Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ekki útséð með síldveiðar í ár Starfsmenn Hafrannsóknastofnunar eru enn að fara yfir gögn til þess að geta metið stofnstærð og sýkingu í íslensku sumargotssíldinni. Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri nytjastofna hjá Hafró, segist ekki geta svarað því hvenær þeirri vinnu ljúki en eftir það verður ljóst hvort og þá hversu mikið stofnunin mun leggja til að verði veitt. 4.11.2009 02:00
Stjórnvöld vara við mótmælum Byltingarverðir í Íran hafa varað mótmælahópa úr liði stjórnarandstöðunnar þar í landi, við að efna til mótmæla í tilefni af því að á morgun verða liðin þrjátíu ár frá því er sendiráð Bandaríkjanna í Íran var hertekið. 4.11.2009 01:15
Borgar tíund til kaupa á orgeli Halda á sérstaka orgelviku í Kaupfélagi Steingrímsfjarðar frá og með næsta mánudegi að því er segir á fréttavefnum strandir.is. 4.11.2009 01:00
Kvartar undan mannréttabroti Radovan Karadzic, fyrrverandi leiðtogi Bosníu-Serba, mætti loks í gær til réttarhalda við stríðsglæpadómstól Sameinuðu þjóðanna í Haag, þar sem hann hyggst sjálfur sjá um málsvörn sína. 4.11.2009 00:45
Sekt vegna krossa í skólum Mannréttindadómstóll Evrópu hefur úrskurðað að krossar í ítölskum skólastofum stangist á við trúfrelsi og frelsi til menntunar. 4.11.2009 00:15
Tékkar undirrita Lissabon-sáttmálann Forseti Tékklands, Vaclav Klaus, undirritaði Lissabon sáttmálann í dag. Sáttmálanum var hafnað fyrir fjórum árum síðan en tilgangur hans er meðal annars að tilnefna forseta Evrópusambandsins og breyta kosningafyrirkomulagi meðlima sambandsins. 3.11.2009 21:45
Misræmi á orkuþörf leiðrétt Vegna umsagnar Landsnets til Skipulagsstofnunar um afstöðu fyrirtækisins til sameiginlegs mats á umhverfisáhrifum Suðvesturlína og orkuvera á Reykjanesi skal áréttað að Suðvesturlínur munu geta annað aflþörf stækkaðs álvers í Helguvík, ef til kemur, sem og öðrum framtíðaráformum um uppbyggingu iðnaðar og orkuöflun á svæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsneti. 3.11.2009 20:21
Jökulstífla að bresta á Eyjabökkum Hlaup er talið yfirvofandi í Jökulsá í Fljótsdal en áin rennur undan Eyjabakkajökli við Snæfell í norðaustanverðum Vatnajökli. Á heimasíðu Landsvirkjunar í dag kemur fram að í krika vestan við skriðjökullinn hafi myndast lón vegna jökulstíflu, sem er við það að bresta. 3.11.2009 19:00
Óttast að biðin eftir betri vegi taki áratug Ráðamenn á Vestfjörðum óttast að það muni taka áratug að fá almennilegan veg um sunnanverða firðina til Patreksfjarðar og segja það ekki sanngjarnt að tveir til þrír aðilar geti stöðvað framkvæmdir sem þjóni fjöldanum. 3.11.2009 18:46
Buffætur böðlast á konu Tveim af varðmönnum Turnsins í Lundúnum, Tower of London, hefur verið vikið úr starfi fyrir að áreita einu konuna sem tilheyrir varðsveitinni. 3.11.2009 16:48
Vilja að Reykjavík verði Græna borg Evrópu Borgarstjórn Reykjavíkur hefur samþykkt tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks um að Reykjavíkurborg sæki um tilnefningu sem Græna borgin í Evrópu árið 2012 eða 2013. Evrópusambandið útnefnir árlega Grænu borgina í Evrópu til þess að vekja athygli á mikilvægi umhverfismála í borgum. 3.11.2009 16:11
