Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Aprílgabb Vísis Fréttamenn á Visi leggja sig fram um að segja áreiðanlegar og góðar fréttir af málefnum líðandi stundar á hverjum degi. 2.4.2009 10:44
Auka á hlut kvenna í sveitarstjórnum Alþingi hefur ályktað að Ásta R. Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, feli Jafnréttisstofu að hrinda af stað aðgerðum til að efla hlut kvenna í sveitarstjórnum. 2.4.2009 10:35
Auglýsir eftir þingmönnum Lýðræðishreyfingin undir forystu Ástþórs Magnússonar hefur auglýst stöður þingmanna og ráðherra laustar til umsóknar. Í tilkynningu frá hreyfingunni segir að stöðurnar séu auglýstar á vefsíðunni xp.is. Þar kemur einnig fram að launakjör séu frá 600.000 krónum á mánuði auk ýmissa fríðinda. Eftir að hafa árangurslaust reynt að ná sambandi við fólk í atvinnuleit í gegnum atvinnumiðlun Vinnumálastofnunar voru störf á vegum Lýðræðishreyfingarinnar auglýstar á vefnum job.is að því er kemur fram í tilkynningunni. 2.4.2009 09:42
Nýnemum fjölgaði um 70% á tíu árum Nýnemar á háskólastigi á Íslandi voru 3.379 haustið 2007 og hafði fjölgað um 70,7% frá hausti 1997, eftir þvi sem fram kemur í tölum Hagstofunnar. Nýnemar á háskólastigi eru skilgreindir sem þeir 2.4.2009 09:15
Útfararþjónusta grunuð um að stytta lík Lögregla í Suður-Karólínu rannsakar nú hvort útfararþjónusta hafi fjarlægt fótleggina af líki hávaxins manns til að koma því fyrir í kistunni. Rannsóknin á þessum óhugnanlega niðurskurði er byggð á framburði fyrrverandi starfsmanns útfararþjónustunnar en hinn látni var tæpir tveir metrar á hæð og lést úr krabbameini árið 2004. 2.4.2009 08:48
Stefnir í stríð milli Íslands og Bretlands um Rockall svæðið Bretland hefur lagt inn umsókn hjá Sameinuðu þjóðunum um full yfiráð yfir Hatton-Rockall svæðinu í Norður Atlantshafi. Þar með stefni í diplómatískt stríð milli Íslands og Færeyja annarsvegar og Bretlands hinsvegar. Írland átti einnig aðild að samningaviðræðunum. 2.4.2009 08:47
Greiðendum hátekjuskatts fækkar verulega í Bretlandi Þetta er í fyrsta sinn í 20 ár sem þeim skattgreiðendum sem inna þurfa af hendi hátekjuskatt til breskra skattyfirvalda fækkar en þeim hefur fram að þessu fjölgað jafnt og þétt. 2.4.2009 08:08
Netnotkun eykur afköst starfsfólks Niðurstöður rannsóknar á vegum háskólans í Melbourne koma vafalítið sem blaut tuska í andlit vinnuveitenda sem keppst hafa við að loka á notkun ýmiss konar samskipta- og myndskeiðavefja á vinnustaðnum, svo sem Facebook, Twitter og YouTube svo eitthvað sé nefnt. 2.4.2009 07:37
Íbúðaverð hríðfellur á Manhattan Verð íbúða á Manhattan í New York hefur fallið um allt að 16 prósent á fyrsta fjórðungi ársins, að sögn fasteignasala í borginni. Fram að þessu hefur verð fasteigna í þessum hluta borgarinnar verið hátt en á því hefur orðið mikil breyting með auknu atvinnuleysi og stöðugri lækkun hlutabréfa á Wall Street. Atvinnuleysi í New York-borg mælist nú 8,1 prósent og hefur ekki verið meira síðan haustið 2003. 2.4.2009 07:32
Styttist í tilraunaskot N-Kóreumanna Norður-Kóreumenn hafa nú hafist handa við að hlaða langdræga eldflaug eldsneyti, að sögn heimildamanns innan raða Bandaríkjahers. Er nú talið að það styttist í tilraunaskot, sem Norður-Kóreumenn hafa fram að þessu haldið staðfastlega fram að snúist um að koma gervitungli á braut en ekki skjóta upp eldflaug. 2.4.2009 07:28
