Fleiri fréttir

Snjókoma og blindbylur veldur mannsköðum í Bandaríkjunum

Að minnsta kosti níu manns hafa farist í mikilli snjókomu og blindbyljum við austurströnd Bandaríkjanna um helgina. Yfir þrjár milljónir manna eru án rafmagns og hita og þarf stór hluti þessa fólks að búa við það ástand næstu daga.

Miklar hörmungar yfirvofandi í Taílandi

Miklar hörmungar eru yfirvofandi í Taílandi vegna flóðanna þar í landi undanfarnar vikur. Nú óttast sérfræðingar að farsóttir á borð við malaríu muni breiðast út meðal íbúa landsins.

Fjöldinn sprengir af sér skólaeldhús víða

„Við erum að skoða það að ræða við stjórnendur hjá Reykjavík um þessi mál,“ segir Fríða Ólafsdóttir, eftirlitsmaður hjá Vinnueftirliti ríkisins, um stöðuna í skólamötuneytum borgarinnar.

Endurskoða þarf hlutverk biskups

Endurskoðun á hlutverki biskups og minna umfang stjórnsýslu kirkjunnar. Þetta er meðal hugmynda sem séra Örn Bárður Jónsson setti fram í prédikun í Neskirkju í gær.

Segir afskipti hleypa öllu í bál og brand

Bashar al-Assad Sýrlandsforseti segir að Vesturlönd taki mikla áhættu ætli þau að skipta sér af stjórn Sýrlands, landi þar sem mótmælendur hafa í sjö mánuði krafist afsagnar forsetans. „Sýrland er kjarninn í þessum heimshluta núna. Það er jarðsprungan, og ef þú leikur þér að jörðinni þá veldurðu jarðskjálfta,“ sagði Assad í viðtali við breska blaðið Sunday Telegraph. „Viljið þið sjá annað Afganistan eða tíu Afganistan?“

Vilja skilgreina fátæktarmörk

Stjórnvöld í Danmörku stefna að því að skilgreina fátæktarmörk þar í landi og mun niðurstaða liggja fyrir á næsta ári. Nokkur umræða hefur skapast um fátækt í Danmörku þar sem deilt er um hvort eigi að einblína á aðstæður innanlands eða setja þær í samanburð við fátækt á heimsvísu. Talsmaður Róttæka flokksins, sem er einn af stjórnarflokkunum, segir við Berlingske að ákvarða þurfi nauðsynlegar ráðstöfunartekjur. Með það að leiðarljósi megi fara að vinna á fátækt sem sé raunverulegt vandamál í Danmörku

Búið að sótthreinsa Bogann

Búið er að sótthreinsa gervigrasið í íþróttahúsinu Boganum á Akureyri. Eins og Fréttablaðið greindi frá í síðustu viku eru mörg dæmi um að íþróttaiðkendur hafi fengið sýkingar í sár eftir að hafa dottið í grasið þar, vegna þess að það hafði ekki verið þrifið frá opnun. Sýkingavaldar í grasinu eru raktir til þess meðal annars að fólk hræki í grasið.

Ræðst hvort Assange verður framseldur

Dómstóll í London mun taka ákvörðun um það á miðvikudaginn kemur hvort Julian Assange, stofnandi Wikileaks, verður framseldur til Svíþjóðar. Assange var handtekinn í London í desember síðastliðnum og er nú laus gegn tryggingu. Hann er ákærður fyrir kynferðisbrot gegn tveimur konum í Svíþjóð og því hafa Svíar viljað hafa hendur í hári hans. Hann neitar alfarið sök og segir málið vera pólitískt. Nú hefur verið greint frá því að 2. nóvember klukkan 9.45 verði kveðinn upp úrskurður í framsalsmálinu.

Þingið rannsakar forseta

Íranska þjóðþingið hefur samþykkt að kalla Mahmoud Ahmadinejad forseta til yfirheyrslu, þar sem hann verður spurður bæði út í stefnu sína og út í grun um efnahagsmisferli. Áður hefur þingið komist að þeirri niðurstöðu að efnahagsráðherra Ahmadinedjads hafi gerst sekur um efnahagsmisferli. Það mál er þó aðeins eitt af mörgum sem forsetinn er talinn vera flæktur í.

