Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Á þriðja tug mótmælir fyrir framan lögreglustöðina Mótmælendur komu saman til mótmæla fyrir utan lögreglustöðina við Hverfisgötuna um hálftvöleytið í dag. Ástæðan fyrir mótmælunum er handtaka hússtökufólksins á Vatnsstíg fyrr í dag. Alls voru 22 handteknir í aðgerðum lögreglunnar sem voru umfangsmiklar. Lögreglan beitti þar vélsög og kúbein til þess að brjóta sér leið upp á aðra hæð hússins við Vatnsstíg. Að sögn lögreglunnar eru á milli 20 - 30 manns fyrir framan lögreglustöðina og fara mótmælin þar friðsamlega fram. 15.4.2009 13:55
Boða til mótmæla fyrir utan lögreglustöðina Stjórnleysingjar hafa boðað til mótmæla fyrir utan lögreglustöðina við Hverfisgötuna en tilkynningar um það má finna á tveim heimasíðum, önnur þeirra er vefritið NEI. 15.4.2009 13:19
Farið yfir lög og reglur um hælisleitendur Ragna Árnadóttir dóms- og kirkjumálaráðherra hefur skipað nefnd til að fara yfir lög og reglur um hælisleitendur í ljósi alþjóðlegra skuldbindinga og dóms Hæstaréttar frá 12. mars síðastliðnum þegar dómurinn felldi úr gildi synjun Útlendingaeftirlitsins á hælisumsókn manns frá Márataníu. 15.4.2009 13:00
Formgallar á tveimur framboðum Yfirkjörstjórnir í öllum kjördæmunum sex vegna komandi alþingiskosninga munu í dag úrskurða hvaða framboðslistar teljist gildir og hvort öðrum listum verði gefinn kostur á að bæta úr ágöllum. Formgallar hafa komið fram á framboðum Borgarahreyfingarinnar og Lýðræðishreyfingarinnar. 15.4.2009 12:28
Stefnt að því að rjúfa þing í dag eða á morgun Stjórnarskipunarfrumvarpið var kallað inn í nefnd á Alþingi í nótt þótt annarri umræðu um málið væri ekki lokið, til að freista þess að ná samkomulagi við Sjálfstæðisflokinn um afgreiðslu málsins. Átján mál eru á málaskrá þingsins í dag, sem forseti Alþingis vonast til að hægt verði að afgreiða sem lög áður en dagurinn er liðinn. 15.4.2009 12:21
Rónarnir skárri en stjórnleysingjarnir- MYNDIR „Það er enginn frjáls!" öskraði einn mótmælandanna út um gluggann á annarri hæð á Vatnsstíg í morgun. Á sama tíma mátti sjá sérsveitarmenn á hæðinni fyrir neðan vopnaðir skjöldum. Mótmælendur voru búnir að stífla þröngan stiga upp á aðra hæð, það var svo illmögulegt að komast upp að lögreglan notaðist við vélsagir og kúbein. 15.4.2009 11:39
Eva Joly fullkomlega vanhæf Eva Joly er fullkomlega vanhæf til að koma að rannsókn sérstaks saksóknara. Þetta segir Brynjar Níelsson, hæstaréttarlögmaður. Brynjar Níelsson, hæstaréttarlögmaður, vekur máls á rannsókn bankahrunsins í grein í Morgunblaðinu í dag. Þar segir hann að í kjölfar bankahrunsins virðist sem flestum þyki eðlilegt að lýsa því yfir opinberlega að stjórnendur fjármálafyrirtækja og svokallaðir auðmenn séu glæpamenn. 15.4.2009 11:10
Alls 22 handteknir á Vatnsstíg Sextán mótmælendur voru handteknir í aðgerðum lögreglu á Vatnsstíg í morgun og hafa þá alls 22 verið teknir. 15.4.2009 11:01
MMR könnun: Fylgið stendur í stað Samfylkingin mælist með 29,8% fylgi samkvæmt nýrri könnun MMR sem gerð var dagana 6. - 14. apríl. 15.4.2009 10:27
Blaðamanni meinaður aðgangur að svæðinu Haukur Már Helgason ritstjóri dagblaðsins Nei var meinuð aðganga að svæðinu við Vatnsstíg þar sem hann er ekki með blaðamannaskirteini útgefið af Blaðamannafélagi Íslands. 15.4.2009 10:06
Meina lögreglu útgöngu Hópur fólks sem fylgist með aðgerðum lögreglu hefur virst meina lögreglu útgöngu þegar hún hugðist aka burtu með hústökufólk sem hún hafði handtekið. 15.4.2009 10:03
