Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Álit umheimsins á Bandaríkjamönnum batnar Ný könnun leiðir í ljós að álit umheimsins á Bandaríkjamönnum fer batnandi eftir að hafa verið á niðurleið í fjölda ára. 2.4.2008 10:16
Veita verulegan afslátt á eldsneyti í dag Olíufélagið N1, sem áður hét Essó, veitir ríflegan afslátt af bensíni og dísilolíu í dag. Félagið segist vera að rifja upp verðið sem var fyrir ári áður en hækkunarskriðan fór af stað. 2.4.2008 10:07
Útgjöld til heilbrigðismála þrefaldast á aldarfjórðungi Heildarútgjöld til heilbrigðismála hafa vaxið verulega síðasta aldarfjórðung eða úr ríflega 6,4 prósentum af landsframleiðslu í upphafi níunda áratugarins í um 9,2 prósent af landsframleiðslu á síðasta ári. 2.4.2008 09:06
Hafnarfjarðarvegur lokaður við lækinn í Kópavogi Vörubílstjórar hafa haldið skærum sínum áfram í morgun. Þeir lokuðu Hafnarfjarðarveginum við lækinn í Kópavogi og miklar tafir hafa skapist hjá fólki sem var á leið í vinnu úr Hafnarfirði og Garðabæ. 2.4.2008 08:59
Enn óvissa um framtíð Jóhanns lögreglustjóra Heimildir Vísis herma að enn ríki fullkomin óvissa um framtíð Jóhanns R. Benediktssonar í embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum. Boðað hefur verið að lögreglu- og tollembættin verði skilin í sundur við litla hrifningu lögreglu- og tollgæslumanna á Suðurnesjum. 2.4.2008 08:49
DV gleypti við aprílgabbi Víkurfrétta Fréttamiðillinn Víkurfréttir bauð upp á aprílgabb í gær eins og aðrir fjölmiðlar. Þar á bæ kættust menn væntanlega þegar þeir opnuðu DV í morgun og sáu að blaðið hafði kokgleypt gabbið. 2.4.2008 08:35
Ók út á ísinn Nítján ára ökumaður slapp með skrekkinn þegar hann sofnaði undir stýri í gær og bíllinn hafnaðí út á ísilagðri Seljadalsá í Reykjadal, skammt frá Laugaskóla. 2.4.2008 08:29
Týndu töskurnar á Heathrow sendar til Ítalíu Vandræðin á nýju flugstöðinni á Heathrow flugvelli í London halda áfram. Gríðarlegar tafir urðu í flugstöðinni þegar hún opnaði á dögunum og týndust hvorki meira né minna en 28 þúsund töskur í flokkunarkerfi flugstöðvarinnar. 2.4.2008 08:27
Ránsfengurinn meiri en í fyrstu var talið Danska lögreglan gaf það út í morgun að ránsfengur ræningjanna sem rændu peningaflutningafyrirtæki í Glostrup í gærmorgun hafi verið meiri en í fyrstu var talið. 2.4.2008 08:25
Til hjálpar Betancourt Nicolas Sarkozy hefur skipað sérstaka sendinefnd sem ætlað er að fara inn í frumskóga Kólombíu til þess að veita Ingrid Betancourt læknishjálp. 2.4.2008 08:22
Mannréttindi eiga undir högg að sækja í Kína Ástand mannréttindamála í Kína fer nú versnandi í aðdraganda Ólympíuleikanna, segja mannréttindasamtök . 2.4.2008 08:21
Bush segir allt að vinna í Afganistan George Bush Bandaríkjaforseti kom til Búkarest í Rúmeníu í gær til þess að vera viðstaddur leiðtogafund NATO. Í ræðu sem hann hélt í morgun sagði hann að NATO yrði að leggja allt í sölurnar til að sigrast á Talibönum og meðlimum al Kaída í Afganistan, hvað sem það kostar. 2.4.2008 08:18
