Fleiri fréttir

Hætta að dreifa klámi

Vodafone hefur ákveðið að hætta dreifingu og sölu á öllu erótísku efni í gegnum vefgátt fyrir farsíma. Sömuleiðis verður hætt að bjóða slíkt efni á Leigunni, sem er stafræn leiga á myndefni fyrir sjónvarp.

Evrópusambandið flengir Grikki

Evrópusambandið hefur sýnt vanþóknun sína og mátt sinn með því að svipta Grikkland atkvæðisrétti á fundi sem haldinn verður í næsta mánuði.

Haldið upp á öskudaginn

Það hefur eflaust ekki farið framhjá mörgum að í dag er öskudagur. Af því tilefni hafa eflaust margir, ungir sem aldnir, brugðið sér í margvísleg skemmtileg gervi. Þessir hressu strákar urðu á vegi myndatökumanna 365 í morgun.

Icelandair harmar verkfallsboðun flugvirkja

Icelandair harmar þá ákvörðun Flugvirkjafélags Íslands að boða til verkfalls dagana 22.-28. febrúar næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Guðjón Arngrímsson upplýsingafulltrúi Icelandair sendi fjölmiðlum. Segir hann að verkfallið geti valdið viðskiptavinum, íslenskri ferðaþjónustu og atvinnulífi miklu tjóni.

Brýnt að breyta innkaupareglum Kópavogs

Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, segir brýnt að breyta innkaupareglum bæjarfélagsins. Hún hefur lagt fram tillögu í bæjarráði sem gerir ráð fyrir að útboð verði viðhaft vegna verklegra framkvæmda umfram 10 milljónir. Viðmiðið í dag er 20 milljónir.

Krefur lögreglustjóra um skýringar á dópleit

Róbert Spanó, umboðsmaður Alþingis, hefur skrifað Stefáni Eiríkssyni, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, bréf þar sem hann krefur hann um svör vegna aðgerða lögreglu í Tækniskólanum á Skólavörðuholti í síðustu viku.

Aldrei fleiri blaðamenn drepnir

Sjötíu blaðamenn voru drepnir vegna starfa sinna á síðasta ári og er það mesti fjöldi síðan byrjað var að skrá dauðsföll í stéttinni fyrir þrjátíu árum.

Víst hittum við

Breska herstjórnin segir að eldflaug sem varð tólf óbreyttum borgurum að bana í Afganistan í síðustu viku hafi hitt beint á skotmark sitt.

Spenna eykst á ný vegna Falklandseyja

Argentinsk stjórnvöld tilkynntu í gær að öll skip sem sigldu frá Argentínu til Falklandseyja þyrftu sérstakt leyfi yfirvalda til ferðarinnar.

Sprengjugengi HÍ með háskasýningar í Háskólabíó

Djarfur hópur efnafræðinema við Háskóla Íslands, sem gengur undir nafninu Sprengjugengið, verður með tvær háskasýningar í Háskólabíó næstkomandi laugardag. Fyrri sýningin er klukkan 13 og sú seinni klukkustund síðar.

Tvær konur kæra nauðgun

Tvær stúlkur hafa kært nauðgun til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir helgina. Málin eru í rannsókn hjá kynferðisbrotadeild.

Styrkur veittur til minningar

Landsvirkjun færði í gær Slysavarnafélaginu Landsbjörg 500 þúsund krónur til minningar um Halldóru Benediktsdóttur er lést þegar hún féll í sprungu á Langjökli 30. janúar síðastliðinn.

Þúsundir fara í golf á ferðalagi

Golfiðkun ferðafólks skiptir golfklúbba miklu máli um allt land. Ný könnun Ferðamálastofu bendir til að klúbbarnir hafi tugmilljónir í tekjur af þeim sem stunda golf á ferðalagi.

Nú viðurkennt vísindatímarit

Tímaritið Icelandic Agri­cultural Sciences, sem Veiðimálastofnun ásamt fleiri íslenskum stofnunum stendur að, er komið á ISI- gagnagrunninn sem er sá viðurkenndasti í heimi vísindanna. Þar með er ritið staðfest sem fyrsta flokks alþjóðlegt vísindarit.

Ekki sé reiknað með lóðasölu

Marteinn Magnússon, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Mosfellsbæ, gagnrýnir að meirihluti sjálfstæðismanna og Vinstri grænna geri ráð fyrir 450 milljóna króna tekjum af lóðasölu á þremur árum.

Töluvert minni afli en í fyrra

Fiskafli íslenskra skipa nam 55.445 tonnum í janúar samanborið við 71.520 tonn í sama mánuði í fyrra, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Botnfiskafli dróst saman um rúm 1.700 tonn og nam 31.300 tonnum. Þar af nam þorskaflinn rúmum 17.400 tonnum, sem er aukning um 1.700 tonn frá fyrra ári.

Niðurstaða forvals VG staðfest

Niðurstaða forvals VG í Reykjavík, sem kynnt var á dögunum, hefur verið staðfest, eftir að utankjörfundaratkvæði voru endurtalin.

Ekki bankakerfisins að refsa

Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir mikilvægt að reglur réttarríkisins séu hafðar í heiðri við endurreisn fyrirtækja. Það sé dómskerfisins að refsa mönnum hafi þeir brotið lög en ekki bankakerfisins.

