Fleiri fréttir

Bankaráðsseta Láru geri hana vanhæfa

Mál níumenninganna svokölluðu var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Verjandi fjögurra þeirra fór fram á að settur ríkissaksóknari myndi víkja vegna tengsla hennar við Alþingi.

Samfylkingin fagnar hugsanlegri komu ECA

Stjórn Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ fagnar því að Kristján L Möller fráfarandi samgönguráðherra hafi veitt Flugmálastjórn heimild til að hefja undirbúning og afla upplýsinga um þotuviðhaldasverkefni ECA á Keflavíkurflugvelli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórninni.

Ofvirk ungmenni hætta á rítalíni vegna fordóma

„Baráttuna gegn misnotkun verður að efla, en hún má ekki verða til þess að hindra aðgengi þeirra sem eru með staðfest ADHD og hafa gagn af meðhöndlun einkenna sinna. Það væri að kasta barninu út með baðvatninu," segir Matthías Halldórsson, læknir á geðsviði Landspítala.

Lýsir eftir fórnarlambi á spjallvef

„Þú sem varst úti að labba með hundinn þinn í Hafnarfirðinum í dag og varðst fyrir árás, viltu vinsamlegast gefa þig fram og koma til að tala við okkur. Þú veist hvar við búum.“

Steingrímur: Árni á að skammast sín og Þór er sorglegt eintak

Stóryrði gengu á milli manna á Alþingi í morgun í umræðum um störf þingsins. Árni Johnsen kenndi Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra um ófarirnar varðandi Landeyjahöfn og benti á að verkið væri hálfklárað, því ávallt hefði verið gengið út frá því að nýtt skip þyrfti á milli lands og Eyja, sem ekki ristir eins djúpt og Herjólfur gerir nú.

Borgarafundur gegn fátækt: Steingrímur og Jóhanna í felum

„Ríkisstjórn Íslands á ekki að brenna upp heimilin og lama þjóðina," segir María Jónsdóttir, námsmaður og bótaþegi. Hún kemur að skipulagningu borgarafundar gegn fátækt sem aðgerðahópur um bætt samfélag, BÓT, stendur fyrir í Ráðhúsi Reykjavíkur í kvöld.

Þráinn Bertelsson genginn í VG

Þráinn Bertelsson sem kjörinn var á þing fyrir Borgarahreyfinguna en hefur verið utan flokka síðustu misseri hefur gengið til liðs við Vinstrihreyfinguna - grænt framboð. Þetta var tilkynnt við upphaf þingfundar í morgun. Ekki hefur náðst í Þráinn í dag.

Snorri í Betel: Gagnrýnir umburðarleysi gagnvart kristni

„Mér finnst það nefnilega bera við að þeir sem eru annarra skoðunar, eða líta öðrum augum á hegðunarvanda Jóhönnu, njóti ekki sannmælis, enda er umburðalyndið ekki til gagnvart kristninni,“ segir Snorri Óskarsson, oft kenndur við hvítasunnusöfnuðinn Betel, um viðhorf almennings til færeyska þingmannsins Jenis av Rana.

Þórður Friðjónsson: Burt með sérlausnir og pólitísk afsktipti

Þórður Friðjónsson forstjóri Kauphallarinnar segir að Íslendingar verði að hverfa sem fyrst af braut sérlausna og pólitískra afskipta eigi þjóðin að ná að skipa sér á bekk með bestu hagkerfum heims. Hann ritar grein í Fréttablaðið í dag þar sem hann bendir á stöðu Norðurlandanna sem öll teljist til bestu hagkerfa í heimi. Að mati Þórðar ber Ísland öll megin einkenni norræna efnahagslíkansins en að agaðan markaðsbúskap skorti.

Telja settan saksóknara vanhæfan

Fyrirtaka í máli svokallaðra níumenninga hófst klukkan hálf níu og er dómssalurinn þéttsetinn. Ekki hefur komið til átaka á milli lögreglu og mótmælenda í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þeir hafa meðal annars verið ákærðir fyrir árás á Alþingi.

Krefst afsagnar Ragnars úr stjórn lífeyrissjóðs verslunarmanna

Bjarki Steingrímsson, stjórnarmaður í VR, leggur til að Ragnar Önundarson segi af sér sem varaformaður stjórnar Lífeyrissjóðs Verslunarmanna þar sem hann starfaði sem framkvæmdastjóri Kreditkorta þegar fyrirtækinu var gert að greiða 185 milljóna króna stjórnvaldssekt.

