Innlent

Aprílgabb Vísis

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Engin bjórkynning var í Kringlunni í gær.
Engin bjórkynning var í Kringlunni í gær.
Fréttamenn á Visi leggja sig fram um að segja áreiðanlegar og góðar fréttir af málefnum líðandi stundar á hverjum degi. Í gær háttaði svo til að sagt var frá því að verið væri að kynna nýja bjórtegund í Kringlunni. Rétt er að taka fram að ekki var fótur fyrir þeim upplýsingum sem komu fram í fréttinni. Ástæðan var sú að í gær var 1. apríl og brugðu fréttamenn Visis að leik í tilefni dagsins. Ari Blöndal Eggertsson, verslunarstjóri í Vínbúðinni í Kringlunni, segir að nokkrir viðskiptavinir hafi hlaupið apríl og spurst fyrir um bjórinn.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×