Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vanvirðing að tala um strákaklíku Eva Einarsdóttir, borgarfulltrúi Besta flokksins, segir að það sé mikil vanvirðing við hana og aðrar konur í meirihluta Samfylkingar og Besta flokksins að tala um að strákaklíka sé við völd í Ráðhúsinu. Þetta kom fram í máli Evu í umræðum í borgarstjórn í kvöld en þar vísaði hún til ummæla Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, og Sóleyjar Tómasdóttur, oddviti Vinstri grænna, um strákaklíku við stjórn borgarinnar. 15.2.2011 20:32
200 myrtir í Suður Súdan Yfirvöld í Súdan segja að um 200 hafi verið myrtir í suðurhluta landsins í síðustu viku. Flestir hinna myrtu voru óbreyttir borgarar og voru börn þar á meðal. Sumir voru reknir út í ár af uppreisnarmönnum á svæðinu þar sem þeir drukknuðu. 15.2.2011 20:30
Skiptibókamarkaðirnir mæta þörf Skiptibókamarkaðir eru ekki ástæðan fyrir slæmri stöðu á markaði fyrir kennslubækur. Það segir Kjartan Örn Sigurðsson, forstjóri Office 1, sem er meðal þeirra bóksala sem halda úti skiptibókamarkaði allt árið um kring. Í Fréttablaðinu á laugardag voru áhyggjur bókaútgefenda tíundaðar og sagðist Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins, ekki sjá fram á að geta þróað eða gefið út nýjar kennslubækur næstu ár vegna hruns í sölu. Kjartan Örn segir hins vegar að skiptibókamarkaðir verslana séu ekki orsakavaldurinn, og þeir muni alltaf verða til. 15.2.2011 20:30
Segir krabbamein skárra en aðra erfiða sjúkdóma „Fyrst að drengurinn minn þurfti að veikjast af svona alvarlegum sjúkdómi þá þakka ég fyrir hann fékk krabbamein en ekki einhvern annan erfiðan sjúkdóm." Þetta segir móðir lítils drengs sem glímir við hvítblæði. Hún segir ástæðuna vera sterkt félag sem heldur vel utan um félagsmenn sína og styður. 15.2.2011 19:45
Atkvæði greidd um Icesave í upphafi þingfundar Alþingi mun að öllu óbreyttu samþykkja Icesave frumvarpið sem lög á morgun. Þriðja umræða um málið stendur enn yfir á Alþingi en atkvæðagreiðslan fer væntanlega fram í upphafi þingfundar á morgun. 15.2.2011 19:31
„Þeim dettur ekki einu sinni í hug að biðjast afsökunar“ Óvenju þung orð féllu í hatrömmum deilum á Alþingi í dag um stjórnsýslu Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra. Stuðningsmenn hennar sökuðu Landsvirkjun og Flóahrepp um mútur en stjórnarforystan var sökuð um yfirgengilegan valdhroka. 15.2.2011 19:09
Segir óþarfi að hækka útsvarið og að borgin standi vel Útsvarið í Reykjavík verður að öllum líkindum hækkað til að hægt verði að veita frekara fé í skólana. Fallið hefur verið frá áformum um að draga úr gæslu og námi í grunnskólum. Hundruð mótmæltu við Ráðhúsið í dag. 15.2.2011 19:02
Ánægð með mætingu foreldra við Ráðhúsið „Við mættum og sýndum afstöðu okkar til niðurskurðarins með því að vera sýnileg," segir Edda Björk Þórðardóttir, formaður samtaka foreldrafélaga leikskóla í Reykjavík. Samtökin, Börnin okkar, hvöttu foreldra leikskólabarna til að safnast saman í Ráðhúsið og mótmæla niðurskurði í leikskólum borgarinnar á sama tíma og borgarstjórnarfundur fór fram í dag. 15.2.2011 18:18
Björgunarsveitir aðstoða ökumenn á Fjarðarheiði Björgunarsveitarmenn frá Ísólfi og Héraði hafa verið á Fjarðarheiði frá því um klukkan tvö í dag að aðstoða ökumenn á heiðinni. Ekkert ferðaveður er á svæðinu og hafa nokkrir bílar verið skildir eftir fastir í snjó. Allt hefur þó gengið vel og engin slys hafa orðið á fólki en björgunarsveitarmenn vilja koma því áleiðis að ekkert vit sé í að leggja á heiðina. 15.2.2011 17:59
