Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hélt að byssan væri Nintendo-fjarstýring Þriggja ára gömul stúlka lést á sjúkrahúsi í Nashville í Bandaríkjunum í gær af skotsári sem hún hlaut á heimili sínu í fyrrakvöld. Móðir stúlkunnar fullyrðir að dóttir sín hafi haldið að hlaðin skammbyssa væri fjarstýring fyrir Nintendo Wii leikjatölvu. Skot hljóp úr byssunni og hafnaði í maga stúlkunnar sem dró hana síðar til dauða. 9.3.2010 08:01
Facebook morðingi dæmdur í 35 ára fangelsi Dæmdur nauðgari í Bretlandi sem þóttist vera unglingur og ginnti þannig til sín unga stúlku á Facebook samskiptasíðunni hefur verið dæmdur í 35 ára langt fangelsi fyrir að nauðga stúlkunni og myrða hana. 8.3.2010 21:23
Vilja ekki Lada bifreiðar Danir eru hættir að vilja Lada bifreiðar. Í tvö ár hefur ekki verið skráð ein ný Lada í Danmörku. Umboðsaðili bílanna í Kolding, Nic Christiansen, hefur því ákveðið að hætta innflutningi þeirra, segir danska blaðið Politiken. 8.3.2010 20:49
Kalkþörungavinnsla undirbúin við Húnaflóa Franskt fyrirtæki hefur fengið leyfi til tilraunadælingar á kalkþörungum úr Hrútafirði og Miðfirði. Húnvetningar vonast til að verkefnið leiði til þess allt að tuttugu manna iðnfyrirtækið byggist upp í héraðinu. 8.3.2010 18:59
Erlendar listakonur hópast á Skagaströnd Mannlífið á Skagaströnd hefur tekið stakkaskiptum eftir að útlendar listakonur tóku að hópast þangað tugum saman til langdvalar. Líf og fjör hefur færst í Kántríbæ. 8.3.2010 19:08
Litháíska stúlkan ekki einsdæmi Mál nítján ára litháískrar stúlku virðist vera langt í frá einsdæmi hér á landi. 8.3.2010 18:49
Ömurleg saga litháísku stúlkunnar Enginn vafi er í huga fjölskipaðs héraðsdóms Reykjaness að nítján ára litháísk stúlka, sem kom hingað til lands seint í fyrra, sé fórnarlamb mansals. Ítarlega er greint frá aðstæðum hennar í dómi yfir fimm Litháum sem í dag voru dæmdir í fimm ára fangelsi hver fyrir mansal. 8.3.2010 17:05
Fyrrverandi landsliðsmarkvörður dæmdur í fangelsi Ólafur Gottskálksson, fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu og landsliðsmarkvörður, hefur verið dæmdur í tíu mánaða fangelsi fyrir húsbrot og rán en hann ruddist ásamt öðrum manni Ólafi Darra Sturlusyni inn á heimili manns í Reykjanesbæ og beitti hann ofbeldi auk þess sem þeir rændu fartölvu af manninum. 8.3.2010 16:26
Ríkisstjórnin hefur stórskaðað trúverðugleika landsins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins gagnrýndi harðlega á þingi í dag það sem hann kallar útúrsnúninga og spuna ríkisstjórnarinnar í Icesave málinu. Hann segir að Íslendingar hafi í atkvæðagreiðslu sýnt eindreginn vilja sinn í málinu en samt sem áður leyfi menn sér að snúa út úr. 8.3.2010 16:11
Steingrímur: Margar og langar brekkur eftir Steingrímur J. Sigfússon talaði í dag við fjármálaráðherra Hollands og við formann íslensku samninganefndarinnar um niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem fram fór á laugardag. Hann segist vonast til þess að hægt verði að halda viðræðum áfram á allra næstu dögum. Þetta kom meðal annars fram í máli Steingríms þegar þingmenn ræddu niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar. 8.3.2010 15:52
Jóhanna: Ekki vantraust á ríkisstjórnina Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir fráleitt að túlka niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem vantraust á ríkisstjórnina. Þetta kom fram í máli ráðherra á Alþingi í dag. 8.3.2010 15:44
