Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sautján ára dæmdur fyrir tölvu- og bílstuld Sautján ára piltur var í Héraðsdómi Suðurlands dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa stolið bæði tölvum og bíl. 31.3.2008 13:34
Slasaðist illa við jarðboranavinnu Maður slasaðit illa á andliti er hann var við vinnu sína við jarðboranir á Hellisheiði síðastliðinn miðvikudag. 31.3.2008 12:52
Kappaksturshetjur létust í flugslysi Bresku kappaksturshetjurnar David Leslis og Richard Lloyd eru meðal þeirra sem létust þegar einkaflugvél fórst í íbúðarhverfi í Kent í gær. Vélin sendi út neyðarkall skömmu eftir flugtak frá Farnborough flugvelli og hrapaði á íbúðarhús í þéttri byggð. Þriðji maðurinn sem nafngreindur hefur verið er flugmaðurinn Mike Roberts. 31.3.2008 12:47
Fangi stunginn með útskurðarsporjárni í rassinn Lögreglan á Selfossi rannsakar nú hver stakk fanga á Litla-Hrauni í rasskinnina með útskurðarsporjárni á föstudag. 31.3.2008 12:44
Alþingi kemur saman í dag eftir páskafrí Alþingi kemur saman í dag að loknu páskaleyfi. Á dagskrá er meðal annars utandagskrárumræða um ástand efnahagsmála að beiðni Guðna Ágústssonar formanns Framsóknarflokksins. 31.3.2008 12:39
Rafmagnslaust í allt að fjórar klukkustundir í Mosfellsbæ og víðar Rafmagnslaust varð í öllum Mosfellsbæ, Kjalarnesi og hluta Grafarvogs í Reykjavík um hálfeittleytið. Í tilkynningu frá Orkuveitunni kemur fram að verið sé að leita orsakanna, en þrjár aðveitustöðvar eru spennulausar. 31.3.2008 12:36
Bíða eftir því að FARC láti Betancourt lausa Flugvél og læknar eru í viðbragðsstöðu ákveði FARC-skæruliðar að láta fransk-kólumbíska forsetaframbjóðandann Ingrid Betancourt lausa úr sex ára gíslingu. Hún er sögð alvarlega veik. Eiginmaður óttast að hún sé við dauðans dyr eða jafnvel látin. 31.3.2008 12:24
Gríðarlegar umferðartafir í mótmælum vörubílstjóra í morgun Gríðarlegar umferðartafir urðu í morgun þegar vörubílstjórar lokuðu Ártúnsbrekku í báðar áttir og sömuleiðis Reykjanesbraut í Kúagerði til að mótmæla mikilli gjaldtöku ríkissjóðs af olíu og bensíni. 31.3.2008 12:14
Fyrsti áfangi samgöngumiðstöðvar verði tilbúinn í lok næsta árs Ólafur F. Magnússon borgarstjóri vonast til þess að fyrsti hluti samgöngumiðstöðvar á Reykjavíkurflugvelli verði tilbúinn í lok næsta árs. Hann situr nú á fundi með Kristjáni Möller samgönguráðherra um málið. 31.3.2008 12:07
Þjófur dvaldi í sumarbústað í tvo daga Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í átta mánaða fangelsi, þar af fimm skilorðsbundna, fyrir þjófnað og húsbrot. 31.3.2008 11:55
Íhugar bann á tyrkneskum stjórnmálaflokki Stjórnlagadómstóll í Tyrklandi íhugar nú að taka fyrir mál sem miðar að því að banna stjórnarflokk landsins, AK flokkinn. Saksóknari hefur farið fram á að flokkurinn verði lagður af vegna afstöðu og aðgerða gegn verlaldlegum sjónarmiðum. Hann vill einnig að tugum meðlima flokksins, þar á meðal forsætisráðherranum og forsetanum, verði bannað að taka þátt í stjórnmálum. 31.3.2008 11:42
Blóðbankann þyrstir eftir páskafrí Blóðbankinn óskar nú eftir gjöfulum Íslendingum til að láta blóð sitt af hendi eftir páskafríið en löng frí segja strax til sín í blóðbúskap þjóðarinnar. 31.3.2008 11:27
Ræðir um loftlagsmál og öryggisógnir í New York Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flytur á morgun fyrirlestur um loftslagsbreytingar og nýjar öryggisógnir á vegum Carnegie Council í New York. Þá mun forsetinn einnig funda með fjölmörgum sendiherrum hjá Sameinuðu þjóðunum þar sem fjallað verður um framboð Íslands til Öryggisráðsins. 31.3.2008 11:14
Philip prins lét ekki myrða Díönu Engin sönnunargögn benda til þess að Philip drottningarmaður hafi fyrirskipað að Díana prinsessa og Dodi Fayed ástmaður hennar yrðu myrt. Þetta kom fram í samantekt Scott Baker lávarðs sem fer fyrir réttarrannsókninni á dauða prinsessunnar í London. 31.3.2008 11:04
