Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Opið í Bláfjöllum í dag Skíðasvæðið í Bláfjöllum verður opnað núna klukkan tíu og þar verða lyftur í gangi til klukkan fimm síðdegis. Að sögn Magnúsar Árnasonar, framkvæmdastjóri skíðasvæða, er færið mjög gott. Hann segir frábært veður í Bláfjöllum og það spái góðu í dag. Frí skíðakennsla er í boði fyrir byrjendur við Bláfjallaskála milli klukkan ellefu og þrjú og einnig er boðið uppá brettakennslu. Það er hins vegar lokað í Skálafelli í dag. 28.2.2009 09:20
Forystukonur Samfylkingarinnar kynna framboðsmál flokksins Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hafa boðað til fundar með fréttamönnum á morgun klukkan 11. Í fréttatilkynningu frá Samfylkingunni kemur fram að fundarefnið sé framboðsmál vegna þingkosninga í vor. Fundurinn verður haldinn í kosningamiðstöð Samfylkingarinnar á Skólabrú við Austurvöll. 27.2.2009 23:16
Hætt við sameiningu heilbrigðisstofnana á Vestfjörðum Fallið hefur verið frá sameiningu Helbrigðisstofnunar Vestfjarða og Heilbrigðisstofnunarinnar á Patreksfirði. Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, tilkynnti þetta í dag eftir að hafa rætt við sveitarstjórnarmenn á norðanverðum Vestfjörðum og framkvæmdastjórn Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. Heilbrigðisráðherra heimsótti í gær og dag heilbrigðisstofnanir, starfsmenn þeirra, og sveitarstjórnarmenn í Vestlendingafjórðungi. 27.2.2009 21:55
Fimmtán gefa kost á sér hjá VG í Kraganum Fimmtán manns gefa kost á sér í forvali Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Suðvesturkjördæmi sem fer fram þann 14. mars næstkomandi. Þar af eru níu karlar og sex konur. Framboðsfrestur er útrunninn og nú er unnið að gerð kynningarbæklings um frambjóðendur. 27.2.2009 20:45
Bandarísk stjórnvöld gagnrýna fyrirhugaðar hvalveiðar Bandarísk stjórnvöld gagnrýna harðlega ákvörðun Íslendinga um að heimila veiðar á 150 langreyðum og 100 hrefnum í yfirlýsingu sem gefin var út í dag. Um þetta er fjallað á vef Nasdaq. Þar er sagt frá því að kvótinn hafi verið gefin út til fimm ára af fyrri ríkisstjórn. Í yfirlýsingunni er lýst efasemdum yfir því að langreyða- og hrefnustofnarnir þoli þessa ásókn. Þá er fullyrt að ákvörðunin muni grafa undan framtíðaráætlunum Alþjóðahvalveiðiráðsins, sem Ísland á aðild að. 27.2.2009 20:31
Flestir vilja að Jóhanna leiði Samfylkinguna Mun fleiri vilja að Jóhanna Sigurðardóttir leiði Samfylkinguna í næstu kosningum en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar. 27.2.2009 18:30
Tveir á slysadeild eftir umferðaróhapp Að minnsta kosti fjögur umferðaróhöpp hafa orðið vegna hálku frá því klukkan níu í kvöld. Tveir menn voru fluttir á slysadeild eftir að bíll þeirra valt á Hafnafjarðarvegi rétt eftir klukkan níu í kvöld og stuttu eftir það varð bílvelta á Gullinbrú. Þá varð umferðaróhapp á Grensásvegi og jafnframt varð óhapp á Miklubraut þegar bíll rann til í hálku og fór á staur. 27.2.2009 23:09
Fimmtán samfylkingarmenn gefa kost á sér í Kraganum Fimmtán manns gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi kosningar. Þar af eru 7 konur og 8 karlar. Kosið verður á netinu dagana 12. -14. mars. Kosningin er bundin við félaga í Samfylkingunni og stuðningsmenn sem hafa skráð sig í síðasta lagi 10. mars klukkan sex. 27.2.2009 22:05
Björgunarsveitamenn leita Aldísar Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út til að gera formlega leit að 37 ára gamalli konu, Aldísi Westergren. 27.2.2009 19:30
Grímur Atlason gefur kost á sér í Norðvesturkjördæmi Grímur Atlason, sveitarstjóri í Dalabyggð, gefur kost á sér í 1.-2. sæti í forvali Vinstri grænna, í Norðvesturkjördæmi, vegna alþingiskosninganna 25. apríl næstkomandi. 27.2.2009 18:22