Mótmælandi varð bráðkvaddur Maður lést í mótmælum nærri seðlabanka Englands í London í gærkvöldi en þar var fjöldi mótmælenda saman kominn í tilefni af G20-fundinum svokallaða. Maðurinn, sem var staddur í hópi mótmælenda, hneig skyndilega niður og kölluðu aðrir mótmælendur til lögreglu. 2.4.2009 07:26
Óttast að 16 hafi látist í þyrluslysi Óttast er að 16 séu látnir eftir að þyrla af gerðinni Super Puma hrapaði í sjóinn skammt undan strönd Skotlands í gær. Þegar hafa tíu lík fundist en sex manns er enn saknað. Þyrlan var á leið frá olíuborpalli með farþegana þegar hún hrapaði og er ekki enn vitað hvað olli slysinu. 2.4.2009 07:21
Lífríki í Varmá að taka við sér Lífríki í Varmá, sem rennur í gegnum Hveragerði og Ölfus, virðist vera að taka við sér eftir mengunarslys þar haustið 2007, þegar klór rann óvart út í ána frá sundlauginni í Hveragerði og olli miklum fiskadauða. 2.4.2009 07:18
Mótmæla friðun hafsvæða Félag hrefnuveiðimanna mótmælir harðlega tillögum Hafrannsóknastofnunar til friðunar hafsvæða fyrir veiðum, vegna hvalaskoðunar á þeim. 2.4.2009 07:10
Reynt að brjótast inn í gróðurhús Gerð var tilraun til að brjótast inn í gróðurhús í Hveragerði í nótt, en styggð virðist hafa komið að þjófunum þegar þeir sáu til ferða öryggisvarða. 2.4.2009 07:08
Gæsluvarðhald vegna íkveikju í Eyjum Tveir ungir karlmenn, sem voru handteknir í Vestmannaeyjum í fyrrinótt, grunaðir um íkveikju, voru í nótt úrskurðaðir í allt að viku gæsluvarðhald í þágu rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru yfirheyrðir í allan gærdag og undir kvöld varð ljóst að lögreglan vildi hafa þá áfram í haldi. 2.4.2009 07:04
Fær loksins að sjá skýrslurnar Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari um bankahrunið, á von á því að verða kominn með skýrslur endurskoðunarfyrirtækjanna um gömlu viðskiptabankana í hendur í dag. Honum hefur hingað til verið neitað um aðgang að þeim vegna bankaleyndar, en í gær tóku gildi breytt lög um embætti hans sem rýmka valdheimildirnar. 2.4.2009 06:15
50 teknir í kannabismálum Lögreglan hefur frá áramótum handtekið nær fimmtíu einstaklinga fyrir kannabisræktun í hinum ýmsu umdæmum landsins. Á höfuðborgarsvæðinu voru 27 manns teknir í síðasta mánuði. 2.4.2009 06:00
Hópnauðgunin í heimahúsi Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu rannsakar enn fimm nauðgunarkærur, sem Fréttablaðið greindi frá um síðustu helgi. Í einu tilvikanna kærði ung kona fjóra karlmenn af erlendum uppruna fyrir nauðgun eða misbeitingu. Það atvik átti sér stað í heimahúsi aðfaranótt laugardagsins 21. mars eftir að konan hafði verið á skemmtistað. Kærurnar fimm bárust til kynferðisbrotadeildar í síðustu viku. 2.4.2009 05:30
Risaurriði strax á fyrsta degi Eftir langt vetrarhlé tóku stangveiðimenn fram búnað sinn í gær og vættu á nokkrum ám og vötnum. Vel aflaðist í Varmá í Hveragerði og sló þannig nokkuð á ótta manna um hrun í fiskstofnum í ánni eftir klórslysið mikla haustið 2007. 2.4.2009 05:30
Segir fyrningarleið ávísun á gjaldþrot Fyrning aflaheimilda sem stjórnarflokkarnir hafa boðað myndi þýða að skuldir sjávarútvegsins upp á 500 milljarða lentu á bönkunum og knésettu þá. Þetta er niðurstaða úttektar sem útgerðarmaður gerði á áhrifum fyrningarleiðar. 2.4.2009 05:15