Fimmtán mánaða fangelsi fyrir skattsvik Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag tvo karlmenn fyrir meiriháttar skattsvik en þrír voru upprunalega ákærðir í málinu. Héraðsdómur dæmdi annan mannanna í 15 mánaða fangelsi og til að greiða 93 milljónir króna í sekt. Hinn maðurinn var dæmdur í 7 mánaða skilorðsbundið fangelsi en honum er gert að að greiða 34 milljónir króna í sekt. 3.11.2009 16:04
Uppgjöf meirihlutans á Álftanesi Tillaga meirihlutans á Álftanesi um að kalla til Eftirlitsnefnd sveitarfélaga er tillaga um uppgjöf, að mati bæjarfulltrúa minnihlutans. 3.11.2009 15:50
Stofnun embættis héraðssaksóknara frestað Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra, mælti á Alþingi í dag fyrir frumvarpi sem felur í sér frestun á stofnun embættis héraðssaksóknara til ársins 2011. Til stóð að stofna embættið á þessu ári en nú á að fresta því vegna sparnaðar. 3.11.2009 15:33
Hamas fá langdrægari eldflaugar Yfirmaður leyniþjónustu ísraelska hersins segir að Hamas samtökin á Gaza svæðinu hafi fengið íranskar eldflaugar sem séu miklu langdrægari en þær eldflaugar sem þau hafa ráðið yfir hingaðtil. 3.11.2009 15:29
Víkur sæti í máli gegn fyrrum fjármálaráðherra Sigríður Ingvarsdóttir, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, víkur sæti í máli Guðmundar Kristjánssonar gegn Árna Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra og íslenska ríkinu. 3.11.2009 15:07
Vildi vita um afstöðu Kristjáns Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, spurði Kristján Þór Júlíusson, þingmann Sjálfstæðisflokksins, út í afstöðu hans til frumvarps um ríkisábyrgð vegna Icesave. Sigmundur vitnaði til orða Lilja Mósesdóttur, þingmanns VG, sem sagði um helgina að óvissa um afstöðu sjálfstæðismanna til frumvarpsins í sumar hafi truflað suma þingmenn VG. Sjálfur sagðist Kristján ætla að standa í lappirnar. 3.11.2009 15:04
Tveggja mánaða fangelsi fyrir gripdeild og þjófnað Karlmaður á sextugsaldri var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir gripdeild og þjófnaði. 3.11.2009 14:53
Sigmundur hrósaði Lilju Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, hrósaði stjórnarþingmanninum Lilju Mósesdóttur á þingfundi í dag og sagði hana þingmann af þeirri gerð sem almenningur hafi kallað eftir. Hún hafi talað af skynsemi og rökfestu í Icesave málinu. 3.11.2009 14:48
Samningar standa yfir um sölu á sendiráðsbústaðnum í New York Samningar standa yfir um sölu á sendiráðsbústaðnum í New York, samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu. Kaupverð mun ekki verða gefið upp fyrr en endanlegir samningar liggja fyrir. 3.11.2009 14:20
Frægar mannætur í Chicago Tvö frægustu mannætuljón heims eru nú til sýnis í náttúrufræðisafninu í Chicago. Kannski rétt að taka fram að þau eru uppstoppuð. 3.11.2009 14:09
Með agúrku í ræðustól Alþingis Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tók með sér agúrku í ræðustól Alþingis í dag í umræðum um raforkuverð til garðyrkjubænda. „Til að mynda eitt af því sem liggur fyrir hjá garðyrkjunni núna er að hætta að rækta íslenskar agúrkur, þær bestu í heiminum. Það munar 300 tonnum af agúrkum. Allt þinghúsið myndi rúma um 300 tonn af agúrkum. Þetta er spurning um að horfast í augu við möguleikana,“ sagði Árni þegar agúrkunni upp. 3.11.2009 14:00
