Innlent

Brotist inn í bíl um miðjan dag

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Brotist var inn í Land Rover bifreið við Landakotskirkju um miðjan daginn í dag. Rúða var brotin í bílnum og staðsetningartæki, vínflösku og bjórkippu stolið ásamt fleiru smálegu.

Ökumenn hafa verið varaðir við því að skilja eftir lausamuni í bifreiðum sem auðvelt er að hafa á brott með sér í augsýn annarra. Þetta á ekki síst við um hluti eins og staðsetningartæki, geislaspilara, fartölvur og annað sem auðvelt er að koma í verð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×