Fleiri fréttir

Tónleikum Rihönnu frestað - "Þetta var tilfinningalegur rússíbani"

"Það var mikið af yngri stelpum þarna með mömmum sínum sem voru alveg hágrátandi,“ segir Hildur Guðný Káradóttir, háskólanemi, sem flaug af landi brott fyrir helgi til þess að fara á tónleika með söngkonunni Rihönnu í Malmö í Svíþjóð í kvöld. Þegar hún mætti á svæðið, ásamt vinkonum sínum, var þeim tjáð að tónleikunum hefði verið aflýst vegna veikinda hjá Rihönnu.

Bilaður jarðskjálftamælir sýndi skjálfta upp á 9,4 á richter

Jarðskjálftamælar hjá Veðurstofu Íslands sýndu kraftmikla jarðskjálfta víða um land í kvöld. Þannig var að sjá á vef þeirra að jarðskjálfti upp á 9,4 á richter hafi verið um 50 kílómetra frá Blönduósi og annar skjálfti upp 6,2 suðvestur af Hólmavík.

Flækt fast við dautt hreindýr

Tvö hreindýr til viðbótar fundust dauð á Suðausturlandi um helgina eftir að hafa flækt sig í girðingarvír. Aflífa þurfti eitt dýr til viðbótar, en það hafði verið fast á hornunum við dautt dýr í nokkra daga.

Tabú að ræða um stöðu RÚV á auglýsingamarkaði

"Það er nú dæmi um stöðu að okkar mati sem er ekki á jafnréttisgrundvelli,“ sagði Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag, spurður um stöðu Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði.

Eigandi Carter segist víst klippa fatlaða

Fatlaðri konu í hjólastól var neitað um klippingu á hárgreiðslustofu í Hafnarfiði um helgina. Eigandi stofunnar segir fatlaða almennt velkomna. Umrædd kona hafi hins vegar verið í stórum sérsmíðuðum stól sem gerði starfsfólki erfitt um vik.

Telja það nánast öruggt að Hanna Birna bjóði sig fram

Harður formannsslagur geisar nú bak við tjöldin í Sjálfstæðisflokknum milli stuðningsmanna Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og Bjarna Benediktssonar. Landsfundur flokksins hefst eftir tæpar þrjár vikur en Hanna Birna er enn ekki búin að lýsa formlega yfir framboði.

Fjöldauppsagnir hjá verktökum

KNH-verktakar á Ísafirði sögðu í dag upp öllum starfsmönnum sínum, þrjátíu og þremur talsins. Þá misstu fimmtán manns vinnuna í dag hjá Suðurverki. Forstjóri Suðurverks spyr hvar öll störfin séu sem búið er að lofa og segir að það eina sem stjórnvöld komi í verk séu skattahækkanir.

Tíu ára gömul og framleiðir barnaskó

Þótt Erla Guðmundsdóttir sé aðeins tíu ára gömul hefur hún síðustu vikur framleitt og selt barnaskó sem vakið hafa mikla athygli. Hugmyndin var upphaflega að safna fyrir miða á Frostrósartónleika.

10 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot

Fjörutíu og sjö ára karlmaður var dæmdur í 10 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands í dag fyrir kynferðisbrot gegn 14 ára stúlku. Þá var hann einnig dæmdur til að greiða stúlkunni 600 þúsund krónur í miskabætur.

Eldur í heimavist Menntaskólans á Akureyri

Eldur kom upp í þurkara í kjallara heimavistar Menntaskólans á Akureyri við Eyrarlandsveg 17:00 í dag. Brunaviðvörunarkerfi hússins gerði viðvart og fór vakthafandi vakt á staðinn á dælubíl og sjúkrabíl. Reykkafarar fóru inn í kjallarann og gekk vel að slökkva staðbundinn eld í þurkaranum og var rýmið reykræst í kjölfarið. Talsverðar sót og reykskemmdir eru í þvottahúsinu en engum íbúa vistarinnar varð meint af.

