Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Meirihlutaslit: Svekkjandi ef þetta endar svona „Mér finnst það fulllangt gengið í pólitísku harki að menn fái ekki að sækja um störf," segir Garðar Páll Vignisson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Grindavík og forseti bæjarstjórnar. Framsóknarmenn slitu formlega samstarfi flokkanna með bréfi sem þeir sendu Samfylkingunni í gær. 14.4.2009 12:17
Ríkisstjórnin kemur til móts við námsmenn Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að auka eigið fé Lánasjóðs íslenskra námsmanna um 600 milljónir króna til þess að koma til móts við þá námsmenn sem sáu annars fram á atvinnuleysi. Katrín Jakobsdóttir mun í dag ræða við stjórnendur Háskóla Íslands um hvernig málum verður háttað. 14.4.2009 12:03
Vilhjálmur vill rannsókn á viðræðum OR við Geysi Green Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi og fyrrverandi borgarstjóri í Reykjavík hefur óskað eftir því að innri endurskoðun Reykjavíkurborgar fari yfir samningaferlið þegar Orkuveita Reykjavíkur og FL Group ásamt Geysir Green Energy ræddu fyrirhugaða sameiningu félaganna í borgarstjóratíð Vilhjálms. 14.4.2009 12:02
Sr. Gunnar fær ekki að ferma Biskupsstofa hefur ákveðið í samráði við sr. Gunnar Björnsson, sóknarprest í Selfossprestakalli, að hann taki við embætti sínu 1. júní en ekki 1. maí eins og áður hafði verið tilkynnt. Settur sóknarprestur, sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson, mun þjóna prestakallinu út maí og annast fermingar sem áformaðar eru í maí. 14.4.2009 11:32
Röskva kallar eftir viðbrögðum ríkisstjórnarinnar „Stúdentum við Háskóla Íslands virðist hrunið rétt að hefjast. Þúsundir þeirra sjá fram á atvinnu - og jafnvel tekjuleysi í sumar en ríkisstjórnin er tvístígandi og frestar í sífellu ákvörðun. Örvænting grípur um sig meðal stúdenta sem margir hverjir hafa fjölskyldur á sínu framfæri og afborganir 14.4.2009 11:12
Ólíklegt að Ríkisendurskoðun geti skoðað mál Guðlaugs Vafi leikur á því hvort Ríkisendurskoðun sé heimilt að taka út störf Guðlaugs Þórs Þórðarsonar alþingismanns þann tíma sem hann starfaði sem stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur. Í yfirlýsingu sem Guðlaugur Þór sendi frá sér í gær sagðist hann ætla að fara þess á leit við stofnunina að hún tæki störf sín út. 14.4.2009 10:43
Meirihlutinn í Grindavík sprunginn „Hún er bara sprungin," sagði bæjarfulltrúi sjálfstæðismanna í Grindavík, Sigmar Eðvarsson, um stöðu meirihluta bæjarstjórnar í bænum. Svo virðist sem meirihlutinn, sem samanstóð af Framsóknarflokknum og Samfylkingunni, sé einfaldlega sprunginn. 14.4.2009 09:58
Framboðsfrestur rennur út á hádegi Frestur til að skila inn framboðum vegna kosninga til Alþingis, sem fram fara annan laugardag, rennur út á hádegi í dag. Fresturinn var framlengdur samkvæmt bráðabirgðaákvæði laga sem samþykkt voru á Alþingi í síðasta mánuði. Fresturinn var 15 dagar samkvæmt eldri lögum um kosningar til Alþingis en í dag eru hins vegar 11 dagar til kosninga. 14.4.2009 09:43
Lenti þotu eftir að flugmaður varð bráðkvaddur Flugumsjónarmenn í Flórída kalla það kraftaverk að farþegi um borð í skrúfuþotu af gerðinni Super King Air skyldi ná stjórn á vélinni og ná að lenda henni slysalaust eftir að flugmaðurinn varð bráðkvaddur á leið til Jackson í Mississippi á páskadag. 14.4.2009 08:46
Elsta klámstjarna Japans aldrei sprækari Shigeo Tokuda er 75 ára gamall. Hann kallar þó ekki allt ömmu sína og lét þennan virðulega aldur og nokkur grá hár ekki aftra sér frá því að hefja tökur á nýrri klámmynd um páskana. 14.4.2009 08:18
