Gerum ekki út skylmingaþræla og hendum þeim fyrir ljónin 14. nóvember 2008 17:03 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum fyrir skömmu að rökstuddar ástæður þyrfti til þess að einhver einn ráðherra frekar en annar viki úr ríkisstjórn. Hún sagði að ekki væri verið að gera út einhverja gladiatora sem ætti að henda fyrir ljónin. Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir svöruðu spurningum fjölmiðlamanna í ráðherrabústaðnum fyrir stundu. Þar kom m.a fram að lausn í Icesavedeilunni þokist áfram þó ekki sé búið að ná samningum um það mál. Þau gera ráð fyrir að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn taki mál okkar fyrir í næstu viku, og segja í raun ekkert standa í vegi fyrir að svo verði gert. Geir sagði fyrir skömmu að ríkisstjórnin ætlaði ekki að láta kúga sig í deilunni við Breta og Hollendinga. Hann sagði að þrátt fyrir atburði síðustu daga væri svo ekki, þó búið væri að semja um að greiða rúmlega 20 þúsunda evra tryggingu á innlánsreikningum í löndunum. „Við gerðum okkur grein fyrir því allan tímann að vandamál milli siðaðra þjóða þyrfti að leysa. Við vildum að deilan um Icesave gengi til gerðardóms en á það var ekki fallist," sagði Geir og lagði áherslu á að deilan væri ekki við Breta og Hollendinga lengur heldur væri hún við aðildarríkin 27 sem stóðu saman gegn því að umsókn okkar væri tekin fyrir hjá IMF. Ingibjörg lagði áherslu á að ekki mætti gleyma því að í upphafi hefðu Bretar gert kröfu um að við ábyrgðumst öll innlán en það sé ekki það sem við erum að gera nú. Geir sagðist ekki vita hvort eignir Landsbankans dygðu fyrir innlánsreikningunum en vonaði að svo væri. Það gæti hinsvegar tekið mörg ár að koma öllum eignum bankanst í verð. Hann sagði það ekki hafa verið mistök að ábyrgjast einungis innistæður Íslendinga í íslenskum bönkum og vildi ekki meina að með því hefðu stjórnvöld brotið jafnræðisregluna. „Þetta er sjónarmið sem við höfum heyrt og höfnum algjörlega. Við teljum að nú sé uppi ástand sem heimili okkur að gæta hagsmuna og taka ábyrgð á eigin þegnum með þessum hætti. Þeir sem halda öðru fram lesa evrópubókstafinn mjög þröngt." Hann sagði að þegar búið væri að ganga frá fjármögnun á Icesave-reikningunum stæði ekkert í vegi fyrir því að umsókn okkar um lán hjá IMF drægist lengur. En ef það myndi gerast væri það mjög slæmt fyrir okkur en við myndum engu að síður lifa það af. Aðspurð út í fyrirhuguð mótmæli á Austuvelli á morgun sögðust þau bæði tvö skilja reiði fólks. „Það er auðvitað réttur hvers manns að mótmæla í lýðræðisþjóðfélagi og við virðum það. Ég skil mæta vel sárindin, gremjuna og reiði fólks vegna ástandsins sem upp er komið. Sjálfur er ég öskureiður yfir því að þetta hafi farið svona, að bankarnir hafi ekki staðist áhlaupið frá þessum fjármálafellibyl sem gekk hérna yfir. Við treystum því hinsvegar að mótmælin verði friðsamleg og gerum engar athugasemdir við þau," sagði Geir. Einnig var kynntur aðgerðarpakki fyrir heimilin í landinu sem Vísir hefur sagt frá. Geir og Ingibjörg gátu hins vegar ekki svarað því til hver kostnaðurinn væri við þann pakka. Sumt væri kostnaðarsamt en annað myndi ekki kosta neitt. Þau sögðu pakkann ekki einungis eiga við fjölskyldur sem væru á leiðinni í gjaldþrot. Róðurinn væri að þyngjast en með þessum aðgerðum væri verið að reyna að létta róðurinn hjá fjölskyldum í landinu. „Því miður eru margir að missa vinnuna og þá missir fólk tekjur sínar. Vísitalan er að hækka og einnig gengistengdu lánin. Þetta er það sem við erum að bregðast við," sagði Geir. Að lokum voru þau spurð að því hvort einhver í ríkisstjórn, seðlabanka eða á öðrum stöðum þyrfti ekki að axla ábyrgð og víkja. Ingibjörg sagði að ef horft væri á ríkisstjórnina sem stæði þeim næst þá þyrfti einhverjar rökstuddar ástæður fyrir því að einhver ætti að víkja frekar en annar. „Við erum ekki að gera út einhverja gladiator sem við ætlum að henda fyrir ljónin."
Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Fleiri fréttir Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Sjá meira