„Hún hefði ekki þurft að deyja“ 5. ágúst 2010 18:42 Hann segir að vinkona sín hefði ekki þurft að deyja. Mynd/Stöð2
Ógæfumaður segir fordóma heilbrigðisyfirvalda hafa kostað vinkonu sína lífið. Hún lést í gær skömmu eftir að sjúkraflutningamenn höfðu yfirgefið íverustað þeirra. Í gámunum úti á Granda býr ógæfufólk í sérútbúnum smáhýsum. Í gærkvöldi vinkona ógæfumanns sem hefur verið búsettur í smáhýsinu um nokkurt skeið. Hún hafði verið sprautufíkill til margra ára og kenndi sér meins seinni partinn í gær. Félagi fólksins sem var staddur hjá þeim hringdi á sjúkrabíl og reyndi hann lífgunartilraunir á konunni. Hann segir að sjúkraflutningamenn hafi komið á staðinn en þá hafi hjartað verið komið í lag. Þeir hafi ekki viljað taka konuna með sér.„Hún hefði ekki þurft að deyja ef þeir hefðu tekið hana með sér upp á spítala en þeir vildu ekki taka hana," segir vinur konunnar. Hann segist finna fyrir miklum fordóum vegna sinnar þjóðfélagslegu stöðu og segir að hún hefði ekki þurft að deyja ef sjúkraflutningamennirnir hefðu tekið hana með sér upp á spítala en þeir vildu ekki taka hana. Samkvæmt upplýsingum frá neyðarlínunni vegna þessa máls var hringt inn 18.45 og tilkynnt um látna konu og sjúkrabíll sendur á staðinn. Fjórum mínútum síðar var aftur hringt til að fylgja eftir fyrri tilkynningu en þá var sjúkrabíllinn rétt ókominn. Sjúkraflutningamenn hittu konuna og afgreiddu útkallið á staðnum. Önnur hringing barst 23:55 og tilkynnt um látna konu. Þegar lögregla og sjúkrabíll koma á staðinn var konan látin. Dagný Halldórsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, sagði í samtali við fréttastofu að sjúkraflutningar og Neyðarlínan leggi sig fram við að veita þessum hópi sem og öðrum sína bestu þjónustu. Smáhýsin eru á vegum Reykjavíkurborgar undir velferðarráði. Hvorki náðist í Björk Vilhelmsdóttur, formann ráðsins, né Stellu K. Víðisdóttur, sviðsstjóra velferðarsviðs borgarinnar.
Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent Eldur í Stykkishólmi Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Erlent Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent Fleiri fréttir Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Hvað er í boði um Verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Lýsa eftir landnámshænu við KFC í Hafnarfirði Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Sjá meira