Fleiri fréttir

Gömlu kempurnar töpuðu

Stjörnulið fyrrum landsliðsmanna tapaði 3-1 fyrir „yngri“ landsliðsmönnum (A og B) í Vodafonehöllinn í dag. Sannkallaður stórleikur fór þar fram en margir af okkar bestu knatspyrnumönnum í gegnum tíðina reimuðu á sig skóna. Leikurinn var haldinn í tilefni opnunar átaksins Karlmenn og Krabbamein sem Krabbameinsfélagið stendur fyrir.

Forseti Íslands á setningarhátíð Búnaðarþings

Búnaðarþing var sett klukkan hálftvö í Bændahöllinni við Hagatorg. „Treystum á landbúnaðinn" er yfirskrift setningarhátíðarinnar en Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, setti þingið og nýr landbúnaðarráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, ávarpaði samkomuna. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson var einnig viðstaddur setninguna.

Greinir á um túlkun á ákvæði stjórnarsáttmálans

Oddvita ríkisstjórnarinnar, þau Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingrím J. Sigfússon, formann Vinstri grænna, greinir á um túlkun á ákvæði stjórnarsáttmálans um engin ný áform um álver.

Þyrlan lenti með þær slösuðu í Reykjavík

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ, lenti við Borgarspítalann um hálfþrjúleytið með tvær erlendar konur, sem slösuðust þegar bíll valt út af hringveginum á Breiðamerkursandi.

Hugmyndir Framsóknar kosta 1200 milljarða

Hugmyndir Framóknarflokksins um tuttugu prósenta niðurfærslu á öllum skuldum kosta 1200 milljarða króna. Þetta sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Steingrímur sagðist hafa minnisblað með þessum tölum og spurði hver ætti að borga brúsann.

Seðlabankastjóri hefði átt að bregðast við ástandinu - ekki bara vara við því

Jón Baldvin Hannibalsson segir að seðlabankastjóri hafi ekki bara átt að vara við efnahagsástandinu heldur hafi hann átt að bregðast við því. Ef hann hafi ekki haft tækifæri til þess hafi forsætisráðherra eða formenn ríkisstjórnarflokkanna að gera svo. Hann segir viðvaranirnar ekki hafa vantað því allt frá árinu 2006 hafi menn sagt að hættuástand væri framundan og það væri tímaspursmál hvenær kerfið myndi hrynja. Hann segist vera að bjóða sig fram til Alþingis út af evrópumálum.

Kona með tvö móðurlíf eignast tvíbura

Tuttugu og eins árs bandarísk kona með tvö móðurlíf eignaðist á fimmtudaginn tvíburastúlkur, hvora úr sínu móðurlífinu. Stúlkurnar voru teknar með keisaraskurði sjö vikum fyrir tímann á sjúkrahúsin í Michigan ríki.

Þingmenn VG styðja ekki frumvarp um álver í Helguvík

Þingmenn VG munu ekki styðja frumvarp Iðnaðarráðherra varðandi uppbyggingu álvers í Helguvík. Þetta kom fram í máli Steingríms J. Sigfússonar á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Steingrímur sagði að umrætt frumvarp væri arfur fyrrverandi ríkisstjórnar og snéri að bindandi samningum iðnaðarráðherra. Hann sagði ekki liggja fyrir hvort þingmenn VG myndu greiða atkvæði gegn frumvarpinu eða sitja hjá.

Sjálfstæðisflokkurinn: Stefnan brást ekki - heldur fólkið

Endurreisnarnefnd Sjálfstæðisflokksins hefur sent frá sér drög að skýrslu sem ber heitið, Hvað átti Sjálfstæðisflokkurinn að gera betur?. Þar kemur meðal annars fram að stjórnvöld og Seðlabankinn hafi brugðist of seint við mikilli stækkun bankakerfisins, nauðsynlegt hefði verið að auka varasjóðinn samhliða stækkun bankanna á þeim tíma sem lántökur í erlendri mynt á hæfilegum kjörum voru í boði, eða stemma stigu við stækkun bankanna.

