Fleiri fréttir

Fjárlagafrumvarpið samþykkt með minnihluta atkvæða

Fjárlagafrumvarpið var samþykkt á Alþingi fyrir stundu. Fjárlagafrumvarpið er jafnan stærsta þingmál á hverju þingi fyrir jól og var engin untantekning núna. Á morgun eru svo önnur stór þingmál til umræðu. Meðal annars er sérstök umræða um aga í ríkisfjármálum. Næstu daga þar á eftir verða svo nefndardagar á Alþingi.

Ást á fótboltavellinum í FIFA 12

Myndskeið úr tölvuleiknum FIFA 12 hefur farið eins og eldur í sinu um netheima undanfarið. Í myndskeiðinu er ekki annað að sjá en að framherjinn Andy Carrol hjá Liverpool smelli rembingskossi á markvörð Arsenal, Fabianski. Sá bregst ókvæða við ástaratlotunum og virðist stjaka við framherjanum unga. Ekki er ljóst hvort um villu í forritun leiksins sé að ræða eða hvort forritararnir hafi ákveðið að smella atriðinu inn upp á grín.

Dagbókarbrot Páls Óskars: Öll börn eiga rétt

Dagbókarbrot frá Páli Óskari Hjálmtýssyni í Síerra Leóne birtast þessa dagana á Vísi, eitt á dag, fram að söfnunar- og skemmtiþætti UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, sem sýndur verður á föstudag, á degi rauða nefsins. Dagur rauða nefsins verður í opinni útsendingu á Stöð 2 og hér á Vísi.

Um 40% krabbameinstilfella tengd lífsstíl

Um 40% krabbameinstilfella má tengja lífsstíl, eftir því sem fram kemur í frétt á vef BBC. Guðmundur Björnsson endurhæfingarlæknir sagði í samtali við Reykjavík síðdegis í dag að þarna væri ekki um ný sannindi að ræða. Lfstílsþættir hafi klárlega áhrif á sjúkdóma. Þar á meðal krabbamein.

Sendu persónuupplýsingar um sjúklinga í fjöldapósti

Starfsmaður á vegum Háskóla Íslands sendi í fyrradag út tölvupóst með boði um þátttöku í rannsókn á vegum Háskóla Íslands, Landspítala og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins með þeim hætti að viðtakendur póstsins sáu netföng hvers annars. Afleiðingarnar eru þær að sjá má netföng fólks sem hefur leitað á vissar göngudeildir Landspítala, meðal annars göngudeild geðsviðs, á ákveðnu tímabili.

Atkvæði greidd um fjárlagafrumvarpið

Nú stendur yfir atkvæðagreiðsla um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar á Alþingi. Atkvæðagreiðslan hófst klukkan hálffjögur og hefur því staðið yfir í einn og hálfan tíma. Þriðju og síðustu umræðu um fjárlögin lauk á Alþingi í gær. Stjórnarandstaðan hefur gagnrýnt niðurskurð í heilbrigðismálum en samkvæmt breytingartillögu meirihluta fjárlaganefndar voru útgjöld til heilbrigðismálum aukin um rúmar 940 milljónir.

Engin ákvörðun um sameiningu ráðherraembætta

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði á Alþingi að það væri ekki búið að taka nýjan ákvörðun um frekari sameiningu ráðuneyta. Þannig hafa verið uppi getgátur og umræður hjá þingmönnum og fjölmiðlum um að það standi til að sameina efnahags- og viðskiptaráðuneytið við fjármálaráðuneytið.

Stefnt að opnun Bláfjalla um helgina

Stefnt er að því að opna skíðasvæðið í Bláfjöllum fyrir almenning um næstu helgi. Einar Bjarnason rekstrarstjóri Bláfjalla segir að til standi að opna um það bil 70 prósent svæðisins. Snjórinn sé ekki mjög mikill en færið þó gott. Stólalyftan í Kóngsgili verður opin og nokkrar diskalyftur á suðursvæðinu einnig. Þá verður barnalyftan við skíðaskálann að sjálfsögðu opin einnig.