Mynd Wilders mótmælt í hinum íslamska heimi Nokkrir tugir manna komu saman við hollenska sendiráðið í Djakarta í Indónesíu í morgun til þess að mótmæla nýbirtri stuttmynd hollenska stjórnmálamannsins Geerts Wilders um Kóraninn. 31.3.2008 10:49
Kúbverjar mega dvelja á ferðamannahótelum á Kúbu Stjórnvöld á Kúbu hafa ákveðið að heimila Kúbverjum að dvelja á hótelum á eyjunni sem ferðamenn hafa eingöngu fengið að dvelja á hingað til. 31.3.2008 10:29
Ófærð á Vestfjörðum Ófært er á Vestfjörðum samkvæmt Vegagerðinni og biðstaða vegna veðurs á Klettshálsi og Steingrímsfjarðarheiði. Þá er verið að hreinsa þæfing af Kleifaheiði og enn fremur er þæfingur í Djúpinu. 31.3.2008 09:28
Vöruskiptahallinn eykst á milli ára Vöruskipti við útlönd reyndust neikvæð um 22 milljarða króna fyrstu tvo mánuði ársins samkvæmt tölum Hagstofunnar. 31.3.2008 09:20
Mikil snjókoma í Eyjum Mikil snjókoma er nú í Vestmannaeyjum. Að sögn lögreglu er um „fínasta jólasnjó" að ræða. Um tveggja stiga hiti er nú í Eyjum og því er slabbið mikið á götunum en þessi óvenjumikla snjókoma hefur þó ekki orsakað nein vandræði í bænum. 31.3.2008 08:43
Kalli Bjarni aftur handtekinn - nú með amfetamín Idol-stjarnan fyrrverandi Kalli Bjarni, eða Karl Bjarni Guðmundsson, var handtekinn á föstudag með 70 grömm af amfetamíni í fórum sínum. Jafnframt var ung vinkona hans tekin en þau voru saman á hóteli í Reykjavík. 31.3.2008 08:39
Kröfur um að Max Mosley segir af sér í Formúlu 1 Max Mosley forstjóri Formúlu eitt keppninnar liggur nú undir miklum þrýstingi um að segja af sér starfinu. 31.3.2008 08:26
Olympíueldurinn kominn til Kína Ólympíuleldurinn er kominn til Kína en hátíðleg athöfn var haldin af því tilefni í nótt að íslenskum tíma á torgi hins himneska friðar í Beijing. 31.3.2008 08:23
Aðgerðum bílstjóra lokið í bili Vörubílstjórar hafa aflétt lokunum í Ártúnsbrekkunni og á Reykjanesbrautinni og er umferð að komast í samt lag á ný. Sturla Jónsson, talsmaður bílstjóranna, sem með aðgerðum sínum mótmæla meðal annars háu eldsneytisverði var færður inn í lögreglubíl í morgun og segist hann hafa verið handtekinn. 31.3.2008 08:02
Þagnarskylda Guantanamo fanga runnin út Þagnaskylda sem lögð var á fyrsta og eina Guantanamo fangann sem dæmdur hefur verið fyrir hryðjuverk er runnin út. 31.3.2008 07:57
Níu manns létust í umferðarslysum í Danmörku Níu manns fórust í umferðarslysum í Danmörku um helgina sem fjölmiðlar segja þá blóðugustu í manna minnum í umferðinni. 31.3.2008 07:55
Fyrstu tölur í kosningunum í Zimbabwe birtar Kjörstjórn í Zimbabwe hefur birt fyrstu opinberu tölurnar úr kosningunum sem fram fóru þar í landi á laugardag. 31.3.2008 07:54
Bush hafður að háði og spotti George Bush bandaríkjaforseti var hafður að háði og spotti er hann var fenginn til að hefja hornaboltatímabilið á National Ballpark í Washington í gærdag. 31.3.2008 07:52
Vörubílstjórar loka götum - talsmaður þeirra handtekinn Vörubifreiðastjórar hafa lokað Ártúnsbrekku til vesturs í aðgerð sambærilegri þeim sem viðhafðar voru síðastliðinn fimmtudag og föstudag. Þá hefur Reykjanesbrautinni verið lokað við Kúagerði. Ekki náðist í talsmann vörubílstjóranna, en hann hafði verið færður inn í lögreglubíl þegar í hann náðist og átti því erfitt með að ræða við fréttamann. Lögreglan segist gera ráð fyrir fleiri lokunum nú í morgunsárið. 31.3.2008 07:20
Vörubílstjórar halda áfram aðgerðum Vörubílstjórar ætla í dag að halda áfram mótmælum sínum gegn stjórnvöldum, fyrir hátt olíuverð. Þeir ætla að teppa umferð á fjölförnum umferðargötum og segja talsmenn vörubílstjóra að mótmælin verði mun umfangsmeiri en fyrir helgi. 31.3.2008 07:04
Eldur í snjóplógi Eldur kviknaði í snjóplógi , þegar hann var að ryðja veginn um Fjarðarheiði í gær. Ökumaðurinn gat ekki slökkt eldinn sjálfur, þrátt fyrir tilraunir til þess með handslökkvitæki, kallaði á slökkvilið sem slökkti eldinn. 31.3.2008 06:54
