Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Enn eitt sjóránið undan Sómalíuströndum Sjóræningjar réðust í gær á Japanskt flutningaskip undan ströndum Sómalíu, að því er Suður-Kóresk stjórnvöld segja. 23 eru í áhöfn skipsins og eru þeir allir í haldi sjóræningjanna. Áhafnarmeðlimir eru frá Suður-Kóreu og Fillipseyjum en ekki er vitað um ástand þeirra og líðan að svo stöddu. Skipið er tuttugu þúsund tonn að stærð og var það að flytja efnavörur. 16.11.2008 11:50
Dagur íslenskrar tungu Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur í dag, á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember. Minnt er á mikilvægi íslenskunnar með ýmsum hætti. 16.11.2008 11:22
Írakar samþykkja veru Bandaríkjamanna í þrjú ár í viðbót Ríkisstjórn Íraks samþykkti í morgun samkomulag við Bandaríkjamenn sem heimilar veru bandarískra hermanna í Írak næstu þrjú árin til viðbótar. Samkomulagið verður lagt fyrir íraska þingið síðar í vikunni. 16.11.2008 10:20
Skíðasvæði opin Í Tindastóli og á Sigló Skíðasvæðin á Siglufirði og á Sauðárkróki eru opin í dag til klukkan fimm. Á Sauðárkróki verður opnað í Tindastóli nú klukkan tíu og þar er sagt frábært færi og hægviðri. Á Sigló er svipaða sögu að segja en þar verður opnað klukkan ellefu. 16.11.2008 10:16
Grunur um íkveikju í umdeildu húsi Grunur leikur á að kveikt hafi verið í yfirgefna húsinu sem brann við Baldursgötu í Reykjavík í gær. Lögreglan rannsakar tildrög eldsins en húsið var rafmagnslaust þegar eldurinn kom upp og þykir það renna stoðum undir að kveikt hafi verið í því. Deilur hafa staðið um húsið í töluverðan tíma. 16.11.2008 10:14
Reynt að kveikja í lögreglustöðinni á Selfossi Logandi rakettu var kastað inn í anddyri lögreglustöðvarinnar á Selfossi í nótt. Flugeldurinn sprakk þar inni og hljóp glóð í nokkra stóla og aðra innanstokksmuni. Lögreglumönnum á vakt stóð ekki á sama og segja þeir að litlu hafi mátt muna að eldurinn næði að breiða úr sér. 16.11.2008 09:51
Séra Friðriks minnst Blómsveigur var lagður að leiði séra Friðriks Friðrikssonar í kirkjugarðinum við Suðurgötu í morgun í tilefni þess að í ár eru 140 ár liðin frá fæðingu hans. Blómsveigurinn er frá fimm félögum sem Friðrik stofnaði á ævi sinni, en þau eru KFUM og K, íþróttafélögin Valur og Haukar, íslenska skátahreyfingin og Karlakórinn Fóstbræður. 16.11.2008 09:29
IMF tekur lán til Íslands fyrir á miðvikudaginn Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins tekur lánsumsókn Íslands fyrir á fundi sínum á miðvikudaginn. Dominique Strauss-Kahn, forstjóri sjóðsins, greindi frá þessu á blaðamannafundi í gærkvöldi. 16.11.2008 09:14
Valgerður: Skref sem verður að stíga „Ég held að niðurstöður fundarins hafi verið mjög ásættanlegar,“ segir Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins um þá ákvörðun miðstjórnar að flýta flokksþingi og fela þinginu að taka ákvörðun um aðild að Evrópusambandinu. Hún segir þetta nauðsynlegt skref. 15.11.2008 21:13
Skógareldar brenna enn í Kalíforníu Slökkviliðsmenn í Kalíforníu berjast enn við skógarelda í Montecito sýsly í Los Angeles. Rúmlega tvö þúsund manns berjast við eldana sem loga á tveimur stöðum en hætta er talin á því að Los Angeles verði rafmagnlaus nái eldarnir að raforkuveri í nágrenninu. Mikill vindur er á svæðinu sem gerir slökkvistarf erfitt og nær ómögulegt er að beita flugvélum og þyrlum við slökkvistarfið. 15.11.2008 19:59
Eggjakast og blómvendir á Austurvelli Eggjum og snjóboltum var kastað á Alþingshúsið eftir að útifundinum lauk á Austurvelli í dag. Þó voru ekki allir í vígahug. 15.11.2008 19:46