Leitar vitna að árekstri þegar ökumaður klessti á lögreglubíl

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Hafnarfjarðarvegi, skammt frá bensínstöð N1 í Fossvogi, klukkan 7.41 í morgun. Þar var grárri BMW-bifreið ekið aftan á kyrrstæða lögreglubifreið í vegkantinum.

Sexhundruð handteknir vegna mansals

Kínverska lögreglan handtók nýverið um sexhundruð manns í viðamiklum aðgerðum gegn mansali. Hátt í tvöhundruð ungabörnum var bjargað úr ánauð.

Óprúttnir aðilar reyna að selja miða á ókeypis tónleika

Aðeins var hægt að skrá fjóra miða á hverja kennitölu þegar sótt var um miða á tónleika Mugison í Hörpunni. Samkvæmt heimildum Vísis hafa einhverjir aðilar boðið miða til sölu á Facebook-reikningum sínum. Í einu tilvikinu reyndi óprúttinn aðili að bjóða miðana til sölu á 2000 krónur.

Allir Mugison miðarnir búnir

Miðasölusíðan Miði.is fór á hliðina í dag þegar fólk reyndi að ná sér í miða með tónlistarmanninum Mugison sem ákvað að halda ókeypis tónleika í Hörpu fyrir jól. Til að svara þeirri gífurlegu eftirspurn sem var eftir miðum á viðburðinn hefur Mugison ákveðið að þriðju tónleikana þann 22.desember, á miðnætti. Það breytti því ekki að miðarnir ruku út og nú er orðið fullt á alla tónleikana þrjá.

Ríkið selur Reykhóla

Jón Bjarnason skrifaði um síðastliðna helgi undir sölu á 98 hektara landi úr jörðinni Reykhólum til Reykhólahrepps. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að um sé að ræða landið sem Reykhólaþorp stendur á og var söluverð 17,5 milljónir króna. "Undanskilið í sölunni er lóð Reykhólakirkju, kirkjugarðs, prestshúss og fjárhúsa sem fylgja prestssetri. Þá verður gatan Maríutröð sem liggur í gegnum þorpið eftir sem áður á forræði Vegagerðar,“ segir ennfremur.

Íhugar að kæra Pressuna til lögreglunnar vegna myndbirtingar

"Ég held að það séu engin fordæmi fyrir því að brotaþolendur í kynferðisafbrotamálum séu myndbirtir," segir Katrín Oddsdóttir lögmaður sem ætlar að kæra fréttamiðilinn Pressuna.is til blaðamannafélags Íslands og lögreglunnar fyrir að myndbirta stúlku sem hefur kært Egil Gillz Einarsson og unnustu fyrir nauðgun.

Ingibjörg Sólrún ekki hætt í Samfylkingunni

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra, er ekki hætt í Samfylkingunni eins og fullyrt var á dv.is. Þar sagði að Ingibjörg væri hætt í flokknum og að ástæðan væri námskeið sem Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi ráðherra var fenginn til að halda. Fréttastofa Ríkisútvarpsins náði símasambandi við Ingibjörgu, sem var þá nýlent í Kabúl höfuðborg Afganistans þar sem hún er að hefja störf, og segir hún ekki rétt að hún sé hætt í flokknum.

Mugison setur miðasölukerfið á hliðina

Miðasölusíðan Miði.is fór á hliðina í dag þegar fólk reyndi að ná sér í miða með tónlistarmanninum Mugison sem ákvað að halda ókeypis tónleika í Hörpu fyrir jól. Á heimasíðu Hörpu er fólk vinsamlegast beðið um að sýna þolinmæði, menn séu að gera sitt ýtrasta til þess að koma kerfinu í lag. Og til að svara þeirri gífurlegu eftirspurn sem er eftir miðum á viðburðinn hefur Mugison ákveðið að þriðju tónleikana þann 22.desember, á miðnætti.