Ramos áfram í gæsluvarðhaldi

Gæsluvarðhald yfir brasilíska lýtalækninum Hosmany Ramos var framlengt um tvær vikur í héraðsdómi í gær.

Fundaði með sendiherrum

Þrír nýir sendiherrar afhentu Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, trúnaðarbréf sín í gær.

Dregur mjög úr akstri lögreglu

Rúmlega 160 ökutækjum lögreglunnar var ekið um 600 þúsund kílómetrum minna á árinu 2009 en árið áður, samkvæmt upplýsingum frá starfshópi ríkislögreglustjóra, sem hefur eftirlit með tækjum og búnaði lögreglunnar. Í fyrra voru eknir kílómetrar 4.521.354 talsins sem er um 12 prósent minni akstur en á árinu 2008.

Fjórðungi færri skipta um bíl

Ríflega fjórðungi færri eigendaskipti urðu á ökutækjum fyrstu 45 daga ársins en á sama tíma í fyrra, samkvæmt upplýsingum Umferðarstofu. Í ár urðu eigendaskipti á 6.861 ökutæki, samanborið við 9.247 í fyrra. Munurinn er 25,8 prósent.

Beittu kylfu og járnkeðju

Fjórir karlmenn eru nú fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, ákærðir fyrir hrottalega líkamsárás.

Félag gegn fyrningarleið

Eyverjar, félag ungra sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum, vinna nú að stofnun félags til höfuðs stefnu ríkisstjórnarinnar um fyrningu aflaheimilda. Er félagsskapurinn hugsaður sem framhald af þeim hópi sem kom saman á ráðstefnu í Eyjum fyrir stuttu undir nafninu Fyrnum fyrningarleiðina.

Var holgóma og með klumbufót

Egypski faraóinn Tútankamón, sem komst til valda tíu ára gamall árið 1333 fyrir Krist, var með klumbufót og holgóm. Líklega þurfti hann að ganga við staf. Dánarmein hans má rekja til fótbrots og malaríu sem hann fékk í framhaldi þess.

Árni Johnsen búinn að skila

Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokks, hefur skilað Ríkisendurskoðun yfirlýsingu um að kostnaður hans vegna prófkjörs fyrir síðustu kosningar hafi verið undir 300.000 krónum.

Rússar taka nú undir gagnrýni

Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti skýrði frá því í gær að nýjar skilvindur yrðu brátt teknar í notkun til að hraða auðgun úrans, sem hann sagði eingöngu ætlað til friðsamlegra nota.

Hvattir til að segja rétt frá

Benedikt sextándi páfi hvatti tuttugu og fjóra írska biskupa, sem ræddu við hann í Páfagarði í gær og í fyrradag, til þess að sýna hugrekki og koma heiðarlega fram varðandi framferði barnaníðinga í röðum presta kaþólsku kirkjunnar á Írlandi.

Voru úrkula vonar

Mæðginin Beata og Jeremy Scott voru búin að gefa upp alla von um að finnast á lífi þegar björgunarsveitarmenn römbuðu fram á þau á Langjökli. Þau áfellast ferðaþjónustufyrirtækið en geta vart orðað þakklætið í garð björgunarmanna.

Handtakan sögð áfall fyrir talibanana

Ráðamenn í Bandaríkjunum og Pakistan segja það mikið áfall fyrir talibanahreyfinguna að Mullah Abdul Ghani Baradar hafi verið handtekinn. Hann er sagður yfirmaður uppreisnar talibana í Afganistan.

Halldór Jónsson: Þegar skamma á Moskvu verður Albanía fyrir valinu

Verkfræðingurinn Halldór Jónsson svarar ásökunum eigin flokksmanna um óeðlileg viðskipti fyrirtækis á hans vegum við Kópavogsbæ í pistli á bloggi sínu í dag. Þar lætur hann að því liggja að árásir á hann séu í raun pólitískar árásir á Gunnar Birgisson, fyrrum bæjarstjóra Kópavogs, en hann sækist eftir fyrsta sætinu í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Kópavogi.

Skoska konan sá björgunarþyrluna sveima yfir sér

Skoska konan sem týndist á Langjökli ásamt ellefu ára syni sínum hátt í átta tíma segist margsinnis hafa séð þyrlu Landhelgisgæslunnar sveima yfir þeim mæðginum en sökum blindbyls sást ekki til þeirra.

Flóttamenn leita á náðir mæðrastyrksnefndar

Flóttamenn frá Kólumbíu og Palestínu sem komu hingað til lands á vegum íslenska ríkisins fyrir fáum árum hafa þurft að leita á náðir Mæðrastyrksnefndar og fjárhagslegar aðstæður þeirra eru bágar eftir hrunið. Formaður Flóttamannanefndar segir það slæm tíðindi en engu að síður sé það mannúðarverk að taka á móti fólki frá Haítí.

Á sterum með haglabyssuna á lofti

Birkir Arnar Jónsson sem dæmdur var í sex ára fangelsi í dag ætlaði að hræða mann sem kærasta hans hafði kært fyrir kynferðisbrot. Birkir var á sterum og undir áhrifum áfengis þegar hann skaut sex haglabyssuskotum í átt að fyrrum vinnuveitanda kærustunnar.

Össur ræddi við Carl Bildt

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í dag fund með Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, í Stokkhólmi samkvæmt tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Sjá næstu 50 fréttir