Egla leitar nauðasamninga Á fundi kröfuhafa í Eglu hf., sem haldinn var í gær, var samþykkt að leita samþykkis kröfuhafa til að fara fram á nauðasamninga. Stjórnin lagði tillöguna fram, en í henni felst að um 15 prósent af kröfum verði greidd á næstu mánuðum. Skuldir fyrirtækisins eru á níunda milljarð króna. 2.4.2009 05:15
Ákvörðun um skatta kynnt í sumarbyrjun Engin ákvörðun hefur verið tekin um sölu ríkisbankanna, segir fjármálaráðherra. Niðurskurður næsta árs vegna fjárlagagatsins verður 35 til 55 milljarðar. Samskipti við Hollendinga og Breta vegna Icesave hafa batnað. 2.4.2009 05:00
Atvinnuhorfur stúdenta hrollvekjandi Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir stefnuleysi ríkjandi í atvinnumálum háskólastúdenta. Háskólaráð krefst þess að boðið verði upp á fjarnám í sumar. Fundað verður um sumarannir í Háskólaráði í dag. 2.4.2009 05:00
Vill að Dagur biðjist afsökunar Dagur B. Eggertsson á að biðjast afsökunar á mistökum R-listans í skipulagsmálum, segir Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi. Hann hafi krafist þessa á fundi borgarstjórnar á þriðjudag, en Dagur engu svarað. 2.4.2009 05:00
Þúsundir deyja á sjó ár hvert Þúsundir sjómanna farast á hverju ári vegna mannlegra mistaka, vanhæfni skipstjórnenda og lélegs skipakosts. Áætlað er að 24 þúsund farist á hverju ári af þeim fimmtán milljónum sem sækja sjó sér til lífsviðurværis. 2.4.2009 05:00
Spúla ræningjum burt Skipverjar norsks flutningaskips vörðust í gærmorgun árásum sómalskra sjóræningja í Aden-flóa. Talsmaður gríska sjóhersins segir að sjóræningjarnir hafi skotið úr byssum á tankskipið Sigloo Tor en norsku skipverjarnir hafi flæmt þá burt með vatnsgusum úr brunaslöngum. Engan sakaði í átökunum. - sh 2.4.2009 05:00
Ljúka fleiri málum með sátt Hægt verður að ljúka fleiri og alvarlegri málum með lögreglustjórasátt eftir að breyting á reglugerðum tók gildi. Breytingin ætti að leiða til þess að álag á dómstóla vegna minni háttar brota verði minna, segir Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari. 2.4.2009 04:45
Sameiningarkosning í apríl Kosið verður um sameiningu Akureyrarbæjar og Grímseyjarhrepps samhliða alþingiskosningunum sem haldnar verða 25. apríl. 2.4.2009 04:30
Bera af sér íslenska banka „Skjólstæðingur minn hefur starfað í meira en 100 ár, er skuldlaus, á yfir níu milljónir punda í bönkum og enginn þeirra er íslenskur,“ segir breskt ráðningarfyrirtæki í auglýsingu eftir framkvæmdastjóra fyrirtækis. Þessa tilvitnun sendi Sigrún Björk Ólafsdóttir Fréttablaðinu. 2.4.2009 04:30
Jafnréttisráð með og á móti Jafnréttisráð fagnar aðgerðaáætlun gegn mansali, stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar um kynjaða hagstjórn og tilkomu Jafnréttisvaktar, segir í tilkynningu. 2.4.2009 04:30
Ákvæði aðildarsamnings jafnvæg sáttmála Ákvæði aðildarsamnings að Evrópusambandinu hafa að Evrópurétti jafnt vægi á við ákvæði sjálfs stofnsáttmála ESB. Þannig er lögformlega ekkert því til fyrirstöðu að samið sé um frávik frá ákvæðum stofnsáttmálans í slíkum aðildarsamningi, til dæmis varðandi sameiginlega sjávarútvegsstefnu ESB. 2.4.2009 04:30
Vilja sumarannir við HÍ Röskva, samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, boðar til setuverkfalls fyrir utan skrifstofu Háskólarektors í dag. Tilgangur setuverkfallsins er að knýja skólayfirvöld til að taka upp sumarannir við skólann. 2.4.2009 04:15
Mýkri afstaða til Palestínu Benjamin Netanyahu, verðandi forsætisráðherra Ísraels, virtist sýna Palestínumönnum meiri sáttahug en áður í ræðu á ráðstefnu um efnahagsmál í Ísrael í gær. Þar hét hann friðarviðræðum við palestínsk stjórnvöld. 2.4.2009 04:15