Fimm mannlausir bílar runnu á aðra

Um tuttugu árekstrar urður á höfuðborgarsvæðinu í dag, samkvæmt upplýsingum frá Árekstri.is. Einn bíll er óökufær eftir árekstur við Ástorg í Hafnarfirði nú rétt fyrir klukkan sex. Fimm af þessum tuttugu árekstrum urðu með þeim hætti að mannlausir bílar runnu á aðrar bifreiðar. Árekstur.is brýnir fyrir ökumönnum að ganga vel frá bifreiðum sínum.

Dó snillingurinn úr heimsku?

„Það er svo sem ein leið til að kalla þetta, já," segir Sigurður Guðmundsson, forseti heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands og fyrrum Landlæknir, í samtali við þáttinn Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Hann var spurður hvort að það hafi verið heimska í snillingnum Steve Jobs, að fara ekki hinar hefðbundu leiðir í baráttu sinni við krabbameinið sem hann greindist með fyrr á þessari öld.

Rússar skjóta ómannaðri eldflaug á loft

Rússar skutu ómannaðri eldflaug á loft í gær. Henni er ætlað að flytja tæplega þrjú tonn af mat, eldsneyti og vatni til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar.

Interpol lýsir eftir Rolex-ræningjunum

Myndir af Pólverjunum þremur sem grunaðir eru um ránið hjá Michelsen úrsmiði hafa verið birtar á síðu Interpol. Lögreglan vonast til þess að þeir finnist í Evrópu. Mennirnir þrír sem frömdu ránið fóru úr landi strax að því loknu, en þeir flugu til Kaupmannahafnar innan við sólarhring eftir ránið.

Isavia biður Túrista.is afsökunar

Isavia, sem annast rekstur og uppbyggingu allra flugvalla og lendingarstaða á Íslandi, hefur beðist velvirðingar á því að upplýsingagjöf til vefsíðunnar Túrista.is vegna vinnslu fréttar um öryggisleit í Leifsstöð hafi verið með þeim hætti að misskilnings gæti gætt.

Sjálfsmorðsárás við Flóttamannastofnun

Að minnsta kosti fimm manns létu lífið í sjálfsmorðsárás í Kandahar í Afganistan í dag. Yfirvöld segja að bíl hafi verið ekið að eftirlitsstöð hjá Flóttamannastofnun Sameinuðu Þjóðanna og hún sprengd.

Belgar ákveða að loka kjarnorkuverum

Yfirvöld í Belgíu hafa ákveðið að loka kjarnorkuverum landsins. Tvö kjarnorkuver eru í Belgíu og vonast yfirvöld til að geta lokað þremur af sjö kjarnaofnum landsins árið 2015.

Betri Reykjavík fær góðar viðtökur

Yfir 10.000 manns hafa heimsótt samráðsvefinn Betri Reykjavík og lagt fram yfir 200 hugmyndir frá því að vefurinn var opnaður þann 19. október síðastliðinn. Sextán hugmyndir af samráðsvefnum hafa nú verið sendar til formlegrar meðferðar viðkomandi fagráða hjá Reykjavíkurborg að því er fram kemur í tilkynningu frá borginni.

Skorið á tjald aðgerðarsinna

Mótmælendur staðhæfa að lögreglan hafi farið offorsi í aðgerðum gegn mótmælendum á Austurvelli í morgun. Þetta kemur fram á vefsíðunni Gagnauga í dag. Mótmælafundurinn bar heitið Occupy Reykjavík og er í takt við svipaðar hreyfingar sem sprottið hafa upp í Bandaríkjunum og víðar.

Stálu eftirlitsmyndavél á Hellu

Einhver óprúttinn aðili eða aðilar tóku sig til í gær og stálu eftirlitsmyndavél og raunar „hlutum úr hraðahindrun“ á Hellu. Í tilkynningu frá lögreglu segir að málið sé í rannsókn og óskar lögreglan eftir því að þeir sem búi yfir upplýsingum um málið hafi samband við lögregluna í síma 488 4110.

Katrín Jakobs snúin aftur úr fæðingarorlofi

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, tók til starfa á ný í dag að loknu fæðingarorlofi. Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra gegndi starfi mennta- og menningarmálaráðherra í fjarveru Katrínar. Í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu segir að Katrín Jakobsdóttir sé einnig samstarfsráðherra Norðurlanda og meðal fyrstu verka hennar að loknu fæðingarorloffi verður að sækja Norðurlandaráðsþing, sem hefst í Kaupmannahöfn á morgun, 1. nóvember.