Segir álit Skipulagsstofnunar reginhneyksli

Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Norðvesturkjördæmis, segir álit Skipulagsstofnunar um Vestfjarðaveg reginhneyksli og segir tíma til kominn að opinberar stofnanir taki tillit til þarfa fólksins, sem þarf að búa við vegina. Skipulagsstofnun hefur lýst því áliti sínu að fyrirhugaðar endurbætur á þjóðveginum um Kjálkafjörð og Kerlingarfjörð á sunnanverðum Vestfjörðum valdi óbætanlegum skaða á landslagi.

Kerfið var þanið til hins ýtrasta í morgun

"Það urðu tveir ammoníaklekar og allir sjúkrabílar voru úti í einu,“ segir varðstjóri slökkviliðsins en gríðarlegt álag var á slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu í morgun. Í raun mildi að ekki fór verr.

Lögreglan leitar leigubílstjóra - gæti skipt miklu í nauðgunarrannsókn

Lögreglan leitar leigubílstjórans sem ók Agli Gillz Einarssyni, unnustu hans og átján ára stúlku heim til Egils í Kópavogi þann 25. nóvember síðastliðinn. Egill og unnustan hafa, eins og kunnugt er, verið kærð fyrir að nauðga og beita stúlkuna kynferðisofbeldi á heimili Egils sama kvöld.

Shoplifter fær Prins Eugen verðlaunin

Íslenska listakonan Hrafnhildur Arnardóttir, eða Shoplifter, er meðal þeirra fimm listamanna, sem hljóta hin virtu sænsku Prins Eugen verðlaun í ár. Karl Gústaf Svíakonungur afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn í Stokkhólmi í gær. Hrafnhildur hlýtur verðlaunin fyrir framúrskarandi listsköpun.

Ekið aftan á lögreglubíl á slysstað

Ekið var aftan á kyrrstæða lögreglubifreið á Hafnarfjarðarvegi við Nýbýlaveg um klukkan átta í morgun. Lögreglan var á vettvangi vegna áreksturs. Fjórir slösuðust í árekstrunum en talið er að um minniháttar meiðsl sé að ræða. Allir hinir slösuðu voru engu að síðu færðir á spítala til aðhlynningar. Bifreiðarnar voru í kjölfarið fluttar af vettvangi með dráttarbifreið og eru mikið skemmdar.

Ammoníaksleki á Fiskislóð

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins glímir nú við ammóníaksleka hjá fyrirtækinu Fiskkaupum að Fiskislóð 34 í Reykjavík.

Tafir á Hafnarfjarðarvegi

Vegna umferðaróhapps eru tafir á umferð á Hafnarfjarðarvegi við Nýbýlaveg. Ökumenn eru hvattir til að aka eftir öðrum leiðum ef kostur er á.

Tilkynnt um ammoníaksleka í Ármúlanum

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað úr fyrir um hálftíma síðan vegna ammoníaksleka í Ármúla 1. Þar hefur Landspítalinn rannsóknarstofur.

Gríska þingið samþykkti niðurskurðarfrumvarp

Gríska þingið samþykkti fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar landsins skömmu fyrir miðnætti í gærkvöldi. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir miklum niðurskurði á rekstri hins opinbera í samræmi við kröfur Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Handrukkurum sleppt úr haldi á Akureyri

Lögreglan á Akureyri sleppti í nótt fjórum ofbeldismönnum, sem hún handtók í fyrrinótt. Þá höfðu þeir ruðst inn í íbúð hjá manni og gegnið hart fram við að innheimta af honum fíkniefnaskuld.

Rompuy telur ekki nauðsynlegt að breyta sáttmála ESB

Herman Van Rompuy forseti Evrópusambandsins telur að ekki sé nauðsynlegt að gera breytingar á Lisbon sáttmála sambandsins til þess að taka upp nýjar og hertar reglur um fjármálastjórn ríkja innan þess.