Lögregla braust upp á efstu hæð - fimmtán handteknir Lögreglumenn hafa brotist upp á efstu hæð hússins við Vatnsstíg þar sem hústökufólk hafði komið sér fyrir. Fólkið segir húsið hafa verið mannlaust og því geti það allt eins notað það sem félagsmiðstöð. Lögregla hóf í morgun aðgerðir til þess að reka fólkið út á grundvelli kæru frá eiganda hússins. Fimmtán hafa verið handteknir. 15.4.2009 09:50
Peningadrusluaumingjar! - við komum aftur! „Peningadrusluaumingjar! Þið getið bara hætt og farið. Við komum bara aftur og aftur.“. Þetta sagði einn hústökumanna við Vatnsstíg nú fyrir stundu þar sem lögreglan er við það að brjóta sér leið inn í húsið. „Við komum hingað til að gefa húsinu líf og svona komið þið fram við okkur,“ kallaði annar hústökumaður út um glugga á efri hæð hússins. 15.4.2009 09:37
Fagráð vill séra Gunnar ekki til baka Fagráð um kynferðisbrot innan þjóðkirkjunnar er mótfallið því að séra Gunnar Björnsson sóknarprestur í Selfossprestakalli snúi aftur til starfa í kjölfar þess að hann var sýknaður af ásökunum um kynferðisbrot. 15.4.2009 08:54
Námskeið í neytendarétti hjá NS Neytendasamtökin standa á morgun fyrir námskeiði í heimilisbókhaldi og neytendarétti. Um er að ræða kennslu í heimilisbókhaldi og áætlanagerð auk þess sem farið verður yfir réttindi og skyldur neytenda. 15.4.2009 08:35
Rod Blagojevich í raunveruleikaþátt hjá NBC Rod Blagojevich, fyrrum ríkisstjóri Illinois, þurfti ekki að búa við atvinnuleysi lengi. Blagojevich vann sér það til frægðar í fyrra að ætla að falbjóða öldungadeildarþingsæti Baracks Obama í Illinois þegar hinn síðarnefndi hyrfi til annarra starfa. 15.4.2009 08:20
Húsið við Vatnsstíg rýmt - tugir lögreglumanna í aðgerðinni Lögregla hefur látið til skarar skríða gegn hústökumönnum við Vatnsstíg og eru tugir lögreglumanna á staðnum. Að sögn varðstjóra er búið að handtaka nokkra einstaklinga en hústökufólkið hefur vígbúist í húsinu og hyggst ekki hverfa á braut átakalaust. 15.4.2009 08:10
Hált á Holtavörðuheiði og víðar Á Vesturlandi eru hálkublettir í Svínadal en hálka á Holtavörðuheiði og á Laxárdalsheiði. Á Vestfjörðum eru hálkublettir á örfáum köflum en snjóþekja á Steingrímsfjarðarheiði. Vonast er til að Hrafnseyrarheiði verði fær fyrir hádegi. 15.4.2009 07:29
Flykkjast í ófrjósemisaðgerðir í kreppunni Bandaríkjamenn gangast nú undir ófrjósemisaðgerðir sem aldrei fyrr. Frá þessu er greint í New York Times og segjast sérfræðingar sem þar er rætt við sjá glöggan svip með ástandinu sem ríkti í kreppunni miklu á fjórða áratug síðustu aldar en þá hafi fæðingartíðni snarlækkað í Bandaríkjunum. 15.4.2009 07:19
Stakk starfsmann vinnumiðlunar Starfsmaður atvinnumiðlunar í Árósum í Danmörku var stunginn í miðju viðtali við viðskiptavin í gær. Starfsmaðurinn, tæplega fimmtug kona, var að taka niður upplýsingar um rúmlega fertugan viðskiptavin þegar sá síðarnefndi dró upp hníf og stakk hana rétt neðan við vinstri handlegg. 15.4.2009 07:15
Lík fannst á fimm stöðum í Bretlandi Hnífstunga í bakið var dánarorsök manns sem hafði verið svo grátt leikinn að lík hans fannst í bútum á fimm stöðum, með allt að 150 kílómetra millibili, í Hertfordskíri í Bretlandi í lok mars. 15.4.2009 07:12
Heitasti dagur ársins í London Lundúnarbúar mega búast við hlýrra veðri en íbúar Tenerife og Barcelona á Spáni í dag en gert er ráð fyrir að hitastigið verði allt að 21 gráða í suður- og austurhluta Bretlands og að heitasti dagur ársins fram að þessu sé runninn upp. 15.4.2009 07:10
