Íslendingar finna heitt vatn í Ungverjalandi 7. september 2010 16:31 MYND/Mannvit
Íslenska verkfræðifyrirtækið Mannvit fann í síðustu viku heitt vatn í nágrenni borgarinnar Miskolc í Ungverjalandi, en Mannvit hefur síðustu ár starfað sem ráðgjafi ungverska orkufyrirtækisins Pannergy við jarðhitaverkefni þar í landi. Í tilkynningu frá Mannviti segir að boranir hafi hafst síðastliðið vor og í síðustu viku fannst heitt vatn á ríflega tveggja kílómetra dýpi. „Fyrstu mælingar benda til að borholan gefi á bilinu 70-90 sekúndulítra af 110-120 gráðu heitu vatni sem er talsvert framar vonum og bendir til að svæðið muni skila meiri nýtanlegum jarðvarma en áætlanir gerðu ráð fyrir," segir ennfremur. Mannvit annaðist allar nauðsynlegar jarðfræði- og jarðeðlisfræðirannsóknir vegna staðsetningar á borholunni og hönnun hennar. Mannvit hafði jafnframt umsjón og eftirlit með sjálfri borframkvæmdinni, mati á afköstum holunnar og þróun svæðisins hvað varðar frekari boranir. Þetta mun vera í annað skipti sem Mannvit finnur heitt vatn í Ungverjalandi sem ráðgjafi Pannergy, en síðasta haust fannst heitt vatn nálægt bænum Szentlörinc í suðvesturhluta landsins. „Í sumar lagði Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra ásamt Pál Kovács, vararáðuneytisstjóra þróunarmálaráðuneytis Ungverjalands, og Márk Győrvári, borgarstjóra Szentlörinc, hornstein að hitaveitu Szentlörinc sem hönnuð var af Mannviti fyrir Pannergy. Hún verður sú stærsta í Ungverjalandi sem notar alfarið endurnýjanlega og umhverfisvæna orku og leysir af hólmi núverandi gashitun. Þar stendur nú yfir borun nýrrar holu, sem ætlað er að vera niðurdælingarhola. Hönnun og bygging hitaveitunnar hefur ekki bara þýtt aukin umsvif fyrir Mannvit heldur hafa fleiri íslensk fyrirtæki tekið þátt í verkefninu. Til að mynda hafa íslensk fyrirtæki selt Pannergy stýribúnað í stöðvarhús hitaveitunnar og djúpdælur í vinnsluholurnar." Miskolc í austurhluta Ungverjalands er ein af þremur stærstu borgum landsins með um 200.000 íbúa. Áætlanir Pannergy gera ráð fyrir að í fyrsta áfanga verksins verði byggð hitaveita sem þjónar allt að 15.000 manns. „Miðað við reynsluna frá Szentlörinc gætu opnast fleiri tækifæri fyrir íslensk þekkingarfyrirtæki á sviði jarðvarma við hönnun og byggingu hitaveitu í Miskolc," segir einnig.
Mest lesið Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Agnes var meira en bara morðingi Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent Fleiri fréttir Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Sjá meira