Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Umferðartafir í Mosó Vegna framkvæmda við þverun Vesturlandsvegar í Mosfellsbæ milli Langatanga og Reykjavegar má búast við truflunum á umferð milli klukkan 10 og 12 í dag, fimmtudag. 13.10.2011 09:50
Mannfall í Mið-Ameríku Hitabeltisstormur gengur nú yfir Mið-Ameríku og hafa að minnsta kosti 18 manns látist af hans völdum í dag. 13.10.2011 09:21
Sárafá skip á sjó vegna brælu Sárafá fiskiskip eru á sjó við landið enda bræla á flestum miðum. Mörg skipanna, sem eru úti, eru í vari eða halda sjó, og eru því ekki að veiðum. Ekki er vitað til að nein áföll hafi orðið vegna veðursins. 13.10.2011 08:16
Grænlenskur Hrói höttur fyrir Hæstarétti Danmerkur Í dag fellur dómur fyrir Hæstarétti Danmerkur í máli grænlensks manns sem hlotið hefur viðurnefnið Hrói höttur á Grænlandi. 13.10.2011 08:14
Jarðskjálfti veldur skelfingu á Bali Jarðskjálfti upp á 6 stig á Richter skók eyjuna Bali í Indónesíu í morgunn. Að sögn bandarísku jarðfræðistofnunarinnar voru upptök skjálftans um 160 km suðvestur af eyjunni. 13.10.2011 07:58
Yfir 70% sjálfstæðismanna styðja Hönnu Birnu sem formann Liðlega 70 prósent stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins treysta Hönnu Birnu Kristjánsdóttur betur til að gegna formennsku í flokknum, en Bjarna Benediktssyni, núverandi formanni, samkvæmt nýrri könnun, sem MMR gerði fyrir Viðskiptablaðið. 13.10.2011 07:52
Reyna að bjarga Bangkok frá flóðum Verkamenn í Bangkok höfuðborg Taílands berjast nú við að styrkja flóðavarnir borgarinnar til að koma í veg fyrir að hluti af borginni fari undir vatn. 13.10.2011 07:50
Tölvuþjófar á kreiki á höfuðborgarsvæðinu Tölvuþjófar voru á kreiki á höfuðborgarsvæðinu í nótt og eru ófundnir. fyrst var reynt að brjótast inn í tölvuverslun í Kópavogi upp úr miðnætti, en styggð virðist hafa komið að þjófnum og hann forðað sér án þess að stela neinu. 13.10.2011 07:47
Óljóst hvort sonur Gaddafi sé í haldi uppreisnarmanna Allt er á huldu um hvort Mutassim Gaddafi, einn af sonum Muammar Gaddafi leiðtoga Líbíu, sé í haldi uppreisnarmanna eða ekki. 13.10.2011 07:45
Átta létu lífið í skotárás í Kaliforníu Heiftarleg forræðisdeila var orsök þess að átta létu lífið og einn særðist þegar vopnaður maður hóf skotárás á verslunarmiðstöð í strandbænum Seal Beach í suðurhluta Kaliforníu. 13.10.2011 07:39
Bréf frá Albert Einstein selt á uppboði Bréf sem Nóbelsverðlaunahafinn Albert Einstein skrifaði árið 1939 var selt á uppboði í Kaliforníu fyrir hálfa aðra milljón króna. 13.10.2011 07:23
Líknardeild lokað á LSH Líknardeild öldrunardeildar Landspítalans á Landakoti verður lokað og starfsemi hennar færð til líknardeildarinnar í Kópavogi. Talið er að breytingin muni spara 50 milljónir króna og er hún liður í niðurskurðarferli Landspítalans vegna fjárlaga næsta árs. Framlög til spítalans eru í fjárlagafrumvarpi skorin niður um 630 milljónir króna og talið er að það muni hafa áhrif á um 90 störf innan spítalans. 13.10.2011 06:15
Um 90 manns missa vinnuna Talið er að niðurskurðarkrafa á Landspítalann um 630 milljónir geri það að verkum að um 90 manns missi vinnuna innan spítalans. Sparnaður á síðasta ári var rúmar 600 milljónir króna og þurfti því að fækka 85 stöðugildum innan spítalans. Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir að ef rýnt sé í tölur síðasta árs sé hægt að sjá hvað er í vændum varðandi uppsagnir. 13.10.2011 06:00