Friður og forvarnir framar handtökum Lögreglan ætti fremur að einbeita sér að því að koma á og halda friði í samfélaginu, frekar en að framkvæma sem flestar handtökur. Þetta segir lögreglustjóri og fyrrum aðstoðardómari í Glósturskíri í Bretlandi. 15.4.2009 07:07
Hælisleitendur mótmæla við Alþingishúsið Hópur mótmælenda ætlar frá deginum í dag að taka sér stöðu fyrir framan Alþingi til þess að vekja athygli á stöðu hælisleitenda hér á landi. Flestir þeirra sem ætla að mótmæla eru sjálfir í stöðu hælisleitenda. 15.4.2009 06:47
Erum alvöru afl „Ég er hrærður og þakklátur. Þetta mikla fylgi sem mælist með okkur í tveimur könnunum á sama degi hefur komið af sjálfu sér. Við erum rétt að byrja. Úr því að þetta fer svona af stað þá finnst mér líklegt að við eigum eftir að bæta við okkur,“ segir Þráinn Bertelsson, fyrsti maður í Reykjavíkurkjördæmi norður. 15.4.2009 04:00
Góð vísbending „Þetta er ánægjuleg vísbending og reynslan kennir manni að hafa verður fyrir hlutunum og heyja kosningabaráttu af krafti fram á síðasta dag,“ segir Dagur B. Eggertsson, varaformaður Samfylkingarinnar. 15.4.2009 04:00
Tengdir fasteignum, fiski og fjármálum Flest hlutafélög sem alþingismenn tengjast beint starfa í fasteignaviðskiptum, fjármálaþjónustu eða fiskeldi og fiskveiðum samkvæmt svokallaðri ÍSAT-skráningu. Þetta kemur fram í skýrslu sem Creditinfo gerði fyrir Fréttablaðið um þátttöku þingmanna í atvinnulífinu og vitnað var til í blaðinu í gær. 15.4.2009 03:45
Ísland-Palestína: Össur heiðursgestur á aðalfundi Félagið Ísland-Palestína boðar til aðalfundar í Norræna húsinu miðvikudag 15. apríl kl. 20. Í upphafi aðalfundar mun Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra flytja stutt ávarp en hann er heiðursgestur fundarins. 14.4.2009 23:28
Kastró jákvæður í garð Bandaríkjamanna Fyrrum forseti Kúbu, Fídel Kastró, segir að hugmyndir Bandaríkjamanna um að aflétta ferðatakmörkunum og takmörkunum á fjármagnsflutningum til Kúbu séu jákvæðar, en lítilvægar. 14.4.2009 21:11
Sagði Sigmund grínista ársins Ástþór Magnússon frá Lýðræðishreyfingunni sagði að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins ætti að fá verðlaun fyrir að vera grínisti ársins. Þessi orð lét Ástþór falla eftir að Sigmundur sagði Framsóknarflokkinn allataf hafa verið á móti stríði. Rætt var um aðkomu Íslands að stríðsrekstri á Borgarafundi í beinni útsendingu á Rúv. 14.4.2009 20:59
Oddvitar allra flokka vilja afnema bankaleynd Oddvitar allra flokka í Reykjavíkurkjördæmi norður eru sammála um að afnema eigi bankaleynd hér á landi. Þetta kom fram á opnum Borgarafundi sem nú er í beinni útsendingu í Sjónvarpinu. Illugi Gunnarsson oddviti Sjálfstæðismanna segir þó að hér verði að vera réttarríki. 14.4.2009 20:15
Pakistanar afsala sér yfirráðum yfir héraði til Talibana Ríkisstjórn Pakistans hefur afsalað sér yfirráðum yfir fjölmennu héraði í landinu í hendur Talibana. Óttast er að það sé aðeins byrjunin á yfirráðum þeirra. 14.4.2009 20:00
Röskva fagnar úrræðum ríkisstjórnarinnar Röskva, fagnar þeim úrræðum sem ríkisstjórnin hefur kynnt til að fyrirbyggja atvinnuleysi meðal stúdenta í sumar. Röskva lýsir yfir ánægju með að ríkisstjórnin hafi sýnt það í verki að hún situr ekki aðgerðarlaus og orðið við kröfum stúdenta, sem hafa verið uppi lengi en orðið æ háværari á undanförnum vikum. 14.4.2009 19:53