„Alþingi á flótta undan þjóðinni er einskis virði“ Þingmenn Hreyfingarinnar gagnrýna harðlega meðferð Icesave frumvarpsins á Alþingi. Vinnubrögðin veki óneitanlega upp spurningar um siðferðilega stöðu þess. Að mati þingmannanna er Alþingi á flótta undan þjóðinni einskis virði. 15.2.2011 17:45
Borgin veiti áfram verulegan afslátt á holræsaskatti Borgarstjórn hefur ákveðið að vísa tillögu um að veita tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum afslátt af eða niðurfellingu á fráveitugjaldi með sambærilegum hætti og gert hefur verið undanfarin ár til borgarráðs. Sjálfstæðisflokkurinn lagði tillöguna fram. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi flokksins, segir borgarstjóra og borgarfulltrúa meirihlutans hafi tekið jákvætt í tillöguna og samþykkt að vísa henni til borgarráðs til frekari skoðunar. 15.2.2011 17:28
Hætt við að hætta í umhverfisnefnd Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur ákveðið að taka aftur sæti í umhverfisnefnd. Þetta tilkynnti hún í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. 15.2.2011 17:03
Fjöldi fólks við Ráðhúsið Fjöldi fólks kom saman við Ráðhús Reykjavíkur nú síðdegis. Samtök foreldrafélaga leikskóla hvöttu foreldra leikskólabarna til að safnast saman og mótmæla niðurskurði í leikskólum borgarinnar. Voru skilaboð þessa efnis meðal annars send út á Facebook. 15.2.2011 16:32
Verkfalli loðnubræðslumanna aflýst Sameiginleg samninganefnd AFLs Starfsgreinafélags og Drífanda Stéttarfélag hefur í dag samþykkt að aflýsa boðuðu verkfalli í fiskimjölsverksmiðjum á félagssvæðinu. 15.2.2011 16:28
Þriðja umræða Icesave hafin á þingi Þriðja umræða um Icesave frumvarpið er hafin á Alþingi en þingmenn ræddu störf þingsins áður en til hennar kom. Afbrigði voru samþykkt svo leggja mætti fram breytingartillögu í málinu sem gerir ráð fyrir því að þjóðin greiði atkvæði um málið að lokum. 15.2.2011 16:14
Raunveruleg framfærsluviðmið skortir enn Að mati Hagsmunasamtaka heimilanna ber að líta útgáfu skýrslu velferðarráðuneytisins jákvæðum augum. Mikilvægt er þó að hafa í huga að þau neysluviðmið sem kynnt eru í skýrslunni endurspegla ekki raunframfærslukostnað eða lágmarks framfærslukostnað heldur rauntölur um neyslu fólks á Íslandi seinustu ár. 15.2.2011 15:55
Sautján ára stúlka sló aðra í höfuðið með glerflösku Ein líkamsárás var kærð til lögreglunnar í Vestmannaeyjum eftir skemmtanahald helgarinnar. Þar var um að ræða ósætti milli tveggja stúlkna á átjánda ári sem endaði með því að önnur stúlknanna sló hina með glerflösku í höfuðið þannig að skurður myndaðist. Stúlkan sem varð fyrir áverkunum leitaði læknis á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja þar sem sauma þurfti nokkur spor til að loka sárinu. Lögreglan í Vestmannaeyjum hafði þó í nægu að snúast um helgina vegna ýmissa mála en vitað er um nokkur tilvik þar sem högg gengu á milli manna án þess þó að líkamsárás hafi verið kærð. 15.2.2011 15:36
Einungis brot af niðurskurðinum „Það er ljóst að þetta er bara pínulitill hluti af heildarniðurskurðinum," segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir borgarfulltrúi. Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs Reykjavíkurborgar, tilkynnti í fjölmiðlum í dag að það stæði til að auka fjárheimildir til rekstur grunnskóla um allt að 200 milljónir frá því sem gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun. 15.2.2011 15:23