Síldveiðarnar ganga þokkalega

Nokkur fjölveiðiskip eru nú norðaustur af landinu að veiða síld úr Norsk- íslenska síldarstofninum og ganga veiðarnar þokkalega, einkum ef tvö skip draga saman eitt troll.

Stór eftirskjálfti reið yfir Christchurch

Borgin Christchurch á Nýja Sjálandi varð fyrir alvarlegasta tjóni sínu í nótt frá því um helgina er eftirskjálfti af stærðinni 5,1 á Richter reið yfir hana.

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar

Herjólfur hélt frá Vestmannaeyjum klukkan sex í morgun, áleiðis til Þorlákshafnar. Þaðan fer skipið svo aftur til Eyja klukkan tíu.

Gríðarmikið svifryk yfir Akureyrarbæ

Gríðarmikið svifryk var yfir Akureyrarbæ og nágrenni síðdegis í gær og um tíma mældist það rösklega tvöfalt meira en á höfuðborgarsvæðinu.

Danskir fjölmiðlar fjalla um uppnámið í Færeyjum

Allir helstu fjölmiðlar Danmerkur fjalla í dag um deiluna sem komin er upp vegna ákvörðunar þingmannsins Jenis av Rana að afþakka boð í kvöldverð til heiðurs Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra.

Herjólfur til Þorlákshafnar

Veður hamlaði för Herjólfs milli lands og Eyja í gær. Merkja má orðið siglingastoppið í vöruúrvali verslana í Eyjum. Flogið var með lyf til Eyja í gær. Ekki liggur fyrir kostnaðarauki við rekstur Landeyjahafnar.

IBM hættir við vegna dráttar

Fyrirtæki sem hugðust koma með verkefni inn í gagnaver Verne Holding á Suðurnesjum, meðal annarra tölvurisinn IBM, hafa hætt við fjárfestinguna. Ástæðan er hversu illa fjármálaráðuneytinu gengur að leysa tæknileg vandamál tengd virðisaukaskattsmálum.

Leita viðbragða hjá almenningi

Nefnd leidd af skógræktarstjóra hefur sent drög að nýrri stefnumótun í skóg-ræktarmálum Íslendinga til umsagnaraðila. Í ljósi krafna um opna stjórnsýslu býður Skógrækt ríkisins almenningi að gera athugasemdir við drögin. Frekari upplýsingar og drögin sjálf má finna á vefsíðu Skógræktar ríkisins, skogur.is. Athugasemdir þurfa að berast í tölvupósti til Þrastar Eysteinssonar, sviðsstjóra skógræktarinnar, fyrir 20. september.

Skemmta sér saman í haust

Skemmtinefnd Stangaveiðifélags Reykjavíkur stefnir að því að sameina alla stangveiðimenn í einni allsherjar uppskeruhátíð í lok október í tilefni að vertíðarlokum.

Stálu golfbílum og fjórhjóli á Akureyri

Þrír menn um tvítugt hafa verið ákærðir fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir fjölmörg þjófnaðarbrot. Í sumum tilvikum voru tveir þeirra saman að verki en í öðrum allir þrír.

Hrikaleg þrumuhljóð í eldfjallinu

Eldfjallið Sinabung sendi frá sér væna spýju af kolsvartri ösku í gær, rúmri viku eftir að það rumskaði fyrst eftir að hafa legið í dvala í fjórar aldir. Krafturinn var meiri en áður hefur sést í fjallinu.

Eldsneytisverð nánast eins á öllum stöðvum

Þrátt fyrir að eldsneytisverð á Íslandi hafi haldist stöðugt síðustu vikur og lítill verðmunur verið milli olíufyrirtækja segja forsvarsmenn fyrirtækjanna að hörð samkeppni ríki.

Gilliard þarf að gæta jafnvægis

Julia Gillard, forsætisráðherra Ástralíu, hefur naumlega tryggt sér stuðning við minnihlutastjórn sína á þingi með aðkomu tveggja óháðra þingmanna, sem bætast við sundurlausan hóp þeirra flokksbrota og þingmanna sem hafa lofað að verja minnihlutastjórnina falli.