Fimmta morðið á einum mánuði

Ungur maður var myrtur á heimili sínu í Ósló, höfuðborg Noregs, í fyrrinótt og annar komst illa særður á slysadeild. Meintur árásarmaður var handtekinn í bakgarði hússins þar sem morðið átti sér stað.

Jólin flutt í kössum til Úkraínu

Samtökin KFUM og KFUK standa í áttunda sinn fyrir verkefninu Jól í skókassa. Í því er nokkrum jólagjöfum pakkað ofan í skókassa sem síðan eru sendir til þurfandi barna í Úkraínu. Markmiðið er að gleðja þurfandi börn í anda jólanna.

Á annan tug manna látnir á Gasa-svæðinu

Tíu Palestínumenn og einn Ísraeli hafa látið lífið í átökum um helgina, sem hafa dregið mjög úr vonum um að samband Ísraelsstjórnar og Hamas-samtakanna skáni eitthvað.

Velti bíl í Mosfellsdal

Nú laust eftir miðnætti var karlmanni bjargað út úr bíl sem hafði velt í Mosfellsdal. Karlmaðurinn var einn í bílnum. Sjúkraflutningamenn fluttu hann á slysadeild þar sem gert verður að sárum hans. Hann virtist ekki mikið slasaður en orðinn nokkuð kaldur.

Rafmagnsleysi í Hafnarfirði

Stór hluti Hafnarfjarðar er nú rafmagnslaus. HS Veitur sér um að veita rafmagni í Hafnarfjörð en frá þeim hafa engar upplýsingar borist um ástæður rafmagnsleysisins.

Tugir kílóa af fíkniefnum teknir í íslenskri höfn

Karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn í Leifsstöð í nótt grunaður um að vera höfuðpaur í umfangsmesta fíknefnamáli ársins. Hann er annar maðurinn sem er handtekinn vegna málsins sem hefur verið til rannsóknar í marga mánuði og snýst um innflutning á verulegu magni af fíkniefnum.

Landsmóti æskulýðsfélaga kirkjunnar lokið

Landsmóti æskulýðsfélaga kirkjunnar lauk með messu í Selfosskirkju í dag. Þar voru 500 unglingar og leiðtogar. Þau komu frá landinu öllu og voru einskonar þverskurður af kirkjunni. Séra Óskar Hafsteinn Óskarsson, prestur í Selfosskirkju, prédikaði í messunni. Herra Karl Sigurbjörnsson heiðraði mótið með nærveru sinni í gær.

Tannheilsan verst á Íslandi

Tannheilsa Íslendinga er mun verri en annarra Norðurlandabúa þrátt fyrir að tannlæknar séu hlutfallslega fleiri á Íslandi. Ungmenni hér á landi fá fjórfalt fleiri skemmdir en danskir jafnaldrar þeirra.

Úrskurði gerðardóms enn frestað

Gerðardómur í deilu Norðuráls og HS Orku vegna álversins í Helguvík hefur frestað úrskurði sínum um einn mánuð, en vonast hafði verið eftir niðurstöðu nú um þessi mánaðamót. Fresturinn er að ósk dómaranna, sem telja deilumálið um orkusamninginn það viðamikið að þeir þurfi lengri tíma.

Karlmaður skarst á höfði

Karlmaður á fimmtugsaldri skarst á höfði og í andliti þegar hann ók á bryggjupolla við Grindavíkurhöfn síðdegis í dag. Hann var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild. Bíllinn sem hann ók er talinn ónýtur.

Jóhanna fundar með forsætisráðherra Dana

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra mun funda með Helle Thorning-Schmidt, nýjum forsætisráðherra Danmerkur, eftir helgi. Fundurinn fer fram í tengslum við þing Norðurlandaráðs sem fer fram í vikunni.

Þröskuldar ófærir

Leiðin um Þröskulda á Vestfjörðum er ófær og er þar mjög slæmt veður. Viljum við benda vegfarendum á þessari leið að fara Ennishálsinn og um strandir en sú leið er greiðfær.

Ríki sem banna samkynhneigð fá ekki aðstoð

David Cameron, forsætisráðherra Breta, hótar því að Bretar muni hætta að veita ríkjum aðstoð sem banna samkynhneigð. Cameron segist hafa rætt þetta á alþjóðlegum fundi um velferðarmál í Perth í Ástralíu sem er nýlokið. Cameron segir að þeir sem ætli sér að þiggja aðstoð frá Bretum skuli tileinka sér mannréttindi.