Lögreglan kom að alvarlega meiddum manni

Íbúi í húsi við Skúlagötu reyndist alvarlega meiddur þegar lögregla kom að honum í nótt, eftir að nágrannar höfðu kvartað yfir hávaða frá íbúð hans.

Lík Jóns forseta var grafið upp

Lík Jóns Sigurðssonar og eiginkonu hans, Ingibjargar Einarsdóttur, voru grafin upp árið 1881 og tímabundið komið fyrir í líkhúsi í Reykjavík. Ástæðan var að minnisvarðinn sem settur var við gröf þeirra í Hólavallakirkjugarði var svo þungur að hleðslan í kringum gröfina bar hann ekki uppi.

Lögregla gerði húsleit heima hjá Agli

Lögregla kaus að fara ekki fram á gæsluvarðhald yfir Agli Einarssyni og kærustu hans vegna rannsóknar á meintri nauðgun þeirra þar sem tæp vika leið frá atburðinum þar til málið var kært. Strax morguninn eftir voru hin kærðu kvödd til yfirheyrslu hjá lögreglu og húsleit gerð heima hjá Agli.

Lokað á Karen Millen eftir kápuleik

Lokað var fyrir Facebook-síðu Karen Millen á Íslandi fyrir um þremur dögum. Forsvarsmenn samfélagsnetsins segja ástæðuna vera kápuleikinn svokallaða, sem fór sennilega ekki framhjá mörgum notendum í lok síðasta mánaðar. Fyrirtækið fékk um 2.500 „like“ á síðuna sína á einum degi þegar leikurinn fór af stað.

Maður í hlaupagalla stal tölvu á Hlöðunni

„Hann var um sjötugt, í fjólubláum jogginggalla, með svartan bakpoka og grátt hár. Hann sést mjög vel á upptökunni,“ segir Anna Guðbjörg Bjarnadóttir, 22 ára lögfræðinemi við Háskóla Íslands. Tveimur fartölvum hefur verið stolið af Önnu á Þjóðarbókhlöðunni á síðustu þremur mánuðum. Tjónið hleypur á hundruðum þúsunda, en tölvurnar voru báðar af gerðinni MacBook.

Sauðfjárbændur svindluðu ekki

Ekki er ástæða til að ætla að sauðfjárbændur fái hærri beingreiðslur frá ríkinu en þeir eiga rétt á samkvæmt lögum og reglum. Þetta er niðurstaða athugunar Ríkisendurskoðunar. Ríkið greiðir sauðfjárbændum, sem á annað borð eiga rétt á greiðslum, tiltekna fjárhæð á hvert svokallað ærgildi. Greiðslur þessar kallast beingreiðslur.

Merkel reynir að bera sig vel

Bæði Angela Merkel Þýskalandskanslari og Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti reyndu í gær að gera lítið úr því að matsfyrirtækið Standard & Poor‘s boðaði hugsanlega lækkun lánshæfismats evruríkjanna, jafnvel Þýskalands.

Stálu miklu magni af skarti

Tveir ungir menn hafa verið ákærðir fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir stórfelld þjófnaðarbrot. Þeir stálu meðal annars miklu magni af skartgripum, sem sumir voru gamlir, og fjölmörgum fleiri dýrum munum.

NATO býður samvinnu um eldflaugavarnir

Forystumenn Atlantshafsbandalagsins (NATO) reyna nú að sannfæra Rússa um að áform bandalagsins um varnir gegn langdrægum eldflaugum beinist ekki gegn þeim á nokkurn hátt. Utanríkisráðherrar NATO, sem koma saman til reglulegs fundar í Brussel í dag, munu á morgun eiga fund með Sergej Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands.

Átök við lögreglu í Moskvu

Átök brutust út í Moskvu í gær þegar lögreglan reyndi að stöðva mótmælendur sem söfnuðust saman annan daginn í röð til að lýsa andstöðu sinni við framkvæmd þingkosninga á sunnudag.

Sjá næstu 50 fréttir