Eigandi Vatnsstígsins: Hústökufólkið er þarna á mína ábyrgð Ágúst Friðgeirsson eigandi Vatnsstígs fjögur þar sem hópur fólks hefur sest að í dag segir fólkið vera þar á sína ábyrgð. Húsið er rafmagnslaust og vatnslaust og því getur skapast mikil eldhætta þar inni. Hann segir að til standi að rífa húsið en hann þurfti að loka því fyrir skömmu vegna kakkalakka sem höfðu sest þar að. Ágúst hefur áður þurft að hafa afskipti af forsprakka hópsins sem hefur sest að í húsinu við hliðina á, sem einnig er í eigu Ágústar. 14.4.2009 19:38
Ákvæði um stjórnlagaþing fellt út Stjórnarflokkarnir og Framsóknarflokkurinn létu undan hótunum Sjálfstæðismanna um að tala um stjórnarskrána fram að kosningum og féllust á að fella ákvæði um stjórnlagaþing út úr stjórnlagafrumvarpinu á Alþingi í dag. 14.4.2009 18:54
Hústökufólk á Vatnsstíg Um 200 manns höfðu komið sér fyrir innandyra og utan við mannlaust hús við Vatnsstíg og neituðu að yfirgefa það síðdegis þrátt fyrir tilmæli eigenda. Óskað hefur verið eftir aðstoð lögreglu við að fjarlægja hústökufólkið. 14.4.2009 18:50
Dregur úr fjárframlögum ríkisins til Sjálfstæðisflokksins Viðbúið er að stórlega dragi úr framlögum ríkisins til sjálfstæðisflokksins, missi hann jafn mikið fylgi og kannanir hafa sýnt. Sjálfstæðismenn segja þetta verða högg fyrir flokkinn. 14.4.2009 18:35
Betra hefði verið að taka ekki við styrkjunum árið 2006 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, segir að styrkir til flokksins frá fjársterkum fyrirtækjum árið 2006 hafi verið óeðlilegir eftir á að hyggja. Betra hefði verið að taka ekki við þeim. Á sínum tíma hafi það hins vegar horft öðruvísi við. 14.4.2009 18:30
Lithái í gæsluvarðhald - rauf farbann Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir litháískum karlmanni í síðustu viku. Maðurinn var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir líkamsárás og rán í Reykjavík. Maðurinn sat í gæsluvarðhaldi vegna málsins frá 14.-17.október á síðasta ári en farbanni vegna þess frá 12.febrúar. 14.4.2009 18:06
UVG: Fagna sumarönnum í háskólum Ung vinstri græn fagna skjótum viðbrögðum og vasklegri framgöngu menntamálaráðherra Katrínar Jakobsdóttur við kröfum námsmanna um sumarnám í háskólum. 14.4.2009 17:08
Meirihlutinn í Grindavík starfar áfram út kjörtímabilið Bæjarfulltrúar B og S lista í Grindavík hafa sammælst um að halda samstarfi áfram út kjörtímabilið. Flokkarnir eru sammála um að ráða Maggý Hrönn Hermannsdóttur í starf skólastjóra Hópsskóla. Skólastarf mun hefjast í janúar 2010. 14.4.2009 16:21
Sjálfstæðisflokkurinn tapar tveimur þingmönnum í RN Sjálfstæðisflokkurinn fengi einungis tvo kjördæmakjörna þingmenn í Reykjavíkurkjördæmi norður, samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Ríkisútvarpið. 14.4.2009 16:07
Góður gangur á kolmunnaveiðunum yfir páskana Kolmunnaveiðar skipa HB Granda gengu vel um páskana að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar, deildarstjóra uppsjávarsviðs félagsins. 14.4.2009 15:59
Segir heiður Alþingis í húfi Umræður um stjórnskipunarfrumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra héldu áfram á Alþingi í dag. Helst var deilt um þá hugmynd að setja á fót stjórnlagaþing til að endurskoða stjórnarskrána. 14.4.2009 15:34
Ákærð fyrir að stela 35 milljónum króna undan skatti Ríkislögreglustjóri hefur ákært par á sjötugsaldri sem grunur leikur á að hafi haldið undan virðisaukaskatti og staðgreiðslu opinberra gjalda samtals að upphæð 35 milljónum króna. Þá er parið grunað um að hafa ekki skilað virðisaukaskattskýrslum og skilagreinum vegna staðgreiðslu opinberra gjalda. Meint brot eru talin hafa átt sér stað á seinni hluta ársins 2007 og á fyrri hluta ársins 2008. 14.4.2009 15:16