Tvíburaturnarnir koma til hafnar í New York Nýjasta herskip bandaríska flotans, USS New York kom til heimahafnar í New York í gær. Stefni skipsins er byggt úr stáli sem tekið var úr rústum tvíburaturnanna eftir hryðjuverkaárásina árið 2001. 3.11.2009 13:47
Úps Konuna hans Davors Ivanovics langaði til að gefa honum skemmtilega afmælisgjöf. Davor var í viðskiptaferð í Zagreb í Króatíu á afmælisdaginn. 3.11.2009 13:30
Ekið á gangandi vegfaranda Ekið var á gangandi vegfarandi á Reykjanesbraut við Smáralind fyrir stundu. Hinn slasaði var fluttur í sjúkrabíl á slysadeild en ekki er vitað hvort hann hafi slasast alvarlega. Lögreglan vill koma því áleiðis að Reykjanesbraut er lokuð í suðurátt á móts við Smáralind. 3.11.2009 13:23
Garðyrkjubændur að gefast upp Garðyrkjubændur ætla að mótmæla háu raforkuverði fyrir framan Alþingishúsið í dag. Framkvæmdastjóri Sambands garðyrkjubænda segir að margir bændur séu við það að gefast upp. 3.11.2009 12:49
Búist við hlaupi í Jökulsá í Fljótsdal Landsvirkjun varar við því að hlaup sé líklegt í Jökulsá í Fljótsdal á næstunni. Hlaupið er þó talið verða lítið og mannvirki ekki sögð í hættu. 3.11.2009 12:36
Actavis bað ekki um að upplýsingar yrðu fjarlægðar úr skýrslu AGS Actavis óskaði ekki eftir því að upplýsingar um erlendar skuldir fyrirtækisins yrðu fjarlægðar úr skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. 3.11.2009 12:27
Evrópulán Orkuveitunnar ekki tengt Icesave Guðlaugur Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, hafnar því að það sé Icesave-samningunum að þakka að Orkuveitan fái nú, eftir ársbið, afgreitt þrjátíu milljarða króna lán frá Evrópska fjárfestingabankanum. 3.11.2009 12:24
Aðalmeðferð í máli gegn forsvarsmönnum Baugs frestað Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Tryggva Jónssyni, Kristínu Jóhannesdóttur, Baugi Group og Fjárfestngarfélaginu Gaumi vegna meintra skattalagabrota hefur frestast. 3.11.2009 12:18
Konur fjórðungur viðmælenda í Silfrinu og í Vikulokunum Í úttekt Kvenréttindafélags Íslands á því af hvaða kyni viðmælendur tveggja vinsælla umræðuþátta hjá Ríkissjónvarpinu- og útvarpinu hafa verið undanfarna tvo mánuði kemur í ljós að um það bil fjórðungur viðmælenda voru konur. 3.11.2009 11:57
Vegurinn fái heitið Þröskuldar Þeirri hugmynd er varpað fram í Framkvæmdafréttum Vegagerðarinnar að nýi vegurinn um Arrnkötludal verði kallaður Þröskuldar. 3.11.2009 11:50
Undirbúningsnám fyrir háskóla á Austurlandi Þekkingarnet Austurlands og Keilir, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs, hafa gert með sér samning um svokallaða Háskólabrú Austurlands. Er það aðfararnám að háskólanámi fyrir þá sem ekki hafa lokið stúdentsprófi og fer nú í fyrsta sinn fram á Austurlandi. 3.11.2009 11:49
Svínaflensan: Tæplega 1400 greindust í síðustu viku Tæplega 1400 manns greindust með svínaflensu á landinu í vikunni sem leið. Haraldur Briem sóttvarnalæknir segir að flensan sé enn á talsverðu flugi og ljóst að hún sé ekki að líða hjá á næstunni. 3.11.2009 11:45
Tómas Ingi Olrich lét af sendiherraembætti Tómas Ingi Olrich, fyrrverandi menntamálaráðherra, lét af embætti sendiherra í Frakklandi um helgina. Við starfi hans tók Þórir Ibsen. Þá tók Guðmundur Eiríksson við embætti sendiherra í Nýju Delhi um helgina af Finnbogi Rúti Arnarsyni. 3.11.2009 11:31