Klámnotkun Jóns Gnarr rædd í borgarráði

Sóley Tómasdóttir, oddviti vinstri grænna í Reykjavík, hefur óskað eftir því að ummæli Jóns Gnarr borgarstjóra um klámnotkun hans verði tekin til umræðu í borgarráði í fyrramálið. Jón Gnarr var spurður að því í viðtali við frönsku fréttastofuna AFP hvað hann skoðaði helst á netinu og svaraði Jón hlæjandi: „Aðallega klám.“

Ætla að brenna Kóraninn þann ellefta september

Evangelísk kirkja heitir því að brenna Kóraninn, höfuðrit Múhameðstrúar, þann 11. september næstkomandi. Þá verða níu ár liðin frá því að ráðist var á Tvíburaturnana í New York og varnarmálaráðuneytið í Pentagon.

Vilja rannsóknarnefnd um stjórnsýslu Reykjanesbæjar

Samfylkingin í Reykjanesbæ vill að bæjarstjórn Reykjanesbæjar skipi nefnd þriggja óháðra sérfræðinga til þess að yfirfara stjórnkerfi og stjórnsýslu Reykjanesbæjar. Á meðal þess sem nefndin á að kanna er aðkoma

Margfalt meira svifryk á Akureyri en í Reykjavík

Svifrykið á Akureyri var næstum þrefalt meira en það er í Reykjavík í dag. Á Akureyri hefur svifrykið mælst allt upp undir 900 míkrógrömm á rúmmetra í dag en í Reykjavík hefur það mælst 350 míkrógrömm á rúmmetra samkvæmt mælingum sem birtar eru á vefsíðum sveitarfélaganna tveggja.

Brotist inn í bíl um miðjan dag

Brotist var inn í Land Rover bifreið við Landakotskirkju um miðjan daginn í dag. Rúða var brotin í bílnum og staðsetningartæki, vínflösku og bjórkippu stolið ásamt fleiru smálegu.

Jóhanna tjáir sig ekki um fordómafulla þingmanninn

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur ekkert viljað tjá sig í dag um það að formaður stjórnmálaflokks í Færeyjum afþakkaði kvöldverðaboð henni til heiðurs - vegna kynhneigðar hennar.

Steingrímur segir að landið taki að rísa

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segist ekki hafa verið of fljótur á sér þegar hann lýsti því yfir að land væri byrjað að rísa á ný eftir bankahrunið. Hann segir að allt bendi til þess viðsnúningurinn verði innan þessa árs.

Nýjar tölur um samdrátt áfall

Atvinnulífið sendi frá sér ákall í dag og krefst þess að ríkisstjórnin grípi til aðgerða sem greiði götu fjárfestingar. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir nýlegar tölur um samdrátt í þjóðarbúskapnum áfall.

Anna Sigrún aðstoðar Guðbjart

Guðbjartur Hannesson, ráðherra félags- og tryggingamála og heilbrigðismála, hefur ráðið Önnu Sigrúnu Baldursdóttur sem aðstoðarmann sinn. Guðbjartur segir að hún verði að mestu leyti staðsett í

Herjólfur siglir á ný til Þorlákshafnar

Áætlað er að Herjólfur sigli á ný til sinnar gömlu hafnar í Þorlákshöfn í fyrramálið. Ferjan leggur af stað klukkan sex og fer síðan til baka til Eyja klukkan tíu. Síðar á morgun er ráðgert að miðað verði við bráðabirðgaáætlun sem gengur út frá að við að hægt verði að sigla til Landeyjahafnar en það hefur ekki verið gerlegt síðustu daga.

Veggjakrotarar gripnir

Nokkrir unglingspiltar, 13-14 ára, hafa játað á sig veggjakrot í Breiðholti um helgina.

Íslendingar finna heitt vatn í Ungverjalandi

Íslenska verkfræðifyrirtækið Mannvit fann í síðustu viku heitt vatn í nágrenni borgarinnar Miskolc í Ungverjalandi, en Mannvit hefur síðustu ár starfað sem ráðgjafi ungverska orkufyrirtækisins Pannergy við jarðhitaverkefni þar í landi. Í tilkynningu frá Mannviti segir að boranid hafi hafst síðastliðið vor og í síðustu viku fannst heitt vatn á ríflega tveggja kílómetra dýpi.

ÍTR og Vinnumálastofnun taka höndum saman

Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur og Vinnumálastofnun hafa tekið höndum saman um að bjóða ungum atvinnuleitendum að taka þátt í virkni-verkefnum sem starfrækt verða af ÍTR samkvæmt tilkynningu frá ÍTR.

Sjá næstu 50 fréttir