Bjarni Benediktsson: Ríkisstjórnin stendur á brauðfótum Ríkisstjórnin hefur brugðist fólkinu í landinu og er rúin trausti eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Þetta kom fram í máli Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokks, á Alþingi í dag. Hann sagði sjálfstæðismenn tilbúna í alþingiskosningar strax eftir bæjar- og sveitarstjórnarkosningar í vor. 8.3.2010 15:38
Litháar fengu fimm ára dóm Litháarnir sem sakfelldir voru í mansalsmálinu svonefnda voru dæmdir í fimm ára fangelsi hver. Dómur í málinu var kveðinn upp í lokuðu þinghaldi í héraðsdómi Reykjaness klukkan þrjú. 8.3.2010 15:35
Litháar sakfelldir í mansalsmáli Fimm Litháar voru í héraðsdómi Reykjaness nú klukkan þrjú dæmdir sekir af ákæru um mansal. Þeir voru ákærðir fyrir að hafa ætlað að selja í vændi nítján ára stúlku sem hingað kom frá litháen. Upp komst um málið þegar stúlkan trylltist í flugvél á leið hingað til lands. Hún hefur farið huldu höfði undanfarnar vikur. 8.3.2010 15:08
Hundruð þúsunda mótmæla í Bandaríkjunum Fjölmennustu skipulögðu mótmæli bandarískra námsmanna um margra ára skeið voru haldin fyrir helgi. Þá mótmæltu hundruð þúsunda námsmanna og kennara víða í Bandaríkjunum, niðurskurði í opinbera skólakerfinu. Mótmælt var í yfir þrjátíu fylkjum Bandaríkjanna. 8.3.2010 14:44
Rafverktakar lýsa vanþóknun á framgöngu ráðamanna Aðalfundur SART- Samtaka rafverktaka ítrekar og ítrekar og mótmælir harðlega aðgerðarleysi stjórnvalda gagnvart heimilum og fyrirtækjum í landinu. 8.3.2010 14:27
Verstu tíu löndin fyrir konur að búa í Alþjóðasamtökin Care hafa tekið saman lista yfir þau 10 lönd sem verst er fyrir konur að búa í. Það kemur varla á óvart að Afganistan er efst á þeim lista. 8.3.2010 13:56
Fórnarlömbum nauðgana meinaður aðgangur að réttlæti Fórnarlömbum nauðgana og annars kynferðisofbeldis er um allan heim meinaður aðgangur að réttlæti vegna kynbundins mismununar og hugmynda um kynhegðun fórnarlamba nauðgana. Þetta kemur fram í skýrslum sem samtökin Amnesty International birtu í dag. 8.3.2010 13:54
Fundu dóp við húsleit Fíkniefni fundust við húsleit í íbúð í austurborginni á föstudag. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að um hafi verið að ræða um 300 grömm af amfetamíni og ámóta magn af marijúana, auk kannabisplantna. Húsráðandi, karl á fertugsaldri, var handtekinn og játaði hann aðild sína að málinu. Sá hefur áður komið við sögu hjá lögreglu að því er segir í tilkynningunni. 8.3.2010 13:38
Hlakka til heimferðar frá Írak Æðsti hershöfðingi Bandaríkjanna í Írak segir að með þingkosningunum þar í landi um helgina hafi verið stigið stórt skref í brottflutningi bandarískra hermanna frá Írak. 8.3.2010 13:37
Á annað hundrað erlendir fjölmiðlamenn komu til Íslands Á annað hundrað erlendir fjölmiðlamenn frá um 50 fjölmiðlum komu til Íslands til að fylgjast með þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave í vikunni 1.-7. mars. Fjölmiðlafólkið kom einkum frá Norðurlöndunum, Bretlandi og Hollandi, en einnig frá Þýskalandi, Frakklandi, Sviss, Ítalíu, Írlandi, Bandaríkjunum, Kanada, Japan og Kína. 8.3.2010 12:26
Stígamót krefjast úrbóta Of mikil áhersla er á líkamsmeiðingar í lögum um nauðgun, Stígamót krefjast úrbóta. 8.3.2010 12:21
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna hundrað ára í dag Alþjóðlegur baráttudagur kvenna er hundrað ára í dag, 8. mars, og af því tilefni verða ýmsir viðburðir á dagskrá hér á landi og erlendis. 8.3.2010 12:13
Óvissustigi ekki aflétt Þónokkur jarðskjálftavirkni er enn undir Eyjafjallajökli en allir skjálftarnir hafa verið vel innan við tvo á Richter. Óvissustigi hefur ekki verið aflétt. 8.3.2010 12:04