AGS hefur áhyggjur af vaxandi atvinnuleysi

Vaxandi atvinnuleysi og tafir við endurreisn bankakerfisins eru meðal helstu áhyggjuefna sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem nú er stödd hér á landi. Þetta kemur fram í máli Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra. Ráðherra segir að fulltrúar sjóðsins séu þó í meginatriðum sáttir við þann árangur sem náðst hefur hingað til.

Gulldepluveiðar á nýjum fiskimiðum

Íslenski fiskiskipaflotinn hefur nú uppgötvað ný fiskimið, um 170 mílur suður af Vestmannaeyjum. Þar eru nú fimm nótaveiðiskip á gulldepluveiðum, Huginn, Guðmundur, Júpíter, Sighvatur Bjarnason og Álfsey.

Þyrla Landhelgisgæslunnar sækir slasaða konu

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ, er nú á leið austur í Skaftafellssýslur til móts við sjúkrabíl, sem er á leið frá Breiðamerkursandi með slasaða konu eftir bílslys.

Hótanir um að hætta að selja íslenskan fisk

Steingrímur J. Sigfússon fjármála-, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir að erlendir aðilar hafi hótað því að taka íslenskan fisk af markaði vegna hvalveiða þjóðarinnar. Hann segir erlenda sendiherra hafa komið á sinn fund með gögn og upplýsingar sem styðji þetta. Hann segir að nú síðast hafi bandaríkjamenn mótmælt hvalveiðum íslendinga. Steingrímur var gestur á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.

Neyðarfundur ESB vegna alþjóðakreppunnar

Leiðtogar ríkja Evrópusambandsins koma saman til neyðarfundar um alþjóðakreppuna í Brussel í Belgíu í dag. Á fundinum verður rætt hvernig nota megi sameiginlegt markaðssvæði Evrópusambandsins til að styðja við hagvöxt hjá ríkjum ESB og skapa störf til að draga úr áhrifum kreppunnar.

Færeyingur skotinn í Kaupmannahöfn

Þrjátíu og tveggja ára færeyskur karlmaður liggur alvarlega særður á Ríkissjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn eftir skotárás við Mjølnerparken á Norðurbrú í gærkvöldi.

Blair í óvæntri heimsókn á Gaza

Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Breta, kom í óvænta heimsókn til Gaza í morgun. Þetta er í fyrsta sinn sem Blair kemur þangað frá því hann tók fyrir tveimur árum við starfi sérlegs sendifulltrúa Miðausturlanda kvartettsins svokallaða, sem reynir að stilla til friðar í Mið-Austurlöndum.

Tuttugu ára afmæli bjórsins á Íslandi

Í dag eru liðin tuttugu ár frá því að leyft var að selja bjór á Íslandi á ný. Bjórbannið svokallaða tók gildi 1. janúar árið 1912 og stóð til 1. mars 1989 eða í 77 ár.

Jarðskjálfti undir Vatnajökli

Jarðskjálfti af stærðinni 4,3 varð undir vestanverðum Vatnajökli upp úr klukkan hálfeitt í nótt. Samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar hafði snörp jarðskjálftahrina hafist um fimmtán mínútum áður á sama stað.

Handtekinn með vírklippur: Reyndi að brjótast inn á Litla-Hraun

Tveir gistu fangageymslur lögregunnar á Selfossi. Annar mannanna var handtekinn fyrir utan fangelsið á Litla-Hrauni með vírklippur. Fangaverðir urðu mannsins varir í eftirlitsmyndavélakerfi fangelsins þar sem hann reyndi að klippa gat á girðinguna, sem honum tókst að einhverju leyti. Hann var síðan handtekinn í nágrenni fangelsins og settur í fangaklefa á Selfossi.

Norðmenn auglýsa eftir íslenskum hjúkrunarfræðingum

Stærsta atvinnumiðlun Noregs, Adecco, auglýsir eftir íslenskum hjúkrunarfræðingum í sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Þar er hjúkrunarfræðingum boðið á kynningarfund á Radisson SAS til að kynna sér málið frekar. Talað er um störf í Noregi í að minnsta kosti tvo mánuði.

