Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Risageit IKEA risin Ikea á Íslandi hefur reist rúmlega sex metra háu sænsku jólageitina Jevle en geitin er algengt jólaskraut í Svíðþjóð. Hún er reist á aðaltorgi bæjarins Jevle í upphafi aðventu, ár hvert. Örlög íslensku geitarinnar urðu þau sömu í fyrra og þeirrar sænsku hafa oft orðið í gegnum tíðina, en Brennivargar brenndu hana til grunna. Stjórnendur Ikea á Íslandi segjast hins vegar ekki óttast að það sama gerist í ár. 6.11.2011 22:30
Upprennandi hljóðfærasnillingar fluttu Mahler Ungir og efnilegir hljóðfæraleikarar fengu að láta ljós sitt skína í dag á árlegum tónleikum ungsveitar Sinfóníuhljómsveitarinnar. Ungsveitin er ungliðasveit Sinfóníuhljómsveitarinnar og þurfa unmenni úr tónlistarskólum landsins þurfa að standast prufuspil og æfa síðan í nokkrar vikur fram að tónleikum. Krakkarnir voru að undirbúa sig fyrir tónleikana þegar fréttastofa leit við í dag og 6.11.2011 22:00
Fornar gersemar á heimilum landsins Þjóðminjasafnið bauð í dag almenningi að koma með gamla gripi til greiningar hjá sérfræðingum safnsins. Greiningardagurinn var vel sóttur og komu þar margir góðir gripir í ljós. Til dæmis mátti sjá silfur súpuskeið frá átjánhundruð fjörutiu og fimm, útskorna taflmenn frá nítjándu öld og gamlan stokk sem áður geymdi barnaleikföng. Safnið segir greiningardaga bæði fróðlega fyrir gesti safnsins sem og starfsfólk. Með því gefist tækifæri til að sjá marga og áhugaverða gripi sem leynist á heimilum landsins. 6.11.2011 21:30
Íslendingur flækist inn í vörumerkjadeilu Apple Tæknirisinn Apple hefur hótað því að fara í mál við barnakaffihús í Þýskalandi þar sem forsvarsmönnum Apple þóttu vörumerkin vera of lík. Kaffihúsaeigandi í Reykjavík segir vörumerkið hins vegar sláandi líkt sínu. Barnakaffihúsið Apfelkind var opnað í Bonn í vor. Eigandinn sótti um einkaleyfi á vörumerkinu og leið ekki nema mánuður þar til Apple lét frá sér heyra. 6.11.2011 21:00
Urðu fyrir þrýstingi stjórnmálamanna Stjórnmálamenn reyndu ítrekað að hafa áhrif á fréttaflutning fréttastofu Stöðvar 2 á fyrstu árum stöðvarinnar. Ráðherrar beittu sér fyrir því að einstakir fréttamenn yrðu reknir fyrir óþægilegan fréttaflutning. Þetta kemur fram í þættinum Ljósvakavíkingar sem sýndur verður í opinni dagskrá strax á eftir fréttum í kvöld. Í þættinum sem gerður er í tilefni af 25 ára afmæli Stöðvar 2 er meðal annars rætt við þá Jón Óttar Ragnarsson og Hans Kristján Árnason stofnefnur Stöðvar 2 um fyrstu ár fréttastofunnar og þann titring sem hún olli sérstaklega á meðal stjórnmálamanna sem margir hverjir vildu hafa áhrif á störf hennar og stefnu. 6.11.2011 20:30
Herjólfur siglir frá Þorlákshöfn á morgun Herjólfur mun sigla til Þorlákshafnar mánudaginn 7. nóv. sökum þess að ölduspá fyrir Landeyjahöfn er óhagstæð. Gert er ráð fyrir því að siglt verði frá Vestmannaeyjum kl 8:00 og 15:30 og frá Þorlákshöfn kl 11:45 og 19:15. Athygli er þó vakin á því að aðstæður geti breyst hratt og við þeim verður brugðist. Verði einhverjar breytingar á áætlun verða þær tilkynntar á morgun. Farþegar eru vinsamlega beðnir að fylgjast með fréttum á herjolfur.is, facebook síðu Herjólfs og síðu 415 í Textavarpi. 6.11.2011 20:09