Eldur kviknaði í bíl við Kringluna Slökkviliðið var kallað að Kringlunni nú fyrir stundu vegna elds sem kviknaði í bifreið sem var á bifreiðastæðinu þar. Ekki er vitað á þessari stundu hversu mikill eldur var í bifreiðinni. 27.2.2009 17:55
Hátt í 400 kandídatar útskrifast frá HÍ á morgun Alls útskrifast 367 kandídatar frá Háskóla Íslands á Háskólahátíð klukkan eitt á morgun. Kandídatarnir eru úr öllum deildum Háskólans að frátalinni Tannlæknadeild og Matvæla- og næringarfræðideild. Á Háskólahátíð á morgun munu tvær heyrnarlausar konur 27.2.2009 17:51
Birtir upplýsingar um fjárstyrki Anna Pála Sverrisdóttir meistaranemi í lögfræði og þátttakandi í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík óskar ekki eftir fjárstyrkjum frá fyrirtækjum vegna framboðsins. Þá hefur hún ákveðið að birta yfirlit að prófkjöri loknu yfir þá sem styrkja hana. 27.2.2009 17:30
Fékk 10 milljónir í bætur vegna ógreiddra launabónusa Ingvar Helgason ehf. var í dag dæmt til greiða fyrrverandi framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs fyrirtækisins tæpar tíu milljónir króna auk dráttarvaxta vegna launabónusa sem hann fékk ekki greidda. Í ráðningasamningi sem maðurinn gerði við fyrirtækið árið 2004 var ákvæði um að ef félagið næði 150 27.2.2009 17:13
Margrét ekki á leið í framboð Margrét Sverrisdóttir, varaformaður Íslandshreyfingarinnar, ætlar ekki að gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar nú þegar Íslandshreyfingin hefur óskað eftir því að gerast aðili að Samfylkingunni sem eitt af aðildarfélögum hennar. 27.2.2009 17:05
Lúðvík vill leiða Samfylkinguna í Kraganum Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði hefur gefið formlega kost á sér til þess að leiða lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lúðvíki en fyrr í dag sagði fréttastofa frá því að þetta stæði til. 27.2.2009 16:43
Miðbaugsmaddaman laus úr gæsluvarðhaldi Catalina Mikue Ncogo, sem er grunuðu um mansal og að hafa átt þátt í stórfelldum innflutningi til Holland var látinn úr gæsluvarðhaldi í dag en þar hafði hún setið í viku. 27.2.2009 16:37
Ólafur fær auknar heimildir til að rannsaka bankahrunið Embætti sérstaks saksóknara vegna bankahrunsins fær auknar heimildir til þess að kalla eftir upplýsingum og gögnum verði frumvarp sem ríkisstjórnin samþykkti í dag að lögum. 27.2.2009 16:04
Fann þá í fjöru Þyrla bandarísku strandgæslunnar hangir á þessari mynd yfir krabbaveiðibátnum Icy Mist sem strandaði undir bjargi á Akutan eyju í Alaska á miðvikudag. 27.2.2009 15:31
Hellaristur í hættu Hópur vísindamanna kom saman í Frakklandi í gær til þess að leita leiða til þess að varðveita hinar frægu Lascaux hellaristur í Suður-Frakklandi. 27.2.2009 15:24
Jóhanna: Aldrei verið í kortunum að ég leiði flokkinn ,,Það hefur aldrei verið í kortunum að ég fari í formannsframboð," segir Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra. Hún segist styðja Ingibjörg Sólrúnu Gísladóttur. Jóhanna segir ótímabært að ræða hvort hún verði forsætisráðherraefni flokksins. Þá segir Jóhanna líklegt að hún gefi kost á sér til áframhaldandi þingmennsku. 27.2.2009 15:17
Bikiníbomba ákærð í 24 liðum Bikiníbomban Anna Nicole Grayson hefur verið ákærð fyrir fíkniefnamisferli, þjófnað og skemmdarverk en ákæruliðirnir eru alls tuttugu og fjórir. Anna Nicole tók þátt í bombukeppninni Hawai Tropic hér á landi fyrir um tveimur árum og vakti þá þjóðarathygli þegar hún var klædd í bikiní skreytt fánalitunum. 27.2.2009 14:47