Mikill snjór á Akureyri Töluvert snjóaði enn á Akureyri í nótt, eftir að þar fór að snjóa í fyrrakvöld, og eru snjóruðningstæki nú að hreinsa götur bæjarins. Þónokkkur umferðaróhöpp urðu í bænum í gær vegna þæfings og hálku. 31.3.2008 06:52
Alvarlega slasaður sjómaður fluttur í land með þyrlu Sjómaður slasaðist alvarlega um borð í íslenskum togara á Selvogsbanka undir kvöld í gærkvöldi þegar eitthvað fór úrskeiis og hann fékk mikið högg á kviðinn. Við það hlaut hann innvortis blæðingar. 31.3.2008 06:48
Annar hver kennari fórnarlamb ofbeldis í Kaupmannahöfn Ofbeldi og hótanir um slíkt í garð grunnskólakennara í Kaupmannahöfn eru vaxandi vandamál og nú er svo komið að annar hver kennari verður fyrir barðinu á slíku. 31.3.2008 06:22
Jón Baldvin vill nýja áhöfn í Seðlabankann Jón Baldvin Hannibalsson segir að tími sé kominn til að setja nýja áhöfn við stjórn Seðlabankans. Þar eigi fagmenn að stjórna í brúnni en ekki fyrrum pólitíkusar. 30.3.2008 20:00
Ingibjörg vill breyta eftirlaunum fyrir þinglok Ingibjörg Sólrún Gísladóttir vill breyta eftirlaunum æðstu embættismanna fyrir þinglok. 30.3.2008 18:44
Guðni segir stjórnvöld hafa sofið á efnahagsverðinum Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, vill fella niður gjöld af eldsneyti og lækka matarskatt til að greiða niður verðbólguna. Hann segir stjórnvöld hafa sofið á efnahagsverðinum og óttast að almenningur bíði tjón af ef ekki verði gripið í taumana. 30.3.2008 19:30
Gagnrýni á borgaryfirvöld réttmæt en vandinn gamall Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir gagnrýni á borgaryfirvöld undanfarið vegna niðurníslu húsa í miðborginni að sumu leyti réttmæta en minnir á að vandinn sé ekki nýtilkominn. Hann segir eigendur húsanna ekki geta treyst því að borgaryfirvöld skeri þá niður úr snörunni með kaupum á húsunum 30.3.2008 19:30
Fjölmenni á málverkasýningu sem hvergi var auglýst Málverkasýning sem átti aðeins að vera uppi í gær í erfidrykkju Ólafar Pétursdóttur héraðsdómara, og hvergi var auglýst, dró að sér fjölmenni í Ráðhúsið í dag. Þar voru til sýnis myndir sem Ólöf málaði með munninum á síðustu mánuðum ævi sinnar eftir að hún féll af hestbaki og lamaðist fyrir átján mánuðum. 30.3.2008 19:30
Fullbókað á fundinn með Al Gore í Háskólabíó Fullbókað er á opinn fund um umhverfismál með Al Gore fyrrum varaforseta Bandaríkjanna í Háskólabíói þriðjudaginn 8. apríl næst komandi. 30.3.2008 17:04
Múslimar nú fjölmennari en kaþólikkar í heiminum Samkvæmt árbók Vatikansins fyrir 2008 sem var að koma út eru múslimar nú orðnir fjölmennari en kaþólikkar í heiminum. Samkvæmt bókinni eru 19,2% jarðarbúa múslimar á móti 17,4% kaþólikka. 30.3.2008 16:41
Lítil einkaþota hrapaði á tvö íbúðarhús í Kent Lítil einkaþota með fimm manns um borð hrapaði fyrir stundu á tvö íbúðarhús skammt frá Farnborough í Kent-héraði suður af Lundúnum. 30.3.2008 15:26
Snjóflóð lokar veginum um Ólafsfjarðarmúla Snjóflóð féll fyrr í dag á veginn um Ólafsfjarðarmúla, milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar, og er hann nú lokaður en verið er að moka leið í gegn. 30.3.2008 14:56
Ingibjörg vill skoða tollalækkanir á fugla-og svínakjöti Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar segir að hún telji rétt að skoða þann kost að lækka verulega tolla á innflutt matvæli sem ekki teljast til hefðbundins landbúnaðar, svo sem á fugla- og svínakjöti. Það snertir hag bænda ekki nema óbeint en hefði veruleg áhrif á hag neytenda. 30.3.2008 13:29
Þingmaður sakar bankana um siðleysi Atli Gíslason þingmaður VG sakar bankana um að hafa sýnt siðleysi. Þeir hafi hamstrað á gjaldeyrismarkaði til að vinna upp tapið á hlutabrefamarkaðinum. 30.3.2008 13:02
Nafn mannsins sem fórst í gærkvöldi Nafn mannsins sem fórst í vélsleðaslysinu í gærkvöldi var Birgir Vilhjálmsson Reynivöllum 12 á Egilsstöðum, fæddur 1. mars 1960. Hann lætur eftir sig eiginkonu og fjögur uppkomin börn. 30.3.2008 18:55