Krefjast snjóframleiðslu í Bláfjöll Skíðaráð Reykjavíkur hefur skorað á Reykjavíkurborg, ÍTR og þau stjórnvöld önnur sem koma að rekstri skíðasvæða borgarinnar að koma strax upp snjóframleiðslukerfi. Ráðið segir almenning orðið langþreyttan á því að ekki sé búið að koma upp snjóframleiðslukerfum á skíðasvæðum í Bláfjöllum og Skálafelli og bendir á að skíðafólki sé stórlega mismunað í samanburði við aðrar íþróttagreinar þegar kemur að uppbyggingu á íþróttamannvirkjum. 6.11.2011 20:04
Ánægð með þrjátíu ára stjórnmálaferil Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segist sátt við þrjátíu ára feril sinn í stjórnmálum þegar hún horfir yfir farinn veg, en á morgun heldur hún utan til New York og þaðan til Kabúl þar sem hún verður yfirmaður jafnréttisstofnunar Sameinuðu þjóðanna í Afganistan. Ingibjörg Sólrún fyrrverandi utanríkisráðherra heldur utan til New York á morgun og mun í næstunni funda með starfsfólki Sameinuðu þjóðanna. Hún mun svo um næstu helgi flytja til Kabúl, þar sem hún verður yfirmaður jafnréttisstofnunar UN Women í Afganistan. 6.11.2011 19:30
Búið að lagfæra fjarskiptakerfið Viðgerð er lokið á bilun sem kom upp í stofnkefi Mílu á norðausturlandi fyrr í dag. Um bilun í örbylgjubúnaði var að ræða. Því er nú fjarskiptasamband komið á á svæðinu, en helst urðu íbúar Kópaskers og Raufarhafnar orðið fyrir barðinu á biluninni. 6.11.2011 19:03
Skuggaleg aukning á sölu lyfja Sala á tauga og geðlyfjum hefur þrefaldast á síðustu tveimur áratugum en heimilislæknir óttast að það sé of auðvelt að endurnýja lyfseðla. Svefnlyfin nái aldrei að hreinsast alveg úr líkamanum daginn eftir og valdi oft truflaðri hugsun sem geti reynst hættulegt. Íslendingar nota tæplega helmingi meira af tauga og geðlyfjum en Svíar samkvæmt nýlegri skýrslu velferðarráðuneytisins. Þá eru þessi lyf meira en fjórðungur af lyfjakostnaði hér á landi og hefur sala á þeim þrefaldast á síðustu tveimur áratugum þar með talið sala á svefnlyfjum. 6.11.2011 18:48
Alma ekki með stýrisblað Kafarar frá Fáskrúðsfirði athuguðu flutningaskipið Ölmu í dag og í ljós kom að stýrisblað skipsins vantar með öllu. Það hefur að öllum líkindum dottið af þegar skipið var að sigla burt frá Hornafjarðarhöfn í fyrri nótt. Garðar Jóhannsson, framkvæmdastjóri Nesskipa, sem er umboðsaðili Ölmu hér á landi, segir það ráðist eftir helgi hvert framhaldið verður. 6.11.2011 18:30
Hálkublettir víða á fjallvegum Spáð er éljum á fjallvegum suðvestan- og vestanlands í kvöld og nótt, en slydduéljum á láglendi. Undir morgun er hætt við ísingu á vegum, einkum á Suðurlandsundirlendinu, höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. En einnig í Borgarfirði, Dölum, við Breiðafjörð og á sunnanverðum Vestfjörðum. Hálkublettir eru víða á fjallvegum. Krapasnjór er á Möðrudalsöræfum á Austurlandi. 6.11.2011 18:19
Stærsti jarðskjálfti í sögu Oklahoma Stærsti jarðskjálfti í sögu Oklahoma skók ríkið í gær. Jarðskjálftinn var 5,6 á richter og varð í um 70 km fjarlægð frá Oklahoma borg. Tilkynnt hefur verið um nokkuð eignartjón, en ekkert mannfall varð svo vitað sé. Þó voru nokkrir sendir á sjúkrahús með minniháttar áverka. Skjálftinn er sá öflugasti í sögu ríkisins Oklahoma, samkvæmt frétt The Daily mail. Hann varð síðastliðna nótt og varði í rúmar 30 sekúndur. „Þetta var temmilega góður hnykkur. Við erum ekki vön þessu. Við erum bara vön því að fjúka upp í stormi," sagði JL Gilbert, sem býr aðeins fáeinum kílómetrum frá upptökum skjálftans. 6.11.2011 17:26