Tölvan segir nei við móður í fjárhagsklípu „Ég er auðvitað ekki sátt við þetta. Það er farið að líða á mánuðinn og mínir peningar farnir að minnka verulega. Mig nauðsynlega vantar þennan pening sem þau höfðu engan rétt til að taka af mér,“ segir Lilja Rós Sigurðardóttir, 23 ára gömul einstæð móðir sem segir farir sínar ekki sléttar eftir samskipti við stjórnsýslu Reykjavíkurborgar. 13.10.2011 06:00
Hæstaréttardómari tjáir sig ekki um kæru „Hann veitir ekki viðtal,“ voru skilaboðin sem starfsmaður Hæstaréttar bar Fréttablaðinu eftir að það hafði ítrekað falast eftir viðtali við Árna Kolbeinsson hæstaréttardómara. 13.10.2011 06:00
Kallar eftir rökstuðningi Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir mjög óheppilegt ef ekki ríkir traust og friður um ráðningar í lykilembætti í stjórnsýslunni. Þetta kom fram á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í gærmorgun, þar sem Steingrímur var spurður um afstöðu sína til ráðningar Páls Magnússonar sem forstjóra Bankasýslu ríkisins. 13.10.2011 06:00
Hélt ræðu um norðurslóðir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flutti ræðu á ráðstefnu um framtíð norðurslóða í Brussel í gær. 13.10.2011 05:30
Olíuslys kveikja að kvenfatalínu Hörmulegar afleiðingar olíumengunarslysa urðu kveikjan að nýrri fatalínu Kolbrúnar Ýrar Gunnarsdóttur. Útkoman er svartir kjólar sem minna á olíublauta fugla. 13.10.2011 05:15
Æskudýrkun úthýst og gömlu gildin tóku við Æskudýrkun í íslensku atvinnulífi á árunum fyrir hrun var mikil og einsleitni stjórnendahópa var að margra mati orðin til vansa. Eftir hrun má hins vegar segja að afturhvarf hafi orðið þar sem eldri og reyndari stjórnendur tóku á ný við stjórn fyrirtækja. 13.10.2011 05:00
Ferðamönnum fjölgar vegna Hörpu Tilkoma tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu mun fjölga ferðamönnum sem koma til Íslands á hverju ári. 13.10.2011 05:00
Lögmenn Eimskips fara yfir stefnuna Fulltrúar Eimskips eru nú að skoða stefnu frá Samskipum, sem er löng og mikil, og fara yfir stöðu mála, að sögn Ólafs Williams Hand, upplýsingafulltrúa Eimskips. Samskip krefjast 3,7 milljarða króna auk vaxta í skaðabætur vegna samkeppnisbrota Eimskipafélags Íslands á árunum 1999 til 2002. 13.10.2011 04:45
Erlingur Halldórsson látinn Erlingur E. Halldórsson rithöfundur er látinn, 81 árs að aldri. Erlingur fæddist 26. mars 1930 á Arngerðareyri við Ísafjarðardjúp. Foreldrar hans voru Halldór Jónsson, bóndi þar, og eiginkona hans, Steinunn Jónsdóttir. 13.10.2011 04:00
Jákvæð þróun í stuttum skrefum milli ára Önnur framvinduskýrsla framkvæmdastjórnar ESB um aðildarferli Íslands var gefin var út í gær. Timo Summa, sendiherra ESB á Íslandi, kynnti skýrsluna og sagði við það tilefni að ferlið gengi vel fyrir sig og skýrslan undirstrikaði jákvæða þróun mála. Ekki kemur á óvart að Ísland er talið uppfylla mörg aðildarskilyrði, þá sérstaklega þau sem lúta að málum sem heyra undir samninginn um Evrópska efnahagssvæðið og Schengen-samstarfið. 13.10.2011 03:45
Áfram siglt til Þorlákshafnar Herjólfur heldur áfram að sigla til Þorlákshafnar að minnsta kosti fram í næstu viku. Tekin verður ákvörðun um breytingar á siglingaleiðinni næsta mánudag. Þetta kemur fram á vef Eyjafrétta. 13.10.2011 03:00
