Innlent

IBM hættir við vegna dráttar

Verne Holding á húsnæði á Ásbrú í Reykjanesbæ.
Verne Holding á húsnæði á Ásbrú í Reykjanesbæ.
Fyrirtæki sem hugðust koma með verkefni inn í gagnaver Verne Holding á Suðurnesjum, meðal annarra tölvurisinn IBM, hafa hætt við fjárfestinguna. Ástæðan er hversu illa fjármálaráðuneytinu gengur að leysa tæknileg vandamál tengd virðisaukaskattsmálum.

Þetta fullyrti Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi í gær. Hún lýsti áhyggjum af því að framkvæmdir þar myndu hugsanlega brátt stöðvast vegna málsins.

Skúli Helgason, formaður iðnaðarnefndar, sagði athugasemdina réttmæta. Forsvarsmenn gagnavera væru tvístígandi vegna þess að hér stæðu þeir ekki jafnfætis gagnaverum í Evrópusambandinu hvað varðar virðisaukaskatt á netþjóna. Það mál þyrfti að leysa. - sh



Fleiri fréttir

Sjá meira


×