Varað við fæðubótarefni Matvælastofnun varar við fæðubótarefninu Fortodol. Stofnunni barst tilkynning í gegnum evrópskt viðvörunarkerfi um að Fortodol innihaldi efnið Nimesulid sem er ekki heimilt í fæðubótarefnum og getur verið skaðlegt heilsu. 27.2.2009 14:44
Geir, Þorgerður og Árni kusu ekki gegn seðlabankafrumvarpinu Geir H. Haarde, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Árni Mathiesen greiddu ekki atkvæði gegn umdeildu frumvarpi um breytingar á stjórnskipulagi Seðlabanka Íslands sem samþykkt var sem lög frá Alþingi í gær. Þá greiddi Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, ekki atkvæði með frumvarpinu. Ástæðan er væntanlega sú að ekkert þeirra var viðstatt atkvæðagreiðsluna. 27.2.2009 14:32
Hellir til sölu Öldum saman bjó fólk í hellum. Líklega hafa þó þeir fyrstu ekki verið jafn þægilegir og huggulegir og hellirinn sem Curt og Debora Sleeper gerðu sér í Missouri í Bandaríkjunum. 27.2.2009 14:31
Vinabókarhópur mótmælir vægum refsingum Mótmæli verða haldin á Austurvelli í dag klukkan þrjú en þá mun hópur á Facebook koma saman og mótmæla vægum refsingum í kynferðisbrotamálum. 27.2.2009 14:20
Kristinn H. Gunnarsson aftur genginn í Framsókn Skagfirski fréttamiðillinn Feykir.is staðhæfir í dag að Kristinn H. Gunnarsson sé genginn í Framsóknarflokkinn. Kristinn gekk á dögunum úr Frjálslynda flokknum eftir að hafa verið þar í tvö ár. Í samtali við Vísi vildi Kristinn hvorki játa því né neita að hann væri genginn í Framsókn en hann sagði að yfirlýsingar um málið væri að vænta síðar í dag. 27.2.2009 14:15
Miklagljúfur 90 ára Bandaríkjamenn halda nú upp á það að níutíu ár eru liðin síðan Miklagljúfur eða Grand Canyon var lýst þjóðgarður. 27.2.2009 14:10
Rauðakrosshúsið standsett - óska eftir húsgögnum Sjálfboðaliðar Rauða krossins vinna nú hörðum höndum við að standsetja húsnæði í Borgartúni 25 þar sem Rauðakrosshúsið tekur brátt til starfa. Þar gefst fólki kostur á að koma inn af götunni og leita sér hjálpar í þeim þrengingum sem gengið hafa yfir þjóðina. Stefnt er að því að opna í næstu viku en Rauði krossinn auglýsir nú eftir góðhjörtuðum einstaklingum sem eru í aðstöðu til þess að láta húsinu í té skrifstofubúnað og annað þess háttar. 27.2.2009 13:43
Pund fyrir að pissa Forstjóri lággjaldaflugfélagsins Ryanair segir að félagið kunni að auka tekjur sínar með því að láta farþegana borga eitt sterlingspund fyrir að fara á klósettið. 27.2.2009 13:24
Tilkynningar að vænta um brottflutning frá Írak Búist er við að Barack Obama Bandaríkjaforseti tilkynni í dag að allt nær allt bandarískt herlið verði komið heim frá Írak í ágúst á næsta ári. Þriðjungur verði eftir til að þjálfa íraska herinn. 27.2.2009 13:16
Allt í lagi takk herra -síðustu orðin frá tyrknesku vélinni Flugstjóri tyrknesku farþegaþotunnar sem fórst í aðflugi að Schiphol flugvelli í Amsterdam á miðvikudag var sallarólegur í síðustu samskiptum sínum við flugturninn. 27.2.2009 13:06
Íslendingar ferðast meira um eigið land Um þriggja prósenta aukning varð á fjölda gistinótta á Íslandi á milli áranna 2007 og 2008. Mesta aukningin var á Vestfjörðum, gistinóttum fækkaði aftur á móti mest á Vesturlandi. Ferðamönnum frá Afríku og Mið- og Suður-Ameríku fjölgaði hlutfallslega mest. Þetta kemur fram í gistiskýrslu Hagstofunnar fyrir árið 2008. 27.2.2009 12:23
Stoltenberg heilsaði upp á samlanda sinn í Seðlabankanum Samlandarnir Svein Harald Öygard, bankastjóri Seðlabanka Íslands og Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs, hittust í Seðlabankanum í morgun í kjölfar blaðamannafundar þar sem Svein Harald var kynntur til leiks sem nýr seðlabankastjóri. Stoltenberg er staddur hér á landi á árlegum fundi Norrænna forsætisráðherra. 27.2.2009 12:22