Ræða forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu Eftir hádegi fram umræða utan dagskrár á Alþingi um forgangsröðun í heilbrigðisþjónustunni. Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, er málshefjandi en Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, verður til andsvara. Umræðan hefst klukkan tvo og sendur í hálfa klukkustund. 3.11.2009 11:29
Putin hótar annarri gaslokun Í janúar síðastliðnum lokuðu Rússar í tvær vikur fyrir gasflutning til Evrópu um leiðslur sem liggja í gegnum Úkraínu. 3.11.2009 11:19
Um 10 manns voru ákærðir vegna mótmæla Um 10 manns voru ákærðir eftir handtökurnar í kringum mótmælin í miðborg Reykjavíkur í upphafi árs, segir Jón HB Snorrason, saksóknari hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 3.11.2009 11:08
Fórnarlömbum mansals tryggður aðgangur að heilbrigðisþjónustu Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, breytti fyrir helgi reglugerð um rétt þeirra sem ekki eru sjúkratryggðir á Íslandi með það fyrir augum að tryggja ótvíræðan rétt þolenda mansals óháð greiðslugetu viðkomandi og samningum við önnur ríki um greiðslur fyrir veitta þjónustu, að fram kemur á vef heilbrigðisráðuneytisins. 3.11.2009 10:56
Vilja friðlýsa Skjálfandafljót Þingmenn þriggja flokka hafa lagt fram á Alþingi þingsályktunartillögu um friðlýsingu Skjálfandafljóts og alls vatnasviðs þess ofan Mjóadalsár. Fyrsti flutningsmaður tillögunnar er Þuríður Backman, þingmaður VG. 3.11.2009 10:45
Vegurinn um Óshlíð nýttur sem hjólaleið Óshlíðarvegur verður væntanlega nýttur sem útivistar- og jafnvel hjólaleið þegar hann verður lagður af sem stofnvegur þegar jarðgöng milli Bolungarvíkur og Hnífsdals verða tilbúin árið 2011. Frá þessu er greint á vef Bæjarins besta. 3.11.2009 10:26
Snjórinn að hverfa á Kilimanjaro Snjórinn á Kilimanjaro gæti horfið á næstu tveim áratugum að mati vísindamanna sem hafa nýlokið við rannsókn á þessu hæsta fjalli Afríku. 3.11.2009 10:23
Kostnaður við ESB-þýðingar hleypur á tugum milljóna Kostnaður ríkissjóðs vegna þýðingar á efni sem tengist mati framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á hæfi Íslands til að sækja um aðild að ESB hleypur á tugum milljóna króna. Gera má ráð fyrir að um sé að ræða 12 mánaða vinnu fyrir sex þýðendur. Þetta kemur fram í svari Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, við fyrirspurn Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. 3.11.2009 09:43
Greiddi 1,6 milljarð í atvinnuleysisbætur Vinnumálastofnun greiddi í gær rúmlega 1,6 milljarða króna í atvinnuleysistryggingar til um 13.100 einstaklinga. Á vef Vinnumálastofnunar kemur hins vegar fram að heildargreiðslur í september voru rétt rúmlega 1.8 milljarður króna og var þá greitt til 15.324 einstaklinga. 3.11.2009 09:35
Garðyrkjubændur mótmæla við Alþingishúsið Íslenskir garðyrkjubændur neyðast til þess að draga verulega úr framleiðslu sinni í vetur og fækka starfsfólki gangi fyrirhugaðar hækkanir á raforkuverði eftir. Í auglýsingu í Fréttablaðinu í dag segja garðyrkjubændur að hækkunin sé rothögg fyrir stéttina og rekstrargrundvöll íslenskrar framleiðslu. Í dag klukkan hálfeitt ætla garðyrkjubændur að mæla með íslenskri garðyrkju fyrir framan Alþingishúsið áður en þingfundur hefst í dag. Landsmenn eru hvattir til að mæta og taka þátt. 3.11.2009 08:51