Framsókn flýtir flokksþingi sem taka á ákvörðun um aðildarviðræður Miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins samþykkti í kvöld að flýta flokksþingi fram í janúar og að fyrir þingið yrði lögð tillaga um að flokkurinn samþykkti að gengið yrði til aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Til stóð að halda flokksþing í mars. 15.11.2008 18:30
Mörg þúsund manns mættu á Austurvöll Útifundi á Austurvelli sem hófst klukkan þrjú er lokið. Undanfarna laugardaga hefur fólk komið saman fyrir framan Alþingishúsið og hefur fjölgað í þeim hópi með hverri vikunni sem líður. Aldrei hafa eins margir mætt og í dag og voru þúsundir manna samankomnir í miðbænum. Mótmælin fóru friðsamlega fram en eftir að fundi lauk var eggjum og klósettrúllum látið rigna á Alþingishúsið. Fyrir því stóð afmarkaður hópur mótmælenda en Hörður Torfason skipuleggjandi fundarins sagði í samtali við Stöð 2 að slík hegðun væri málstað almennings ekki til framdráttar. 15.11.2008 09:53
Geimfarar drekka endurunnið þvag Á verkefnalista geimfaranna sem lögðu af stað með geimferjunni Endeavour í gær áleiðis að alþjóðlegu geimstöðinni verður að koma fyrir nýju kerfi sem endurvinnur allt vatn um borð og gerir það drykkjarhæft. Þegar talað er um allt vatn um borð er einnig átt við þvagið úr geimförunum en þeir munu í framtíðinni drekka það. 15.11.2008 20:55
Staðið við áform um Drekasvæðið Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segir að þrátt fyrir efnahagskreppu verði staðið við þau áform að bjóða út í janúar réttindi til olíuleitar og vinnslu á Drekasvæðinu. 15.11.2008 19:10
Lítið að frétta frá Washington Óvíst er að nokkur áþreifanleg niðurstaða fáist á leiðtogafundi um alheimskreppuna í Washington í dag. Leiðtogar nítján ríkja, forvígismenn Evrópusambandsins og fulltrúar alþjóðasamtaka sitja fundinn sem hófst í Washington í gærkvöldi. 15.11.2008 19:05
Grunur um íkveikju á Baldursgötu Slökkviliðið hefur ráðið niðurlögum eldsins á Baldursgötu en þar kviknaði í yfirgefnu húsi. Töluverðan tíma tók að ráða niðurlögum eldsins en engin hætta var á því að hann læsti sig í önnur hús í hverfinu. Að sögn lögreglu er verið að rannskaka eldsupptök. Ekkert rafmagn var í húsinu og því beinist grunur að því að kveikt hafi verið í því. 15.11.2008 17:42
Kona til æðstu metorða í Bandaríkjaher Kona komst í fyrsta sinn í gær til æðstu metorða í bandaríska hernum. Ann Dunwoody varð þá fjögurra stjörnu hershöfðingi fyrst kvenna. Hún stjórnar birgðamálum fyrir herinn, hefur yfirumsjón með hergögnum hvers konar. 15.11.2008 16:09
Hús alelda á Baldursgötu Slökkviliðið berst enn við eld á Baldursgötu í Reykjavík. Húsið er yfirgefið og var það alelda þegar slökkvilið kom á vettvang. Eldurinn hefur læst sig í þak hússins og að sögn varðstjórna hjá slökkviliðinu gengur erfiðlega að ráða niðurlögum hans þar sem búið hafi verið að fjarlægja öll gólf úr húsinu. Að sögn slökkviliðs er þó engin hætta á að eldurinn breiðist í nærliggjandi hús. 15.11.2008 15:44
Lögreglan ekki með hertan viðbúnað á Austurvelli Lögreglan verður með venjulegan viðbúnað á Austurvelli í dag þegar fólk ætlar að hittast á útifundi klukkan þrjú. Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn segir ekki standa til að fjölga í lögregluliðinu þrátt fyrir að til nokkurra óláta hafi komið um síðustu helgi. 15.11.2008 14:41
Greiðslubyrði getur lækkað um tugi þúsunda Ríkisstjórnin hefur samþykkt að leggja fyrir Alþingi frumvarp félags- og tryggingamálaráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, um breytingu á lögum um greiðslujöfnun fasteignalána til einstaklinga. Markmið frumvarpsins er að koma í veg fyrir að misgengi sem nú er að verða milli launa og lána leiði til aukinnar greiðslubyrði vegna fasteignaveðlána. Meðfylgjandi eru dæmi um áhrif greiðslujöfnunar á greiðslubyrði en þar sést að greiðslubyrði getur minnkað um tugi þúsunda í vissum tilfellum. 15.11.2008 14:08