Gámur fauk út á haf - myndband Gámur fauk á haf út í óveðrinu á Stöðvarfirði í morgun. Um er að ræða 40 feta frystigám. Björgvin Valur Guðmundsson, íbúi á Stöðvarfirði náði atvikinu á myndband. Myndbandið má nálgast á þessari síðu: http://vimeo.com/31675022 Gámurinn fýkur eftir rúma eina mínútu og tíu sekúndur af myndbandinu. 6.11.2011 16:26
Ánægja með fundaferð Hönnu Birnu Hanna Birna Kristjánsdóttir átti fund með flokksmönnum sínum á Ísafirði í gær. Fundurinn er upphaf fundaferðar þar sem Hanna Birna ætlar sér að ferðast um landið og ræða um framboð sitt til formanns Sjálfstæðisflokksins við flokksmenn sína. Halldór Halldórsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar skipulagði fundinn. Hann sagði fólk almennt mjög ánægt með fundinn. "Það sem stóð helst uppúr hjá fólki eftir fundinn var hversu vel Hanna Birna var inni í málum," sagði Halldór og bætti við að fólk teldið það mikinn styrk fyrir flokkinn að fá að velja milli tveggja glæsilegra formannsefna. Halldór er sjálfur stuðningsmaður Hönnu Birnu. 6.11.2011 16:14
Siglt verður frá Landeyjahöfn Herjólfur siglir þriðju og síðustu ferð dagsins til Landeyjahafnar. Ákveðið hefur verið að sigla þriðju og síðustu ferð Herjólfs frá Eyjum kl 15:30 til Landeyjahafnar. Áætluð brottför frá Landeyjahöfn er kl. 19:00 í kvöld. 6.11.2011 15:36
TF-LÍF sækir slasaðan sjómann Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-LÍF er nú á leið að sækja slasaðan skipverja út í skip sem statt er vestan við Vestmannaeyjar. Gæslunni barst aðstoðarbeiðni frá flutningaskipinu Brúarfossi laust eftir klukkan tvö í dag. Þyrlan sem var á leið til Reykjavíkur eftir að hafa tekið þátt í björgunaraðgerðum á flutningaskipinu Ölmu í gær, gerði lykkju á leið sína og mun nú sækja manninn og flytja hann til Reykjavíkur. Reiknað er með að hún komi um fjögur leytið til borgarinnar. 6.11.2011 15:33
150 látnir í Nígeríu - fleiri árásum lofað 150 manns hið minnsta létu lífið í sprengjuárásum í Nígeríu í gær samkvæmt heimildum Sky fréttastofunnar. Róttækir múslimar, sem ganga undir nafninu Boko Haram, hafa gengist við ábyrgð á verkunum. Talsmaður Rauða Krossins sagðist í dag búast við því að enn fleiri hefðu látist en nú er talið. 6.11.2011 14:22
Truflanir á fjarskiptasambandi á Norð-Austurlandi Bilun kom upp á stofnkerfi Mílu á Norð-Austurlandi. Undirbúningur að viðgerð er hafinn. Ekki er enn vitað nákvæmlega í hverju bilunin felst, en bilanagreining stendur yfir. Bilunin mun bitna á fjarskiptasambandi á svæðinu, jafnt farsímum sem heimasímum, enda selur Míla þjónustu sína til fyrirtækja eins og Vodafone og Símans, sem selja svo þjónustuna áfram. 6.11.2011 13:57