Róbert á Carter segist saklaus af færslu á bland.is

Róbert Magnússon, hárgreiðslumeistari og eigandi hárgreiðslustofunnar Carter, vill koma því á framfæri að hann er ekki höfundur bréfs sem birtist á vefnum bland.is í gær. Málið hefur vakið mikla athygli en það kom upp þegar Hanna Dóra Stefánsdóttir þroskaþjálfi greindi frá því að fatlaðri konu sem þarf að fara allra sinna ferða í hjólastól var synjað um afgreiðslu á stofu Róberts.

Palestína nú meðlimur UNESCO

Palestína fékk inngöngu í UNESCO í dag. Mikill fögnuður braust út þegar kosningunni var lokið. 81 atkvæði þurfti til að tryggja aðild Palestínu að UNESCO en alls greiddu 107 fulltrúar atkvæði með aðild á meðan 14 fulltrúar voru á móti. 52 sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.

Gnarr heimsótti Occupy Wall Street með apagrímu á hausnum

Jón Gnarr borgarstjóri var staddur í New York um helgina þar sem hann tók þátt í ráðstefnu sem útvarpsstöð þar í borg stóð fyrir og fjallaði um framtíð útvarpsins. Jón var málshefjandi á ráðstefnunni en virðist þó ekki hafa fjallað mikið um útvarp í ræðu sinni ef marka má umfjöllun blaðakonunar Melenu Ryzik á bloggsíðu New York Times. Jón lýsti Besta flokknum fyrir ráðstefnugestum og sagði hann fyrsta "stjórnleysis - súrealista“ flokk sögunnar. Flokkurinn hefur enga heimspeki að hans sögn, allt sé byggt á vitleysu. "Ég trúi á vitleysuna,“ sagði Jón og bætti reyndar við að grín sé hans trúarbrögð.

Aðgerðum NATO lokið í Líbíu

Aðalritari Atlantshafsbandalagsins, Anders Fogh Rasmussen, lenti í Líbíu í dag og lýsti því yfir að aðgerðum NATO í landinu væri lokið. Sprengjuárásir NATO hjálpuðu byltingarhermönnum að koma höndum yfir fyrrverandi einræðisherra Líbíu, Muammar Gaddafi.

Falsaðir fimmþúsundkallar í umferð á Akranesi

Fimm falsaðir seðlar hafa komið fram síðustu daga á Akranesi. Um er að ræða fimmþúsund króna seðla sem eru það vel falsaðir að afgreiðslufólk í bænum hefur látið glepjast. Við nánari skoðun sést þó glöggt að um falsanir er að ræða og til dæmis glampar ekki á silfurlita fleti seðlanna. Lögreglan á Akranesi hvetur verslunarfólk í bænum til þess að gaumgæfa hvort seðlar séu í lagi. Allt að tólf ára fangelsi er við peningafalsi í hegningarlögum.

Dregur úr klamydíutilfellum

Tæplega sextánhundruð manns greindust með klamydíu fyrstu níu mánuði þessa árs. Fjöldi tilfella á þessu ári hefur dregist saman um tæp tíu prósent miðað við sambærilegt tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í Farsóttafréttum Landlæknisembættisins. Alls greindust 1584 einstaklingar með klamydíu, þar af var 941 kona og 609 karlar en upplýsingar um kyn vantar fyrir 34 einstaklinga að því er fram kemur.

Nýr snjallsími frá BlackBerry

Research in Motion, framleiðandi BlackBerry, opinberaði nýjasta snjallsíma sinn um helgina. Síminn er kallaður P9981 og er hannaður af bílaframleiðandanum Porsche.

