Innlent

Steingrímur segir að landið taki að rísa

Höskuldur Kári Schram skrifar
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segist ekki hafa verið of fljótur á sér þegar hann lýsti því yfir að land væri byrjað að rísa á ný eftir bankahrunið. Hann segir að allt bendi til þess viðsnúningurinn verði innan þessa árs.

Landið tekur að rísa - hét greinarflokkur fjármálaráðherra sem birtist í Fréttablaðinu í síðasta mánuði. Þar gefur ráðherra því undir fótinn að botni kreppunnar sé náð. Tölur sem Hagstofan birti í síðustu viku um samdrátt í landsframleiðslu benda hins vegar til annars.

Steingrímur segist telja að landið sé byrjað að rísa „Okkur er að miða í rétta átt og nákvæmlega hvenær við tímasetjum viðsnúninginn í hagkerfinu, það er kannski of snemmt að slá því á föstu. Margt benti til þess að hann væri orðinn undir lok síðasta árs og byrjun þess nú hefur Hagstofan endurskoðað þetta og leiðrétt eftir ársfjórðungum," segir Steingrímur.

Steingrímur segir að það sé ýmislegt sem bendi til að það sé aftur kominn meiri kraftur í hlutina og hjólin farin að snúast betur núna á þriðja ársfjórðungi. Hann trúi því ennþá að viðsnúningurinn verði innan þessa árs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×