Innlent

Vilja rannsóknarnefnd um stjórnsýslu Reykjanesbæjar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Reykjanesbær. Samfylkingin í bæjarstjórn vill að stjórnsýslan verði skoðuð. Mynd/ GVA.
Reykjanesbær. Samfylkingin í bæjarstjórn vill að stjórnsýslan verði skoðuð. Mynd/ GVA.
Samfylkingin í Reykjanesbæ vill að bæjarstjórn Reykjanesbæjar skipi nefnd þriggja óháðra sérfræðinga til þess að yfirfara stjórnkerfi og stjórnsýslu Reykjanesbæjar. Á meðal þess sem nefndin á að kanna er aðkoma stjórnmálamanna að fjárhagslegum ákvörðunum á undanförnum árum með tilliti til þess hvort gætt hafi verið eðlilegrar hlutlægni og heiðarleika í þeim afskiptum.

Fjármál Reykjanesbæjar komust í hámæli um mánaðamótin þegar upplýst var að lán að upphæð 1,8 milljarðar hefði gjaldfallið. Þá var fullyrt að skuldir bæjarfélagsins næmu næstum fjórföldum árstekjum þess. Fulltrúar Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Reykjanesbæjar segjast vilja að nefndin kanni hvort einstakir aðilar eins og verktakar, bankar og fyrirtækjasamsteypur hafi fengið óeðlilega fyrirgreiðslu, hvort fjársterkir aðilar hafi haft áhrif á pólitískar ákvarðanir og stjórnsýslu bæjarins og hvort fjársterkir aðilar hafi hagnast á tengslum við bæinn og einstaka embættismenn eða bæjarfulltrúa.

Samfylkingin vill að lokaskýrsla nefndarinnar liggi fyrir í síðasta lagi 28. febrúar 2011.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×