Hlýnun jarðar hamlar framförum Sameinuðu þjóðirnar hafa sent frá sér hina árlegu þróunarskýrslu, sem að venju er mikill fróðleiksbrunnur um ástand og lífskjör í löndum heims. Umhverfismál eru meginviðfangsefni skýrslunnar í ár. Guðsteinn Bjarnason kynnti sér innihald hennar. Undanfarin tuttugu ár hefur þróunarskýrslan skapað umræður og haft margvísleg áhrif víða um heim," segir Khalid Malik, sviðsstjóri þróunarskýrslusviðs Sameinuðu þjóðanna. Undanfarin tuttugu ár hefur þróunarskýrslan skapað umræður og haft margvísleg áhrif víða um heim," segir Khalid Malik, sviðsstjóri þróunarskýrslusviðs Sameinuðu þjóðanna.Hann segir útgangspunkt skýrslugerðarinnar frá upphafi hafa verið þann, að hin raunverulega auðlegð þjóðanna sé fólkið í hverju landi fyrir sig. Þjóðarframleiðsla eða þjóðartekjur séu ekki besti mælikvarðinn á lífskjör fólks, heldur hafa þættir á borð við menntun og heilsufar verið teknir inn í myndina. 6.11.2011 13:37
Hetjudáðir drýgðar við björgunarstörf Justine Greening, samgöngumálaráðherra Bretlands, segir slökkviliðið og lögregluna í Somerset-sýslu hafa drýgt hetjudáð í gær þegar eldar voru slökktir og fólki bjargað úr brennandi bílflökum eftir að þrjátíu og fjórir bílar lentu saman í árekstri. Sjö eru látnir og fimmtíu og einn var færður til aðhlynningar á sjúkrahúsi. Lögreglan hefur nú staðfest að ólíklegt sé að tala látinna kunni að hækka en búið að er fjarlægja flest bílflökin af veginum. M5 hraðbrautin verður hins vegar ekki opnuð fyrir umferð í dag. Ráðherrann segir að nú verði að grípa til aðgerða til að minnka líkurnar á svona slys verði aftur. 6.11.2011 13:30
Leita að rödd Benedikts Gröndal Bókaútgáfan Crymogea leitar nú að karlmanni sem gæti túlkað rödd Benedikts Gröndal. Sá sem fyrir valinu verður mun lesa lýsingar Benedikts á íslenskum fuglum. Hugmyndin er sú að upptökurnar verði notaðar sem viðbót sem fylgi með stafrænni útgáfu af einu helsta verki hans, Íslenskum fuglum. Þá verður hún einnig notuð í auglýsingar. 6.11.2011 13:26
Tryggvi Þór spyr hver tilgangurinn sé með framboði Hönnu Birnu Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, spyr hver tilgangurinn sé með framboði Hönnu Birnu Kristjánsdóttur í embætti formanns Sjálfstæðisflokksins og segir að sagan sýnir að hún geti ekki náð betri árangri í kosningum en sitjandi formaður. 6.11.2011 13:13
Vignir fljótastur íslenskra "járnkarla“ Tólf Íslendingar luku í gær heilum Járnkarli eða Ironman í Florida í Bandaríkjunum. Ekki tókst að slá Íslandsmet en gríðarleg íslensk stemmning myndaðist við endamarkið. Vignir Þór Sverrisson var fyrstur Íslendinganna í mark á 9 klst og 37 mín eftir að hafa lokið 3,8 kílómetra sjósundi, 180 kílómetrum á hjóli og heilu maraþoni eða 42,2 kílómetrum hlaupandi. 6.11.2011 12:59
Jólabasar á Grand Hótel Hinn árlegi jólabasar Hringsins verður haldinn á Grand Hóteli í dag. Jólabasarinn er afrakstur ársvinnu félagskvenna en Hringskonur hefja ávallt undirbúning í janúar og hittast svo vikulega allt árið til að föndra, sauma og prjóna. Allur ágóði rennur til góðra málefna Hringsins. Basarinn hefst klukkan 13 en þar verða til sölu hannyrðir, jólaskraut, jólakort og kökur að hætti Hringskvenna. 6.11.2011 12:52
Deilurnar um Þorláksbúð að leysast Kirkjuráð hefur ákveðið að gera engar athugasemdir við endurbyggingu fornaldarkirkjunnar Þorláksbúðar í Skálholti en staðsetning kirkjunnar hefur verið gagnrýnd. Biskup sat hjá við afgreiðslu málsins. Málið hefur átt sér langan aðdraganda en síðasta sumar var ráðist í framkvæmdir við að endurhlaða Þorláksbúð kennda við Þorlák biskup helga. Það er Þorláksbúðarfélagið undir forystu Árna Johnsen sem stendur fyrir framkvæmdunum og var það mikið hugðarefni séra Sigurðar heitins Sigurðarsonar fyrrum vígslubiskups í Skálholti. Í sumar kom hins vegar fram gagnrýni á framkvæmdina til dæmis hvað varðar staðsetningu hússins, það er nálægð við Skálholtskirkju en reisa á Þorláksbúð uppvið útvegg kirkjunnar. 6.11.2011 12:42