Garðfuglaskoðun hefst í dag

Í dag hefst árviss garðfuglaskoðun Fuglaverndar þar sem landsmenn eru hvattir til að skoða og skrá fjölda og tegundir fugla í görðum sínum.

Neyðarvistunin var yfirfull þegar unglingarnir voru handteknir

Neyðarvistunin á Stuðlum var yfirfull í gærkvöld þegar þrír unglingar voru handteknir og gistu fangageymslur lögreglunnar. Ástæðan er sú að taka þurfti á móti einum af þeim einstaklingum sem hafði strokið af meðferðarheimilinu í Háholti. Unglingarnir komust yfir lykla eins starfsmannsins í gær og þegar þeir áttu að fara í ró ákváðu þeir að ráðast til atlögu. Starfsmenn reyndu að stöðva þá en þegar það gerðist tóku unglingarnir í sundur sófa sem er á Stuðlum og bjuggu sér til vopn úr honum. Þegar starfsmennirnir sáu að þeir réðu ekki við aðstæður ákváðu þeir að kalla til lögreglu.

Niðurstaða Hæstaréttar kom ekki á óvart

Niðurstaða Hæstaréttar á föstudaginn kemur ekki á óvart, að mati Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Hæstiréttur staðfesti á föstudaginn þá niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavikur að neyðarlögin frá 6. október 2008 stæðust stjórnarskrá. Innlán í gamla Landsbankanum og Glitni skyldu teljast forgangskröfur umfram kröfur lánadrottna og hluthafa í bankanum.

Klukkunni breytt í nótt

Klukkan var færð aftur um eina klukkustund í Evrópu í nótt þegar vetrartími tók gildi. Tímamunur á milli Íslands og Vestur Evrópu er nú ein klukkustund í stað tveggja.

Þeldökkur kaupsýslumaður leiðir baráttuna

Þeldökki kaupsýslumaðurinn Herman Cain er nú efstur þeirra sem sækjast eftir útnefningu Repúblikaflokksins til forsetaembættis Bandaríkjanna í skoðanakönnunum í Iowa. Þrátt fyrir að íbúar ríkisins hafi tiltölulega lítil áhrif á útnefninguna, þá veita fjölmiðlar niðurstöðu forkosninga þar jafnan mikla athygli, þar sem kosningabaráttan hefst þar.

Cameron vill vopnaða verði í hvert skip

David Cameron hefur lýst því yfir að vopnaðir verðir verði um borð í breskum skipum sem sigla á alþjóðlegu hafsvæði. Er þetta gert til að verja þau gegn árásum sjóræningja, en á síðasta ári voru framin 53 sjórán. Cameron segir að Bretar verði að verja þegna sína, en í lögum einhverra landa eru lög sem banna skipverjum að hafa vopn undir höndum um borð í skipum. Cameron vék sér undan þeirri spurningu um hvort verðirinr hafi leyfi til að drepa, en sagði að taka yrði á sjóræningjum.

Fólkaflokkurinn og Sambandsflokkurinn sigruðu

Fólkaflokkurinn og Sambandsflokkurinn sigruðu í kosningum til færeyska lögþingsins í gær. Báðir flokkarnir fengu átta þingmenn og bættu við sig fylgi frá síðustu kosningum. Nýi flokkurinn, Framsókn, fékk tvo þingmenn. Jafnaðarflokkurinn tapaði fylgi og fékk sex menn líkt og þjóðveldisflokkurinn sem tapaði fimm prósenta fylgi frá síðustu kosningum. Sjálfstýriflokkurinn fékk einn mann og Miðflokkurinn einn.

Players lokað í nótt

Lögreglan lokaði veitingastaðnum Players um þrjúleytið í nótt. Þegar staðnum var lokað hafði hann yfirfyllst af fólki. Töluverður hópur unglinga undir tilskyldum aldri hafði safnast fyrir inni á staðnum þegar honum var lokað. Eftir að staðnum var lokað safnaðist fólkið saman fyrir utan hann og kom margsinnis til stympinga þar fyrir utan sem lögreglan þurfti að hafa afskipti af.

