Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Leynd yfir heimsókn utanríkisráðherra til Afghanistan Utanríkisráðherra heldur ásamt fylgdarliði sínu til Afganistan á morgun. Mikil leynd hvílir yfir ferðum ráðherra á meðan ferðinni stendur og mun fimm manna lögreglulið úr sérsveit ríkislögreglustjóra sjá um að tryggja öryggi sendinefndarinnar. 15.3.2008 12:47
Ólöglegt niðurhal kemur tón-og textahöfundum í uppnám Ólöglegt niðurhal af netinu hefur sett tónlistargeirann í uppnám, að mati formanns Félags tónskálda og textahöfunda, sem telur brýnt að foreldrar brýni fyrir börnum sínum að slíkt sé stuldur, rétt eins og að stela úr verslunum. 15.3.2008 12:44
Vaðlaheiðargöng gera Norðurland að einu atvinnusvæði Formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur segir að Vaðlaheiðargöng muni greiða fyrir álveri og gera Norðurland allt að einu atvinnusvæði. 15.3.2008 12:40
Ráðherra hrakti stjórnendur spítalans úr starfi Heilbrigðisráðherra hrakti lykilstjórnendur Landspítalans úr starfi til að koma einkavæðingaráformum sínum í framkvæmd. Þetta kemur fram í ályktun þingflokks vinstri grænna. Ráðherra hefur sýnt óeðlileg vinnubrögð og ljóta framkomu gagnvart virtum embættismanni að mati Valgerðar Sverrisdóttur. 15.3.2008 12:30
Harður árekstur við Súðarvog Harður árekstur varð nú réttt fyrir hádegi við Súðarvog og Sæbraut. Samkvæmt upplýsingum lögreglu voru lögreglubílar og sjúkralið send á vettvang. Óskað hefur veirð eftir aðstoð tækjabíls. Fólksbíll og jeppi lentu saman. Ökumaður fólksbílsins var fluttur á börum í sjúkrabíl og færður á slysadeild. Lögregla er á staðnum og yfirheyrir vitni. 15.3.2008 12:19
Erfitt að meta hvort krónan haldi áfram að veikjast Sérfræðingar segja erfitt að segja til um hvort gengi krónunnar haldi áfram að veikjast eftir helgi en krónan hefur ekki verið veikari í sex ár. 15.3.2008 12:15
Telur ákvörðun um framkvæmdir í Helguvík sérkennilegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir ákvörðun Norðuráls að hefja framkvæmdir við álver í Helguvík sérkennilega. Hún segir það sérstakt þegar ríkið og sveitarfélög ganga ekki í takt í svo veigamiklu máli. 15.3.2008 12:10
Kappakstur á Granda - tvö ungmenni misstu prófið Tvö ungmenni voru svipt ökuréttindum á staðnum í gær og í nótt eftir að hafa mælst á hundrað og tíu kílómetra hraða á Grandanum í Reykjavík. Annað þeirra var í kappakstri við aðra bifreið. 15.3.2008 12:03
Beinafundur skelfir foreldra Madeleine Foreldrar Madeleine McCann gengu í gegnum enn eina kvölina í gær þegar þeim var tilkynnt að kafarar hefðu fundið poka með beinum í uppistöðulóni. Kafararnir voru á vegum portúgalsks lögmanns sem segist hafa upplýsingar úr undirheimum um að Madeleine hafi verið myrt og henni hent í risastórt uppistöðulón. 15.3.2008 11:22
Skýjakljúfar skemmast í óveðri í Georgíu Mikið óveður gengur nú yfir borgina Atlanta í Georgíu í Bandaríkjunum. Háhýsi hafa meðal annars skemmst sem og hótel og tvö í þróttamannvirki. 15.3.2008 10:38
Loðna veiddist í gær Þrátt fyrir að sjómenn hafi nánast verið búnir að afskrifa að meira veiddist af loðnu á þessari vertíð fannst loðna austan við Vestmannaeyjar seinnipartinn í gær. Sturla Þórðarson skipstjóri á Berki NK hefur verið á veiðum frá í fyrradag eftir að báturinn landaði í Helguvík. Hann segir að veiðin í gær hafi verið lítil og ekkert hafi veiðst í dag. 15.3.2008 10:33
Átök geisa í Tíbet Enn er barist á götum úti í borginni Lhasa í Tíbet og eru 10 sagðir látnir eftir átök gærdagsins. Stjórnvöld hafa gefið mótmælendum frest fram á mánudag til að hætta mótmælum. 15.3.2008 10:22
Viðamikil snjóflóðaæfing björgunarsveita Viðamikil björgunaræfing fer fram ofan Sandskeiðs í dag og verða meðal annars tvær þyrlur á æfingunni, sem hefst upp úr klukkan tíu og stendur fram til klukkan tvö. Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Landhelgisgæslan og greiningasveit Landspítala háskólasjúkrahúss æfa viðbrögð við snjóflóði og verður notast við búnað sem sérhannaður er til snjóflóðaleitar úr þyrlum en Landsbjörg færði Landhelgisgæslunni slíkan búnað að gjöf fyrir skömmu. 15.3.2008 10:13
Ekki á leið á Landspítalann Ásdís Halla Bragadóttir, fyrrverandi bæjarstjóri í Garðabæ og fyrrverandi forstjóri Byko, þvertekur fyrir það að hún muni taka við starfi forstjóra Landspítalans. Eins og Fréttablaðið greinir frá í morgun hefur nafn Ásdísar Höllu ítrekað verið nefnt innan spítalans í umræðum um hver næsti stjórnandi spítalans verði. Þegar blaðamaður Vísis náði tali af henni í gærmorgun sagði slíkar vangaveltur ekki á rökum reistar. 15.3.2008 09:53
Flest skíðasvæði opin í dag Öll helstu skíðasvæði landsins eru opin í dag. Í Bláfjöllum og Skálafelli verður opið til klukkan sex en þar er um þriggja stiga frost og aðstæður til skíðaiðkunar með besta móti. 15.3.2008 09:50
Sveitarfélög á Suðurnesjum hafa áhyggjur af málum lögreglunnar Stjórn Samands sveitarfélaga á Suðurnesjum hefur bæst í hóp fjölmargra aðila á Suðurnesjum sem lýsa yfir þungum áhyggjum vegna fjárhagsvanda sem blasir við embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum. 14.3.2008 19:58
Magnús fer vegna samskiptaörðugleika Samstarfsörðugleikar hafa verið á milli Magnúsar Péturssonar, fráfarandi forstjóra Landspítalans, og Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráðherra, samkvæmt heimildum Vísis. 14.3.2008 19:45
Neðanjarðarlest gæti kostað rúma 50 milljarða Neðanjarðarlestarkerfi í Reykjavík myndi kosta um það bil tvöfalt meira en fyrirhuguð Sundagöng eða rúma 50 milljarða króna. 14.3.2008 19:30
Útflutningsverðmæti sjávarafurða eykst Útflutningsverðmæti áls og sjávarafurða hefur aukist um allt að tuttugu milljarða vegna veikingar krónunnar. Hækkanir á erlendum mörkuðum auka verðmætið enn frekar. 14.3.2008 19:15
Krónan ekki veikari í fjölda ára Krónan hélt áfram að veikjast í dag og hefur hún ekki verið veikari í yfir sex ár. Verðhækkanir hellast yfir landsmenn með vorinu að óbreyttu. 14.3.2008 18:55
Forstjóri Landspítala lét ekki af störfum að eigin ósk Magnús Pétursson forstjóri Landspítalans lætur óvænt af störfum næstu mánaðamót. Samkvæmt heimildum Stöðvar 2 er það ekki að hans ósk. 14.3.2008 18:42
Norðurálsmenn halda áfram leikriti Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landverndar, segir forsvarsmenn Norðuráls hafa haldið áfram leikriti í morgun í tengslum við byggingu álvers í Helguvík til þess að láta líta svo út að þeir séu búnir að landa málinu. 14.3.2008 17:16
Dæmdur fyrir að hrinda manni þannig að hann handleggsbrotnaði Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir að að hafa hrint öðrum manni þannig að hann féll og handleggsbrotnaði. 14.3.2008 17:09
Komið í veg fyrir svifryksmengun með rykbindiefnum Svifryksmengun er undir heilsuverndarmörkum í dag þótt götur borgarinnar séu þurrar og veður stillt. Ástæðan er sú að í nótt og í morgun voru 290 km eknir til að dreifa 27 þúsund lítrum af rykbindiefnum á allar helstu umferðargötur í Reykjavík. 14.3.2008 17:05
Segist einungis hafa átt í steraviðskiptum við annan bróðurinn Annþór Kristján Karlsson sem sat í einangrun vegna svokallaðs UPS smyglmáls neitar að hafa komið nálægt innflutningi á fíkniefnunum. Samkvæmt heimildum Vísis segist hann við yfirheyrslur einungis hafa átt í steraviðskiptum við annan bróðurinn sem handtekinn var vegna málsins. 14.3.2008 16:17
Þýsk lögregla skaut bandarískan hermann Lögregla í Berlín skaut bandarískan hermann til bana í nótt eftir eltingaleik þar sem meðal annars var beitt þyrlu með nætursjónauka. Hermaðurinn, sem vopnaður var M4-herriffli, hafði kærustu sína í haldi á heimili hennar, batt hana þar og hafði uppi ógnandi tilburði. 14.3.2008 15:58
Fangaflugvél lenti í Keflavík í hádeginu Tveggja hreyfla vél í eigu fyrirtækisins Aviation Specialities lenti á Keflavíkurflugvelli í hádeginu í dag. Aviation Specialities er skúffufyrirtæki í eigu CIA sem grunað hefur verið um að notað í fangaflug. 14.3.2008 15:09
Shannon fundin eftir 24 daga leit Shannon Matthews, níu ára gömul skólastelpa frá Dewsbury í Yorkshire á Englandi er fundin, heil á húfi. Shannon hefur verið týnd í tuttugu og fjóra daga en síðast spurðist til hennar þegar hún var á leið heim úr skólanum. 14.3.2008 15:08
Kósóvó-Serbar lögðu undir sig dómhús SÞ Hundruð Kósóvó-Serba réðust inn í dómhús Sameinuðu þjóðanna í bænum Mitrovica í norðurhluta Kósóvó í dag og reistu þar við hún þjóðfána Serbíu í stað fána SÞ sem áður blakti þar. Samningamenn SÞ eiga nú í viðræðum við innrásarhópinn sem náði húsinu á sitt vald og stökkti varðmönnum SÞ á flótta. 14.3.2008 14:38
Vísbendingar um minni athygli ökumanna við stýrið Gatnamót Grensásvegar og Miklubrautar voru tjónamestu gatnamót landsins í fyrra samkvæmt samantekt Forvarnahúss Sjóvar. Þar urðu 58 bótaskyld tjón og þar slösuðust 16 manns og nam tjónið 95 milljónum króna. 14.3.2008 14:20
Skorað á Kínverja að sleppa mótmælendum úr haldi Evrópusambandið skorar á Kínverja að sýna stillingu í Tíbet í kjölfar ofbeldisöldu sem gengið hefur yfir Lhasa, höfuðborg Tíbets í dag. Kínverjar hafa tekið hart á mótmælendum sem krefjast sjálfstæðis. 14.3.2008 14:05
Póstmenn samþykkja kjarasamning Póstmannafélag Íslands samþykkti kjarasamning félagsins við Íslandspóst með rúmum 76 prósentum atkvæða þeirra sem greiddu atkvæði. 14.3.2008 14:04
Harma að framkvæmdastjóri þjóðgarðs verði í Reykjavík Bæjarstjórn Hornafjarðar harmar þá ákvörðun yfirstjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs að nýráðinn framkvæmdastjóri yfirstjórnarinnar verði með starfstöð í Reykjavík. 14.3.2008 13:55
Fjögur hundruð kengúrur drepnar til að forðast gróðureyðingu Dýraverndunarsinnar í Ástralíu eru æfir eftir að ríkisstjórnin þar í landi ákvað að fella 400 kengúrur í kringum höfuðborgina Canberra til að koma í veg fyrir gróðureyðingu. 14.3.2008 13:42