Þakklát fyrir skilninginn - frumvarp um íslenskan ríkisborgararétt kom á óvart „Ég er bara föst hérna í Moskvu," segir Maria Amelie, unga rússneska konan sem var rekin frá Noregi í lok janúar eftir að hafa búið þar án dvalarleyfis frá barnsaldri. Hún segir tímann í Moskvu hafa verið sér erfiðan, en fréttirnar af því að tveir íslenskir þingmenn hafi lagt það til að veita henni íslenskan ríkisborgararétt hafi komið sér ánægjulega á óvart. 15.2.2011 15:00
Samfélagssjóður Alcan úthlutar 4,7 milljónum Úthlutað hefur verið úr Samfélagssjóði Alcan vegna þeirra styrkumsókna sem bárust sjóðnum frá 24. september 2010 til og með 24. janúar 2011. Styrkveitingar að þessu sinni námu 4,7 milljónum króna. Sjóðnum bárust alls 54 umsóknir en styrkþegar voru 14. 15.2.2011 14:40
Með öllu óboðlegt að aldraðir fari í bað einu sinni í viku ViVe - samtök um virkari velferð segja með öllu óboðlegt að aldraðir á stofnununum séu baðaðir einu sinni í viku eins og greint var frá í Fréttablaðinu í dag. Samtökin lýsa sig reiðubúin að hefja starf með hagsmunaaðilum, stjórnvöldum og öðrum að undirbúningi þess að koma á fót notendastýrðri persónulegri þjónustu við aldraða sem koma megi að miklu leyti í stað þeirrar stofnanavistar sem öldruðum stendur til boða nú. Samtökin segja nóg komið af mannréttindabrotum á öldruðu fólki. 15.2.2011 14:39
Lög Jóhanns G. gætu verið spiluð áfram á Bylgjunni Tónlistarmaðurinn Jóhann G. Jóhannsson hefur bannað Bylgjunni að spila lögin sín. Hann er ósáttur við tónlistarstefnu stöðvarinnar. Framkvæmdastjóri dagskrársviðs er undrandi á þessu útspili tónlistarmannsins. 15.2.2011 14:30
Telja FME geta verið utan Reykjavíkur „Það er erfitt að finna rök fyrir því að Fjármálaeftirlitinu séu takmörk sett í starfsemi sinni þótt staðsetning þess sé utan tiltekinna póstnúmera í Reykjavík,“ segir bæjarráð Kópavogs, sem lýsti fyrir helgi furðu sinni á auglýsingu eftir húsnæði fyrir Fjármálaeftirlitið. 15.2.2011 14:15
Mörður biður Vigdísi afsökunar á „harðneskjulegri fundarstjórn“ Mörður Árnason, formaður umhverfisnefndar Alþingis, hefur beðið Vigdísi Hauksdóttur, þingmann Framsóknarflokksins sem með honum í umhverfisnefnd, afsökunar. Mörður óskaði eftir orðinu á þingfundi fyrir stundu þar sem hann sagðist vilja ræða um fregnir morgunsins þar sem Vigdís sagðist óska þess að víkja sæti í umhverfisnefnd þar sem hún gæti ekki starfað með Merði. „Ég hef beðið hana afsökunar á harðneskjulegri fundarstjórn í morgun," sagði Mörður í pontu. Hann vildi þó taka fram að hann telur orð Vigdísar um að hann geri upp á milli nefndarmanna vera vanhugsuð, en hún sagði Mörð koma misjafnlega fram við fulltrúa eftir því hvort þeir eru í stjórn eða stjórnarandstöðu. Þá sagðist Mörður vonast til að atvik af þessu tagi raski ekki starfi þingsins og vonar að Vigdís endurskoði ákvörðun sína um að víkja úr umhverfisnefnd. 15.2.2011 14:11
Um 12% nauðgunarmála enda með dómi Alls voru 368 kynferðisbrot tilkynnt til lögreglu árið 2008. Þar af voru 68 nauðganir og 33 misneytingar. Flest atvikin, eða 71%, áttu sér stað árið sem brotið var tilkynnt, en 13% árið 2007 og 16% á árunum 1971-2006. 15.2.2011 13:53