Steingrímur endurskoði vinnubrögð gagnvart þingflokki VG Lilja Mósesdóttir þingmaður Vinstri grænna segir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave áfellisdóm yfir vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar í málinu. Formaður Vinstri grænna þurfi einnig að endurskoða vinnubrögð sín gagnvart þingflokknum. 8.3.2010 11:51
Tæp 60% telja að Íslendingar eigi ekki að borga Tæp 60% svarenda í skoðanakönnun MMR segja að Íslendingum beri alls ekki að ábyrgjast greiðslur til innstæðueigenda í Bretlandi og Hollandi. Fyrirtækið kannaði afstöðu fólks til þess dagana 3.-5. mars hvort það teldi að Íslendingum bæri að ábyrgjast greiðslur til innstæðueigenda vegna Icesave í Bretlandi og Hollandi. 8.3.2010 11:34
Góð þátttaka í skoðanakönnun um sameiningu Góð þátttaka var í skoðanakönnun bæjarstjórnar Álftanes á hug íbúa til sameiningar sem haldin var samhliða þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave um helgina. Fram kemur á vef sveitarfélagsins að þátttakan var í samræmi þátttökuna í atkvæðagreiðslunni en endanlegur fjöldi verður kynntur samhliða niðurstöðum skoðanakönnunarinnar á morgun. 8.3.2010 11:30
Leit afturkölluð Þyrla Landhelgisgæslunnar var fyrir stundu kölluð út til að leita að netabát frá Ólafsvík sem hafði hætt að láta vita af sér í gegnum sjálfvirka tilkynningakerfið. Skömmu síðar hafði skipstjórinn samband við Gæsluna og lét vita af sér. Ekkert amaði að um borð og var leitin því afturkölluð. 8.3.2010 11:08
Við sprengjum ykkur í loft upp Norður-Kóreumenn segjast reiðubúnir að sprengja bæði Suður-Kóreu og Bandaríkin í loft upp. 8.3.2010 10:55
Litlar líkur á þverpólitískri sátt Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, telur að líkurnar á þverpólitískri samstöðu um Icesave séu ekki miklar. Erfitt verði fyrir stjórnarþingmenn að bera ábyrgð efnahagsmálum þjóðarinnar ef lausn Icesave málsins dregst enn lengur. 8.3.2010 10:52
Hugnast hugmyndir um þjóðaratkvæði varðandi sjávarútveginn Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að hugmynd forsætisráðherra um að setja fiskveiðistjórnunarkerfið næst í þjóðaratkvæðagreiðslu sé athyglisverð. 8.3.2010 10:36
Danir á hálum ís Lögreglan á Jótlandi hefur gefist upp við að telja umferðaróhöppin á þjóðvegi E20 til Esbjerg sem orðið hafa í dag. 8.3.2010 10:28
Þrír flóttamenn stukku framaf húsi Þrír flóttamenn frá Kosovo létu lífið í Glasgow í gær eftir fall af svölum fimmtán hæða íbúðarhúss. Þetta voru tveir karlmenn og ein kona. 8.3.2010 10:10
Vitað um eitt tilvik á Íslandi Landlæknisembættið hefur að undanförnu fengið fjölmargar fyrirspurnir vegna arfgengs efnaskiptasjúkdóms í Færeyjum. Talið er að um það bil einn af hverjum 1000 Færeyingum fái sjúkdóminn CTD (e. Carnitine Transporter Defect). Annars staðar er hann mun sjaldgæfari og aðeins er vitað um eitt tilvik á Íslandi, að fram kemur á vef Landlæknis. Frá árinu 2008 eru nýfædd börn hér á landi skimuð fyrir sjúkdómnum. 8.3.2010 10:10
Líf fékk eldsneyti á flugi yfir Ægi Þyrlueldsneyti var í fyrst sinn dælt á Líf, þyrlu Landhelgisgæslunnar, á meðan hún var á lofti yfir varðskipinu Ægi fyrir helgi. Slíkt er afar mikilvægt að geta gert þegar Gæslan er í aðgerðum á hafi úti og langt fyrir þyrlu að fara til eldsneytistöku, að fram kemur á vef Landhelgisgæslunnar. Þar segir að æfingin hafi gengið vel.Við áfyllinguna var notaður sérstakur búnaðar um borð í varðskipinu en þar geta verið allt að 2500 lítrar af eldsneyti. 8.3.2010 09:43
Jóhanna gefur skýrslu um stöðuna í Icesave málinu Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, gefur við upphaf þingfundar í dag munnlega skýrslu um stöðuna í Icesave málinu að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslunni um helgina. 8.3.2010 08:55