Tíu létust í bílsprengjuárás í Írak Tíu manns létust og tugir eru slasaðir eftir að bílsprengja sprakk á bílasölu í norðurhluta landsins í bænum Tal Afar. Bærinn er í Nineveh héraði þar sem skæruliðar á vegum al Kaída hafa látið mikið til sín taka undanfarið. 15.11.2008 13:46
Bensínið lækkaði víðast hvar um tíkall N1 auglýsir í dag 10 króna afslátt á bensínverði og virðast hin olíufélögin ætla að svara því með samsvarandi verðlækkun hjá sér. Bensínlítrinn kostaði í morgun víða 143 til 145 krónur. 15.11.2008 12:05
Þriðji áfangi Hellisheiðarvirkjunar tekinn í notkun Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri í Reykjavík, tók í dag formlega í notkun tvær nýjar vélasamstæður í Hellisheiðarvirkjun. Með því er afl virkjunarinnar orðið 213 megavött, sem gerir hana að þriðju aflmestu virkjun landsins í raforku. Fram kom hjá Hjörleifi B. Kvaran, forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur, við athöfnina í dag að fullbúin verði virkjunin sú afkastamesta í landinu. 15.11.2008 12:00
Guðni: „Hvar er atgeirinn Geir?“ Guðni Ágústsson formaður Framsóknarflokksins sagði í ræðu sinni á miðstjórnarfundi flokksins sem stendur nú yfir að ekki sé lengur hægt að útiloka aðild Íslands að Evrópusambandinu. Í ræðu sinni fór hann yfir atburði síðustu daga og vikna og bar viðbrögð stjórnvalda saman við það sem gert var í Landhelgisdeilunum. 15.11.2008 11:29
Tamíltígrum stökkt á flótta Stjórnarherinn á Srí Lanka segist hafa náð allri vesturströnd landsins á sitt vald og hrakið uppreisnarmenn Tamíltígra á flótta. Talið er að herinn geti innan tíðar sótt af fullri hörku úr þremur áttum að vígi tígranna í Kí-lí-nosjí. 15.11.2008 10:09
Framsókn með miðstjórnarfund Evrópumálin verða væntanlega ofarlega á baugi á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins sem haldinn verður á Hótel Loftleiðum í dag. Skiptar skoðanir eru innan flokksins um afstöðuna gagnvart Evrópusambandinu. 15.11.2008 09:51
Breskir íhaldsmenn óttast um pundið Íhaldsmenn í Bretlandi óttast að dagar breska pundsins geti verið taldir vegna aðgerða ríkisstjórnar Verkamannaflokksins til bjargar bresku efnahagslífi. George Osborne, talsmaður Íhaldsflokksins í efnahagsmálum, segir í viðtali við breska blaðið Times í morgun að Gordon Brown, forsætisráðherra, sé of viljugur til að taka lán til að bjarga efnahag landsins. 15.11.2008 09:47
Bílvelta í Álftafirði Litlu munaði að illa færi þegar bifreið hafnaði á hvolfi úti í sjó í Álftafirði á Vestfjörðum á milli klukkan átta og níu í gærkvöldi. Karl og kona voru í bílnum og tókst þeim að komast út úr bílnum af eigin rammleik. Þau slösuðust ekki en voru köld og hrakin. Farið var með þau á sjúkrahúsið á Ísafirði til aðhlynningar. 15.11.2008 09:36
Tvær líkamsárásir kærðar Tvær líkamsárásir voru kærðar í nótt og voru tveir handteknir vegna þeirra og látnir gista fangageymslur. Að sögn lögreglu voru báðar árásirnar minniháttar. Þá voru þrír teknir fyrir ölvunarakstur í höfuðborginni í nótt en sex umferðaróhöpp urðu sem rekja má til mikillar hálku. Að öðru leyti gekk nóttin áfallalaust fyrir sig í borginni að sögn varðstjóra. 15.11.2008 09:32
Meira en 5 þúsund heimili rýmd vegna skógarelda Að minnsta kosti 13 manns hafa slasast og 100 heimili eyðilagst í miklum eldum sem geysa í suðurhluta Kalíforníu, á stað sem oft er kallaður Riverían. 14.11.2008 23:38
Vilja hámarkslaun að upphæð 1 milljón króna Alþingi, ríkisstjórn og allir einkaaðilar í rekstri þurfa að sjá til þess að enginn hafi hærri laun en eina milljón króna á mánuði. Þetta segir í opnu bréfi nokkurra Dýrfirðinga til Alþingis, ríkisstjórnar og atvinnurekenda. 14.11.2008 21:30