Lokuðu Reykjanesbraut fyrir fólki á leið í flug Margir tugir vörubíla lokuðu Reykjanesbraut í Kúagerði upp úr klukkan fimm í morgun og opnuðu ekki aftur fyrir umferð fyrr en um klukkan hálf sjö. 2.4.2008 06:50
Borgarstjórn skorar á Kristján Möller Á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í dag var samþykkt samhljóða tillaga um að skora á samgönguráðherra og formann samgöngunefndar Alþingis að þeir beiti sér fyrir því að Sundabraut verði lögð í göngum og verkhönnun verði hafin samhliða mati á umhverfisáhrifum til að flýta fyrir framgangi málsins. 1.4.2008 23:15
Stimpilgjöld af fyrstu íbúð afnumin 1. júlí Gert er ráð fyrir að ný lög um afnám stimpilgjalda af lánum vegna fyrstu íbúðakaupa taki gildi 1. júlí í sumar samkvæmt frumvarpi sem fjármálaráðherra lagði fram á Alþingi í dag. 1.4.2008 22:27
Segir Framsóknarflokkinn spilltan, ekki Óskar Í svari við fyrirspurn sem Óskar Bergssonar lagði fram við upphaf borgarstjórnarfundar í dag vegna ummæla sem höfð voru eftir Ólafi F. Magnússyni borgarstjóra í kvöldfréttum sjónvarps í gær um að Framsóknarflokkurinn hefði gengið erinda auðmanna og verktaka þegar hann var í meirihluta í borginni, sagði Ólafur að hann hefði átt við flokkinn sjálfan en ekki borgarfulltrúann Óskar Bergsson. 1.4.2008 21:31
Ríkisendurskoðun falið að gera úttekt á lögreglunni á Suðurnesjum Forsætisnefnd Alþingis samþykkti á fundi sínum í dag að fela Ríkisendurskoðun að gera úttekt á rekstri lögreglunnar á Suðurnesjum síðustu 16 mánuði. 1.4.2008 20:05
Lagði fram frumvarp um Landeyjarhöfn Samgönguráðherra lagði í dag fram frumvarp á Alþingi sem gerir ráð fyrir að byggð verði ferjuhöfn í Bakkafjöru á Landeyjum, en ætlunin er að ferja sigli á milli hafnarinnar og Eyja. 1.4.2008 22:37
Vill stofna átakshóp um bætta umgengni í borginni Málefni miðborgarinnar voru áberandi á borgarstjórnarfundi í dag. Þar kynnti borgarstjóri tillögu um stofnun átakshóps um bætta umgengni í borginni 1.4.2008 21:56
Gengið frá fiskveiðisamningi Íslendinga og Færeyinga Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Tórbjörn Jacobsen starfsbróðir hans í Færeyjum hittust í Þórshöfn í Færeyjum í dag til að ganga frá fiskveiðisamningi Íslendinga og Færeyinga. 1.4.2008 19:30
Evrópunefnd undirbýr ekki aðildarviðræður Evrópunefnd ríkisstjórnarinnar mun hvorki undirbúa aðildarumsókn að Evrópusambandinu né skilgreina samningsmarkmið Íslands, segir Illugi Gunnarsson, annar af formönnum nefndarinnar. 1.4.2008 19:08
Samgöngumiðstöðin mun minni en Leifsstöð Samgöngumiðstöðin í Vatnsmýri verður um 40% af upphaflegri stærð Leifsstöðvar þótt farþegafjöldi um Reykjavíkurflugvöll sé nú álíka mikill og var um Keflavíkurflugvöll þegar framkvæmdir hófust þar við flugstöðina fyrir 23 árum. 1.4.2008 19:04
Olíuhreinsistöð rúmast ekki innan losunarkvóta Losun olíuhreinsistöðvar á Vestfjörðum á gróðurhúsalofttegundum rúmast ekki innan losunarheimilda hér á landi samkvæmt skuldbindingum Íslands fyrir árin 2008-2010. 1.4.2008 17:53
Einkaþota ráðherra kostar sex milljónum meira en áætlunarflug Það kostar skattgreiðendur tæpum sex milljónum meira að ferja Geir H. Haarde, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og föruneyti þeirra á NATO-fund með einkaþotu en í almennu flugi. 1.4.2008 17:47
Lögregla birtir mynd af innbrotsþjófi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur birt mynd af öðrum mannanna sem grunaðir eru um að hafa brotist inn í verslun Hermanns Jónssonar úrsmiðs við Ingólfstorg í síðustu viku og stolið þaðan úrum. 1.4.2008 17:46
Tryggðu sér stórt lán með mjög lágu skuldatryggingaálagi Hafnarfjarðarbær hefur tryggt sér um það bil þriggja milljarða króna lán hjá írskum banka vegna framkvæmda í sveitarfélaginu sem er með 75 punkta skuldatrygginaálag á evrum og 85 punka álag á kanadadal. Það er margfalt minna en skuldatryggingaálag bankanna um þessar mundir. 1.4.2008 17:37
Jóhann vinnur að úrlausn vandamála með ráðuneyti Jóhann Benediktsson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, hefur ekki sagt upp starfi sínu hjá lögregluembættinu á Suðurnesjum og mun í nánu samráði við dómsmálaráðuneytið leiða embættið í því að vinna að úrlausn þeirra vandamála sem blasað hafa við. 1.4.2008 17:20
Vörubílstjórar láta til sín taka á Akureyri „Við keyrum nú bara allir í röð hérna um bæinn núna og þetta er svo löng röð sem lokar öllu sjálfkrafa,“ segir Ásmundur Stefánsson hjá Icefox á Akureyri. Vörubílstjórar fyrir norðan lögðu af stað í bíltúr um daginn fyrir stundu. 1.4.2008 16:50
Segir matvælaverð hjá sér hugsanlega tvöfaldast „Innflutningsaðilar geta illa staðið á móti þessum erlendu verðhækkunum sem eru að tröllríða heiminum,“ sagði Ólafur Johnson, framkvæmdastjóri Ó. Johnson & Kaaber. 1.4.2008 16:40
Vörubílstjórar hitta þingmenn við Austurvöll „Við vorum að tala við hann Grétar Mar þingmann. Hann sagði okkur bara að halda áfram og berjast þar til eitthvað verður gert,“ segir Páll Pálsson vörubílstjóri sem staddur er niður á Austurvelli en þar mótmæla jeppaeigendur og vörubílstjórar nú. 1.4.2008 16:35
Stöðvuðu umferð í skamman tíma á Miklubraut Sendibílstjórar lokuðu fyrir stundu gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar í annað sinn á innan við viku. 1.4.2008 16:32
Danska lögreglan hefur náð 8 tonnum af khat á árinu Það sem af er árinu hefur danska lögreglan og tollyfirvöld lagt hald á um 8 tonn af fíkniefninu khat. Efnið kemur frá Afríku og er sérstaklega vinsælt meðal Sómalíubúa í Danmörku. 1.4.2008 16:23
BHM vill nýja vegamálastjóraauglýsingu Vísi hefur borist eftirfarandi bréf Stefáns Aðalsteinssonar, framkvæmdastjóra Bandalags háskólamanna, til Kristjáns L. Möller samgönguráðherra: 1.4.2008 15:38
Börn fundu höfuð í plastpoka Börn sem voru að leik á strönd í Tayside í Skotlandi í dag fundu höfuð konu í plastpoka. Hönd konu fannst í næsta nágrenni. Lögreglan segir að tvær ungar systur hafi verið að leik á Arbroath strönd í Angus þegar þær fundu höfuðið. Þær sögðu móður sinni frá fundinum og hún hafði samband við lögregluna. 1.4.2008 15:26
Styttist í mótmæli á Austurvelli - bílstjórar safnast saman Mótmæli sem boðuð voru á Austurvelli í dag vegna hárra álaga á eldsneytisverð eru um það bil að hefjast. 1.4.2008 15:26
Vill bjóða vörubílstjórum í kaffi Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra segist hafa fylgst með mótmælum vörubílstjóra og vill helst að þeir kíki til sín í kaffi. Þetta kom fram í viðtali við Árna í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í gær. 1.4.2008 15:11
Boðar átak í verðkönnunum Á fundi sem viðskiptaráðherra og stjórnvöld boðuðu til í hádeginu í dag var gengið til samstarfs við Alþýðusamband íslands, Neytendasamtökin og Neytendastofu um að leita leiða til að vinna gegn verðhækkunum og draga úr þeirri verðlagsþróun sem nú stefnir í. 1.4.2008 15:06
Brown vill kosningaúrslit í Simbabve strax Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, krafðist þess í dag að úrslit forsetakosninga í Afríkuríkinu Simbabve yrðu gerð ljós hið fyrsta. 1.4.2008 14:56
Óttast ekki klíkustríð á Litla-Hrauni „Það er auðvitað kunningskapur á milli manna sem kannski koma inn og hafa lengi verið saman í afbrotum. En það er ekki þannig að hér séu einhver gengi,“ segir Margrét Frímannsdóttir, fangelsisstjóri á Litla-Hrauni. 1.4.2008 14:51
Segja ekki komin fram góð rök fyrir breytingu á Suðurnesjum Þrír þingmenn Samfylkingarinnar, þeir Lúðvík Bergvinsson, Árni Páll Árnason og Helgi Hjörvar, lýstu allir yfir efasemdum um fyrirhugaðar breytingar á embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum. Veigamikil rök þyrfti að breyta því sem gengi vel og slík rök væru ekki komin fram. 1.4.2008 14:37
Ál og kopar skotmörk innbrotsþjófa vegna hækkana Bandaríkjamenn verða um þessar mundir í auknum mæli vitni að innbrotum sem beinast að óhefðbundnum verðmætum. Koparrör hitaveitulagna og hvers kyns hlutir úr áli eru nýjustu skrautfjaðrirnar í þýfisflórunni samhliða mikilli hækkun á verði þessara málma í Bandaríkjunum og víðar. 1.4.2008 14:31
Óskar óskar eftir rökstuðningi borgarstjóra „Á þeim rúmu tveimur mánuðum frá því borgarstjórnarmeirihluti Ólafs F Magnússonar tók við völdum í Reykjavíkurborg hefur borgarstjóri nú í þrígang veist að Framsóknarflokknum og fulltrúa hans í borgarstjórn með þeim hætti að eftir hefur verið tekið,“segir í fyrirspurn Óskars Bergssonar borgarfulltrúa Framsóknarflokksins. 1.4.2008 14:27
Norðmenn mega hefja hrefnuveiðar við Jan-Mayen Í dag er heimilt að hefja hrefnuveiðar í Noregi og á Jan Mayensvæðinu. Leyft verður að veiða rúmlega 1.000 hrefnur á vertíðinni en litlar líkur eru taldar á að allur kvótinn náist í sumar. 1.4.2008 13:28
Elsta gullhálsmen Suður-Ameríku fundið Gullhálsmen sem fannst við vatnið Titicaca í suðurhluta Perú er hið elsta sem fundist hefur í Suður-Ameríku. Aldursgreining bendir til að hálsmenið sé um 4.000 ára gamalt. 1.4.2008 13:16
Geir og Ingibjörg Sólrún með einkaþotu á NATO-fund Íslenska sendinefndin sem fer á leiðtogafund NATO í Búkarest á morgun mun ferðast með einkaþotu til Rúmeníu frá Íslandi. Aðstoðarkona forsætisráðherra segir kostnaðarmuninn á ferðinni miðað við áætlunarflug óverulegan. Með vélinni fara þau Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra auk fylgdarliðs og blaðamanna. 1.4.2008 13:07