðið sé með eftirvætingu eftir niðurstöðum leiðtogafundar Evróusambandsins sem hefst í dag en fundurinn er talinn geta ráðið örlögum evrusvæðisins. 8.12.2011 07:18
Þrjú ungmenni sluppu ómeidd úr bílveltu Fólksbíll með þremur ungmennum um borð, valt á Bústaðavegi á móts við Réttarholtsveg á þriðja tímanum í nótt. 8.12.2011 07:16
Ekkert gengur á loðnuveiðum Loðnuveiðin á þessari vertíð er vart um talandi, þar sem aðeins rúmlega 8.500 tonn eru komin að landi síðan í byrjun október af rúmlega 180 þúsund tonna kvóta. Illa hefur gengið að staðsetja loðnu í veiðanlegu magni, en brælur hafa líka gert mönnum lífið leitt. Lítið hefur fundist af loðnu í veiðanlegu magni úti af Vestfjörðum eftir að áhöfn rannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar varð vör við álitlegar torfur af stórri og góðri loðnu á þessum slóðum á mánudag. 8.12.2011 07:00
Stofna flokk á landsvísu Félag áhugafólks um bjarta framtíð boðar til blaðamannafundar í dag en þá verður nýju stjórnmálaafli formlega hleypt af stokkunum. Undir tilkynningu um fundinn rita þau Heiða Helgadóttir og Gaukur Úlfarsson, sem bæði eru framáfólk í Besta flokknum. Heiða var meðal annars kosningastjóri flokksins fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar. Þingmaðurinn Guðmundur Steingrímsson mun einnig standa að stofnun flokksins. 8.12.2011 06:54
Fá skerðingu á launum til baka Draga á til baka launaskerðingu sem starfsmenn Ríkisútvarpsins tóku á sig í ársbyrjun 2009 í kjölfar bankahrunsins. Þetta tilkynnti Páll Magnússon útvarpsstjóri á fundi sem hann boðaði til með starfsmönnunum í síðustu viku. 8.12.2011 06:30
Foreldrar setji ekki börn ofan í innkaupakerrur Fjöldi barna slasast árlega við það að falla úr innkaupakerrum eða klemma sig á hlutum í og á kerrunum. Niðurstöður rannsókna sýna að séu viðvörunarspjöld í kerrunum láta foreldrar börn sín síður sitja innan um vörurnar í þeim. 8.12.2011 06:00
Svíar missa trú á konungnum Þriðjungur Svía hefur litla eða mjög litla trú á konungi landsins, Karli Gústafi. Tæpur þriðjungur styður konunginn. Öðrum er nokkuð sama. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem gerð var fyrir TV4-sjónvarpsstöðina í Svíþjóð. 8.12.2011 06:00
Bremsa brást er vindmylla fauk af mastri „Það er ekki mikið sem hægt er að segja við svona uppákomu,“ segir Friðrik Sigurðsson, talsmaður sænska fyrirtækisins Hannevind, sem framleiddi vindmylluna sem stórskemmdist í Belgsholti í Leirársveit. 8.12.2011 06:00
Aðgerðaáætlun OR staðist á þessu ári Útlit er fyrir að Orkuveita Reykjavíkur (OR) nái markmiðum sínum um hagræðingu í rekstri og gott betur á þessu ári. Í lok þriðja ársfjórðungs hafði fyrirtækið þegar sparað sem jafngildir rúmum 97 prósentum af markmiði ársins. 8.12.2011 05:00
Vöktuðu risaolíuskip við Ísland Landhelgisgæslan vaktaði olíuskipið St. Heritage frá fimmtudegi til þriðjudags þar sem það beið af sér veður 40 mílur austur af Stokksnesi. Olíuskipið, sem er 40 þúsund tonna tankskip, var á siglingu með fullfermi frá Múrmansk í Rússlandi til Hjaltlandseyja en vegna veðurs við eyjarnar fékk skipið fyrirmæli frá útgerðarfélagi sínu um að bíða á þessu svæði eftir hagstæðari veðurskilyrðum. 8.12.2011 05:00
Reiknað með töluverðum átökum Frakkar og Þjóðverjar reyna í dag og á morgun að sannfæra aðra leiðtoga Evrópusambandsríkjanna um nauðsyn þess að breyta sáttmála sambandsins til að endurheimta traust til evrunnar. 8.12.2011 05:00
Hafna mismunun vegna kynhneigðar Bandarísk stjórnvöld munu framvegis styðja við réttindi samkynhneigðra hvar sem er í heiminum með pólitískum þrýstingi, þróunaraðstoð og því að veita samkynhneigðum hæli í Bandaríkjunum. Þetta kemur fram í minnisblaði frá Barack Obama Bandaríkjaforseta sem gert var opinbert á fimmtudag. Hillary Clinton utanríkisráðherra áréttaði þessi áform á fundi í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna á fimmtudag. 8.12.2011 04:00
4G er framtíðin í fjarskiptum Íslensk fjarskiptafyrirtæki hafa hafið undirbúning fyrir innreið 4G, fjórðu kynslóðar farskiptakerfisins, sem mun bjóða upp á aukinn hraða í gagnaflutningum fyrir neytendur á næstu misserum. Enn sem komið er eru fyrirtækin þó enn á undirbúningsstigi. Kjartan Briem, framkvæmdastjóri tæknisviðs hjá Vodafone, segir í samtali við Fréttablaðið að þau séu í startholunum og hafi litið til Vodafone Global og reynslu þess í uppbyggingu þess konar kerfa. 8.12.2011 04:00
Nemar geta lært við fjóra skóla Opinberu háskólarnir fjórir hafa gert með sér samning um gagnkvæman aðgang nemenda að námskeiðum við skólana. Forsvarsmenn Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri, Landbúnaðarháskólans og Háskólans á Hólum skrifuðu undir samninginn ásamt menntamálaráðherra á mánudag. 8.12.2011 03:30
Auglýst eftir nýjum fangelsisstjóra Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra auglýsti í dag embætti forstöðumanns fangelsisins á Kvíabryggju laust til umsóknar. Geirmundur Vilhjálmsson, fyrrverandi forstöðumaður á staðnum, lét af störfum þegar grunur vaknaði um að hann hefði dregið sér fé frá stofnuninni. Hann er sakaður um að hafa dregið sér á aðra milljón króna á árunum 2008 til 2010, þegar þau uppgötvuðust. Innanríkisráðherra mun skipa í embættið frá og með 31. janúar á næsta ári til fimm ára. 7.12.2011 22:21
Hinsegin mörgæsapar fær loks að ættleiða Hinsegin mörgæsapar í Kína hefur ættleitt nýfæddan unga. Móðir ungans gat ekki séð um hann eftir að hún eignaðist tvíbura. 7.12.2011 22:25
Ungar konur sem borða fisk reglulega fá sjaldnar hjartasjúkdóma Ungar konur sem borða fisk reglulega eru í minni hættu á að þjást af hjartasjúkdómum samkvæmt niðurstöðum danskrar rannsóknar. 7.12.2011 22:00
Tættu í sundur íbúðarhverfi Fallbyssukúla þaut í gegnum sendiferðabíl og íbúðarhús í borginni Dublin í Kalíforníu. Slysið átti sér stað við tökur á sjónvarpsþættinum vinsæla Mythbusters. 7.12.2011 21:45