Kyrrð kemst á í Taílandi Stjórnarandstæðingar í Taílandi hafa nú haft sig á brott af lóð stjórnarráðs landsins þar sem þeir hafa setið um skrifstofu forsætisráðherra landsins vikum saman. 14.4.2009 08:09
Sá íbúðina sína í rúst á Facebook Carolyn Lorimer leigði ungu pari íbúðina sína í Folkstone í Kent og hafði ekki frekari áhyggjur af málinu. Leigjendunum kynntist hún gegnum leigumiðlun þar í bænum sem sagði þau hið grandvarasta fólk, ráðvant og ráðdeildarsamt. 14.4.2009 07:23
Norður-Kóreumenn hætta öllum kjarnorkuviðræðum Norður-Kóreumenn segjast munu draga sig út úr viðræðum um að hætta við kjarnorkuáætlun sína eftir að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmdi eldflaugarskot þeirra í síðustu viku sem haldið var fram að væri gervitungl. 14.4.2009 07:20
Demantaþjófur beitir dáleiðslu Indverskum svikahrappi tókst að stela demantshálsmenum og -armböndum að verðmæti rúmlega 20 milljónir króna með því að dáleiða starfsmann skartgripaverslunar. 14.4.2009 07:16
Kynmök á kolólöglegum hraða Norskt par var stöðvað og á yfir höfði sér himinháar sektir, ekki eingöngu fyrir að aka á rúmlega 130 kílómetra hraða á þjóðvegi rétt utan við Ósló heldur einnig fyrir að stunda kynmök meðan á akstrinum stóð. 14.4.2009 07:13
Hugðust skemma raforkuver Rúmlega eitt hundrað manns eru í haldi lögreglu í Nottinghamskíri í Bretlandi, grunaðir um að hafa lagt á ráðin um að fremja skemmdarverk á einu stærsta raforkuveri landsins um helgina. 14.4.2009 07:09
Tveir teknir á ofsahraða Tveir ökumenn voru stöðvaðir í gærkvöldi í umdæmi Selfosslögreglu grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar þeirra var hraðamældur og reyndist hann á 162 kílómetra hraða. 14.4.2009 06:51
Par handtekið í Leifsstöð með dóp innvortis Lögreglan á Suðurnesjum handtók á páskadag tvo aðila vegna gruns um innflutning fíkniefna en tollgæslan á Keflavíkurflugvelli hafði stöðvað fólkið við komuna til landsins. 14.4.2009 06:49
Kjartan lagði að Geir að afþakka styrkina Geir H. Haarde tók einn ákvörðun um að þiggja boð til Sjálfstæðisflokksins um háa fjárstyrki frá FL Group og Landsbankanum seint á árinu 2006. Hann taldi nauðsynlegt að veita styrkjunum viðtöku til að rétta fjárhag flokksins af. 14.4.2009 05:00
Stefnir í nokkurra vikna sumarþing Guðbjartur Hannesson, forseti Alþingis, segir að sumarþing, að loknum kosningum, standi væntanlega í einhverjar vikur. Á því verði hægt að fjalla um og afgreiða mál sem hugsanlega dagi uppi nú. Í þeim efnum horfir hann fyrst og fremst til þingmannamála. 14.4.2009 04:30
Þingmenn tengdir minnst 55 félögum Fimmtán alþingismenn áttu að öllu leyti eða að hluta minnst sautján fyrirtæki í árslok 2007. Þetta kemur fram í skýrslu sem Creditinfo Ísland vann fyrir Fréttablaðið. 14.4.2009 04:00
Þingfundi frestað tvisvar Þingfundi sem átti að hefjast klukkan 17:30 var frestað til klukkan 17:45. Forseti Alþingis frestaði hinsvegar þingfundi aftur til klukkan 18:15. Nokkur mál eru á dagskrá þingsins og má þar nefna endurskipulagningu þjóðhagslega mikilvægra atvinnufyrirtækja. 14.4.2009 03:00
Hyggst aflétta ferðatakmörkunum til Kúbu Barack Obama forseti Bandaríkjanna sagði í dag að ríkisstjórn sín muni á næstunni taka skref í átt að frekar afléttingu á ferðatakmörkunum til Kúbu. Þannig verður þeim sem búsettir eru í Bandaríkjunum gert kleift að heimsækja ættmenni sín oftar og auðveldar en áður. Einnig verður fólki leyft að senda meira fé til Kúbu en áður hefur mátt. 13.4.2009 20:02
Vill að Ríkisendurskoðun taki út störf sín Guðlaugur Þór Þórðarson ætlar að fara þess á leit við Ríkisendurskoðun að hún taki út störf sín sem stjórnarformaður Orkuveitur Reykjavíkur. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Guðlaugur Þór sendi Fréttastofu Sjónvarpsins í kvöld. 13.4.2009 19:15