Herjólfur frá Landeyjahöfn Herjólfur sigldi til Landeyjahafnar í morgun og mun sigla frá Landeyjahöfn kl. 12:00 Nú hefur verið ákv. að sigla aðra ferð til Landeyjahafnar kl. 13:00 frá Eyjum og 14:00 frá Landeyjahöfn. Vegna ölduspár og dýpt í höfninni á háfjöru er óvíst um hvort þriðja og síðasta ferð dagsins verði til Landeyjahafnar. 6.11.2011 12:21
Friðaráætlun Sýrlands vanvirt með morðum Öryggissveitir í Sýrlandi hafa drepið sex manns hið minnsta í dag. Árásirnar komu á fyrsta degi fórnarhátíðar múslima Eid al-Adha og voru í borgunum Horns og Hama. Einnig var skotið að mótmælendum nærri höfuðborginni Damaskus. Árásirnar gera vonir mótmælenda að engu um að forseti landsins Bashar al-Assad myndi standa við friðaráætlun Arababandalagsins. Í síðustu viku samþykkti ríkisstjórn Sýrlands friðaráætlun Arababandalagsins. Samkvæmt áætluninni átti stjórnin að stöðva ofbeldi gegn mótmælendum, sleppa öllum pólitískum föngum, kalla vopnuð ökutæki af götum landsins og hefja viðræður við mótmælendur. Í gær mótmæltu aðgerðarsinnar friðsamlega til að reyna á hvort stjórnvöld stæðu við samkomulagið. Mótmælendum heilsaði mikil skothríð og með árásum dagsins í dag er nokkuð ljóst að Bashar al-Assad virðir samkomulagið ekki, í það minnsta ekki í öllum atriðum. 6.11.2011 12:13
Jarðskjálftar verstir heilsu fólks Jarðskjálftar hafa skaðlegri áhrif á heilsu manna en aðrar náttúruhamfarir eins og flóð og fellibylir, samkvæmt nýrri rannsókn bandarískra vísindamanna. Meira en milljón jarðskjálftar, af mismunandi stærðum og gerðum , verða víðs vegar um heiminn á ári hverju, en frá þessu er greint á vef BBC. Auk dauðsfalla þá valda jarðskjálftar ýmsum kvillum og meiðslum sem ekki er hægt að meðhöndla vegna skemmda sem skjálftarnir valda grunngerð samfélagsins. Margar af helstu stórborgum heims eru á jarðskjálftasvæðum, svo sem Los Angeles, Tokíó, New York, Delí og Sjanghæ, sem þýðir að milljónir manna eru í stöðugri hættu um að lenda í skjálfta. 6.11.2011 12:00
Stærstu flokkar Grikklands færast nær samkomulagi „Stjórnmálaflokkar í Grikklandi verða að ná samkomulagi fyrir morgundaginn um hver leiðir hina fyrirhuguðu samsteypustjórn," sagði talsmaður ríkisstjórnarinnar í dag og bætti við að stærstu flokkar landsins virðist vera að ná ákveðnum samhljómi í viðræðunum. Sósíalistaflokkur Papandreou og Nýtt lýðræði virðast vera að sættast á ákveðinn sameiginlegan grundvöll í viðræðunum. Og þó nokkrir dagar geti vel liðið áður en fyrir liggur hverjir taki ráðherrastól er mikilvægt að ákveða hver leiðir stjórnina fyrir á morgun, í síðasta lagi. Þetta kom fram í viðtali við Elias Mossialos, talsmann grísku ríkisstjórnarinnar á vefmiðli ríkissjónvarpsstöðvar Grikklands í dag. Þessar yfirlýsingar koma í kjölfar einnar sviptingasömustu viku í manna minnum í Grikklandi. Á föstudag stóð Papandreou forsætisráðherra naumlega af sér atkvæðagreiðslu vantrauststillögu á gríska þinginu. Hann hefur hins vegar lýst því yfir að hann sé reiðubúinn að víkja sæti og leyfa samsteypustjórn að taka völdin með nýjum forsætisráðherra. 6.11.2011 11:45