Átta gefa kost á sér á Akranesi Um helgina rann út framboðsfrestur til prófkjörs Samfylkingarinnar á Akranesi. Það er því orðið ljóst hverjir það verða sem sækjast eftir fyrstu þremur sætum á listanum fyrir kosningarnar í vor. Kosið verður um fyrstu þrjú sætin í prófkjöri laugardaginn 20. mars, en sæti um 4.-9. sæti á sérstökum kjörfundi að því loknu. 8.3.2010 08:41
Harður jarðskjálfti í Tyrklandi Á sjötta tug eru látnir og fjölmargir slasaðir eftir að jarðskjálfti að stærðinni sex á Richter reið yfir í Tyrklandi í nótt. Búist er við að tala látinna fari hækkandi. Fram kemur í tilkynningu frá skrifstofu forsætisráðherrans Recep Tayyip Erdoga að skjálftinn átti upptök sín í Elazig héraði sem er í austurhluta landsins. Öflugir eftirskjálftar hafa orðið undanfarnar klukkustundir. 8.3.2010 08:24
Morðingi James litla var með barnaklám Ástæðan fyrir því að Jon Venables, annar þeirra sem myrti James litla Bulger, árið 1993 var handtekinn í lok febrúar þegar hann braut skilorð voru ásakanir um vörslu barnakláms. Breskir fjölmiðlar greindu frá þessu í gær en yfirvöld hafa ekki viljað staðfesta af hverju Venables var handtekinn. 8.3.2010 08:11
Skipulagði morð á tveimur börnum Þrjátíu og tveggja ára gamall bandarískur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa skipulagt morð á tveimur börnum sem er hann talinn hafa misnotað kynferðislega. Maðurinn sem hefur að undanförnu setið í varðhaldi í Chicago bauð öðrum manni tæplega 15 þúsund dollara, eða tæpar tvær milljónir króna, fyrir að drepa börnin og foreldra þeirra. 8.3.2010 08:07
Ræningjarnir ófundnir Þýska lögreglan hefur enn ekki haft hendur í hári fjögurra manna sem réðust inn á hótel í Berlín á laugardag og rændu vinningsfé á pókermóti sem haldið var á hótelinu. Talið er að ræningjarnir hafi ekki komist á brott með allt vinningsféð en skipuleggjendur mótsins fullyrða að mennirnir hafi stolið 250 þúsund evrum eða tæplega 44 milljónum króna. 8.3.2010 08:04
Varð fyrir jeppa á hraðbraut Sex ára gömul stúlka lést þegar hún varð fyrir jeppa á miðri hraðbraut nálægt borginni Minneapolis í Bandaríkjunum í gær. Hún hafði verið týnd í rúma klukkustund en ekki er vitað hvernig hún komst inn á hraðbrautina en meðfram henni er öryggisgirðing sem á að varna fólki frá því að komast inn á brautina. Lögregla fer með rannsókn málsins og kannar meðal annars hvernig stúlkan komst af leikvelli í grennd við hraðbrautina. 8.3.2010 07:04
Fjörutíu létu lífið í Írak Að minnsta kosti 40 létu lífið í árásum í Írak í tengslum við þingkosningarnar þar í landi í gær. Hryðjuverkasamtökin al-Kaída hótuðu árásum í aðdraganda kosninganna og lýstu yfir útgöngubanni í gær þegar þau vöruðu alla þá sem ætluðu fara út til að kjósa að þeir yrðu berskjaldaðir gagnvart reiði Allah. Þrátt fyrir það segja yfirvöld að kjörsókn hafi verið yfir 50% en 19 milljónir Íraka voru á kjörskrá. 8.3.2010 06:58
Bigelow besti leikstjórinn fyrst kvenna Spennumyndin The Hurt Locker kom, sá og sigraði þegar Óskarsverðlaunin voru afhend í 82. sinn í Hollywood, í nótt. Myndin vann til sex verðlauna, þar á meðal sem besta myndin og fyrir bestu leikstjórn. 8.3.2010 06:52
Óvíst um framhald viðræðna Formenn stjórnarflokkanna telja að samningaviðræður við Breta og Hollendinga um lausn Icesave-málsins eigi að halda áfram þar sem frá var horfið fyrir helgi. Forystumenn stjórnarandstöðunnar segja hins vegar að leggjast þurfi yfir samningsmarkmiðin að nýju í ljósi niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar áður en viðræðurnar geta haldið áfram. 8.3.2010 06:00