Bandaríkjamenn í stað Nýsjálendinga Bandaríkjamenn virðast nú eiga greiða leið inn í mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna eftir að Nýsjálendingar ákváðu í gær að draga framboð sitt til baka. Nýsjálensk stjórnvöld telja að Bandaríkin geti haft meiri jákvæð áhrif í nefndinni. 2.4.2009 04:15
Umbrotsmaður laminn til bana Umbrotsmaður á úthverfadagblaði í Moskvu, sem verið hefur gagnrýnið á rússnesk stjórnvöld, lést fyrr í vikunni eftir að hafa verið barinn til óbóta nálægt heimili sínu um liðna helgi. Þetta fullyrðir ritstjóri blaðsins þrátt fyrir að lögregla reki dauðsfallið til matareitrunar. 2.4.2009 04:15
Ruddust inn í Skotlandsbanka Óeirðalögregla tókst á við mótmælendur sem streymdu til Lundúna í gær til að mótmæla fundi tuttugu helstu iðnríkja heims sem fram fer í borginni. 2.4.2009 04:00
Heimsbyggðin standi saman gegn kreppu Barack Obama Bandaríkjaforseti reyndi að stappa stálinu í kreppuhrjáða heimsbyggðina á blaðamannafundi í Lundúnum í gær. Þangað er hann kominn til að sitja fund G20-hópsins svonefnda um aðgerðir gegn kreppunni. 2.4.2009 04:00
Norðmenn and-snúnir Ísrael Ísraelska dagblaðið Jerusalem Post segir að andúðin á gyðingum hafi náð nýjum hæðum í Noregi. Hatrið fari þar stöðugt vaxandi. Í Gasastríðinu í vetur hafi mótmælin gegn Ísraelsmönnum verið áberandi í Ósló, að sögn Dagbladet. 2.4.2009 04:00
Skólanefnd MK vill verklagsreglur vegna barnaklámsmáls Skólanefnd MK harmar þann atburð er upp kom varðandi refsiverða háttsemi eins kennara skólans en kennarinn sem tekinn var með barnaklám hélt áfram kennslu við skólann. Nefndin telur verklagsreglur skorta til að bregðast við máli eins og þessu. 1.4.2009 22:54
Fengu velskt lamb að hætti Jamie Oliver Leiðtogar 20 helstu iðnvelda heims sem dvelja nú í London komu saman í kvöld og snæddu saman. Það var stjörnukokkurinn Jamie Oliver sem grillaði velskt lamb ofan í mannskapinn. 1.4.2009 23:45
Gæsluvarðhalds krafist yfir meintum brennuvörgum í Eyjum Lögreglan í Vestmanneyjum hefur farið fram á að menn grunaðir um íkveikju í nótt verði hnepptir í gæsluvarðhald vegna rannsóknarhagsmuna. Mennirnir hafa verið yfirheyrðir í dag. Þá hafa vitni verið yfirheyrð og brunavettvangur rannsakaður af tæknideild LRH. 1.4.2009 23:07
Líffæragjafar fá fjárhagsaðstoð Alþingi samþykkti í kvöld frumvarp um réttindi líffæragjafa sem tryggir þeim tímabundna fjárhagsaðstoð þegar þeir geta hvorki stundað vinnu né nám vegna líffæragjafar. Samkvæmt frumvarpinu skal greiðsla til þeira nema rúmum 134 þúsund krónum á mánuði. 1.4.2009 22:06
Gleðst yfir verðlækkun á lyfi fyrir MS sjúklinga „Þessi lækkun er mjög jákvæð. Tysabri er alvöru lyfið," segir Sigurbjörg Arngrímsdóttir, formaður MS félagsins, um ákvörðun Lyfjagreiðslunefndar að lækka verð á Tysabri, lyfi fyrir MS sjúklinga, til samræmis við meðalverð á lyfinu í samanburðarlöndunum. Verðlækkunin er að raunvirði um 18,5%. Talsvert hefur verið fjallað um Tysabri undanfarið og aðgengi MS sjúklinga af því. 1.4.2009 21:41
Lítil sprengja fannst á Hengilsvæðinu Sprengjudeild Landhelgisgæslunnar var kölluð út eftir að Neyðarlínunni barst rétt eftir klukkan 18 ábending um torkennilegan hlut sem fannst á Hengilsvæðinu. Um var að ræða riffilhandsprengju frá seinni heimsstyrjöldinni. 1.4.2009 20:42