Milljónir manna grýta djöfulinn Nú stendur yfir pílagrímsför milljóna múslima, fimm daga ferð þar sem múslimar feta í fótspor Múhameðs spámanns og ganga til Mekku, höfuðborgar Saudi-Arabíu. Í dag er annar dagur pílagrímsfararinnar og tóku milljónir múslima þátt í táknrænni athöfn þar sem djöfullinn sjálfur var grýttur. Með athöfninni minnast múslimar þess þegar Abraham grýtti djöfulinn, sem er sagður hafa birst honum þrisvar sinnum til að freista hans. Athöfnin fer þannig fram að fólksfjöldinn gengur kringum þrjár steinsúlur og kastar steinvölum í átt að þeirri stærstu. Þar sem fjöldi pílagrímanna er gífurlegur er athöfnin ein sú hættulegasta í pílagrímsförinni, þar sem troðningurinn skapar hættu á því að fólk troðist undir. Til dæmis er talið að minnst 360 manns hafi látist í athöfninni árið 2005. Dagurinn í dag markar einnig upphaf hátíðarinnar Eid al-Adha, en með henni minnast múslimar undirgefni Abrahams við guð, þegar hann samþykkti að fórna sínum eigin syni til að hlýðnast boðum hans. Í Rússlandi söfnuðust yfir 80 þúsund manns saman í nístandi frosti á götum Moskvu af þessu tilefni. Fólkið hafði ekki í neinn samastað að leita, enda var aðal moska borgarinnar rifin í september og enn hefur önnur ekki risið í hennar stað. Því safnaðist fólkið saman á götum úti til að biðja. 6.11.2011 11:25
Ritstjóri fékk 300 milljónir við starfslok Rebekah Brooks, fyrrverandi ritstjóri götublaðsins sáluga News of the World , sem sagði af sér sem framkvæmdastjóri News International í kjölfar símhlerunarhneyklisins fyrr á þessu ári, fékk 1,7 milljónir punda, jafnvirði 300 milljóna króna í starfslokagreiðslu frá Rupert Murdoch þegar hún lét af störfum. Þá var skrifstofuaðstaða og limósína með einkabílstjóra hluti af starfslokagreiðslum hennar, en frá þessu er greint í breska dagblaðinu Guardian. Brooks hætti í júlí eftir að undirmenn hennar og blaðamenn News of the World urðu uppvísir af símhlerunum. Hún var meðal annars handtekin og sleppt gegn tryggingu vegna gruns um að hafa vitað af símhlerunum og borið á þeim ábyrgð en hún hefur hins vegar ekki verið ákærð. 6.11.2011 11:00
Ekki spenntur fyrir samsteypustjórn Antonis Samaras, formaður Nýs lýðræðis, sem er stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn á gríska þinginu, mun fljótlega funda með forseta landsins vegna þeirrar stöðu sem er komin upp í grískum stjórnmálum. Samaras hefur ekki viljað taka þátt í samsteypustjórn allra flokka sem núverandi forsætisráðherra George Papandreou, hefur lagt til. Samaras hefur sagt að Papandreou sé hættulegur Grikklandi og hefur kallað eftir kosningum strax. Papandreou hefur hins vegar lagt til samsteypustjórn sem muni starfa í nokkra mánuði og að boðað verði til kosninga þegar björgunarpakki frá Evrópusambandinu er í höfn. 6.11.2011 11:00
Landeyjahöfn „ekki neitt vandræðabarn“ Í útvarpsþættinum Á Sprengisandi ræddu þingmenn um kjördæmapot og hvað í því hugtaki fælist. Sigurjón M. Egilsson, þáttarstjórnandi, rifjaði upp að fyrir 20 árum þegar hann starfaði á þinginu hafi almenningur gjarna hringt í landsbyggðarþingmenn og beðið þá að ýta á eftir sínum persónulegu málum á þinginu. Hann spurði hvort það viðgengist ennþá? Það tóku gestir Sigurjóns alveg fyrir, en gestirnir voru Tryggi Þór Herbertsson, Kristján Möller og Eygló Harðardóttir. 6.11.2011 10:57