Davíð ekki fram á Suðurlandi „Hann gaf okkur afsvar í morgun,“ segir Þorgils Torfi Jónsson spurður hvort Davíð Oddsson ætli fram í Suðurkjördæmi. Eftir að ljóst var að frumvarp um Seðlabanka Íslands yrði samþykkt var byrjað að undirbúa hugsanlegt framboð Davíðs í Suðurkjördæmi. 27.2.2009 12:07
Þrefalt fleiri vilja Jóhönnu frekar en Ingibjörgu Rúmlega þrefalt fleiri vilja að að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra leiði Samfylkinguna í næstu Alþingiskosningum, en að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður flokksins geri það, samkvæmt nýrri könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins. 27.2.2009 11:58
Lúðvík ætlar að bjóða sig fram til Alþingis Lúðvík Geirsson ætlar að bjóða sig fram til Alþingis fyrir Samfylkinguna í Suðvesturkjördæmi samkvæmt áreiðanlegum heimildum Vísis. Lúðvík er bæjarstjóri Hafnarfjarðar en Samfylkingin hefur haldið hreinum meirihluta í bænum í tvö kjörtimabil. 27.2.2009 11:41
Íslandshreyfingin gengur í Samfylkinguna Stjórn Íslandshreyfingarinnar hefur samþykkt að hreyfingin óski eftir því að gerast aðili að Samfylkingunni sem eitt af aðildarfélögum hennar og heiti henni fullum stuðningi í komandi kosningum. Stjórnin skorar á fylgismenn Íslandshreyfingarinnar að ljá þessu máli stuðning sinn og verður málið lagt fyrir aðalfund hreyfingarinnar sem fyrst. 27.2.2009 11:31
Ellefu vilja á þing fyrir Samfylkinguna í Norðvesturkjördæmi Ellefu hafa gefið kost á sér í prófkjör Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir þingkosningarnar vorið 2009. Prófkjörið verður rafrænt og hefst á hádegi föstudaginn 6. mars og líkur sunnudaginn 8. mars. Niðurstöður liggja líklega fyrir klukkan 18 sama dag. 27.2.2009 11:10
Borgarahreyfingin kynnir helstu stefnumál sín Borgarahreyfingin, nýstofnaður stjórnmálaflokkur, hyggst kynna framboð hreyfingarinnar og helstu stefnumál á fundi með blaðamönnum í dag. Fram kemur í tilkynningu að framboðið sé nýtt stjórnmálaafl fólks sem hafi það að megin markmiði að knýja fram breytingar á lýðræðis- og stjórnskipan hér landi. 27.2.2009 11:00
Ómar og Margrét funduðu með Samfylkingunni um bandalag Forystumenn Íslandshreyfingarinnar funduðu í gær með framkvæmdastjóra og gjaldkera Samfylkingarinnar um hugsanlegt samstarf. ,,Fimm prósent þröskuldurinn hefur gríðarleg áhrif á landslag minni flokkanna og við höfum verið að kanna hvort það sé flötur að við verðum í kosningabandalagi við eitthvað að öðrum framboðum," segir Ómar Ragnarsson formaður Íslandshreyfingarinnar. 27.2.2009 10:50
Sumarbústaðamorð tekið fyrir í dag Mál fjögurra Litháa sem hafa verið ákærðir fyrir að verða manni að bana í sumarbústaðahverfi í Grímsnesi í október á síðasta ári, verður tekið fyrir í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Hinir ákærður, ákváðu að bíða með að taka afstöðu til sakarefnisins þangað til í dag en málið var þingfest í síðustu viku. 27.2.2009 10:23
Lést úr sjaldgæfu heilameini Læknar hafa fundið út að dánarorsök hinnar 24 ára gömlu Geraldine Atkinson var sjaldgæf tegund heilameins. Um er að ræða æxli sem dregur tíu manns til dauða á ári í Bretlandi. 27.2.2009 09:54
Uppreisn landamæravarða í Bangladesh lokið Um tvö hundruð landamæraverðir í Bangladesh voru handteknir í morgun eftir tveggja daga uppreisn og bardaga við lögreglu og her.Landamæraverðirnir voru handteknir þegar þeir höfðu dulbúið sig og reyndu að flýja úr höfuðstöðvum sínum í höfuðborginni Dhaka. 27.2.2009 09:50
Tíu milljónum úthlutað til sextán verkefna Afhending styrkja leikskólaráðs Reykjavíkur fór fram við hátíðlega athöfn í Tjarnarbúð Ráðhúss Reykjavíkur fyrr í vikunni. Alls var úthlutað 10 milljónum króna til 16 verkefna. 27.2.2009 09:33