Geitungar í Kópavogi boða vorið Heiðlóan á undir högg að sækja í samkeppni sinni við aðra íslenska vorboða en geitungar eru löngu orðnir fastur liður hér á landi með hækkandi sól. Nokkrir smiðir sem vinna að viðhaldi gamals húss við Þinghólsbraut í Kópavogi töldu sig greina vor í nánd þegar einn gulbröndóttur í stærri kantinum birtist á vinnupallinum hjá þeim nú í hádeginu. 14.3.2008 13:34
Segir Baugsmál hafa molnað í höndum skattayfirvalda „Þetta mál hefur molnað niður í höndum skattyfirvalda og núna þarf að endurgreiða okkur rúmlega 75 milljónir af þeim 142 sem okkur var gert að greiða. Þá spyr maður sig hvort ekki hafi verið full hátt reitt til höggs af þeirra hálfu?,“ segir Hreinn Loftsson stjórnarmaður í Baugi og lögmaður félagsins. 14.3.2008 13:34
Búið að gera við um helming Nissan Navara bíla Öryggisbúnaður í rúmlega tvö hundruð Nissan Navara pallbílum hér á landi hefur verið endurbættur eftir að bíllinn fékk falleinkunn í árekstraprófun. Í endurteknum prófunum eftir breytingar fær bíllinn hins vegar mun betri einkunn. 14.3.2008 13:12
Magnús Pétursson hættir sem forstjóri Landspítala Magnús Pétursson forstjóri Landspítalans hefur ákveðið að láta af störfum. Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu kemur fram að ákvörðun Magnúsar hafi verið tekin í samkomulagi við ráðherra. Anna Stefánsdóttir, framkvæmdarstjóri hjúkrunar, og Björn Zoëga, framkvæmdastjóri lækninga munu fylla skarð Magnúsar uns nýr forstjóri hefur verið ráðinn. 14.3.2008 13:05
Ný heilsugæslustöð rís í Árbæjarhverfi Smíði nýrrar heilsugæslustöðvar í Árbæjarhverfi í Reykjavík er hafin og stóð til að heilbrigðisráðherra skrifaði undir leigusamning um húsnæðið nú laust fyrir hádegi. 14.3.2008 13:04
Tæplega hundrað með salmonellu eða kampýlóbakter í fyrra Níutíu og þrír greindust með salmonellusýkingu hér á landi í fyrra samkvæmt upplýsingum frá sýkladeild Landspítalans. Aðeins16 þessara smita eru talin vera af innlendum uppruna. 14.3.2008 12:53
Dagur segir borgarstjóra hafa frestað tillögu frá meirihluta Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar segir að Ólafur F. Magnússon borgarstjóri hafi farið fram á frestun á sameiginlegri tillögu allra borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Tillagan gekk út á að kanna hagkvæmni þess og fýsileika að koma á lestarsamgöngum milli Keflavíkurflugvallar og miðborgar Reykjavíkur og léttlestakerfi í Reykjavík. 14.3.2008 12:52
Meiðyrðamáli dómara á hendur lögmanni vísað frá Ríkissaksóknari hefur vísað frá meiðyrðamáli sem dómari á Akureyri höfðaði gegn lögmanni eftir ummæli hans í fréttaviðtali við Stöð 2. 14.3.2008 12:43
Inflúensan sögð væg og seint á ferðinni Inflúensan hefur að því er virðist verið fremur væg það sem af þessum vetri og kom tiltölulega seint. Þetta kemur fram í nýjum Farsóttarfréttum Landslæknisembættisins. 14.3.2008 12:38
Óttast að loðnuvertíðinni sé lokið Sjómenn óttast að loðnuvertíðinni sé lokið. Ekkert hefur veiðst í tvo sólarhringa nema smávegis af hængi sem fer í bræðslu. 14.3.2008 12:31
Smíða kerskála um leið og samið verður við verktaka Fyrstu framkvæmdir vegna álvers við Helguvík á Reykjanesi hófust í morgun og hefst smíði kerskálanna strax og samið hefur verið við verktaka. 14.3.2008 12:15