Herinn hafði betur eftir tólf klukkustunda blóðuga bardaga Þúsundir Tælenskra hermanna hröktu í dag mótmælendur af götum Bangkok eftir tólf klukkustunda blóðuga bardaga. Fjölmörg lönd hafa varað þegna sína við að ferðast til Tælands. 13.4.2009 18:57
FL styrkur vekur upp spurningar um mútur Styrkur FL-Group til Sjálfstæðisflokksins vekur upp spurningar um mútur að mati Svandísar Svavarsdóttur sem sat í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur í REI-málinu. 13.4.2009 18:49
Höfðu forgöngu eða vitneskju um milljónastyrki Fyrrverandi formenn Samfylkingarinnar höfðu forgöngu eða vitneskju um marga milljónastyrki sem flokkurinn fékk frá bönkum og eigendum þeirra árið 2006. Fyrrverandi samstarfsflokkur þeirra þáði einnig tugi milljóna í styrki frá bönkum og eigendum þeirra þetta sama ár. 13.4.2009 18:38
Stormsker í miðjum óeirðum í Bangkok Tónlistarmaðurinn Sverrir Stormsker er staddur í Bangkok í Tælandi þar sem óeirðir hafa staðið yfir síðustu daga. Herinn beitti meðal annars hríðskotabyssum í morgun. Stormsker sem staddur var á kaffihúsi í morgun segist hafa séð nokkrar rútur sprengdar í loft upp og nokkra bíla og byggingar standa í frektar björtu báli. Hann segist þó ekki hafa nokkrar áhyggjur af þessu þar sem tælenskir karlar séu frekar latir. Þeir vilji helst dytta að mótorhjólunum sínum og fara í kynskiptiaðgerðir og hafa það „næs“. 13.4.2009 16:40
Borgarahreyfingin býður fram í öllum kjördæmum Borgarahreyfingin - þjóðin á þing, hefur lokað framboðslistum allra sex kjördæma landsins og mun því bjóða fram á landsvísu í komandi Alþingiskosningum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum í dag. Þar segir að listarnir séu settir fram að því gefnu að ekki verði mögulegt að bjóða fram óraðaða lista eins og Borgarahreyfingin hefur stefnt að. Það velti hinsvegar á ríkisstjórninni hvort það verði mögulegt. 13.4.2009 18:05
Sofnaði undir stýri og ók á ljósastaur Umferðaróhapp varð á Sandgerðisveg um kl. 08:00 í morgun. Þar hafði ökumaður sofnað undir sýri og farið yfir á öfugan vegarhelming og hafnaði þar á ljósastaur. Engin slys urðu á fólki og bifreiðin er ekki mikið skemmd. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á suðurnesjum. 13.4.2009 16:47
Umferðin farin að þyngjast Umferð er farin að þyngjast til höfuðborgarinnar enda margir á faraldsfæti um helgina. Í gjaldskýli Spalar við Hvalfjarðargöng fengust þær upplýsingar fyrir skömmu að umferðin væri þó enn vel viðráðanleg og engar raðir teknar að myndast. 13.4.2009 14:58
Segir ofurstyrkina styðja málflutning sinn í borgarstjórn Ólafur F Magnússon borgarfulltrúi fagnar því að komið hafi í ljós hverjir helstu styrktaraðilar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins séu. Hann segir þetta styðja í einu og öllu sinn málflutning í borgarstjórn Reykjavíkur. Hann segist ætla að krefjast þess að Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri svari því til hvort Landsbankinn hafi styrkt hana í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. 13.4.2009 14:48
Þrjú þúsund manns í Bláfjöllum Um þrjú þúsund manns hafa rennt sér á skíðum í Bláfjöllum í dag. Magnús Árnason, framkvæmdastjóri skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, segir dásamlegt veður á svæðinu, fjögurra stiga hiti sé og logn. Góð stemming sé á svæðinu líkt og í Skálafelli en báðir staðirnir eru opnir til klukkan fimm í dag. 13.4.2009 14:02
Segir Brown ekki þurfa að afsaka tölvupósta fyrrum ráðgjafa Gordon Brown þarf ekki að biðjast afsökunar á tölvupóstsendingum Damian McBride fyrrum ráðgjafa síns að mati Alan Johnson heilbrigðisráðherra landsins. Hann segir menn eiga að biðjast afsökunar á því sem þeir beri ábyrgð á og þetta hafi ekkert með Gordon Brown að gera. 13.4.2009 13:37