Bæjarábyrgð fyrir verktaka ólögleg segir í lögfræðiáliti Mosfellsbær braut sveitarstjórnarlög með því að taka við víxlum sem greiðslu fyrir skuld verktaka og með því að gangast í sjálfskuldarábyrgð fyrir verktakann. Þetta segir í lögfræðiáliti sem unnið var fyrir bæjarráð. Mosfellsbær gerði árið 2006 samstarfssamning við forvera Helgafellsbygginga ehf. um uppbyggingu í Helgafellslandi. Verktakinn átti að greiða bænum 700 þúsund krónur fyrir hverja byggða íbúð og átti að lágmarki að borga fyrir 1.020 íbúðir. Heildargreiðslan átti því að verða minnst 714 milljóir króna. 15.2.2011 13:45
Menntamálaráðherra skrifar fræðigrein um Arnald Indriðason Fræðigrein eftir Katrínu Jakobsdóttur menntamálaráðherra um bækur Arnaldar Indriðasonar birtist í bókinni European Crime Fictions: Scandinavian Crime Fiction sem kom út rétt fyrir síðustu mánaðamót. Katrín segist bíða spennt eftir að sjá verkið, þegar Vísir innti hana eftir viðbrögðum við ritinu. Það sé mjög hátíðlegt að sjá fræðigrein eftir sjálfa sig. 15.2.2011 13:39
Hvattir til að sækja leikskólabörnin fyrr í dag Foreldrar leikskólabarna eru hvattir til að mæta á samstöðufund við Ráðhús Reykjavíkur í dag klukkan fjögur tl að sýna samstöðu gegn frekari niðurskurði í leikskólum borgarinnar. 15.2.2011 13:25
Björn Jörundur kynnir á Eddunni „Ég er að byrja að teikna þetta upp,“ segir tónlistarmaðurinn Björn Jörundur Friðbjörnsson. Björn verður kynnir á Edduverðlaunahátíðinni sem verður haldin í Íslensku óperunni á laugardaginn og í beinni útsendingu á Stöð 2. 15.2.2011 13:00
25 ára afmæli Frostaskjóls fagnað Um 500 manns fögnuðu þegr haldið var upp á 25 ára afmæli Frístundamiðstöðvarinnar Frostaskjóls í gær. Börn í þriðja og fjórða bekk í Vesturbæ voru með leik- og söngatriði og unglingar úr félagsmiðstöðinni Frosta voru með ýmis atriði. 15.2.2011 12:49
BÍ: „Leyndin þjónar hagsmunum þeirra sem hafa eitthvað að fela“ „Leyndin þjónar hagsmunum þeirra sem hafa eitthvað að fela. Svo einfalt er það. Stjórn Blaðamannafélags Íslands skorar á íslenskan almenning að standa vörð um tjáningarfrelsið í landinu og treystir því að íslenskir dómstólar standi vörð um rétt fjölmiðla til að fjalla um það sem fréttnæmt er í íslensku samfélagi." 15.2.2011 12:24
Yfirvinnubann raskaði flugumferð Röskun varð á fjórum áætlunarferðum Flugfélags Íslands vegna yfirvinnubanns flugumferðarstjóra sem tók gildi klukkan átta í gærkvöldi. 15.2.2011 12:22
Já Ísland: Fimm Evrópusamtök sameina krafta sína Evrópusamtökin, Evrópuvakt Samfylkingarinnar, Sjálfstæðir Evrópumenn, Sterkara ÍSland og Ungir Evrópusinnar hafa ákveðið að sameina krafta sína undir merkinu JÁ Ísland. Markmiðið er að efla vandaða og yfirvegaða umræðu um Evrópusambandið og aðild Íslands að því. 15.2.2011 12:18
Loðnuskip enn á veiðum Nokkur loðnuskip stunda loðnuveiðar enn af fullum krafti þrátt fyrir boðað verkfall í loðnuverksmiðjum í kvöld, í von um að losna við aflann í þær tvær verksmiðjur, sem verkfallið nær ekki til. Það eru Loðnuskip Ísfélagsins í Vestmannaeyjum, Samherja á Akureyri og Sídlarvinnslunnar í Neskaupstað sem halda veiðunum ótrauð áfram, en önnnur skip eru hætt. 15.2.2011 12:16
Icesave á endaspretti í þinginu Þriðja umræða á Alþingi um Icesave frumvarpið hefst í dag. Gert er ráð fyrir því að atkvæði verði greidd um málið fyrir helgi. Átján þúsund manns hafa nú skrifað undir áskorun til forseta Íslands um að vísa málinu í þjóðaratkvæðagreiðslu. 15.2.2011 12:09
Ökumenn ekki nógu sleipir á svellinu Allnokkur umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu síðdegis í gær og fram eftir kvöldi. Flest þeirra má rekja til hálku sem myndaðist í umdæminu, ekki síst í úthverfum. Eftir því sem næst verður komist voru meiðsli á fólki minniháttar en eignatjón talsvert í einhverjum tilvikum. Þótt veðurútlitið sé nú ágætt eru ökumenn hvattir til að aka varlega enda getur hálkan verið lúmsk 15.2.2011 12:05
