Flogið til Svíþjóðar með frímerkjasafn 6. ágúst 2010 04:00 Frá Akureyri
Bæjarráð Akureyrar hefur ákveðið að selja tvö frímerkjasöfn sem hafa verið í vörslu bæjarins í áratugi. Annað safnið var ánafnað Lystigarðinum á Akureyri árið 1954 af Axel Schiöth og hið síðara gefið bænum árið 1974 af Jakobi Kvaran kaupmanni. Karli Guðmundssyni bæjarritara var falið það verk af bæjarstjórninni í mars síðastliðnum að láta meta verðmæti safnanna og flaug hann persónulega með safn Jakobs, sem hafði verið geymt í bankahólfi síðan 1974, til Svíþjóðar í mat. Stendur til að selja safnið á uppboði þar í landi í september. „Bænum var gefið þetta safn með því skilyrði að hafa það til sýnis," segir Karl. „Það hefur ekki verið staðið við það svo ákveðið var að selja það og gefa ágóðann í þágu aldraðra." Karl segir að safnið hafi komist í umræðu hjá bænum í fyrra og samið hafi verið við ekkju gefandans að breyta skilmálunum á þessa vegu. Plagg var undirritað af henni og syni þeirra hjóna sem samþykkir breytingarnar. Karl segir að búið sé að láta meta bæði söfnin óformlega, en vildi ekki gefa upp áætlað verðmæti. „Þetta eru einhverjar milljónir," segir hann. „Safn Jakobs Kvaran er þó eitthvað verðmætara en safn Axels Schiöth." Safn Axels inniheldur um 20 þúsund frímerki sem hann gaf Lystigarðinum til minningar um móður sína, frú Önnu Cathrine Schiöth, með því skilyrði að sala þeirra mætti fara fram árið 2000 og andvirðið yrði notað í þágu Lystigarðsins. Var það fyrst opnað við mikla viðhöfn á Amtbókasafninu á Akureyri í lok ársins 2000, eftir að hafa verið tekið úr bankahólfi Landsbankans og flutt þaðan í lögreglufylgd. „Andvirði safnsins verður afhent Lystigarðinum á 100 ára afmæli hans, árið 2012," segir Karl. Frímerkin í safni Jakobs eru íslensk og kórónustimpluð. Pétur Hraunfjörð frímerkjasali segir safnið vel geta verið 3 til 5 milljóna króna virði. „Ef þetta eru allt merki frá tímum Konungsríkisins, sem seld voru yfir borð í pósthúsinu, póstfrí, allir takkar heilir og lína ósnert að aftan, þá er ekki hægt að fá það betra," segir Pétur. „Eitt merki í Konungsríkinu getur verið þriggja milljóna króna virði." sunna@frettabladid.is
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira