Óttast ekki klíkustríð á Litla-Hrauni 1. apríl 2008 14:51 Margrét Frímannsdóttir, fangelsisstjóri á Litla-Hrauni. MYND/GVA „
Það er auðvitað kunningskapur á milli manna sem kannski koma inn og hafa lengi verið saman í afbrotum. En það er ekki þannig að hér séu einhver gengi,“ segir Margrét Frímannsdóttir, fangelsisstjóri á Litla-Hrauni. Fangi var stunginn með útskurðarsporjárni á föstudaginn í verslun í fangelsinu. Þá komu fjórir menn inn þar sem þrír voru að versla og stungu einn fangann. Í kjölfarið hafa komið upp sögur að innan veggja Litla-Hrauns séu að myndast klíkur. Margrét segist hins vegar ekki óttast að einhvers konar gengi séu að myndast innan veggja fangelsins og starfsfólk sem er inn á deildum hafi ekki orðið vart við það. Hún segir að auðvitað séu erjur og skot á milli deilda enda sé þetta harður heimur. „Það hefur samt gengið mjög vel hjá okkur og hér er góður andi. Margir eru að taka sig á varðandi fíkniefnaneyslu og hér eru þrjár deildir sem hafa alveg haldlið sig frá fíkniefnum," segir Margrét og nefnir að yfir helmingur fanga á Litla-Hrauni vilji halda sig frá fíkniefnum. Ekki liggur fyrir nein játning í málinu en lögreglan á Selfossi sér um rannsókn málsins. Aðspurð hvernig fangar geti orðið sér úti um útskurðarsporjárn innan veggja Litla-Hrauns segir Margrét að trésmíðaverkstæði sé í fangelsinu. „Þar er heilmikið af verkfærum sem fara reyndar í merkta skápa á kvöldin. Þetta gerist hins vegar um miðjan dag en það er hér eins og annars staðar að á einhverjum tímapunkti er hægt að bera verkfæri á milli húsa," segir Margrét. Nú hafa verið settar reglur um að öll verkfæri séu númeruð og vinnustaðir séu ekki yfirgefnir á kvöldin fyrr en allt er komið á sinn stað.
Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Innlent Allt að átján stiga hiti í dag Veður „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Sjá meira