Þrír vistmenn á Stuðlum handteknir

Þrír unglingar sem vistaðir eru á meðferðarheimilinu Stuðlum, sem Barnaverndastofa rekur, voru handteknir rétt fyrir miðnætti og færðir í fangageymslur eftir að slagsmál brutust út á Stuðlum. Starfsmenn Stuðla munu ekki hafa ráðið við ástandið og því var ákveðið að kalla til lögregluna. Unglingarnir, sem eru fimmtán og sextán ára gamlir, eru enn í haldi lögreglunnar. Ákveðið verður síðar í dag, í samráði við barnaverndaryfirvöld hvað gert verður í málum unglinganna.

Lottóspilari 17 milljónum ríkari

Einn heppinn lottóspilari var með allar tölur réttar í lottóútdrætti kvöldsins. Hann fær um 17,4 milljónir í sinn hlut. Lottóspilarinn keypti miðann á Olísstöðinni á Höfn í Hornafirði. Sjö spilarar voru með 4 réttar Jokertölur í réttri röð. Hver og einn fær 100 þúsund krónur í sinn hlut.

Fjöldi fólks skoðaði Þór

Fjöldi fólks hefur lagt leið sína niður að höfn til þess að skoða varðskipið Þór sem kom til landsins í vikunni. Landhelgisgæslan áætlar að um fimm þúsund manns séu búnir að skoða skipið. Um 3500 manns lögðu leið sína niður að Miðbakka Reykjavíkurhafnar í dag þar sem varðskipið liggur við bryggju. Þrátt fyrir rigningu lét fólk það ekki á sig fá og stóð um stund í biðröð eftir að komast um borð. Skipið verður áfram opið til sýnis milli klukkan 13 og 17 á morgun.

Búist við fárviðri í Bandaríkjunum

Svo virðist sem það ætli að gera aftakaveður á austurströnd Bandaríkjanna nú um helgina. Bandaríska veðurstofan hefur í þa minnsta gefið út aðvörun þar sem gert er ráð fyrir vindstyrk allt upp undir 72 km/klst, eftir því sem BBC greinir frá. Búist er við mikilli snjókomu með storminum. Óveðrið er þegar byrjað í Pennsylvaníu, Maryland og Vestur-Virginíu. Þar eru um 10 þúsund manns án rafmagns vegna óveðursins.

Staða Íslendinga sterkari í Icesave deilunni

Lögmaður sem sat í Icesave samninganefndinni telur að staðfesting neyðarlaganna fyrir Hæstarétti í gær styrki málstað Íslendinga og dragi úr áhættu ef illa fer í Icesave málinu fyrir EFTA dómstólnum.

Hanna ferju í staðin fyrir Herjólf

Eimskip hefur látið hanna nýja ferju sem gæti hentað betur en Herjólfur til siglinga á millli Vestmannaeyja og Landeyjarhafnar. Herjólfur er of djúpristur, tekur á sig of mikinn vind, á erfitt með strauminn og hentar að ýmsu öðru leyti illa til siglinga. Eimskip, sem er rekstraraðili Herjólfs, óskaði eftir nýju hönnuninni eftir að Vegagerðin bað fyrirtækið um að leita að nýrri ferju sem gæti gagnast betur til siglinga á milli lands og Eyja en Herjólfur.

Moore hvatti mótmælendur til dáða

Rithöfundurinn og kvikmyndaframleiðandinn Michael Moore hvatti mótmælendur í Oakland í Bandaríkjunum í dag til dáða. Hann sagði að þeir hefðu blásið lífi og von í fólk. Fólkið mótmælir launaójöfnuði, spillingu í fyrirtækjum og aðgerðarleysi stjórnvalda.

Ætla með Legoland til Japan

Legoland heldur áfram að teygja út anga sína. Nýlega opnaði Legoland í Orlando í Flórída, verið er að byggja Legoland í Malasíu og innan fárra ára verður enn eitt opnað í Japan.

Kannabismaður sprengdi íbúð

Sprenging varð í íbúð í Osló, höfuðborg Noregs, í gærkvöld þegar karlmaður á þrítugsaldri var að blanda saman kannabisolíum. Rúður í íbúðinni sprungu og hún er mikið skemmd, eftir því sem fram kemur í Aftenposten. Enginn meiddist í sprengingunni sem varð í íbúðinni á níundu hæð. Lögreglan segir að ekki hafi verið mikið af fíkniefnum í íbúðinni. Þetta verði vart kallað fíkniefnaverksmiðja. Ungi maðurinn hefur verið handtekinn fyrir að hafa valdið sprengingunni.

Sjá næstu 50 fréttir