Innlent

Eldur í ruslagámi við Laugaveginn

Eldur kviknaði í ruslagámi, sem stóð upp við húsvegg við Laugaveginn í Reykjavík undir morgun.

Eldsins varð fljótt vart og slökktu slökkviliðsmenn hann áður en hann næði að læsa sig í húsið með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

Lögregla telur víst að kveikt hafi verið í gámnum og hóf leit að brennuvargnum, en fréttastofunni er ekki kunnugt um hvort hún bar árangur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×