Yfir þrjár milljónir fyrir tönn úr Lennon Kanadískur tannlæknir keypti tönn úr John Lennon heitnum fyrir 19,500 pund, jafnvirði þriggja og hálfri milljón króna, á uppboði í Stockport í Bretlandi. Michael Zuk, frá Alberta, tók þátt í uppboðinu símleiðis til að tryggja tönnina sem Lennon gaf húshjálp sinni, Dot Jarlett, á sjöunda áratug síðustu aldar. Tönnin var hluti af safni minjagripa tengdum rokkheiminum sem var í eigu Alan McGee, fyrrverandi umboðsmanns bresku hljómsveitarinnar Oasis. Aðrir gripir sem boðnir voru upp voru olíumálverk eftir John Squire úr Stone Roses og gjafir frá stjórnmálamönnum. 6.11.2011 10:21
Hálka víða um land Og samkvæmt upplýsingum frá vegagerðinni eru hálkublettir á Hellisheiði og Sandskeiði. Á Vesturlandi eru hálkublettir á Holtavörðuheiði en á Vestfjörðum eru hálkublettir á öllum helstu leiðum. Þá er hálka á Gemlufallsheiði og Hálfdáni. Á Norðurlandivestra er hálka frá Staðarskála í Gljúfurá eins á Þverárfjalli og Vatnsskarði. Á Norðausturlandi eru hálkublettir á Öxnadalsheiði, Hólasandi, Mývatnsöræfum og mjög víða í Eyjarfirði og sömuleiðis í Víkurskarði og í Mývatnssveit. Austurlandi eru hálkublettir á Vopnafjarðarheiði, Fjarðarheiði, Breiðdalsheiði og á Öxi. 6.11.2011 10:12
Sprengjuárás í mosku Að minnsta kosti sex létust í sjálfsmorðssprengjuárás í mosku í Afganistan í morgun. Sprengjan sprakk þegar gestir moskunnar voru á leið út eftir að hafa tekið þátt í bænum en í dag hefst Eid-al adha hátíð múslíma sem markar lok ramöddunnar. Samkvæmt upplýsingum frá stjórnvöldum særðust að minnsta kosti tólf í sprengingunni en lögreglumaður er meðal þeirra sem féllu í valinn. Talsmaður innanríkisráðuneytisins segir annan hryðjuverkamann hafa verið handtekinn áður en honum tókst að sprengja sína sprengju. 6.11.2011 10:04
Alma komin í höfn Togskipið Haffel dró flutningaskipið Ölmu að bryggju í Fáskrúðsfirði laust fyrir klukkan hálffjögur í nótt. Upphaflega stefndi Hoffellið á að draga Ölmu í var í Reyðarfirði en í gærkvöld og nótt tók að hvessa meðfram austurströnd landsins. Skipstjórinn á Hoffelli óskaði því eftir að draga Ölmu inn á Fáskrúðsfjörð í staðinn. Alma missti stýrisblað sitt í gær og landhelgisgæslan var kölluð út í umfangsmiklar björgunarðagerðir sem tvö varðskip og tvær þyrlur tóku þátt í. Togskipið Hoffel dró hins vegar ölmu að landi. Laust fyrir klukkan fjögur í nótt heyrðist svo bljúgt þakkarskeyti ölmu til Hoffellsins í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar. 6.11.2011 10:00
Lokaði skemmtistað - handtók hnífamann Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af gleðskap í heimahúsi í Kópavogi um klukkan sex í morgun. Slagsmál höfðu brotist út en lögreglu tókst að stilla til friðar án þess að handtaka neinn. Þá lokaði lögrelgan skemmtistað í miðborg Reykjavíkur í nótt þar sem staðurinn var ekki með tilskilin leyfi. Tveir voru teknir fyrir ölvunarakstur í höfuðborginni í nótt. Lögreglan á Akureyri lokaði tvo menn inni í nótt fyrir ölvun, óspektir og leiðindi. Þá voru tveir teknir fyrir fíkniefnaakstur. Að öðru leyti fór nóttin ágætlega fram, þrátt fyrir mikinn fjölda fólks í bænum. 6.11.2011 09:57