Samvaxnir tvíburabræður aðskildir

Teymi lækna í Sádí Arabíu framkvæmdi vel heppnaða aðgerð á samvöxnu tvíburabræðrunum Hassan og Mahmoud í dag. Bræðurnir sem eru egypskir eru þeir tuttugustu og fyrstu sem gangast undir aðgerð sem þessa í landinu.

Danir hafna íslendingum um félagslegar bætur

Bæjaryfirvöld í Danmörku eru í síauknum mæli byrjuð að hafna beiðnum Íslendinga um félagslegar bætur. Danir vísa í samninga Evrópska efnhagssvæðisins sem eru mun strangari en þeir samningar sem eru í gildi milli Norðurlandanna. Þrjú prófmál eru nú í gangi fyrir dönskum rétti.

Þvingaður til að ræna eigin útibú

Írska lögreglan hefur náð aftur hluta fengs í bankaráni þar sem bankastarfsmaður var þvingaður til að ræna eigin útibú fyrir glæpagengi. Fjölskyldu hans, sem var í haldi bófanna, var hótað lífláti gerði hann það ekki.

Hættir sem sveitastjóri

Björn Ingimarsson, sveitastjóri Langanesbyggðar hefur náð samkomulagi við Hreppsnefnd Langanesbyggðar um að hann láti af störfum fyrir sveitarfélagið frá og með 1.mars.

Eldur í nýbyggingu í Kópavogi

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að nýbygginu við Hafnarbraut í Kópavogi fyrir stundu. Þar hafði komið upp smáræðis eldur en slökkviliðið þurfti að reykræsta bygginguna.

Norðmenn leiti ekki beint eftir starfsfólki hér á landi

Eures atvinnumiðlanirnar á Íslandi og í Noregi hafa gert með sér heiðursmannasamkomulag, að ósk Landspítalans, um að ekki verði leitað beint eftir íslensku heilbrigðisstarfsfólki til starfa í Noregi, þó eftirspurnin þar sé mikil.

Ótækt að bjóða fram óbreytta forystu

Jón Baldvin Hannibalsson segir ótækt að Samfylkingin bjóði fram óbreytta forystu fyrir næstu kosningar. Hann hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns flokksins, gegn Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur.

Íhugaði alvarlega að hætta í pólitík

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir íhugaði alvarlega að hætta í pólitík vegna veikinda sem hún hefur átt við að etja í fimm mánuði. Hún hyggst hins vegar sitja áfram sem formaður samfylkingarinnar en vill að Jóhanna Sigurðardóttir verði forsætisráðherraefni.

Tæplega fimm hundruð mótmæltu

Samkvæmt upplýsingum frá Herði Torfasyni voru tæplega fimm hundruð manns á Austurvelli á mótmælafundi Radda fólksins í dag. Þetta var mótmælafundur númer tuttugu og sjö.

Guðjón Arnar fær mótframboð í formanninn

Guðni Halldórsson 35 ára viðskiptalögfræðingur hefur ákveðið að gefa kost á sér til formennsku í Frjálslynda flokknum á landsþingi flokksins sem haldið verður í Stykkihsólmi dagana 13.-14. mars nk. Hann hefur einnig ákveðið að bjóða sig fram í efsta sætið í prófkjöri Frjálslynda flokksins í Norðvesturkjördæmi sem fram fer vikuna 2.-8. mars nk.

Ásta Ragnheiður keppir við strákana

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, gefur kost á sér í 4.sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar. Því er ljóst að hart verður barist um fjórða sætið en sá sem það hreppir mun skipa annað sætið í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæmanna. Líkt og Vísir hefur greint frá sækjast þeir Mörður Árnason, Helgi Hjörvar og Skúli Helgason einnig eftir umræddu fjórða sæti.

Sumarbústaðamorð: Litháarnir neita allir sök

Litháarnir fjórir sem ákærðir voru eftir að maður fannst látinn í sumarbústaðarhverfi í Grímsnesi í október á síðasta ári, neita allir sök. Einn mannanna er ákærður fyrir stórfellda líkamsárás sem varð manninum að bana. Hinir þrír eru ákærðir fyrir að koma hinum látna ekki til aðstoðar. Mennirnir neituðu allir sök í Héraðsdómi Suðurlands í gær en aðalmeðferð í málinu fer fram 19.mars.

