Innlent

Nýjar tölur um samdrátt áfall

Atvinnulífið sendi frá sér ákall í dag og krefst þess að ríkisstjórnin grípi til aðgerða sem greiði götu fjárfestingar. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir nýlegar tölur um samdrátt í þjóðarbúskapnum áfall.

Forsætisráðherra flutti munnlega skýrslu um störf og stefnu ríkisstjórnarinnar við upphaf þingfundar í síðustu viku. Í máli hennar kom fram að helstu hagvísar bentu til þess að algjör viðsnúningur hafi orðið í íslensku efnahagslífi og full ástæða væri til bjartsýni. Daginn eftir birti Hagstofan nýjar tölur, sem sýndu að enn er mikill samdráttur í þjóðarbúskapnum.

Í ályktun sem framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins sendi frá sér í dag er kallað eftir neyðarviðbrögðum af hálfu stjórnvalda. „Við köllum eftir því að stjórnvöld taki þessar tölur allar saman alvarlega og það sé gert það sem þarf að gera til þess að spýta í lófa og láta fjárfestingarnar ganga fram," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

SA benda á að landsframleiðsla hafi minnkað um 7% milli fyrri árshelminga 2009 og 2010. Á sama tíma atvinnuleysi hafi lítið breyst. „Og framleiðniminnkun af þessu tagi eru hreint áfall og þess vegna köllum við stíft eftir því að nú sé í alvöru farið í að auka fjárfestingar á Íslandi," segir Vilhjálmur.

Samtökin benda í því samhengi á stór fjárfestingaverkefni í atvinnulífinu, álverið í Helguvík og Straumsvík og opinberar framkvæmdir, svo sem vegaframkvæmdir. Þá sé nauðsynlegt að lítil og meðalstór fyrirtæki sjái sér hag í að fjárfesta, en til þess þurfi skattalækkanir og lægri vexti.

Hagfræðingur ASÍ segir að veturinn framundan verði erfiður. „Í dag eru yfir 13.000 manns á atvinnuleysisskrá og þetta er hlutur sem við verðum að taka á," segir Ólafur Darri Andrason. Margt bendi til þess að þjóðarbúið sé á réttri leið, en gríðarlega mikið verk sé þó óunnið. „Og það er hlutur sem menn verða að ná breiðri samstöðu um, hvernig ætlum við að vinna okkur út úr því, hvernig getum við komist í það að byggja upp lífskjör. Það er hætta á því að við festumst í stöðnun og doða og það er hlutur sem við verðum að vinna gegn með öllum mögulegum ráðum," segir Ólafur Darri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×