HIV smit: Þrír á sjötugs- og áttræðisaldri - einn þeirra lést

Samtals hafa þrettán fíkniefnaneytendur greinst með HIV það sem af er þessu ári. Þetta kemur fram í Farsóttafréttum Landlæknisembættisins sem út komu í dag. Að sögn Haraldar Briem sóttvarnarlæknis einnkennir þessa hópsýkingu á meðal fíkla náin tengsl þeirra innbyrðis auk þess sem meðalaldur þeirra er nokkuð hár, eða 38 ár. Þá hafa fjórir gagnkynhneigðir bæst í hóp smitaðra á árinu og eru þrír þeirra á sjötugs- og áttræðisaldri. Einn þeirra lést úr alnæmi.

VG ítrekar ESB andstöðu

Lagst er gegn frekari niðurskurði í heilbrigðiskerfinu og heræfingum Nató í íslenskri lögsögu hafnað í ályktunum sem landsfundur Vinstri grænna samþykkti í gær. Flokkurinn ítrekaði ennfremur andstöðu sína við inngöngu Íslands í Evrópusambandið.

Cain sakaður um óviðeigandi hegðun

Talið er að tvær konur hafi kvartað undan kynferðislegri áreitni af hálfu Herman Cain þegar hann var stjórnandi Veitingahúsasambands Bandaríkjanna á tíunda áratugnum.

Talið að smyglleiðin hafi verið notuð áður

Lögregla telur að smyglleiðin sem notuð var þegar tugum kílóa af fíkniefnum var komið hingað til lands með gámaskipi frá Hollandi, hafi verið notuð áður. Tveir menn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna málsins, sem er það stærsta sem komið hefur upp hér á landi á árinu.

Einn handtekinn á Austurvelli þegar lögregla tók tjald mótmælenda niður

Einn maður var handtekinn í morgun á Austurvelli þegar lögregla fór í það að taka niður tjald sem komið hafði verið fyrir á vellinum. Að sögn lögreglu veittust nokkrir mótmælendur að lögreglumönnunum sem fóru í málið og var ákveðið að handtaka einn, þann sem mest hafði sig í frammi. Maðurinn var fluttur á lögreglustöðina við Hverfisgötu og þar er nú verið að skoða hans mál eins og lögreglan orðaði það. Að því loknu verður honum líklegast sleppt.

Ahmadinejad boðaður í yfirheyrslur

Þing Írans mun boða Mahmoud Ahmadinejad, forseta landsins, í yfirheyrslur vegna meintra svika. 73 af 290 þingmönnum skrifuðu undir beiðni til að yfirheyra forsetann en Ahmadinejad hefur átt í langri orrustu við andstæðinga sína á þinginu.

Dominosmenn kveiktu í pizzastað keppinautarins

Baráttan um yfirhöndina á flatbökumarkaðnum í Flórída er komin á nýtt stig. Tveir yfirmenn Dominos veitingastaða hafa verið ákærðir fyrir að kveikja í húsnæði keppinautarins, Papa John"s, í Lake City.

Heill á húfi á Þröskuldum

Björgunarsveitarmenn frá Hólmavík brutust upp á Þröskulda í afleitu veðri og ófærð í morgun, til að koma ökumanni til hjálpar sem sat þar fastur í bíl sínum. Vetrarríki er nú um alla Vestfirði.

77 ráðningar án auglýsinga

Ráðuneytin réðu alls 77 sinnum í stöður án auglýsinga frá ársbyrjun 2009 fram í september síðastliðinn. Þetta kemur fram í svörum ráðuneytanna við fyrirspurn Fréttablaðsins.

Réttarhöldum yfir Mubarak frestað

Réttarhöldum yfir fyrrverandi forseta Egyptalands, Hosni Mubarak, hefur verið frestað þangað til að niðurstaða liggur fyrir um hvort að nýr dómari muni annast málið.

Þrjár tegundir uppsjávarfisks gætu skilað 75 milljörðum

Útflutningsverðmæti norsk-íslenskrar síldar og makríls í sumar er um 45 milljarðar króna. Gangi veiðar á loðnu á næstu mánuðum samkvæmt væntingum fer verðmæti þessara þriggja tegunda á nokkrum mánuðum í 75 milljarða króna. Aðrar tegundir uppsjávarfisks færa útflutningsverðmætið vel yfir 80 milljarða króna.

Sjá næstu 50 fréttir