Deilt um forsendur fjárlaga Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sat fyrir svörum á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í gær. Þar var farið yfir forsendur tekjuhliðar fjárlaga. Stjórnarandstaðan gagnrýndi þær og einnig ýmsar aðgerðir sem grípa á til, svo sem hækkun skattþrepa. 13.10.2011 02:30
130 kannabisplöntur teknar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í miðborginni í fyrradag. Við húsleit var lagt hald á rúmlega 130 kannabisplöntur, á ýmsum stigum ræktunar. 13.10.2011 02:00
Þúsund sleppt fyrir einn Ísraelsk stjórnvöld hafa fallist á að láta meira en þúsund Palestínumenn lausa úr fangelsum í skiptum fyrir Gilad Shalit. Shalit hafði verið gísl í haldi Palestínumanna frá árinu 2006. 13.10.2011 01:30
Vilja minnka vægi konungsvaldsins í stjórnarskrá Ný ríkisstjórn jafnaðarmanna, sósíalista og róttækra í Danmörku hyggur á breytingar á stjórnarskránni, en henni hefur lítið verið breytt síðan 1953. Meðal boðaðra breytinga er innleiðing Mannréttindasáttmála Evrópu og breytingar á hlutverki konungsvaldsins. 13.10.2011 01:00
Leysa þúsundir fanga úr haldi Herforingjastjórnin í Búrma hóf í gær að láta þúsundir fanga lausa úr fangelsum landsins. Jafnframt hefur hún tilkynnt að ritskoðun verði hætt. 13.10.2011 00:30
Landbúnaðarstefna ESB endurskoðuð Bændur, umhverfissinnar og jafnvel Sameinuðu þjóðirnar gagnrýndu strax í gær fyrstu drög framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins að nýrri landbúnaðarstefnu, sama daginn og þessi drög voru kynnt. 13.10.2011 00:00
Útilokuðu almenna niðurfellingu skulda Efnahags- og viðskiptaráðherra útilokaði almenna niðurfellingu skulda á Alþingi í dag. Hann sagði skuldir aldrei verða fluttar af þeim sem stofnuðu til þeirra á eignalaust fólk sem á ekkert nema lífeyrisréttindi sín. Tekist var á um afskriftir bankanna í þingsal. 12.10.2011 18:45
Lést í umferðarslysi Stúlkan sem lést í umferðaslysi í Fagradal í morgun hét Þorbjörg Henný Eiríksdóttir. Hún var sautján ára gömul og búsett á Eskifirði. 12.10.2011 18:27
Segir sveitarfélögin eins og mismunandi konungsdæmi „Í dag virkar þetta eins og konungsdæmi sem verður ekki hróflað við nema á fjögurra ára fresti,“ sagði Gestur Ólafsson, skipulagsfræðingur og arkitekt í viðtali í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag þegar skipulagsmál voru rædd. 12.10.2011 17:40
Ekki mikið slösuð Stúlka sem flutt var á slysadeild Landspítalans í Reykjavík eftir bílslys í Fagradal í morgun er ekki mikið slösuð, samkvæmt vakthafandi lækni á deildinni. Hún verður undir eftirliti á spítalanum í einhvern tíma. 12.10.2011 17:02
Elti stúlku til að neyða hana upp í bíl Foreldrar barna í Álftamýrarskóla voru varaðir við þremur ungum karlmönnum sem reyndu að lokka til sín börn í dag. Í tilkynningu frá skólastjóra kom fram að mennirnir hefðu reynt að lokka stúlku upp í silfurlitaðan bíl. Þegar hún neitaði að fara í bílinn elti einn mannanna hana á hlaupum. Hún komst þó undan. 12.10.2011 16:56
Banaslys þegar krani féll á Djúpavogi Alvarlegt vinnuslys varð við höfnina á Djúpavogi laust fyrir klukkan þrjú í dag þegar verið var að losa salt úr skipi. Krani úr landi sem notaður var við verkið brotnaði og féll niður á mann sem þarna var við vinnu sína, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. Maðurinn, sem var rúmlega fertugur, lést við slysið. Lögreglan á Eskifirði fer með rannsókn málsins ásamt Vinnueftirliti ríkisins. 12.10.2011 16:44