Bílvelta á Laugarvatnsvegi Fólksbíll keyrði út af Laugarvatnsvegi og valt um klukkan hálfsjö í kvöld. Fimm manns voru í bílnum og fóru einhverjir þeirra með minniháttar meiðsl á slysadeild, að sögn lögreglunnar á Selfossi. Tíu mínútum seinna rákust tveir jeppar saman Hellisheiði, er þeir komu úr gagnstæðri átt. Fjarlægja þurfti bílana burt með dráttarbílum, en enginn slys urðu á fólki. 14.11.2008 21:54
Obama mun funda með McCain á mánudag Barack Obama, verðandi forseti Bandaríkjanna, mun hitta öldungadeildarþingmannin og fyrrverandi mótframbjóðanda sinn, John McCain, næstkomandi mánudag. 14.11.2008 20:58
Líklegast þörf á fleiri aðgerðum til verndar heimilunum Aðgerðarpakkinn til varnar heimilunum, sem oddvitar ríkisstjórnarinnar kynntu í dag er sennilegast fyrsta skref af mörgum. Þetta segir Siv Friðleifsdóttir, þingflokksformaður framsóknarmanna. 14.11.2008 19:35
Evrópunefnd Sjálfstæðisflokksins er merki um ótrúlega taugaveiklun Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, segir að það sé mál Sjálfstæðisflokksins hvernig hann vinni að sinni stefnumótun og hvenær hann haldi landsfundi sína. 14.11.2008 19:15
Íslensk hönnun er jólagjöfin í ár Rannsóknarsetur verslunarinnar á Bifröst hefur í nokkur ár kannað horfur í jólaverslun og fengið sérfræðinga til að velja jólagjöfina í ár. Að þessu sinni er jólagjöfin íslensk hönnun og segir Emil B. Karlsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs verslunarinnar, að hún falli mjög vel að tíðarandanum. 14.11.2008 18:59
Segir RÚV ekki hafa brotið gegn samkeppnislögum Ekki verður séð að RÚV hafi brotið gegn gildandi samkeppnislögum. Þvert á móti virðist álit Samkeppniseftirlitsins fyrst og fremst varða túlkun á lögum um Ríkisútvarpið ohf. og þjónustusamningi þess við menntamálaráðuneytið. 14.11.2008 18:40
Þakkaði Færeyingum innilega fyrir aðstoðina Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, hélt í dag ræðu á færeyska þinginu þar sem hann færði þjóðinni þakkir fyrir fyrirhugað lán en Færeyingar ætla að lána Íslendingum 300 milljónir danskra króna að jafnvirði 6,1 milljarða króna vegna yfirstandi efnahagsþrenginga. 14.11.2008 17:49
Álit Samkeppniseftirlitsins kemur ekki á óvart Ari Edwald, forstjóri 365 hf, fagnar áliti Samkeppniseftirlitsins um stöðu RÚV á auglýsingamarkaði og segir að hún komi sér alls ekki á óvart. Hann tekur þó fram að hann hafi að hann hafi einungis kynnt sér álitið lauslega. 14.11.2008 17:45
Sigríður fagnar niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins „Þetta álit eitt og sér breytir ekki rekstrarumhverfinu, en vissulega styður þetta við að teknar verði réttar ákvarðanir og RÚV hverfi af auglýsingamarkaði," segir Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri Skjás eins. 14.11.2008 17:34
Gerum ekki út skylmingaþræla og hendum þeim fyrir ljónin Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum fyrir skömmu að rökstuddar ástæður þyrfti til þess að einhver einn ráðherra frekar en annar viki úr ríkisstjórn. Hún sagði að ekki væri verið að gera út einhverja gladiatora sem ætti að henda fyrir ljónin. 14.11.2008 17:03
Samkeppniseftirlitið vill RÚV af auglýsingamarkaði Samkeppniseftirlitið leggur til að Ríkisútvarpið hverfi af auglýsingamarkaði þegar aðstæður leyfi. Telji menntamálaráðherra eða Alþingi ekki að RÚV geti horfið af markaði á að takmarka umsvif félagsins á honum. 14.11.2008 16:52
Segir lítið kjöt á beinum aðgerða ríkisstjórnarinnar Aðgerðir ríkisstjórninnar sem kynntar voru fyrr í dag eru skref í rétta átt, að mati Steingríms J. Sigfússonar formanns Vinstri grænna. ,,Aftur á móti sló mig hversu tillögurnar eru veiklulegar og hversu lítið kjöt er á beinum." 14.11.2008 16:51
Sjálfsfróun kostaði fjögurra mánaða skilorð Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart konu. 14.11.2008 16:41