Talibanar færa sig upp á skaftið í Pakistan Talibanar eru að herða tök sín í dal sem þeir hertóku í síðustu viku. Dalurinn er aðeins um 100 kílómetra frá höfuðborginni Islamabad. 13.4.2009 12:08
Hríðskotarifflum beitt í Bangkok í morgun Hríðskotarifflum var beitt í Bangkok á Tælandi í morgun þegar herinn lét til skarar skríða gegn mótmælendum sem vilja forsætisráðherra landsins frá völdum. Fjöldi ferðamanna hefur afpantað ferðir sínar til landsins. 13.4.2009 12:04
Á ofshraða með stúlku í fanginu Ungur ökumaður missti ökuskírteinið í Noregi um helgina fyrir að aka á alltof miklum hraða. Lögreglumenn veittu honum eftirför þegar hann mældist á 123 kílómetra hraða. Lögreglumennirnir sáu þá fljótlega að það var ekki bara bíllinn sem var á fullri ferð, heldur parið sem var í honum líka. 13.4.2009 11:27
Sérsveitarmenn skutu sómalska sjóræningja Bandarískir og franskir sérsveitarmenn létu til skarar skríða gegn sómölskum sjóræningjum um helgina. Bandarísku sérsveitarmennirnir skutu til bana þrjá af fjórum sjóræningjum sem héldu bandarískum skipstjóra í gíslingu. Skipstjórinn slapp ómeiddur. 13.4.2009 10:12
Fráleitt að draga Kjartan Gunnarsson inn í málið Bjarni Benediktsson formaður sjálfstæðisflokksins segir fráleitt að draga nafn Kjartans Gunnarsson inni í umræðu um umdeilda styrki sem Sjálfstæðisflokkurinn fékk í lok árs 2006. 13.4.2009 10:10
Líkamsárás á Suðureyri Lögreglan á Ísafirði fékk tilkynningu um líkamsárás á Suðureyri um klukkan hálf tvö í nótt. Karlmaður gekk í skrokk á konu en að sögn lögreglu voru áverkar minniháttar. Konan, sem er á þrítugsaldri, hefur ekki lagt fram kæru í málinu. 13.4.2009 09:59
Tuttugu og einn lét lífið í bruna í Póllandi Að minnsta kosti tuttugu og einn lét lífið þegar athvarf fyrir heimilislausa brann til grunna í norðvesturhluta Póllands í nótt. Margir eru slasaðir eftir að hafa stokkið út um glugga til að bjarga sér frá eldinum. 13.4.2009 09:53
Frábært skíðaveður í dag Það er logn og heiðskírt á Siglufirði í dag og fínasta skíðafæri. Skíðasvæðið verður opið frá klukkan 10:00 til 16:00 til fjögur. Í dag er einnig opið í Bláfjöllum og Skálafelli frá klukkan 10:00 til 17:00. Á báðum stöðum er einstaklega gott veður, sól og hiti. Í tilkynningu frá skíðasvæðunum segir að þetta sé flottasti dagurinn af páskahelginni og um að gera að skella sér í fjöllin, þó ekki væri nema bara til að njóta útiverunnar. 13.4.2009 09:41
Brauðmolum kastað til lýðsins Hagsmunasamtök heimilanna mótmæla harðlega þeirri ákvörðun stjórnvalda og fjármálafyrirtækja að sniðganga með öllu sanngjarnar og hóflegar tillögur samtakanna um leiðréttingu gengis- og verðtryggðra fasteignalána. Að sama skapi mótmæla samtökin þeim ólýðræðislegu vinnubrögðum sem liggja til grundvallar samkomulagi stjórnvalda og fjármálafyrirtækja. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Hagsmunasamtökum heimilanna. 13.4.2009 09:25
Sprengingar við Valhöll Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um flugelda rétt fyrir tvö leytið í nótt. Sá sem hafði samband við lögreglu sagði sprengignarnar koma frá Háaleitsbraut en þegar lögregla kom á svæðið var ekkert að sjá. 13.4.2009 09:11
Vilja hefja friðarviðræður Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, og Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, ræddu saman símleiðis í gær að frumkvæði Abbas. Þetta var fyrsta samtal leiðtoganna frá því að Netanyahu tók við sem forsætisráðherra 31. mars. Talsamaður forsætisráðherrans segir að um vinalegt símtal hafi verið ræða. 13.4.2009 08:00