Æðstiklerkur Írans boðar fall Bandaríkjanna Æðstiklerkur Írans, Ali Khamenei, sagði í ávarpi sínu í dag að mótmælahreyfingin Hernemum Wall Street ætti eftir að fella fjármálastefnu Bandaríkjanna. 12.10.2011 16:42
Össur tekur undir gagnrýni á dóminn yfir Tímósjenkó Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra lýsir yfir miklum vonbrigðum með dóminn yfir Júlíu Tímósjenkó, fyrrum forsætisráðherra Úkraínu, sem var dæmd til sjö ára fangavistar í gær fyrir misbeitingu valds. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að ráðherra taki undir yfirlýsingu Evrópusambandsins þar sem framkvæmd réttarhaldanna yfir Tímósjenkó er gagnrýnd harðlega og mun Össur styðja samhljóða ályktun sem lögð verður fyrir hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu,ÖSE, í vikunni. 12.10.2011 16:32
Jova nú flokkaður sem hitabeltisstormur Fellibylurinn fyrrverandi Jova er nú flokkaður sem hitabeltisstormur eftir að hann fór yfir vesturhluta Mexíkó í dag. 12.10.2011 16:18
Hetja mætir fyrir rétt í Seattle Réttað verður í máli Benjamin Francis Fodor í Seattle á morgun. Bandaríkjamaðurinn er sakaður um að hafa ráðist á hóp fólks með piparúða. Síðustu mánuði hefur Fodor ferðast um dimm stræti Seattle borgar og stöðvað smáglæpamenn - hann kallar sig Phoenix Jones. 12.10.2011 16:02
Ólafur Ragnar ræddi um Norðurslóðir í Brussel Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson flutti í morgun ræðu á ráðstefnu um framtíð Norðurslóða sem haldin er í Brussel. Ráðstefnuna sækja forystumenn og fulltrúar aðildarríkja Norðurskautsráðsins sem og sérfræðingar og vísindamenn en hún er haldin af International Polar Foundation í Brussel. Í tilkynningu frá forsetaembættinu segir að meðal ræðumanna í morgun hafi verið Maria Damanaki, framkvæmdastjóri Evrópusambandsins í málefnum sjávarútvegs og sjávarauðlinda. „Fjallaði hún um áherslur Evrópusambandsins í málefnum Norðurslóða.“ 12.10.2011 15:56
Þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslu barnakláms Fimmtugur karlmaður var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa barnaklám undir höndum. Ákærði játaði brot sitt skýlaust fyrir dómi en á tölvu hans fundust 174 ljósmyndir sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Myndirnar fundust við húsleit lögreglu. 12.10.2011 15:50
Þingmenn gagnrýna harðlega breytingar á réttargeðdeildinni Það er óviðunandi og ámælisvert að ákvörðun um að leggja niður réttargeðdeildina að Sogni sé tekin einhliða af framkvæmdastjórum Landspítalans, segir Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar. 12.10.2011 15:32
Hryðjuverkamaður játar Nígeríumaðurinn Umar Farouk Abdulmutallab játaði í dag að hafa reynt að sprengja upp flugvél á leið til Bandaríkjanna. Atvikið átti sér stað á Jóladag árið 2009. Abdulmutallab hafði komið fyrir sprengju í nærbuxum sínum og ætlaði hann að granda flugvélinni áður en hún lenti í Boston. 12.10.2011 15:27
Siv braut þrjá fingur Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknaflokksins, braut þrjá fingur á hægri hendi sinni með því að klemma sig á stálhurð í bílastæðakjallara Alþingis í gær. Hún var á leið á fund í allsherjar- og menntamálanefnd í forföllum Eyglóar Harðardóttur þegar óhappið varð, eftir því sem hún greinir frá á vefsíðu sinni. 12.10.2011 15:19