103 í framboði hjá VG - nafnalisti

Vinstri græn standa fyrir forvölum í öllum kjördæmum fyrir Alþingiskosningarnar 2009. Alls hafa 103 félagar gefið kost á sér og ljóst að aldrei hefur verið jafn mikill áhugi á að starfa með flokknum og nú.

Mörður stefnir líka á fjórða sætið

Mörður Árnason tekur þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík og óskar eftir kosningu í 4. sæti sem jafngildir öðru sæti á framboðslista í norður- eða suðurkjördæminu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Merði. Það er því ljóst að hann mun kljást við Helga Hjörvar og Skúla Helgason um 4.sæti listans.

Fyrsti heyrnarlausi hjúkrunarfræðingurinn útskrifaður

Brautskráning kandídata frá Háskóla Íslands fór fram í Háskólabíói í dag en 367 kandídatar voru brautskráðir frá öllum deildum Háskóla Íslands að frátalinni Tannlæknadeild og Matvæla- og næringarfræðideild. Tvær heyrnarlausar konur brautskráðust frá HÍ í dag, þær Heiðdís Dögg Eiríksdóttir og Steinunn Lovísa Þorvaldsdóttir.

Helgi í fjórða sætið

Helgi Hjörvar þingmaður ætlar að gefa kost á sér í 4.sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Verði það niðurstaðan mun Helgi skipa annað sætið í öðru hvoru Reykjavíkrukjördæmanna í komandi kosningum. Helgi hafnaði í fimmta sæti í síðasta prófkjöri. Hann segir kröfuna um endunýjun verða að haldast í hendur við reynslu.

Fer á móti Ingibjörgu í formanninn

Jón Baldvin Hannibalsson ætlar að bjóða sig gegn Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur til formanns Samfylkingarinnar á komandi landsfundi flokksins. Hann hafði áður lýst því yfir að hann hyggðist bjóða sig fram ef Jóhanna Sigurðardóttir gerði það ekki. Hann stendur við þær yfirlýsingar og segist vera að fylgja kröfu Búsáhaldarbyltingarinnar um endurnýjun.

Fjórar konur af tólf í framboði í Suðvesturkjördæmi

Framboðsfrestur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi er nú liðinn og hefur kjörnefnd gengið frá framboðslista í kjördæminu. Tólf frambjóðendur eru í framboði, þar af fjórar konur. Prófkjörið fer fram 14.mars.

Össur fer í þriðja sætið

Össur Skarphéðinsson segist í samtali við fréttastofu ætla að bjóða sig fram í þriðja sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í ljósi nýjustu tíðinda úr flokknum. Hann segist styðja Jóhönnu og Ingibjörgu heilshugar.

Ingibjörg áfram formaður- Jóhanna forsætisráðherraefni

Á blaðamannafundi sem Samfylkingin í Reykjavík boðaði núna klukkan ellefu kom fram að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ætlar sér að vera áfram formaður flokksins. Hún mun hinsvegar ekki sækjast eftir fyrsta sætinu í prófkjöri flokksins.

Neyðarástand vegna mikilla þurrka

Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum vegna mikilla þurrka. Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri, hvatti fólk og fyrirtæki í borgum og bæjum í ríkinu til að minnka vatnsneyslu og notkun um fimmtung ellegar yrði að loka fyrir vatn tímabundið.

Írani skotinn til bana í Kaupmannahöfn

Karlmaður af íröskum ættum var skotinn til bana í innflytjendahverfi á Norðurbrú í Kaupmannahöfn í gærkvöldi. Lögregla leitar ódæðismannsins og tveggja til þriggja félaga hans sem vitni segja að hafi virst vera innfæddir Danir.

Leita eftir stuðningi við Ingibjörgu og Jóhönnu

Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur blöðum verið dreift á fundi samfylkingarmanna sem nú stendur yfir í Reykjavík, þar sem óskað er eftir stuðningi við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og Jóhönnu Sigurðardóttur.

Sjá næstu 50 fréttir