Innlent

Geitungar í Kópavogi boða vorið

Þessi vorboði vekur ugg í brjósti sumra.
Þessi vorboði vekur ugg í brjósti sumra.

Heiðlóan á undir högg að sækja í samkeppni sinni við aðra íslenska vorboða en geitungar eru löngu orðnir fastur liður hér á landi með hækkandi sól. Nokkrir smiðir sem vinna að viðhaldi gamals húss við Þinghólsbraut í Kópavogi töldu sig greina vor í nánd þegar einn gulbröndóttur í stærri kantinum birtist á vinnupallinum hjá þeim nú í hádeginu.

„Hann er ósköp rólegur, liggur bara hérna undir plastflösku hjá okkur," sagði Ágúst Leifsson smiður þegar visir.is ræddi við hann. Ágúst bætti því við að greinilegt þætti að geitungurinn væri að vakna úr vetrardvala sínum því hann virtist slappur og lítt til stórræðanna. A.m.k. hefði hann ekki gert neina atlögu að þeim félögum heldur haldið sig til hlés að mestu.

 

 

Erling Ólafsson, skordýrafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, kvað þetta óvenjulegt en alls ekki óhugsandi, hér væri um að ræða drottningu en þær einar leggist í dvala að hausti og vakni á ný að vori til að halda áfram búskap sínum. „Þeir eiga ekki að koma svona snemma en það er alltaf einn og einn sem vaknar þegar fer að hlýna í veðri. Ég geri fastlega ráð fyrir að þetta sé holugeitungur og hans eina lífsvon er að leggjast í dvala aftur," sagði Erling.

Hann útskýrði enn fremur að þegar geitungadrottningar leggist í dvala að hausti séu þær tilbúnar að hefja vorverkin upp úr miðjum maí með því að fæða af sér vinnudýr. Þá fari lífsferli geitunganna almennt í gang með tilheyrandi búsmíðum og fólk fari að verða vart við þá í görðum og víðar. „Þeim sem svindla og vakna fyrr verður að jafnaði ekki kápan úr því klæðinu," sagði Erling að lokum og spáði drottningunni við Þinghólsbraut ekki langra lífdaga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×