Vigdís segir sig úr umhverfisnefnd - getur ekki unnið með Merði Vigdís Hauksdóttir þingkona Framsóknarflokksins og fulltrúi í umhverfisnefnd hefur óskað eftir lausn frá störfum í nefndinni. Ástæðuna segir hún vera samstarfsörðugleikar við formann nefndarinnar, Mörð Árnason, Samfylkingunni. 15.2.2011 11:58
Bæta 200 milljónum við rekstur grunnskóla Til stendur að auka fjárheimildir til rekstur grunnskóla í Reykjavík um allt að 200 milljónir króna frá því sem gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir þetta ár. Tillaga þessa efnis verður lögð fram í 15.2.2011 11:58
Nær að hafa áhyggjur af fjármögnun Búðarhálsvirkjunar Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir fjármögnun Búðarhálsvirkjunar nærtækara áhyggjuefni en virkjanir í neðri Þjórsá. Stjórnarandstöðuþingmaður spyr hvort umhverfisráðherra hafi sama hlutverk og landsliðsmarkmaðurinn í auglýsingunni; að vera fyrir. 15.2.2011 11:52
Bæjarsjóður greiddi fyrir kosningaáróður Hafsteinn Karlsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogsbæjar og bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir það alvarlegt mál ef fulltrúi Sjálfstæðisflokksins hefur viljandi látið bæjarsjóð greiða fyrir kynningarefni í kosningabaráttunni árið 2006. „Ég þvertek ekki fyrir að reikningurinn hafi óvart farið þangað. Það er þá mjög óheppilegt,“ segir Hafsteinn í samtali við Vísi. „En ef þetta er gert viljandi þá er það alvarlegt mál,“ segir hann. 15.2.2011 11:37
Berlusconi stendur keikur þrátt fyrir mótmæli Silvio Berslusconi forsætisráðherra Ítalíu lætur engan bilbug á sér finna þrátt fyrir gríðarleg mótmæli gegn honum síðustu daga. Hann er hvattur til að segja af sér en hann hefur verið sakaður um að hafa átt samræði við vændiskonu undir lögaldri. 15.2.2011 10:52
Tollverðir tóku stinningarlyf í Arnarfellinu Á miðvikudagin var fann tollgæslan tæplega 300 lítra af sterku áfengi, 140 karton af sígarettum, talsvert af bjór og um 500 skammta af stinningarlyfinu Kamagra um broð í gámaflutningaskipinu Arnarfelli sem var að koma frá Evrópu. 15.2.2011 10:48
Segjast hafa afhjúpað leyndarmál Coca-Cola Aðstandendur vefsíðunnar Thisamericanlife.org fullyrða að þeir hafi komist yfir uppskriftina af Coca-Cola. Leyndarmálið að baki uppskriftinni hefur verið vel varðveitt frá því að Coke var fyrst sett á markað árið 1886. Fullyrt hefur verið að eina skriflega eintakið af uppskriftinni sé geymt í bankahólfi í 15.2.2011 10:48
Twitter mál Birgittu tekið fyrir í dag Dómari í Washington tekur í dag fyrir kröfu Birgittu Jónsdóttur þingmanns og tveggja annara stuðningsmanna Wikileaks síðunnar um að dómstólar endurskoði ákvörðun sína um að fyrirskipa Twitter-samskiptasíðunni að láta bandarískum stjórnvöldum í té upplýsingar af síðum Birgittu og félaga hennar. Lögfræðingar Birgittu segja að í tilfelli hennar vakni sérstök álitamál í ljósi þess að hún sé þingmaður á Íslandi sem noti samskiptasíðuna aðallega til þess að ræða íslensk mál. 15.2.2011 10:44
Fengu aðstoð við Meyjarsæti Björgunarsveit var kölluð út seint í gærkvöldi til að aðstoða ökumann og nokkra farþega, sem sátu fastir í Econoline bíl við Meyjarsæti á Uxahryggjaleið, norðan við Þingvelli. 15.2.2011 10:42
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent