Gengjaátök í fangelsunum 14. ágúst 2010 08:30 Öryggisgæsla hefur verið efld mjög í fangelsum landsins vegna aukinnar hörku meðal fanga. Á myndinni sjást sérsveit fangavarða á Litla-Hrauni og lögreglumenn frá embættinu á Selfossi á sameiginlegri æfingu.
Brotamenn sem afplána í íslenskum fangelsum mynda í auknum mæli hópa, sem síðan lenda í átökum innan fangelsisveggjanna. Þetta segir Páll E. Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar. „Við sem vinnum í fangelsiskerfinu höfum orðið vör við það með mjög greinilegum hætti síðastliðin tvö ár hve ákveðin gengjamyndun á sér stað í fangelsunum,“ segir hann. „Það má meðal annars rekja til þess að fleiri útlendingar afplána nú hér en áður. Það má einnig rekja til þess að þetta er harðari hópur manna sem stendur vel saman. Þetta eru menn sem hafa verið saman í skipulagðri brotastarfsemi og flestir þeir einstaklingar sem hana stunda fara í sama fangelsið. Við skynjum aukna hörku í þessum heimi.“ Páll segir viðbrögð fangelsisyfirvalda við þessari óheillaþróun hafa verið þá að auka öryggisbúnað starfsfólks í fangelsum. Meðal annars hafi verið keyptur nýr öryggisbúnaður fyrir sérsveit fangavarða og Tetrakerfi hafi verið tekið upp. „Við höfum jafnframt rekið okkur á að það kemur til átaka milli þessara hópa innan fangelsisins. Það er þá okkar verkefni að tryggja öryggi annarra fanga með því að skilja þessa hópa að,“ útskýrir Páll. Vegna þess hve fangelsin séu fá og flest mjög lítil sé erfitt að skilja fangana að með fullnægjandi hætti þegar þeir séu orðnir svo margir saman. „En við gerum okkar besta í því efni.“ Páll segir að telji gengin sig eiga óuppgerðar sakir hvert við annað sé látið til skarar skríða. „Og þá er um að ræða átök sem fela í sér alvarlegt ofbeldi og þar sem tiltækum verkfærum er beitt,“ segir Páll. Hann segir dæmi um að menn hafi slasast illa. Páll segir hópana samanstanda af íslenskum og erlendum brotamönnum í bland. - jss
Mest lesið Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Birtu ekki baulið Erlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent „Síminn stoppar ekki“ Innlent Fleiri fréttir Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sjá meira