Konur búa til karlrembusvín Feigð, tíunda skáldsaga Stefáns Mána , er komin í bókabúðir. Þar er höfundur á kunnuglegum slóðum - í myrkraheimunum sem heilla hann meira en sumar og sóleyjar. Stefán Máni sagði Hólmfríði Helgu Sigurðardóttur meðal annars frá aðalpersónunni Herði Grímssyni, sem höfundurinn sjálfur er yfir sig heillaður af. Svo mjög að hann hefur tryggt honum sess í næstu bók líka. 5.11.2011 21:05
Herramenn þakklátir fyrir fjárstuðning Þrír framtakssamir piltar stefna að því að gefa út 64 blaðsíðna leiðarvísi fyrir herramenn fyrir jólin. Útgáfuna fjármagna þeir á frumlegan hátt sem þeir kalla hópfjármögnun. Á tveimur vikum hafa safnast 250 þúsund krónur með framlögum almennings. Bókin mun bera heitið Litla herramennskukverið. Með henni vill Kristinn Árni Lár Sigfússon, sem skrifar bókina, berja inn í samlanda sína fágaða og "séntilmannlega" framkomu. 5.11.2011 20:38
Sekt fyrir að vera of gamall til að dansa 43 ára faðir var á dögunum sektaður í Ástralíu fyrir að vera of gamall til að dansa. Richard Fuller var á tónleikum með rokkhljómsveitinni Cold Chisel með dóttur sinni í síðasta mánuði. Hann stóð uppá stól sínum í rokna stuði þegar dyravörður greip hann niður og vísaði honum út með þeim orðum að hann væri of gamall til að dansa. „Fólk er komið til að sjá hljómsveitina, ekki einhvern gamlan gaur." 5.11.2011 18:27
Skrítnustu hlutir sem lenda í endurvinnslu Kynlífsleikföng og uppblásnar dúkkur tróna á toppi nýs lista yfir hluti sem fólk reynir ranglega að endurvinna. Almenningur hefur á síðustu misserum sífellt verið hvattur meira til endurvinnslu. En sumir ganga of langt í viðleitni sinni. Í London var á dögunum birtur listi yfir hluti sem fólk reynir ranglega að endurvinna. Á listanum voru undarlegustu hlutir, svo sem dauð gæludýr, fiskabúr, krukka full af ösku (jarðneskar leifar látins manns) og svo framvegis. Starfsmaður sem vann að listanum segir málið ekkert grín. „Ef einn hlutur er settur í endurvinnslu og starfsmenn okkar taka ekki eftir honum verður að grafa alla sendinguna með almennu rusli. Hver sending er 10 tonn.," segir hann, en kostnaðurinn sem af þessu hlýst hleypur á hundruðum þúsunda. Því er mikilvægt að fólk missi ekki gersamlega stjórn á sér við endurvinnslu og haldi í ákveðna gagnrýni þegar það flokkar í tunnurnar. 5.11.2011 18:12
Stefnir í að Þorláksbúð verði reist Kirkjuráð mun ekki standa því í vegi að Þorláksbúð í Skálholti verði endurgerð. Þetta var ákveðið á fundi ráðsins á miðvikudaginn var. Þorláksbúð á að vera eftirlíking af hinni fornu búð, reist á tóftum hennar og skal standa nærri Skálholtskirkju.Miklar deilur hafa verið um byggingu búðarinnar að undanförnu, enda vilja menn meina að hún muni skyggja á Skálholtsdómkirkjuna.Nú liggur hins vegar fyrir að byggingarleyfi verður gefið út, enda ákvað ráðið með atkvæðagreiðslu að gera ekki athugasemdir við bygginguna. Þess er vert að geta að biskup sat hjá við atkvæðagreiðsluna. 5.11.2011 16:59
Smæsti dreki heims afhjúpaður Smæsta drekastytta heims var afhjúpuð í dag í Taiwan. Styttan var gerð af því tilefni að árið 2012 verður ár drekans, samkvæmt kínverska tímatalinu. Drekinn er aðeins tælega einn og hálfur sentimetri á lengd. Því er stækkunargler nauðsynlegt til að njóta þessa listaverks. Segir myndlistarmaðurinn að smíði verksins hafi verið þrautinni þyngri. 5.11.2011 16:18